Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1989, Page 28
92
FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 1989.
Andlát
Bjarni F. Halldórsson, fyrrverandi
skólastjóri, Háteigi 7, Keflavík, varö
bráðkvaddur á heimili sínu aö
morgni miðvikudagsins 6. desember.
- JHargrét Samúelsdóttir, Fossvogs-
bletti 13, lést á Droplaugarstöðum
aðfaranótt 6. desember.
Jarðarfarir
Sighvatur Sigurjónsson, Gnoðarvogi
40, sem lést á heimili sínu 1. desemb-
er, verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju fostudaginn 8. desember kl.
13.30.
Óskar Elías Björnsson, Faxastíg 5,
Vestmannaeyjum, sem andaðist í
sjúkrahúsi Vestmannaeyja 4. des-
-j*ember sl., verður jarðsunginn frá
Landakirkju, Vestmannaeyjum,
laugardaginn 9. desember kl. 14.
Jóhann Adólfsson, Klettahlíð 10,
Hveragerði, sem lést í Landspítalan-
um 1. desember, verður jarðsunginn
frá Fossvogskirkju föstudaginn 8.
desember kl. 15.
Ásta Ingibjörg Ásgrímsdóttir, Eini-
grund 3, Akranesi, sem lést 1. des-
ember, verður jarðsungin frá Akra-
neskirkju fóstudaginn 8. desember
kl. 11.
Anna Bergljót Böðvarsdóttir fyrr-
verandi stöðvarstjóri Pósts og sima,
Bjarkarlundi, Laugarvatni, verður
jarðsungin frá Skálholtskirkju laug-
ardaginn 9. desember kl. 13.30. Ferð
ffá BSÍ kl. 11.30.
Málfríður Jörgensen, Sörlaskjóli 66,
verður jarðsungin frá Fossvogskap-
ellu föstudaginn 8. desember kl. 15.
Kristín H. Guðmundsdóttir lést 29.
nóvember sl. Hún var fædd að
Lækjarósi í Dýrafirði 8. september
1902. Árið 1926 giftist hún Kristjáni
Sigurði Sigurðssyni, en hann lést
1956. Þau fluttu til Hafnarfjarðar og
bjuggu þar allan sinn búskap. Þeim
varð 5 bama auðið. Útfór Kristínar
verður gerð frá Hafnarfjarðarkirkju
J dag kl. 15.
Ti3kyimingar
Jólaráðstefna Skýrslu-
tæknifélags íslands
Skýrslutæknifélag íslands boðar til jóla-
ráðstefnu að Hótel Loftleiðum, Höfða,
fóstudaginn 8. desember kl. 13.15. Fyrsti
einmenningstölvudagur SÍ var haldinn
1987. Þróun einmenningstölva hefur ver-
ið nyög hröð á liðnum árum og því hafa
ET-dagar orðið árlegur viðburður í starf-
semi félagsins. Á síðasta ári var ET-
dagurinn jafnframt jólafundur SÍ og er
sá háttur einnig hafður á nú. Engum
blandast hugiu- um aö árið hefur verið
ár aukins afls ET og betri nýtingar þess
með samtengingu um staðamet. Þá hafa
myndræn notendaskil leitt til þess að
. betta mikla afl verður almennum not-
enda aðgengilegra. Á ráðstefnunni verð-
ur fjallað um þessa þætti í sjö völdum
erindum sem gefa eiga leilóium sem
lærðum glögga innsýn í nýtingu þess
aukna afls sem býr í einmenningstölvum.
Skráning hjá Helgu Erlingsdóttur í síma
27577.
Félag eldri borgara
Opið hús í Goðheimum, Sigtúni 3, í dag,
fimmtudag, kl. 14. Frjáls spilamennska,
kl. 19.30 félagsvist, kl. 21 dansað. Göngu-
Hrólfur hittist nk. laugardag 9. desember
kl. 11 að Nóatúni 17. Haldinn verður bas-
ar í Goðheimum, laugardag 9. desember,
kl. 14. Kökum og munum er hægt að
koma á skrifstofu félagsins í síma 28812.
