Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1989, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1989, Síða 26
'FMNmiOTAGUR V. ÍDESEMBBR 'Tðæ. ,P > Menning Meira í blíðu en stríðu Ég býst við að fleiri en ég hafi beðið með eftirvæntingu eftir endurminningum Guð- mundar J. Guðmundssonar, formanns Dags- brúnar, þegar það spurðist út að þeir Ómar Valdimarsson blaðamaður hefðu lagt saman um samsetningu slíkrar bókar. Á mörgum sviðum er Guðmundur J. orðinn þjóðsagna- persóna, auk þess sem hann er hafsjór af fróðleik um menn og málefni. Sennilega kann Guðmundur einhveija kímnisögu um hvem einasta mann sem hann hefur kynnst að ráði. Frásagnarhæfileiki Guðmundar er ein- stakur og í þessum endurminningum nær Ómar að skila honum vel á bók - oftast. Þeg- ar Guðmundur tekur flugið í frásögnum af skemmtilegu fólki standast honum fáir snún- ing. En hann getur verið ögn óskipulagður í frásögninni og þýtur oft fram og til baka um hálfa öld eða svo. Þessu bregður svolítið fyr- ir í bókinni en er þó varla til vansa. Óskólagengnir menntamenn Langbestu kaflarnir í bókinni eru einmitt sögur af ýmsum samferöamönnum. Hann bregður upp myndum af nokkrum eyrark- örlum sem hann kynntist um ævina og hafa haft mikil áhrif á hann. Þessir óskólagengnu menn voru margir hverjir hámenntaðir eftir sjálfsnám og það er afar fróðlegt að kynnast lífsspeki þeirra og viðhorfum. Sagan af sam- tali þeirra Óla Guðbrands götusópara og Lárusar Jóhannessonar hæstaréttarlög- manns við talningu í stjómarkjöri Dags- brúnar er hreint óborganleg. Þá er lýsing Guðmundar á Óskari Gunnlaugssyni hafnar- verkamannai, sem gerður var að heiðurs- félaga í Dagsbrún, stórmerkileg. Slík stór- menni munu hafa verið nokkur í hópi hafn- arverkamanna. Lítillæti En er þessi bók þá algóð? Svo tel ég ekki vera. Ef rita ætti ævisögu Guðmundar J. Guðmundsson þá væri þessi bók rétt rúm- lega inngangurinn. Bókin er ekki heilleg Guðmundur J. Guðmundsson. ævisaga Guðmundar fram til 1960, þegar henni lýkur skyndilega. Hún er fyrst og fremst minningarbrot héðan og þaöan úr æviferh hans. Guðmundur ítarlega frá hinu fræga desemberverkfalh 1952. Hann segir aftur á móti ekki jafnítarlega frá 6 vikna verkfallinu 1955, en hann var verkfahsstjóri Dagsbrúnar í báðum þessum höröu verk- fóhum. Mér þykir Guðmundur velja þá aðferð að standa til hhðar og segja frá eins og áhorf- andi. Þetta á bæði við þegar hann lýsir Verkamannafélaginu Dagsbrún og eins Sós- íahstaflokknum, sem hann starfaði í til margra ára. Þáttur Guðmundar í Dagsbrún er svo stór að hann getur ekki látið sem hann hafi verið þar einhver aukamaður. Hann lætur þá Sigurð Guðnason, Hannes Stephensen og Eðvarð Sigurðsson, formenn félagsins, eiga aht sviðið. Hann ber mikla virðingu fyrir þessum mönnum og lætur þá virðingu ganga út yfir eiginn þátt í félaginu. Varðandi starf sitt í Sósíahstaflokknum, Æskulýðsfylkingunni og fyrstu árin í Al- þýðubandaíaginu, verður hann einnig eins Bókmenntir Sigurdór Sigurdórsson: og áhorfandi. Sannleikurinn er hins vegar sá að Guðmundur J. er hvergi áhorfandi þar sem hann er í félagi eða flokki. Guðmundur var í