Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1990, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1990, Blaðsíða 23
ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 1990. 23 Fréttir Til stóð að fresta því aö kveikja i áramótabálkesti sem stóð við Ægisíöu á gamlárskvöld. Ekki þótti ráðlegt að kveikja í honum vegna þess hve vindur var óhag- stæður vegna nærliggjandi húsa. Var búið að fjarlægj a olíutunnur af staönum. Lögreglan hafði vís- að í burtu fjölda fólks sem kom á staðinn með bornum sínum til aö horfa á brennuna. Fóru lögreglu- menn síöan af staðnum o*g hafði umsjónarmaður eftirlit með bál- kestinum. En um tiuleytið logaöi glatt. Höiðu þá piltar skotist að bálkest- mum án þess að umsjónarmaður- inn yrði þeirra var í myTkrinu og kveikt i. Um þetta leyti hafði vindáttin breyst nokkuð og var ekki talin ástæða til þess að slökkva. Ingaði vel í bálkestinum án þess að nokkur óhöpp ættu sér stað. -ÓTT Hviti Daihatsubíllinn lenti fyrst á lögreglubílnum til hægri, þá framan á bílnum til vinstri á myndinni, síðan á kranabílnum og'loks aftur á bílinn sem hafði komíð á móti. Á myndinni til hægri sést Volkswagen ferðabílinn eftir að hann var hífður upp á veginn aftur. DV-myndir S Röð óhappa á Reykjanesbraut í gær: Ekið á þrjá kyvrstæða bfla á slysstaðnum Röð af óhöppum átti sér stað á Reykjanesbrautinni í gær og lentu þar margir bílar saman. Upphafið var að kona, sem ók bíl frá varnarliöinu á Keflavíkurflug- velh, missti stjóm á bílnum sem valt út af veginum og út í gjótu. Bíllinn, sem er ferðabíll af Volkswagengerð, eyðilagðist í veltunni en konan slapp með minni háttar meiðsl. Mikil hálka var að myndast á Reykjanesbraut- inni þegar slysið átti sér stað. Lögregla og kranabíll voru kvödd á staðinn. Hífði síðan kranabíllinn þann sem hafði oltið aftur upp á veg- inn og þurfti að nota til þess aðra akreinina. Myndaðist því hættu- ástand. Kom þá skyndilega Daihatsu fólksbíll aðvífandi og náði ökumaður ekki að hemla í tæka tíð í hálkunni. Skipti þá engum togum að hann lenti fyrst á lögreglubíl, síðan á framenda bíls sem kom á móti, þá á homi kranabílsins og kastaðist svo aftur á bílinn sem kom úr gagnstæðri átt. Þama urðu þó engin slys á fólki en Daihatsubíllinn er töluvert skemmdur svo og hinir bílamir þrír sem hann lenti á. -ÓTT 4 (Sára Barnadansar og létt spor úr samkvæmisdönsum 10-12 ára Samkvæmisdansar Discodansar. Lambada Sértímar í þessum vinsæla dansi. Líka kennt með í öðrum hópum. Rock’n Sértímar í rokki og tjútti. Roll Fyrir fullorðna Allir dansar kenndir. HOLL HREYFING í GÓÐUM FÉLAGSSKAP BMigíðy INNRfTUN 2.-6. janúar, í símum: 20345 og 74444, kl. 13.00-19-00. Suðurnes: Keflavík, Grindavík, Njarðvík, Sand- gerði og Garður. Innritun 2.-6. janúar kl. 21.00- 22.00 í síma (92)68680. AFHENDING SKÍRTEINA 7UDESEMBERN í Brautarholti 4, kl. 13-00-16.00 fyrir þá nemendur sem verða í Brautarholti og í Hafnarfirði. í Drafharfelli 2-4, kl. 17.00-20.00 fyrir nemendur sem.verða í Drafnarfelli, Árseli, Foldaskóla, Ölduselsskóla og í Mosfellssveit. I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.