Jólamerki kvenfélagsins
_Framtíðarinnar
er komið út. Merkið er falleg jólamynd,
prentað og unniö hjá Prentverki Odds
Bjömssonar. Sölustaðir eru Póststofan
Akureyri, Frímerkjahúsið og Frímerkja-
miðstöðin, Reykjavík. Félagskonur sjá
um sölu á Akureyri. Merkið kostar 12
krónur og örkin 144 krónur. Allur ágóði
rennur í elliheimilasjóð.
Fiuidir
Fjórði félagsfundur
JCSúlna
jólafundur, verður haldinn að Aðalstræti
54 (Contahúsinu), Akureyri, fóstudaginn
8. desember kl. 20.30. Mætum öll.
Digranesprestakall
Jólafundur Kirkjufélagsins verður í safn-
aðarheimilinu við Bjamhólastíg í dag, 7.
desember, kl. 20.30. Fjölbreytt jóladag-
skrá. Veislukaffi. Gestur fundarins verð-
ur Yngvi Þórir Ámason.
Jólafundur kven-
félags Kópavogs
verður haldinn í félagsheimili bæjarins í
dag, 7. desember, kl. 20.30. Fjölmennum
og tökum með okkur gesti.
Digranesprestakall
Jólafundur kirkjufélagsins verður í safn-
aðarheimilinu við Bjamhólastíg í dag, 7.
desember, kl. 20.30. Fjölbreytt jóladag-
skrá. Veislukaffi. Gestur fundarins verð-
ur séra Yngvi Þórir Ámason.
Kvenfélag Neskirkju
heldur jólafund sinn nk. mánudagskvöld
kl. 20.30 í safnaðarheimili kirkjunnar.
Gestur fundarins verður Hanna Jóhann-
essen, formaður Vemdar. Konur em
minntar á að koma með jólapakka með
sér.
Jólafundur Gigtarfélags ís-
lands
verður haldinn í Risinu, Hverfisgötu 105,
Reykjavík, fóstudaginn 8. desember. Hús-
ið verður opnað kl. 19. Borðhald, tónhst.
Eiríkur Jónsson fréttamaður les upp úr
bók sinni um Davíð. Valgeir Guðjónsson
tónhstarmaður flytur eigið efni. Best er
að koma bakdyramegin fyrir þá sem
koma á bílum. Keyrt inn frá Snorrabraut
(lyfta). Miðapantanir í síma 30760 ,og
35310. Félagsmenn fjölmennið og takið
með ykkur gesti.
Slysavarnadeild kvenna
í Reykjavík
Jólafundurinn verður í dag, 7. des., kl.
20.30 stvmdvislega á Hótel Holiday Inn.
Góð skemmtiatriöi. Konur, munið eftir
pökkum í jólahappdrættið. Mætið vel.
Tónleikar
Blústónleikar á
Hótel Borg
í kvöld, heldur Blúskompaníið blústón-
leika á Hótel Borg. Blúskompaníið hefur
starfað í tuttugu ár og á þvi tímabih hafa
margir af bestu hljóðfæraleikurum þjóð-
arinnar leikið með því. Þeir sem skipa
kompanhð á tónleikunum í kvöld eru:
Magnús Eiríksson, gítar, Páhni Gunnars-
son, bassi og söngur, Ásgeir Tómasson,
trommur, Sigurður Sigurðsson, munn-
harpa, og Þórir Úlfarsson, hljómborð.
Sérstakir gestir kvöldsins verða þau Eh-
en Kristjánsdóttir söngkona og Guð-
mundur Ingólfsson, sá landsfrægi jass-
og blús-píanisti. Tónleikamir hetjast kl.
22.30 stundvíslega.
Bubbi og lamarnir á
útgáfutónleikum
Nú geta þeir sem hafa hungrað og þyrst
eftir rafmögnuðum Bubba tekið gleði
sína á ný því að eftir þetta tveggja ára
hlé kemur hann nú aftur fram með eigin
hljómsveit á útgáfutónleikum sem haldn-
ir verða á Hótel íslandi í kvöld. Hljóm-
sveitin hefur fengið nafnið „Lamamir"
og er skipuð völdum einstaklingum: Birg-
ir Baldursson, trommur, ásláttarhljóð-
færi, Guðlaugur Óttarsson, gítar, Harald-
ur Þorsteinsson, bassi, Hilmar Öm Hilm-
arsson, hljómborð og ásláttarhljóðfæri,
og Jósep Gíslason, hljómborð. Forsala
aðgöngumiða er í Gramminu, Laugavegi
17, og hinni nýju hljómplötuverslun
Geisla á Snorrabraut 29. Miðaverð er kr.