hringiðunni miðri í þessum samtökum en ekki th hhðar. Þá vantar í bókina ár Guðmundar í borgar- stjóm, störf hans í Verkamannabústöðum og Breiðholtsbyggingunum. Að vísu er eitt- hvaö af þessu eftir 1960. Ómar Valdimarsson hefur sagt að hann hafi orðiö að skera svo mikið niður aö th sé efni í aðra bók. Það hlýtur hreinlega að vera og kæmi ekki á óvart þótt bækurnar yrðu tvær. Sögumaðurinn ræður ferðinni Sá sem ætlar að fræðast um ævisögu Guð- mundur J. frá fæðingu fram th ársins 1960 fær ekki nema brot af henni í þessari bók. En sá sem vhl kynnast hinum frábæra sögu- manni Guðmundi J. verður ekki fyrir von- brigðum. Og í hehd er bókin mjög skemmti- leg aflestrar. Margt fróðlegt kemur að sjálf- sögðu fram í þessari bók og alvaran er vissu- lega líka th staðar í bókinni. Ég bíð spenntur eftir næstu bók og sennilega verður þriðja bókin aö koma út th að ljúka að segja frá hfshlaupi Guðmundar J. Guðmundssonar. Ómar Valdimarsson: Jakinn i blíöu og stríðu Útg. Vaka-Helgafell. Ein er upp til fjalla Flesta daga ársins tekst okkur meðalheiöarlegu fólki að horfa fram þjá sálarstríði þeirra sem hafa farið hla út af sporinu og sitja nú í steininum vegna misgerða sinna. Okkur tekst líka bærhega að kom- ast af án þess að eiga mikið sam- neyti við þá sem bjóða sjálfa sig til sölu á hlemmum lífsins, fara í vasa fólks, hrifsa handtöskur af eldri konum, berja gamla menn og reyna að drepa sjálfa sig og aðra með eit- urlyfium. Við höfum bara verið svona í skólanum, fengið okkur vinnu og hoppað síðan út í skulda- súpuna þar sem við svömlum nú á meðan guð hækkar ekki vextina og drekkir okkur. Við höfum þá hversdaglegu aðferð að reyna að láta tölumar á launaseðlinum og visareikningnum stemma saman og ef það mistekst veljum við ekki þá leið úrbóta aö stela fyrir mis- muninum eða selja okkur th kyn- lífsbrúks fyrir aðra. Tregróf og raunveruleiki En ekki hún ísbjörg. Hún fer sín- ar eigin leiðir. Hún er hinum megin í lífinu og Vigdís Grímsdóttir hefur boðiö okkur að setjast niður í fangaklefa með henni viö hhö Pét- urs veijanda og hlusta á hana segja lífssögu sína í tólf stundir. Þama er nýr heimur fyrir okkur meðal- fólk, heimur sem hefur ekki veriö kortlagður í íslenskum skáldsög- um. Þaö er ekki gælt við lesanda með því að leyfa honum að upplifa sjálfan sig í gegnum persónur sög- unnar heldur er verið að sýna okk- ur það sem við þekkjum ekki fyrir og bæta þannig við reynsluna. Allt er nýtt og fáir fastir punktar sem lesendur geta haldið sér í. Ytri rammi sögunnar er líkur tre- Bókmermtir Gísli Sigurðsson grófum Eddukvæða þar sem kona rekur harmatölur lífs síns að lokn- um miklum tiðindum, yfirleitt fyrir einhvem áheyranda innan kvæðis- ins. Og þeir sem hluta á sögur um píshr annarra fá lausn eigin mála hkt og leséndur píslarsagna kristn- innar síðar. Með því að heyra um harðari harma annars fólks verða áhyggjur af mjólkurpeningum á morgun heldur líthmótlegar. Fangaklefi ísbjargar umlykur söguna og margt af því sem greint er frá gerist í falinni veröld, inni í afkimum þjóðfélagsins þar sem ljós almenns velsæmis skín sjaldnast. Viö sjáum það sem aldrei kemur fram og kynnumst konu sem fehur ekki að venjulegu munstri, bæði vegna reynslu sinnar og sérstæðs hugarflugs. ísbjörg lifir oft í heimi sögu og ímyndunar sem er þó hka raun- verulegur. „í huganum er hægt að lifa ríkulegu lífi en þar verður aldr- ei hægt aö snerta. Og það er bölvan- legt.