Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1989, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1989, Qupperneq 10
10 FIMMTUD'AGUR-7. DESEMBER 1989. Útlönd M'rtterrand styður Evrópufund Mitterrand Frakklandsforseti ásamt Gorbatsjov Sovétforseta. Símamynd Reuter Mitterrand Frakklandsforseti lýsti stuðningi sínum við httgmyndir sov- éska forsetans, Mikhails Gorbatsjov, um að fyrirhuguðum fundi leiðtoga Evrópuríkja yrði flýtt um tvö ár og haldinn í Helsinki á næsta ári. Mítter- rand var í heimsókn 1 Sovétríkjunum. Sovétforsetinn kynnti þessa hugmynd sína þegar hann var í opinberri heimsókn á ftalíu um síðustu mánaðamót. Upprunalega átti leiðtogafund- ur þrjátíu og fimm Evrópuríkja - ffamhaldsfundur RÖSE, eða ráðstefnu um öryggi og samstarf í Evrópu - aö fera fram í Helsinki árið 1992 en sökum þeirra miklu breytinga sem átt hafa sér stað í Evrópu síðustu vikur og mánuði lagði Gorbatsjov til að honum yrði flýtt. Hrawi hótar að hætta Elias Hrawi, forseti Libanons, ásamt Rima Muawad, dóttur hins myrta forvera Hrawí, Rene Muawad. Hrawí hefur hótað að haetta takist honum ekki að koma Michef Aoun, hershöfðingja krisfinna, frá. Simamynd Reuter Elias Hrawi, forseti Líbanons, hefur hótað að víkja úr embætti takist honum ekki að koma Michel Aoun, yfirmanni um fimmtán þusund manna herliði kristinna, frá. Hrawi segir Aoun standa í vegi fyrir friði i Líbanon. Hrawi, sem tók við af Rene Muawad, sem var myrtur í síðasta mán- uöi, hefur ekki tekist að flytja inn í forsetahöllina þar sem Aoun hefur hana á valdi sínu. í máli forsetans kom fram að erlendir sáttasemjarar heföu lagt að honum að beita ekki valdi til að koma Aoun frá en áður hafði hann sagst mundu láta vopnin tala tækist honum ekki að koma Aoun frá á annan hátt. Forsetinn sagði nauðsyn að bregðast skjótt við, að öðrum kosti væri hætta á skiptíngu landsins. Taka viðvörunina alvariega Sænsk yfirvöld og bandaríska sendiráðið kváðust í gær taka alvarlega viðvörunina um sprengjutilræði í norrænni flugvél um jólaleytið en 21. desember verður kveðinn upp dómur í Stokkhólmi yfir Palestínumanni sem ákærður er fyrir hryðjuverk. Samkvæmt heimildarmönnum hefur starfsfólki á Arlandaflugvelli við Stokkhólm þegar verið fyrirskipað að herða eftirlit fram að 21. desember. Einn Palestínumannanna, sem komið hafa fyrir rétt í Stokkhólmi, er talinn eiga aðild að sprengjutilræðinu í desember í fyrra þegar bandarísk farþegaþota sprakk yfir bænum Lockerbie í Skotíandi. Sænsk blöð haía sagt aö verið geti að skoska lögreglanfarifram á framsal Palestínumanns- ins fyrir 21. desember ef svo skyldi fara að hann verði sýknaður. Ákær- andi hefúr krafist lífstíðarfangelsisdóms. skref ■ friðarátt Bandaríska ulannkisráðunevtið tiikynnti í gær að Egvptar heföu samþykkt fimm liða áætlun James Baker, utanríkisráöherra Banda- ríkjanna,'um frið í Miðausturlönd- um sem miðar að því að koma á beinum viðræðum milli ísraela og Palestínumanna um kosningar á herteknu svæðunum. Egyptar fengu samþykki Frels- issamtaka Palestínumanna, PLO, til þess að satnþykkja Bakeráætl- unina. ísraelar samþykktu áætlun- ina fyrir mánuði en settu skilyrði og það gera Egyptar einnig nú. Næsta skref verður því að reyna ----- ------, ..