1.250.
Sýningar
Líf í réttu Ijósi
er heiti á sýningu sem Ljóstæknifélag
íslands og Sjónstöð íslands standa fyrir
á lýsingu fyrir aldraða og sjónskerta.
Sýningin er í Byggingarþjónustmmi,
Hahveigarstig 1, Reykjavík, og er opin
virka daga kl. 10-18. Þar gefúr að hta
veggspjöld, sjóntæki, Ijósfæri og mynd-
bandasýningar.
Kvikmyndir___________________
Háskólabíó - Skuggar fortíðar:
Stríðið endalausa
Mark Lambert er fyrrverandi hermaöur sem baröist
í Víetnam. Hann hefur aldrei boriö sitt barr eftir þann
hildarleik og treystir sér varla til þess aö taka þátt í
samfélaginu. Þess í stað dvelst hann ásamt nokkrum
stríösfélögum sínum hátt til fjalla í Washington fylki.
Þar hafa þeir félagar búiö um sig og sýnist ekki ýkja
mikill munur á þeim skógi og hinum víetnamska sem
þeir höröust í áöur.
Son sinn hefur Mark ekki séö í 14 ár en fyrir þrá-
beiðni ráðskonu skógarhöggsmanna, sem hann vinnur
meö um hríö, skrifar hann pilti og lætur vita af sér.
Strákur, sem er nýútskrifaður hæstur í sínum bekk,
mætir á staðinn. En þá er hlaupin snurða á þráðinn
og samfundir þeirra feðga veröa ekki meö þeim ágæt-
um sem báða dreymdi um. Eftir andstreymi á vinnu-
stað er faöirinn flúinn til fjalla á ný,
Sonurinn skilur ekki höfnun og feluleik foðurins,
faöirinn kann ekki aö umgangast son sinn. Ekki bætir
úr skák að í kjölfar hálfmisheppnaðra endurfunda
þeirra brýst út stríö í friðsælum skóginum.
Ekkert er til sparað viö gerð myndarinnar og vekur
vönduö og falleg myndataka alveg sérstaka athygh.
Fallegt og tignarlegt landslag gerir sitt til þess aö
margar senur í myndinni verða mjög áhrifamiklar.
John Litgow leikur hermanninn vankaða og ferst
það vel úr hendi eftir því sem handrit býöur upp á en
það er einn veikasti hlekkur myndarinnar. Félagar
hans í skóginum eru skýrar persónur, báöir kolgeggj-
aöir, hvor á sinn hátt.
Unglingurinn virðist klaufalega leikinn í fyrstu en
Ralph Macchio nær sér mjög vel á strik og kemst frá-
bærlega vel frá hlutverki sínu að lokum.
Styrkur myndarinnar er mestur sá að viðkvæmar
senur, um erfið samskipti fóður og sonar, verða aldrei
væmnar og klisjukenndar. Leikstjóra tekst mjög vel
að sneiða hjá þeim gn'fjum sem grafnar eru í frekar
veikburða handriti. Fyrir vikið verður myndin sterk-
ari og áhrifameiri í fremur einfóldum boðskap sínum
í glæsilegu lokaatriði.
Stjömugjöf ★ ★ ★
Distant Thunder. Bandarisk.
Leikstjóri Rick Rosenthal.
Aðalhlutverk: John Litgow og Ralph Macchio.
Páll Ásgeirsson
Stjömubio - Lif og flör 1 Beverly Hllls:
Hingað og ekki lengra
Lif og fjör í B.H. er tvímælalaust ein lélegasta afurð
draumaverksmiðjunnar á þessu ári. Sjaldan hefur
bandaríska afþreyingarformúlan verið eins herfilega
misnotuð. Myndin er kennslubókardæmi um hve djúpt
sé hægt að sökkva í peningaleit. Lapþunnur söguþráð-
urinn greinir frá ofdekraðri húsmóður í Beverly Hills,
sem tekur sér á hendur í samviskukasti að stjóma
hópi ofdekraðra stúlknaskáta þótt hún kunni ekki hið
minnsta að bjarga sér á skátavísu. En hún kann að
kaupa tískufot, velja skartgripi, hárgreiðslu, fótsnyrt-
ingu og viðlíka og miðlar því þeirri dýrmætu reynslu
til telpnanna í staðinn. Þetta er verra en það hljómar.
