Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1990, Blaðsíða 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 1990.
Útlönd
fundur þeirra haldinn til þess aö
bjarga samsteypustjóminni, sem
setið hefur í eitt ár, frá falli.
Aðstoðarmenn Shamirs sögðu að
forsætisráðherrann, sem er leið-
togi Likudflokksins, myndi ekki
breyta ákvörðun sinni um að reka
Weizman. Hins vegar myndi hann
reyna að halda flokki ráðherrans,
Verkamannaflokknum, í stjóm-
inni.
Shamir rak Weizman, sem átti
mikinn þátt í friðarsamningnum
við Egypta 1979, á sunnudaginn og
sakaði hann um að hafa aðstoðaö
PLO viö að reyna að eyðileggja
áætlun ísraels um kosningar fyrir
Palestínumenn á herteknu svæð-
unum. Aðstoðarmenn Shamirs
segja að Weizman hafi hitt Nabil
Ramlawi, yfirmann skrifstofu PLO
í Genf. Weizman tjáði flokksfélög-
um sínum að hann hefði gefið PLO
ráð í gegnum milligöngumann til
að setja skilyrði fyrir samþykkt
fimm liða áætlunar Bandaríkjanna
um að greiða götu fyrir kosninga-
áætluninni. Milligöngumaðurinn
sagði að stjómin hefði óbeint sam-
band við PLO og að Weizman hefði
ekki vikið frá þeirri stefnu.
Háttsettur ráðgjafi PLO í Bagdad
sagði að Weizman hefði ekki hitt
embættismenn PLO en það hefðu
hins vegar nokkrir ónafngreindir
ísraelskir ráðherrar og háttsettir
embættismenn gert.
Verkamannaflokkurinn styður
opinbert bann við sambandi við
PLO en sundrung ríkir þó innan
flokksins um málið. Verkamanna-
flokkurinn hefur ekki til mikils áð
vinna með því að þrýsta á um kosn-
ingar um viðræöur við PLO. Leið-
togi Verkamannaflokksins, Shim-
on Peres varaforsætisráðherra,
sagði að samsteypustjómin myndi
falla nema Weizman héldi embætti
sínu. Skiptar skoðanir voru meðal
annarra ráðherra flokksins um
hvort yfirgefa ætti stjómina.
Reuter
Yitzak Shamir, forsætisráðherra man, sem rekinn hefur veriö vegna
ísraels, mun ef til vill hitta að máli meintra tengsla við Frelsissamtök
ráöherra vísindamála, Ezer Weiz- Palestínumanna, PLO. Yrði þá
Ezer Weizman, ráðherra vísindamála í Israel, sem Shamir forsætisráð-
herra hefur rekið. Símamynd Reuter
Stjórnar-
kreppa í ísrael
Kam tkMúi* «
Fellagörðum - Breiðholtl III ^ii
Fellagörðum -
(í Dansskóla Helðars)
Almenn námskeið
Karon skólinn kennir ykkur:
e rétta líkamsstöðu
e rétt göngulag
O fallegan fótaburð
e andlits- og handsnyrtingu
e hárgreiðslu
e fataval
e mataræði
e hina ýmsu borðsiði og alla almenna
framkomu o.fl.
Módelnámskeið
Karon skólinn kennir ykkur:
e rétta líkamsstöðu
e rétt göngulag
e fallegan fótaburð
e sviðsframkomu
$
Öll kennsla í höndum færustu
sérfræðinga.
Allir tímar óþvingaðir og frjálslegir.
Ekkert kynslóðabil fyrirfinnst í Karon
Innritun og upplýsingar í
síma 38126 kl. 15-20.
skólanum.
ísraelskir lögreglumenn handtaka palestínska konu sem þátt tók í friðar-
göngu frá vesturhluta Jerúsalem til austurhluta borgarinnar.
Simamynd Reuter
Palestínskur
unglingur skot-
inn ta'l bana
ísraelskir hermenn skutu til bana
palestínskan ungling á vesturbakk-
anum í gær í átökum viö grímu-
klædda unglinga sem minntust þess
aö tuttugu og fimm ár voru liðin frá
stofnun Fatah-hreyfingar Yasser
Arafats, leiðtoga Frelsissamtaka Pa-
lestínumanna, PLO. Fatah-hreyfing-
in er stærsti hópurinn innan PLO.
Útgöngubann var sett á nær millj-
ón Palestínumenn á vesturbakkan-
um og Gazasvæðinu til að koma í veg
fyrir mótmæli í gær en heryfirvöld
tilkynntu að útgöngubanninu yrði
aflétt á Gazasvæðinu í dag.
Heimildarmenn innan hersins
sögðu að hermenn á eftirlitsferð í
þorpi norðan við Jerúsalem hefðu
skotiö gúmmíkúlum til að dreifa
fimmtíu grímuklæddum aröbum.
Hefðu hermennimir handtekið tvo,
þar á meöal særðan ungling. Síðar
kom í ljós að unglingurinn hafði ver-
ið myrtur og fluttur á sjúkrahús í
austurhluta Jerúsalem.
Lögreglan greindi frá því að póstyf-
irvöld hefðu gert tíu bréfsprengjur,
sem sendar hefðu verið frá Kýpur
undanfama daga, óvirkar. Hafa Isra-
elsmenn verið varaðir við að fleiri
geti verið á leiðinni.
Vegna útgöngubannsins hafa
fréttamenn einungis getað farið til
herteknu svæðanna í fylgd með ísra-
elskum hermönnum. Allur vestur-
bakkinn, að Betleheip undanskilinni,
hefur verið lokaður. íbúar í Betie-
hem segja aö hermenn hafi neytt
verslunareigendur til að loka versl-
unum sínum stuttu eftir að þær vom
opnaöar. Þrátt fyrir allar ráðstafan-
imar mátti sjá myndir af Arafat á
byggingum á vesturbakkanum.
Lögreglan tilkynnti að ónýt hand-
sprengja hefði fundist undir bíl eigin-
konu Shimon Peres varaforsætisráð-
herra fyrir utan heimili þeirra í Tel
Aviv. Reuter
Olíuævintýri
á Grænlandi?
Gífurlegt magn olíu gæti verið í
jörðu nyrst á Grænlandi, samkvæmt
áhti jarðfræðinga sem stundað hafa
rannsóknir þar frá 1984. Uppgötvun-
in leiðir þó ekki til olíuævintýris á
næstunni þar sem talið er að olían
sé á milli jökulsins og stöðugt ísi-
lagðra fjarða. Flutningar á olíunni
yrðu þess vegna erfiðir og dýrir.
Vinnsla myndi aöeins borga sig ef
olíuverð hækkaði mikið og ef um
mikið magn olíu væri að ræða. Skil-
yrði fyrir vinnslu á þessu svæði eru
miklu verri en á Jameson Land á
austurströnd Grænlands þar sem tvö
olíufélög, ARCO sem er bandarískt
og AGIP sem er ítalskt, hafa leitaö
að olíu í mörg ár.
Rannsóknirnar nyrst á Grænlandi,
þar sem meðalhitastigið kemst rétt
upp fyrir frostmark í aðeins þrjá
mánuði á ári, hafa hins vegar farið
fram í vísindalegum tilgangi. Jarð-
fræöingamir segja að skýrsla þeirra
geti verið áhugaverö fyrir næstu
nágranna Norður-Grænlands,
Kanada og Síberíu, þar sem skilyrðin
SéumjÖgSVÍpuð. Ritzau