Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1990, Blaðsíða 6
6
Viðskipti__________
Hvað gerist
íslendinga á
ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 1990.
í atvinnulífi
árinu 1990?
Haggskipið komið ígáigam?
amherjamennirnir á Akureyri- ®
Sa?a Þehra er frekar eins
Oflbiomynd en raunveruleiki
H vað er pappírstígrisdýr?
AtaJ«ss tapaði yfir 700
mityonum á síðasta ári
~ íekjur &rirt»iri«:«„ ... Wlf
1-400 milljónir
Kreppunni í íslensku efnahagslífi,
sem einkenndi árið 1989, er ekki lok-
ið. Hún verður áfram á þessu ári,
samkvæmt mati Þjóðhagsstofnunar
sem spáir því að kaupmáttur ráðstöf-
unartekna á mann rýrni um 5,5 pró-
sent í ár miðað við í fyrra. Þetta mun
koma framl í vaxandi atvinnuleysi
hjá þjóðinni og spáir Þjóðhagsstofn-
un því að um 3 þúsund manns verði
að jafnaði atvinnulaus á árinu. Talið
er aö atvinnuleysið verði mest í þess-
um mánuöi eða á milli 4 og 5 prósent
en í lágmarki í september. Þetta eru
váleg tíðindi þegaf þess er gætt að
atvinnuleysi hefur aldrei verið eins
mikið og einmitt á árinu 1989. Kjara-
samningar flestra launþegasamtaka
eru lausir og búast flestir við hörðum
vinnudeilum á næstu mánuðum. En
rýnum frekar í líðandi ár.
Hverjir skipta
um forstjórastóla?
Nokkrir þekktir menn úr atvinnu-
líftnu settust í nýja forstjórastóla á
árinu 1989. Eysteinn Helgason varð
forstjóri Plastprents, Axel Gíslason
hjá Samvinnutryggingum, Gunnar
Ragnars hjá Útgerðarfélagi Akur-
eyringa, Sigurður Ringsted hjá Slipp-
stöðinni á Akureyri,-Magnús Gauti
Gautason varð kaupfélagsstjóri
KEA, Valur Amþórsson varð Lands-
bankastjón og Olafur Ólafsson varð
forstjóri Álafoss eftir að forstjóri
þess, Jón Sigurðarson, hóf störf með
tengdafoður sínum að útflutningi
sjávarafurða.
Eflaust verða ekki jafnmikil for-
stjóraskipti á þessu ári og því síð-
asta. Þegar er ljóst að Kristinn
Björnsson, forstjóri Nóa-Síríusar
verður forstjóri Skeljungs um mitt
sumar er Indriði Pálsson lætur af því
starfi að eigin ósk. Þá hóf Sólon R.
Sigurðsson störf sem bankastjóri
Búnðarbankans í dag en hann var
áður aðstoðarbankastjóri þar.
Harðnandi samkeppni
milli bankanna
Síðasta ár var sögulegt í bankamál-
um íslendinga. Þar bar kaup Versl-
unar-, Iönaðar-, og Alþýðubanka á
hlut ríkisins í Útvegsbankanum
hæst. Þessir bankar hafa nú samein-
ast í einn banka, íslandsbanka, sem
hefur störf nú um áramótin. Á síð-
asta ári vora einnig endalausar um-
ræður um kaup Landsbanka á hlut
Sambandsins í Samvinnubankanum.
Færri og sterkari bankar á þessu
ári eiga eflaust eftir aö auka sam-
keppnina verulega á milli bankanna.
Ljóst er að Landsbanki verður áfram
langstærsti bankinn með um helm-
ing, 50 prósent, allra bankaviðskipta,
íslandsbanki verður væntanlega
með um 32 prósent og Búnaðarbanki
með um 18 prósent.
Sérstaklega verður spennandi að
fylgjast með baráttu sparisjóðanna í
landinu gagnvart færri og stærri
bönkum. Þeir hafa þegar gefið út þá
yfirlýsingu að herbragð þeirra verði
að veita persónulega þjónustu og
ætla þeir ekki síst að sérhæfa sig enn
meira með því að gera út á einstakl-
inga og smærri fyrirtæki. Þannig
segjast þeir ætla að grípa það gap sem
myndist á markaönum þegar litlu
bankarnir eru horfnir.
