Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1989, Side 13
13
FIMMTUDAGUR 7. DESF.MBE'R 1989.
Samningar við Evropubandalagið:
Gagnkvæm atvinnuleyfi lokka
Haddi hringdi:
Við kunningjarnir höfum verið að
ræöa um þá kosti og galla sem við
íslendingar kunnum að hafa af þátt-
töku okkar í Evrópubandalaginu.
Margt er þar sem við sjáum gott og
sitthvað slæmt líka. Einkum sjáum
við fyrir okkur að með því að ganga
í bandalagið er þar með lokið yfirráð-
um okkar sjálfra yfir ýmsum stjórn-
unarþáttum sem við höfum haft veg
og vanda af hingað til, þótt segja
megi að „vegurinn" hafl ekki alltaf
verið mikill.
Við teljum t.d. að stjórn peninga-
kerfisins gæti varla verið verri en
hingað til, svo að við grétum nú ekki
þótt hún yrði sameinuð öðrum þátt-
tökuþjóðum og þar með yrði eitt sam-
eiginlegt myntkerfi. - Annað sem við
höfum velt fyrir okkur er hið sameig-
inlega atvinnusvæði ríkjanna, sem á
væntanlega að þýða það, að ekki
megi hindra sókn fólks í atvinnu
milli ríkjanna. Þetta teljum við vera
það atriðið sem hvað mest myndi
lokka okkur til þátttöku í bandalagi
með Evrópðuríkjunum.
Ég sé t.d. ekki hvernig það ætti að
vera nema til góðs, að við Islendingar
getum farið héðan og sótt um störf
hvar sem er í Evrópulöndunum. Ég
er ekki svo viss um að allíaf verði
um svo auðugan garð að gresja hér
á landi í þessu tilliti. Ef hins vegar
hér verður nóg atvinna og langt
umfram eftirspurn þá hlýtur okkur
að vera jafn kærkomið og hingað til
að fá erlent vinnuafl til landsins til
að anna eftirspurn. - Ég get ekki séð
að þessi þáttur sem varðar óskert
flæði atvinnutækifæra geti annað en
lofað góðu fyrir alla íslendinga. Við
höfum ekki af svo miklu að taka. Og
ekki þarf mikið til að allt leysist upp,
eins og nú gæti farið hér, ef hvorki
veiðist loðna né þorskur og enginn
vill lengur nýta vatnsfóll okkar sem
orkugjafa.
Strætisvagnar Rey kja víkur - Leið 16
Ein óánægð skrifar: eins og hinn vagninn gerir, þannig að þessu yrði breytt og að leið 16
Ég bý í Grandahverfinu og hér að stundum, þegar enginn er heima, gangi til Id. 1 eins og aðrir vagnar.
gengur strætó, leið 16. - Hún hættir þarf maður að ganga heim um kl. 12 Vonandi verður SVR við þessari bón
að aka kl. 18.30 og þá tekur leið 2 við. að kvöldi. okkar.
Sá vagn gengur ekki að Hagaskóla Ég og fleiri myndu gjarnan vilja
X
GÍlIgG
Þegar komið er inn úr kuldanum
Tilbúið þykkni í þennan vinsæla
vetrardrykk á norðlægum slóðum.
Óafeng glögg:
1 hluti glögg þykkni
2 hlutar vatn.
Aðferð: Hitið að suðu-
marki, blandið möndlum
og rúsínum í ef vill.
Berið fram heitt með
Fááls piparkökum.
Góða skemmtun
og gleðilega hátíð.
íslensk ÍÍHÍ
Ameríska
1 Ltr
0,7 L
0,35 L
Verið verðglögg!
FÉLAG RÆSTINGARSTJÓRA
heldur jólafund 8. desember kl. 20 í blómastofu
Sóknar, Skipholti 50.
Stjórnin
NYJUNG:
VINNUSTAÐANUDD
pm/
Hálsrígur?
Verkur í öxlum?
Þreyta s baki?
Við komum tíl þín
með stólinn okkar
og látum þér líða
vel.
Minnkum streitu
og þreytu.
Áukin snerpa
betri aíköst.
NUDDÞJONUSTAN S.F.
SKÚLAGÖTU 26 SÍMI 623224
Langholtskjör
Fiskbúrið
Langholtsvegi 174
Opið alla virka daga 9-20
laugardaga 10-16
Fiskur er okkar fag
Ávallt ný línuýsa
Heil ýsa.................. kr. 207 kg.
Ysuflök.......................kr. 380 kg.
Nætursöltuð ýsuflök.............kr. 385 kg.
Fiskfars........................kr. 395 kg.
Ýsuhakk.......................kr. 435 kg.
Saltfiskur................. kr. 420 kg.
Silungur........................kr. 550 kg.
Gellur..........................kr. 420 kg.
Kinnar......................kr. 220 kg.
Ýsa í raspi...................kr. 490 kg.
Lúða........................kr. 350 kg.
Gott úrval af nýlenduvörum
Sendum heim
yður að kostnaðarlausu
Sími 34320
Gerið verðsamanburð
- það borgar sig.