Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1989, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1989, Page 12
12 FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 1989. Viðskipta- og hagfræðingar: Forðast þeir fyrir- tækjarekstur? Spumingin Sendirðu jólakort? Eygló Björnsdóttir: Já, til bekkjar- systkina minna. Berglind Björnsdóttir: Já, ég sendi jólakort til bekkjarfélaga minna. Sif Þórarinsdóttir: Ég gerði það fyrir tveimur árum að senda um 70 jóla- kort en er alveg hætt því núna. Erling Gígja: Nei, ég nenni ekki að skrifa á þau. Hjalti Sölvason: Nei, ég missti allan áhuga á jólakortum þegar ég seldi milh 200 og 300 kort í Versló. Baldvin hringdi: Mig langar til að koma á framfæri hjá ykkur stuttri sögu sem kunningi minn í viðskiptalífinu sagði mér og snerist um það hvers vegna við- skipta- og hagfræðingar forðast yfir- leitt bein afskipti af rekstri fyrir- tækja og setja ógjaman sjálíir upp fyrirtæki hér, en sækja þeim mun I.S. hringdi: Ég var staddur inni í Kringlu sl. laugardag. Þar var mikil ös og mikið :um að vera. Þama er útibú Pósts og síma. Margir sem þama vom staddir ætluðu að sinna sínum erindum við póstinn en þar var ekki hægt að kom- ast inn því allt var lokað. Ég hefði haldið að þarna hefði ver- ið kjörið tækifæri fyrir þessa nauð- synlegu þjónustu við almenning að hafa opið á laugardegi eins og aðrar verslanir til að geta létt undir með 1 fólki sem t.d. vildi senda póst sinn frá sér á þessum degi. - Það er einkenn- ilegt ef Póstur og sími sníður ekki af þennan agnúa sem flestir em sam- mála um að sé á þjónustunni einmitt nú fyrir jólin - og hefur opið á þeim tímum sem verslanir em opnar. fastar að ráða sig sem ráðgjafar eða markaðsmenn hjá fyrirtækjum - ekki síst hjá hinu opinbera. Kunningi minn, sem sjálfur er end- urskoðandi, sagði að ástæðan væri einfaldlega sú að þeir vissu manna best að fyrirtæki hér á landi eiga við margfalt erfiðari vandamál að glíma en sams konar fyrirtæki erlendis og Þaö er eðlilegt að samræma af- greiðslutíma pósthúsanna við þann afgreiðslutíma sem er hjá verslun- um, a.m.k. í jólamánuðinum, hvað sem líður reglum um vinnutíma op- það væri svo að segja borin von aö komast klakklaust frá rekstri þeirra. Átti hann þá við að fjármagnskostn- aður, skattaálögur hins opinbera og skyldur gagnvart starfsfólki í formi launatengdra gjalda, ásamt vinnu- svikum og árvissum verkfaUstíma- bilum gerði það að verkum aö þeir sem í upphafi reiknuðu dæmið til inberra starfsmanna. Hann getur varla verið svo heilagur hjá þeim fremur en öðrum sem starfa í þjón- ustugreinum. enda sæju ekki annað en glórulaust tap á öllu saman. Viðskiptafræðingar og endurskoð- endur fengju nóg af dæmum um allt þetta í námi sínu þegar þeir væru t.d. látnir gera upp gjaldþrota fyrir- tæki. Það væri þeim víti til vamað- ar. - Þeir væru hins vegar óðfúsir að gerast ráðgjafar og sinna bókhaldi í fyrirtækjum og gera sitt besta til að forða frá svipaðri reynslu og þeir hefðu kynnst í náminu. Kunningi minn sagði svo að lokum, að þeir einir gætu rekið fyrirtæki hér á landi sem hefði tekist að komast nokkurn veginn klakklaust gegnum rekstur ákveðið reynslutímabil, sem hann taldi vera 5-6 ár. Það væri reyndar reynslan ein sem sæi mönn- um fyrir menntun á þessu sviði. Hæfileikar og hyggjuvit yrði þó að vera til staðar í byrjun ásamt á- ngægju af að takast á við vandann. Þetta væri reynslan alls staðar. Miklu fleiri menn hefðu ílenst í fyrir- tækjarekstri sem hefðu byrjað svo að segja með tvær hendur tómar en þeir sem hefðu lagt upp með heil- mikla þekkingu á sviði markaðs- fræða og stjómunar. - Ég held að þetta eigi við hér á landi líka, þegar vel er að gáð. Kunningi