Erfitt ferðaár
Árið 1989 var eitt erfiðasta ár sem
íslenskar ferðaskrifstofur hafa geng-
ið í gegnum. Snemma gerðu þær sér
grein fyrir að um 20 prósent sam-
dráttur yrði í sólarlandaferðum.
Þetta gekk eftir og aðeins betur. Út-
koman varð sú að eftir sumarið klór-
uðu ferðakóngarnir sér í kollinum
og áttuðu sig á aö þeir höföu verið
aö selja ferðimar á allt of lágu verði
og tap væri á rekstrinum.
Snemma árs hafði það vakið at-
hygli þegar nýráðinn forstjóri Útsýn-
ar, Anna Guðný Aradóttir, skellti því
fram í blaðagrein að ferðaskrifstofur
ættu eftir að detta út af markaðnum
og aðrar sameinast þegar liði á árið.
Hún hélt því fram að þær sem eftir
lifðu yrðu þær þrjár stærstu, Útsýn,
Úrval og Samvinnuferðir en Veröld,
sem stofnuö var til höfuðs Útsýn,
færi á kollinn. Spá Önnu rættist að
miklu leyti nema nöfn skrifstofanna
voru ekki alveg rétt. í haust samein-
uöust nefnilega Útsýn og Úrval, Pól-
aris og Veröld, og Útsýn-Úrval hefur
keypt að mestum parti ferðaskrif-
stofuna Sögu. Raunar áttu Sam-
vinnuferðir Pólaris eina helgi en
þeim samningi var rift af Pólaris-
mönnum.
Búast má við áframhaldandi sam-
drætti í 'sólarlandaferöum íslendinga
á þessu ári þar sem kaupmáttur al-
mennings er minni, jafnframt því
sem ætla má aö ferðimar hækki frá
því í fyrra þegar ferðaskrifstofumar
brenndu sig á of lágu verði.
Gott hjá ísal
Vænlega horfir hjá stóriöjufyrir-
tækjunum ísal í Straumsvík og ís-
lensku járnblendiverksmiðjunni á
Grundartanga á þessu ári. Metfram-
leiösla var hjá ísal á síöasta ári þegar
fyrirtækið framleiddi um 88.500 tonn
og hagnaöist um vel á annan milljarð
króna fyrir skatta en áætlaðar skatt-
greiðslur voru um 400 milljónir.
Þrátt fyrir stöðugt lækkandi verð á
kísiljámi á árinu varð hagnaður
Járnblendiverksmiðjunnar um 500
milljónir á síðasta ári. Þessi hagnað-
ur myndaðist að mestu á fyrri hluta
ársins. Búist er við að verð á kísil-
jámi hækki eitthvað á næsta ári og
að sú veröhækkun skíli verksmiðj-
unni einhverjum hagnaði. Haldist
hins vegar núverandi verð er gert
ráð fyrir að reksturinn verði í járn-
um, sem þýðir að frekari verðlækk-
un leiðir til tapreksturs.
Sameinaðir stöndum vér
Árið 1989 var ár samruna fyrir-
tækja í íslensku atvinnulífi. Á trygg-
ingamarkaðnum bar hæst samein-
ingu Sjóvá og Almennra trygginga,
svo og sameiningu Brunabótar og
Samvinnutrygginga. Á bankamark-
aðnum var það samruni bankanna
fjögurra í íslandsbanka. Þá samein-
uðust húsgagnafyrirtækin Gamla
kompaníið og Kristján Siggeirsson
svo og Axis og EE-húsgögn. Áður
hefur veriö minnst á sameiningu
ferðaskrifstofanna.
Gera má ráð fyrir að fleiri fyrir-
tæki sameinist á þessu ári, einfald-
lega vegna þess að áframhaldandi
Fréttaljós
Jón G. Hauksson
kreppa þýöir minni viðskipti, minni
veltu og þess vegna nauðsyn á auk-
inni hagræðingu.
Þó má minna á eitt vandamál við
sameiningu fyrirtækja. Hagræðingin
felst oftast í því aö fækka fólki og
minnka húsnæðiö. Hver á hins vegar
að kaupa húsnæði þegar kreppan og
peningaleysið eru allsráðandi.
Samdráttur í
bílainnflutningi
Mikill samdráttur varð í bílainn-
flutningi á síöasta ári. Þetta vissu
bílaumboðin fyrir eftir að þau höfðu
látiö glepjast á árinu 1988 og pantaö
allt of mikið af bílum sem þau síðan
sátu uppi meö og leiddi til eins konar
bílaútsölu.