Bætið við öfundsjúkri Rambólínu, langþreyttum eigin-
manni, mexíkanskri ráðskonu, japönskum garðyrkju-
manni, forríkum foreldrahópi, kökusölukeppni og
bakpokasýningu og þá er útlitið orðið verulega slæmt.
Ekki er vitund reynt að breiða yfir galla sögunnar,
heldur veltir myndin sér blygðunarlaust upp úr þeim.
Handritið er fáránlegt og þegar líður á myndina sann-,
ast að lengi getur vont versnað. Mjög lengi. Leikarar
geta engu bjargað því þeim er gert að ofleika, með
hræðilegum afleiðinguní. Hinni snoppufríðu Shelley
Long hefur aldrei tekist eins illa upp og verður Phyll-
is Neffler minnst sem einnar af leiðinlegustu persón-
um hvíta tjaldsins til þessa. Aukaleikar gera illt verra
og tekst þeim listilega að draga myndina enn neðar
þegar þeir fá tækifæri til þess. Hollywood er frægt að
Craig T. Nelson og Shelley Long eru tveir af aðalleik-
urum myndarinnar.
endemum fyrir ómerkilega afþreyingu, en hér hefur
eitthvað farið illilega úrskeiðis. Það sýnir svörtustu
hliðar iðnaðarins að virkilega skuli tilætlast að ein-
hverjir fari á slíkan óhugnað.
Stjörnugjöf: 'A
Troop Beverly Hills, bandarísk 1989, 105 mín.
Leikstjóri: Jeff Kanew
Aðalhluverk: Shelley Long, Craig T. Nelson, Betty Thomas,
Marie Gross, Stephanie Beacham. Gísli Einarsson
Fjölmiðlar
Einkennilegar aðferðir
Út kemur í Reykjavík mynd-
skreytt mánaðarrit undir nafninu
„Heimsmynd" á vegum Herdisar
Þorgeirsdóttur og Ólafs Hannibals-
sonar. Af einhverjum ástæðum er
þessu fólki uppsigað við Davíö
Oddsson borgarstjóra.
f desemberhefti ritsins er athyglis-
vert, hverníg könnun á viðhorfum
rúmlega hundrað k venna til ís-
lenskra karla er kynnt. Stjórnmála-
mönnum er þar raðað eftir því,
hversu umdeildir þeir eru. Verða
menn að lesa vel og lengi til þess
að komast að því, að Davíð hafi
reynst vinsælasti stjómmálamað-
urinn í hópi kvennanna. Þurfti að
felaþástaðreynd?
Enn fremur eru birtar umsagnir
úr könnuninni um frammámenn í
stjórnmálum, atvinnulífi, iþróttum,
listum og vísindum. Þar er farið hin-
um verstu orðum um Sverri Her-
mannsson og gráu bætt ofan á svart
með þvi að birta af honum andlits-
mynd á forsíðu undir fyrirsögninni
„Spilitur".
Nú er Sverrír vissulega umdeildur
maður, enda fyrirferðarmikill og
stundum hvass í málflutningi. En
ótrúlegt er, ef enginn i þessari könn-
un hefur sagt neitt jákvætt um
hann.
Sú spuming vaknar, hversu langt
blaðamenn geta leyft sér að ganga í
skjóli ónafngreindra heimildar-
manna. Treysta þau Herdis og Ólaf-
ur sér til að leggja frara öll gögn
þessarar könnunar?
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
HEIMSMEISTARA-HAPPDRÆTTI HANDKNATTLEIKSSAMBANDS ÍSLANDS Stöndum saman um landsliðið okkar
- I^IPÍ ^ Mestu möguleikar í einu happdr BÍLAR t.
ættiaðvinnabíl SALA UR BÍL í KRINGLUNNI OG AUSTURSTRÆTI \ " "
L_____