minn vildi þó ekki úti- loka að góð þekking á endurskoðun og bóhaldsfrumskóginum væri mik- ill styrkur og menn úr þeim röðum hefðu vinninginn af þeim sem kæmu úr skólum viðskiptalífsins. Baráttan og þrautseigjan af reynslusviðinu væri þó það affararsælasta. Góð dagskrá á Aðalstöðinni Magnús Sigurðsson skrifar: Mig langar til að koma á fram- feri þakklæti til Aðalstöðvarinn- ar fyrir aldeilis ljómandi dagskrá flesta daga vikunnar, a.m.k. alla virka daga, en það eru þeir dagar sem ég hlusta mest á útvarp. Einnig á kvöldin er dagskráin prýðileg. Ég er hrifmn af hvað svona nýrri útvarpsstöð hefur tekist fljótt að festa sig í sessi og vona að stöðin haldi því striki 1 sem hún hefur siglt eftir hingað tUL Á morgnana er þessi þægilega tónlist ásamt fróðleiksmolum úr dagblöðunum skotið inn á milli, ekki bara í eina eða tvær mínútur og með einhverjum látum eins og gerist hjá rás 2, heldur allt í rólegheitunum og þaö fer vel í áheyrendur. Á kvöldin eru svo ágætir við- talsþættir sem eru bæði fróðlegir og talsvert nýmæli eins og t.d. þættimir um dulspeki, drauma og ýmis dulræn fræði sem ekki hefur verið mikið rætt hér opin- berlega. - En best er þó tónlist- arvalið, þetta millistig milli há- væru diskó- og rokklaganna og háklassískrar tónlistar. Þetta er það sem margir voru að vonast eftir að fá á einhvem Ijósvaka- miðilinn. Azvníl kennslubækur? Ásthildur skrifar: Kona ein lánaöi Azmíl- kennslubækur og spólur í ít- ölsku. Ég man ekki hveijum en þetta er merkt henni. - Nánari upplýsingar gef ég í síma 51525. Reynslan, ásamt meðfæddu hyggjuviti og hæfileikum stenst menntun í rekstri fyrirtækja ekki snúning - segir m.a. í bréfinu. „Atökin“ óþolandi M.G. skrifar: Herferðir og átök- era ofarlega á blaði hjá okkur allt árið um kring. Ef það era ekki byggingarátök era það þrýstihópar eða „góðgerðarfé- lög“ sem bókstaílega taka frá ein- hvern ákveðinn dag fyrir sig og til- einka hann baráttumáli sínu án þess að nokkur viti og ekki er sérs- taklega tilgreint á dagatölum að þetta félag „eigi“ daginn þann. Svona er þetta búið að ganga undanfarið og maður hefur ekki einu sinni frið fyrir þessum her- ferðum heima hjá sér, hvað þá ann- ars staðar, t.d. á götum úti eða við verslunarstaði og stórmarkaði. - Jafnvel Ríkisútvarpið er tekið her- skildi undir þessi átök strax i morg- unsárið og fólk „vakið til umhugs- unar“ - eins og það er svo ísmeygi- lega orðað - um vandamálið. I síðustu viku vaknaði maður við það einn morguninn, að kominn var „dagur alnæmisins" og þar var ekkert til sparað aö nýta sér tilef- nið. Þarna var komið með einn með alnæmi og viðtal á staðnum - rödd- in mátti aö vísu ekki þekkjast - og morgunútvarpsmenn kepptust við að fá allt út úr manninum með breyttu röddina um alnæmið. - Um kvöldið var svo fenginn annar maður í sjónvarpi (varla sá sami!) með alnæmi og sneri baki í áhorf- endur ol hann sagði sína sögu. Að lokum var svo greint frá því að um kvöldið yrði haldið áfram að kynna alnæmið á götum Reykja- víkur með því að fara og tala við unglingana er kvölda tæki, einkum fyrir utan skemmtistaðina. En nú eru að koma jól og ég vona, að maður fari að losna undan „átökunum" og herferðunum - líka frá sérsöfunuðunum Lions, Kiwan- is og öðram ímynduðum ljósberum eða merkjaberserkjum. Eina átakið sem ég vildi sjá þjóðina vera sam- taka um er að stefna að er átaka- laus, friðsöm og sparsöm jól, og að eyða engu í jólagjafir þetta árið. - Það gæti komið mörgum vel á ný- byijuðu ári. Þjónusta Pósts og síma: Ekki sambærileg við aðra „Eðlilegt að samræma afgreiðslutima pósthúsanna við þann sem er hjá verslunun, a.m.k. í jólamánuðinum".

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.