Búast má viö því að markaðsstjór-
ar bílaumboðanna hringi enn bjöll-
um um að fariö verði hægt í sakirnar
á þessu ári.
Nokkrar væringar hafa verið á
milli bílaumboöanna. Þannig fékk
Jöfur umboð fyrir Cherokee-jeppana
sem Egill Vilhjálmsson hafði áður
og Glóbus fékk Ford-umboðiö frá
Sveini Egilssyni. Þá fékk Bílaumboð-
ið, sem er með umboð fyrir BMW,
umboðið fyrir Renault.
íslandslax gjaldþrota
Ekkert lát varð á gjaldþrotum á
síðasta ári. Hæst ber gjaldþrot fisk-
eldisfyrirtækjanna íslandslax og
Lindalax. Bæði þessi gjaldþrot nema
hundruðum milljóna króna. Reikna
má með því að lesendur eigi eftir að
lesa um fleiri gjaldþrot fiskeldisfyrir-
tækja á árinu sem nú er hafið.
Árið 1989 er metár í gjaldþrotum á
íslandi. Aldrei fyrr fóru jafnmargir
til fógeta og báðum um að verða tekn-
ir til gjaldþrotaskipta. Fyrirtæki töp-
uöu milljörðum á síðasta ári vegna
gjaldþrota annarra fyrirtækja.
Búast má við því aö hámarki gjald-
þrota sé náð í þessari kreppuhrinu.
Enda hefur mikil hreinsun átt sér
stað á meðal skuldsettra fyrirtækja.
Flugfélögin tvö
Amarflug var mjög í fréttum í byrj-
un síðasta árs og stóð félagið mjög
tæpt um tíma. Björgunaðgerðir nú-
verandi hluthafa leiddu hins vegar
til þess að félagiö náði sæmilegum
jafnvægispunkti á ný.
Það sem menn spyrja sig helst á
þessu ári er hvernig félögin tvö, Flug-
leiðir og Arnarílug, ætla að búa sig
undir sameiginlegan Evrópumarkað
áriö 1992. Þegar hafa útlend flugfélög
verið að kaupa hluti í hvert ööru.
Þess vegna er það spurningin hvort
stór útlend flugfélög komi til með að
eignast hlut í Flugleiðum og Arnar-
flugi. Eins verður forvitnilegt að sjá
hvort nýr markaður opnast í Sovét-
ríkjunum en Flugleiðir hafa áhuga á
að taka upp áætlunarflug þangað.
Svo kynni að fara að íslenskur flug-
rekstur yrði miðpunkturinn í flugi
milli Sovétríkjanna og Bandaríkj-
anna vegna þess að ísland liggur á
sporbaugslínu og er mitt á miíli
Moskvú og Washington.
Lækkar olíuverðið?
Hráolíuverðið var í kringum 17
dollara tunnan að jafnaði á síðasta
ári eftir að hafa verið í kringum 14
dollara tunnan árið 1988 og 17,7 doll-
ara árið 1987 og um 14,20 dollara árið
1986. Nýlega spáði National Westm-
inister bank í London því að hráolíu-
verð eigi eftir að lækka á þessu ári
og vera í kringum 16 dollara tunnan
að jafnaði. Þetta byggist á því að
Opec-ríkin komi sér ekki saman um
framleiðslukvóta sem fyrri daginn
þannig að framboð aukist meira en
eftirspurnin.
DV birtir vikulega verö á olíu í
Rotterdam og hófust þessar DV-
skráningar haustið 1987.1 þeim hefur
vel komið fram hvernig verð á gasol-
íu og svartolíu hefur snarhækkaö
síðustu mánuði íslenskri útgerð í
óhag. Þannig er komið að verð á gas-
olíu er hærra en verð á súperbens-
íni. Einnig hefur steinolía, þotuelds-
neyti, snarhækkað í verði, ísiensku
flugfélögunum í óhag.
Menn ársins
Menn ársins í atvinnulífinu á síð-
asta ári voru Samherjamennirnir á
Akureyri. Þeir em undramenn í út-
gerð og er þeim frekar líkt við galdra-
menn en útgerðarmenn. Samherja-
mennirnir voru sérlega vel að út-
nefningunni komnir.
