Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1989, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1989, Qupperneq 15
FIMMTlíÐAGtmiT: DESBMBEH1989: il Hong Kong í Keflavík í dag leitum viö að nýrri stöðu fyrir okkur í heimi viðskipta og peninga. Þetta gengur ekki of vel. Evrópubandalagið er enginn hjálp- ræðisher. Það er að komast inn í okkar haus. Þeir mæla flátt en hugsa eingöngu um þrönga sér- hagsmuni. - Raunar er þetta nýja stórveldi okkur framandi. Þarna er á ferðinni katólskt bandalag, enda kennt við Rómar- sáttmála. Það mun eiga auöveldara með að taka upp samstarf í austur, þar sem trúarbrögð eru þau sömu eða svipuð, heldur en að leggja lykkju á leið sína til að þóknast lútherskri smáþjóð á útskeri norð- ur í Atlantshafi. Refaræktun Við höfum hlaupið til og byrjað nýjar atvinnugreinar. Þar má nefna refarækt og fiskeldi. Allt gengur þetta þó með ósköpum og stór hluti þessara fyrirtækja er gjaldþrota. En hvað var gert rangt? Það gleymist að byggja fyrirtæk- in upp smátt og smátt. Svo skiljum við ekki enn verðtryggða peninga. Raunvextir voru hækkaðir of fljótt og of mikið en htil semengin aðlög- un gefin. Það gleymdist að sígandi lukka er best. Allt er gert í stökkum og hlutirnir annaðhvort í ökkla eða eyra. Evrópubandalagið í þessum ófórum okkar heyrast þær raddir að hest sé að ganga í Evrópubandalagið. Þá verði tollar í EB felldir niður, landbúnaður KjaUarinn Lúðvík Gizurarson hæstaréttarlögmaður okkar og fiskveiðar komist á opin- bera erlenda styrki frá EB o.s.frv. Það gleymist í þessu sambandi að erlendir aðilar kaupa hér allt upp á stuttum tíma með inngöngu okkar í EB. Einnig myndi erlent vinnuafl flæða hér inn. Þegar til lengri tíma er litið myndi þetta þýða algjör endalok okkar sem þjóðar. Við höfum staðið í stríði út af landhelgi okkar. Með inngöngu í EB kaupa erlendir aðila upp fisk- veiðifyrirtæki okkar og leggja þannig landhelgina undir sig. Þetta verður ekki gert með herskipum eins og reynt var fyrir nokkru, heldur með péningum þegar búið verður að opna fyrir óheft erlent fjármagn. Nýjar leiðir Sú spurning hlýtur að vakna hvort við höfum íhugað okkar mál sem þjóðar á nógu breiðum grund- velli. Við höfum t.d. ekki gert þá kröfu til Norðurlanda að þau fjár- festi hérlendis með skipulögðum hætti í samráði við okkur til að vega upp þann mikla halla sem er á viðskiptajöfnuði okkar viö þau. Við flytjum mikið inn frá þessum þjóðum en seljum þeim litiö. Ef Norðurlöndin fiárfesta hér á landi gætum við með sama hætti tekið þátt í atvinnurekstri á Grænlandi og í Færeyjum hlutfallslega. Á þessa leið hefur ekki reynt en hún gæti bjargað miklu fyrir okkur og væri ekki annað en réttmæt gagn- kvæmni í viöskiptum af hendi Norðurlanda. Hong Kong Eins og kunnugt er stendur til að Hong Kong komist fljótlega undir yfirráð Kínverja. Þetta hefur leitt til flótta fyrirtækja og einstaklinga frá Hong Kong. Hvernig væri að bjóða einhverjum slíkum fyrir- tækjum að setja sig niður við Kefla- vík og mynda þar fríhöfn eða fri- ríki? Svæðið hefur marga kosti. Flug- samgöngur eru góðar og mikið ör- yggi er hægt að bjóða á Islandi sem tekið hefur verið inn á pólitískt og hemaðarlegt verndarsvæði Banda- ríkjanna. Það er skárri kostur að setja upp friðland og fríhöfn fyrir Kínverja frá Hong Kong, heldur en liggja á maganum sem þjóö til að geta verið í sambýh við EB. Lokaorð Við lifum ekki sem sjálfstæð þjóð .íema vilja það sjálfir. Þeirrar hugsunar gætir oröið um of hjá okkur að gefast upp. Við verðum ekki lengi feitir af gjafasmöri frá EB. Það er ekkert ókeypis hjá EB heldur er allt á þeim bæ rukkað inn með vöxtum og vaxtavöxtum. Lúðvík Gizurarson „Við verðum ekki lengi feitir af gjafasmjöri frá EB,“ segir greinarhöfund- ur m.a. - Litið inn í eitt smjörfjalla Evrópu. ,,Þaö er skárri kostur að setja upp frið- land og fríhöfn fyrir Kínverja frá Hong Kong, heldur en liggja á maganum sem þjóð til að geta verið í sambýli við EB.