“ (26). í þeim heimi býr galdur- inn líkt og undir söguteppinu sem ísbjörg bregður yfir sig og Vilhjálm frænda sinn þegar hún vhl breyta heiminum. Og á meðan sagan er sögö gerist enn ein sagan á milh sögumanns og áheyranda. Þannig er sagan sögð eftir á og verður jafn- vel að sögum um sögur í sögu. Hinn áþreifanlegi raunveruleiki er víða fiarlægur en raunveruleiki sög- unnar verður þeim mun sterkari. Sagan hefur mótast og orðið hst- form og líf í sjálfu sér. (Þótt það sé komið úr móð aö tala um kvenna- bókmenntir sakar ekki að nefna að ýmsir fræðimenn hafa bent á það sem kvenlegt einkenni að segja sög- ur eftir á og horfa út til atburða lífsins úr innhokuöum heimi.) Hvenær drýgir maöur glæp? í fyrstu er spurt hvort ísbjörg muni sek af þeim glæp sem kom henni í steininn. En sú spuming víkur þegar við heyrum af uppeldi hennar og samskiptum við þjóð- félagiö. Faðirinn Guðmundur drottnaöi yfir uppeldinu og boðaði tilfinningahörku en móðirin Þór- hildur Geirsdóttir berst áfram. „Hún var Þórhildur. Sú sem háði orrustur." (18). Úr veganesti þeirra moöar ísbjörg tilveru sína og þegar upp er staðið veit maður ekki hve- nær hinn eiginlegi glæpur var drýgður. Nafnið ísbjörg er hlaðið merk- ingu. ísinn er haröur og kaldur en endurspeglar þó aðeins það um- hverfi sem hann er í. Og vhji ísinn halda áfram að vera ís bjargar hann sér með því að vera þar sem er nógu kalt. Hann bráðnar og eyð- ist ef hann er fluttur í hlýjuna. ís- inn verður að vera „yh húsa fiær“ eins og ijúpan í ljóðinu sem Vh- hjálmur frændi rembist við að læra fyrir skólann. „Hann langar að stökkva inn í kvæðið og breyta endinum. Langar að snúa öllu viö. Og í lok sögu sitji þær saman konan og rjúpan yfir súkkulaðiboha og kvaki um himin og haf. En hann ULTRA GLOSS Okkar albesta vetrarbón! Þolirtjöruþvott! ESSO Utsölustaðlr: I StÖðVdmCir Olíufélagið hf. Vigdís Grímsdóttir. getur það ekki.“ (173). Eins er með Isbjörgu. Hún getur ekki komið inn i hlýjuna og tekið upp háttu fólks- ins þar. Hún verður að lifa og deyja með sínum hætti. Við breytum henni ekki og fellum aö okkar hversdagsmynstri. En við getum kannski reynt að skhja líf hennar úti í kuldanum. Ég heiti ísbjörg Ég er ljón er land- vinningur fyrir íslenska sagnalist. Ljóðrænn stíh og form sögunnar vinna með merkingu hennar og glímt er við vanda manneskjunnar af miklum hehindum. Hún er söng- ur „um lífið og th lífsins" (10) og dregur fram skýra andstæðu þess í réttlæti fangaklefans. Lífið getur verið htríkt og fuht af möguleikum en klefinn er kaldur, haröur og dimmur. í þessum andstæöum felst sannleikur sögunnar. Að vísu er tekið dæmi af stúlku sem er utan- garðs en hún snertir líf okkar hinna miklu víðar en við gerum okkur grein fyrir. Vigdís Grimsdóttir. Ég heitir isbjörg Ég er Ijón. Iðunn 1989.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.