Nokkur kvíöi er hins vegar í út-
gerðarmönnum fyrir þetta ár. Ljóst
er að verulegur samdráttur verður í
þorskveiðum en áætlað er að veiða
ekki meira en 300 þúsund toún af
þorski á árinu. Þjóðhagsstofnun ger-
ir ráð fyrir að vegna minni afla sé
fyrirsjáanlegt aö framleiðsla sjávar-
afuröa muni minnka á þessu ári um
3 prósent.
Staða fiskvinnslunnar batnaði
mjög á síðasta ári vegna þess að
raungengið lækkaði verulega. Búast
má viö því að stjórnvöld verði jafn-
grimm á þessu ári að lækka gengi
krónunnar takist ekki að halda verð-
bólgunni í skefjum en Þjóðhagsstofn-
un gerir ráð fyrir um 16 prósent verð-
bólgu, hækkun framfærsluvísitölu, á
árinu.
Menn þessa árs?
Að lokum er svo bara að sjá hveij-
ir verða menn þessa árs í atvinnulíf-
inu. Þaö ræðst af því hverjir verða
duglegastir og harðastir í að reka
fyrirtæki sín og ná fram aukinni
hagkvæmni og hagnaði.
-JGH
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækurób. 11-12 Bb
Sparireikningar
3jamán.uppsögn 11,5-13 Úb,V- b,Ab
6mán.uppsögn 13-14 Úb,V- b.Ab
12mán.uppsögn 12-15 Lb
18mán. uppsögn 26 Ib
Tékkareikningar, alm. 2-4 Sp
Sértékkareikninqar 10-12 Bb
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 0,75-1,5" Allir nema Sp
6mán. uppsögn 2,5-3,0 Lb,Bb,- Sb
Innlán með sérkjörum 21 Allir
Innlángengistryggð
Bandaríkjadalir 7-7,5 Sb
Sterlingspund 13-13,75 Úb.Bb,- lb,V- b.Ab.
Vestur-þýsk mörk 6,75-7 Úb.lb,- Vb.Ab
Danskarkrónur 10,5-11,0 Úb.lb,- Vb,Ab
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvixlar(fon/.) 27,5 Allir
Viðskiptavíxlar(forv.)(1) kaupgengi
Almenn skuldabréf 31,5-32,75 Lb.Bb
Viðskiptaskuldabréf(l) kaupgengi Allir
. Hlaupareikningar(yfirdr.) 32,5-35 Lb.Bb
Utlán verðtryggð
, Skuldabréf 7,25-8,25 Úb
Utlán til framleiðslu
Isl. krónur 28,5-33 Lb.Bb,
SDR 10,75 Allir
Bandarikjadalir 10,25-10,5 Allir nema Úb.Vb
Sterlingspund 16,75 Allir
Vestur-þýsk mörk 9,75-10 Allir nema
Húsnæðislán 3,5 Lb
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 40,4
MEÐALVEXTIR
óverðtr. des. 89 31,6
Verðtr. des. 89 7,7
VÍSITÖLUR
Lánskjaravisitalajan. 2771 stig
Lánskjaravísitala des. 2722 stig
Byggingavísitala des. 505stig
Byggingavísitala des. 157,9stig
Húsaleiguvisitala 3,5%hækkaði l.okt.
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Einingabréf 1 4,508
Einingabréf 2 2.481
Einingabréf 3 2,971
Skammtímabréf 1,539
Lifeyrisbréf 2,267
Gengisbréf 1,993
Kjarabréf 4,460
Markbréf 2,368
Tekjubréf 1,898
Skyndibréf 1,346
Fjólþjóðabréf 1,268
Sjóðsbréf 1 2.169
Sjóösbréf 2 1,662
Sjóðsbréf 3 1,523
Sjóðsbréf 4 1,281
Vaxtasjóðsbréf 1,5225
HLUTABREF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv
Sjóvá-Almennar hf. 400 kr.
Eimskip 400 kr.
Flugleiðir 162 kr*
Hampiðjan 172 kr'.
Hlutabréfasjóður 166 kr.
Iðnaðarbankinn 180 kr.
Skagstrendingur hf. 300 kr.
Útvegsbankinn hf. 155 kr.
Verslunarbankinn 153 kr.
Olíufélagið hf. 318 kr.
Grandi hf. 157 kr.
Tollvörugeymslan hf. 114 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb = Búnaðarbankinn, Ib = Iðnaðarbank-
inn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnu-
bankinn, Úb= Útvegsbankinn, Vb =
Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóðirnir.
Nánari upplýsingar um peningamarkaö-
inn birtast i DV á fimmtudögum.