“ Draumurinn um ríkisstjórnina Mig dreymdi skrýtinn draum eina nóttina. Ég vil ekki segja, að það hafi ver- ið í hkingu við martröð - og þó. Mér fannst ég vera á leiðinni inn í skóg. Þetta byrjaði rólega - elskulega - eins og í Vaglaskógi fyrir norðan í gamla daga. Ég þrammaði gegnum skóginn. Fuglar flugu yfir höfði manns. Sóhn skein og ég hugsaði: „Hvaöan komum við? Hvert förum við?“ Svo breyttist stemningin Það fóru að heyrast annarleg hljóð. Hvað var þetta? Skógurinn fór aht í einu að Ijókka. Hann varð slepjugur og ógeðslegur. Ekki er þetta góðs viti, hugsaði ég. Mér varð htið á trén í skóginum. Þau voru ekki eins og tré áttu að vera - heldur eitthvað allt annað - og þetta fór óneitanlega að minna á eitthvað, sem ég hafði séð í kvik- mynd. Nú var ég kominn að fljóti. Þarna á fljótsbakkanum voru einhveijar kynjaverur. Ég kannaðist einhvern veginn við þessar verur. - Svei mér ef þama var ekki öll íslenzka ríkis- stjómin, sem enn situr við völd, samankomin. Þarna var sá fiölmiðlaglaði, veizlugjöfuh (!) Jón Baldvin, sem einhver sagði, að gæti verið prent- viha af Dlafi við Faxafen, og þarna var sjálfur Qármálaráðherrann Ó. Grímsson (htt eða ekkert skyldur Kjallariim Steingrímur Th. Sigurðsson, listmálari og rithöfundur Jo Grimsson, segja vestfirzkir), sem ahtaf minnir á peysufatakonu með krullujárnsbylgjur í hári (ja, mikið fer hárið alltaf vel á piltin- um). Og svo voru alhr hinir,- að við- bættri Jóhönnu blessaðri, sem virðist ahtaf svo heiðarleg. Og þarna var hann nafni minn. Ég held alltaf svoldið upp á hann vegna nafnsins. Við heilsumst stundum í Austurstræti. Og mér finnst hann skemmtilegur eins og Hermann faðir hans. Þegar ég var blaðamaður á Tímanum fyrir rúm- um fiörtiu árum, þá féll það í hlut minn að hafa viðtal við Hermann - þetta var fyrsta verkefni mitt í blaðamennsku. Mér hefur því alltaf verið heldúr vel við Steingrím vegna föður hans. Nafni er vinsæll eins og allir vita (hins vegar ætla ég ekki að tala um vinsældir ríkis- stjórnarinnar) - en sem sagt. Áfram með smjörið Steingrímur var þarna með lax- veiðistöngina. Mér finnst hann ein- hvern veginh táknrænn, þessi veiðiskapur hans, því eitt sinn eða oftar hefur hann dottið á bólakaf ofan í góða laxveiðiá. Aht í einu heyrði ég flugvéladyn. Mér varð htið tíl himins. Og þarna var þá Ómar Ragnarsson á ferðinni í Dornier-rehunni sinni, sem hann nefnir Frúna - og nú renndi hann sér niður á jörðina ofan úr háloft- unum. Og rétt á eftir var hann mættur þama með míkrófóninn og byijaði að þýfga nafna um ástand- ið, sem hefur skapazt meðal þjóðar- innar og hér á ísa landi köldu. Kynjaverurnar á bakkanum urðu æ ferlegri ásýndum og nú voru þær alveg eins og maður sér í amerískum hrylhngsmyndum í Bíóborginni eða Bíóhölhnni. Ég furðaði mig á þessu og fór að hug- leiða, hvort þetta ættí rót sína að rekja tíl einhvers úr djúpum sálar - ef tíl viU þjóðarsálarinnar eins og hún er á vegi stödd um þessar mundir. Skyndhega skaU á þnunuveður með eldingum og fári og nú var eins og einhvér máttur - trúlega æðri máttur - hrinti þessum hryll- ingsverum með andlit íslenzku rík- isstjómarinnar beint ofan í fljótið. Og um leið breyttist veörið - og aUt tók á sig annan blæ. Þetta minntí ekki lengur á hrylhngskvik- myndir í Bíóhölhnni eða Bíóborg- inni og aUt var eðhlegt eins og af guði gjört - veðrið og umhverfið, og skógurinn var ekki lengur frum- skógur með skrímshsverum, held- ur eins og Vaglaskógurinn var fyr- ir norðan eða Grasagarðurinn eða Lystígarðurinn inni í Laugardal. Og þá vaknaði ég... Að Hæðardragi, Steingrímur St. Th. Sigurðsson „Eg kannaðist einhvern veginn við þessar verur. - Svei mér ef þarna var ekki öll íslenzka ríkisstjórnin, sem enn situr við völd, samankomin.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.