™ að ná samkomulagi á milli aðilanna Bandarikjanna. Simamynd Reuter umskilyrðin. Reuter DV Tékkóslóvakía: Adamec hótar aðsegjaafsér Forsætisráðherra Tékkóslóvakíu, Ladislav Adamec, hótaði að segja af sér embætti í gær ef ný ríkisstjórn hans nær ekki að ávinna sér traust almennings. Forsætisráðherrann hefur látið undan kröfum fulltrúa Vettvangs borgaranna, breiðfylking- ar stjórnarandstöðuhópa, og mun leggja fram nýjan ráðherralista í stað þeirrar ríkisstjórnar sem nú er við völd. Andófsmenn voru mótfallnir núverandi ríkisstjórn þar sem mikill meirihluti ráðherra er frá kommún- istaflokknum. Af tuttugu og einum ráðherra eru sextán þeirra kommún- istar. Fulltrúar stjórnarandstöðunnar hótuðu að efna til allsherjarverkfalls á mánudag nema forsætisráðherr- ann gerði viðamiklar breytingar á stjórn sinni. Að sögn Vaclav Havels, eins leiðtoga andófsmanna, mun Adamec leggja ráðherralista sinn fyrir stjórnarandstæðinga áður en hann gefur uppi hverjir eiga sæti í nýju stjórninni. Leiðtogar Vettvangs borgaranna ræddu við Karel Urbanek, leiðtoga kommúnista, í gær. Var það í fyrsta sinn sem Urbanek ræðir beint við Vaclav Havel, einn leiðtoga stjórnarandstæðinga í Tékkóslóvakíu, ásamt Karel Urbanek, leiðtoga kommúnista. Símamynd Reuter fulltrúa stjórnarandstöðunnar síðan harðlínumanninum Milos Jakes. hann tók við leiðtogaembættinu af Reuter Fjöldamorð í Montreal-háskóla: Fjórtán konur myrtar Aö minnsta kosti fjórtán ungar kon- háskóla, létust í gær þegar vopnaður ur, námsstúlkur við Montreal- maður gekk berserksgang í einni Slasaður námsmaður við Montreal-háskóla fær aðstoð eftir að vitskertur maður vopnaður riffli gekk berserksgang um byggingu verkfræðideildar skólans í gærkvöldi. Símamynd Reuter byggingu skólans og skaut að kon- um. Að sögn lögreglu slösuðus'f að minnsta kosti tólf aðrir nemendur. Maðurinn, sem var á þrítugsaldri, svipti sig lífi eftir fjöldamorðin. Að því er næst verður komist gekk maðurinn, vopnaður hálfsjálfvirkum riffli, inn í eina skólastofu á annarri hæö verkfræðideildar háskólans í gærvöldi, skipaði karlmönnunum í bekknum að yfirgefa stofuna og hóf skothríð á stúlkurnar. Að sögn sjón- arvotta hrópaði maðurinn slagorð gegn kvenfólki um leið og hann skaut. Einn pilturinn í bekknum sagði að maðurinn hafi skotið tvær stúlknanna og yfirgefið því næst stof- una. Að sögn annarra sjónarvotta fór maðurinn víöar um húsið og skaut að kvenfólki. Maðurinn hóf skothríðina í skóla- stofunni en gekk því næst berserks- gang í matstofu nemenda, tölvuher- bergi og á göngum skólans áöur en hann framdi sjálfsmorö. Talið er að hann hafi verið einn á ferð. Tólf fórn- arlambanna létust samstundis en tvö þeirra eftir að komið var með þau á SjÚkrahÚS. Reuter Kólumbía: Tugir létust í sprengjutilræði Björgunarmenn í Bogota í Kól- umbíu höfðu seint í gærkvöldi fundið þrjátíu og sjö lík í og umhverfis bygg- ingu leyniþjónustunnar þar sem gíf- urlega öflug sprengja sprakk í gær. Talið er að fórnarlömbin geti verið nær fimmtíu. Yfir sex hundruð manns særðust í sprengjutilræðinu. Um fimm hundruð kílóum af dína- míti hafði verið komið fyrir í vörubíl fyrir utan stöðvar leyniþjónustunnar og þegar sprengjan sprakk hrundi einn útveggur hússins. Miklar skemmdir urðu á skrifstofunum í byggingunni og þakið rifnaöi. Embættismenn telja víst að eitur- lyfjasalar hafi staðið á bak við tilræð- ið og að þeir hafi beint því gegn Migu- Eiturlyfjasalar eru taldir standa á bak við sprengjutilræðið við höfuð- stöðvar leyniþjónustunnar í Bogota í Kólumbíu í gær. Simamynd Reuter el Maza Marquez, yfirmanni leyni- þjónustunnar. Lögreglan segir hann hafa komist af þar sem skrifstofa hans hafi verið brynvarin. Er þetta í annað sinn á sex mánuðum sem honum er sýnt banatilræði. Yfirvöld í Kólumbíu tilkynntu á þriðjudaginn að sprengja hefði grandað kólumbísku farþegaþotunni sem fórst í síðustu viku. Greinilegt þykir að eiturlyfjabaróninn Pablo Escobar hafi fyrirskipað sprengjutil- ræðið í flugvélinni eftir að hann komst að þvi að sérstök sveit væri á höttunum eftir honum. Escobar komst undan þegar skyndiárás var gerð á hýbýli hans fyrir skömmu. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.