Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1990, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1990, Qupperneq 9
ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 1990. 9 Utlönd Sendiherra Páfagarðs skokkar í garði sendiráðsins í Panamaborg á meðan nunna sópar. Noriega hershöfðingi heldur enn kyrru fyrir í sendiráðinu. Simamynd Reuter Endara vill að Bandaríkjamenn grípi Noriega Eftir að hafa dvalið níu daga í sendiráði Páfagarðs í Panamaborg á Noriega hershöfðingi ekki annarra kosta völ en að gefa sig fram við yfir- völd í Panama eða í Bandaríkjunum, að því er erkibiskup kaþólskra í Pa- nama sagði í gær. Forseti Panama, Guillermo End- ara, hvatti í gær Páfagarð til að láta Noriega fara úr sendiráðinu til að bandarískir hermenn gætu tekið hann. Svo virðist sem hvatning for- setans gangi þvert á orð dómsmála- ráðherrans sem á sunnudaginn sagði að hann myndi biðja Páfagarö um að afhenda Noriega til að hægt yrði að láta réttarhöld fara fram yfir hon- um í Panama. Bandaríkjastjóm tilkynnti í gær- kvöldi að nokkrir af þeim 13 þúsund hermönnum sem sendir voru til Pan- ama til viðbótar þeim 12 þúsund sem fyrir voru hefðu verið sendir heim til Bandaríkjanna. Til Bandaríkj- anna héldu einnig 19 af þeim 20 bandarísku stjórnarerindrekum sem reknir vom frá Nicaragua í hefndar- skyni fyrir árás á bústað sendiherra Nicaragua í Panamaborg. Einn stjórnarerindrekanna var í heim- sókn í Bandaríkjunum þegar Daniel Ortega, forseti Nicaragua, tilkynnti um brottreksturinn. Bandarískir hermenn sögðust hafa álitið að húsið, sem þeir leituðu vopna í, hefði ekki verið opinber bústaður sendiherra Nicaragua og þess vegna hefði diplómatísk frið- helgi ekki náð yfir það. Reuter Grænland: Myrti fimm á nýársdagsmorgun Átján ára gamall maöur frá Narsaq á Grænlandi, sem á nýársdagsmorg- un myrti fimm manns og særði þrjá, var í gær dæmdur í fjögurra vikna gæsluvarðhald. Maðurinn hefur áð- ur lent í kasti við lögin. Hann viðurkenndi að hafa lent í rifrildi við átta manns í klúbb í Narsaq, fariö heim til sín og náð í riffil, snúið aftur til klúbbsins og hleypt af. Hin myrtu, tvær konur, 19 og 26 ára, og þrír karlar, 18,33 og 34 ára, vom skotin í hnakkann. Tvær konur, 18 og 26 ára, eru í lífshættu eftir árásina. Önnur fékk skot gegn- um augað en hin bak við eyrað. Sá þriðji, sem lifði af skotárásina, 22 ára gamall maðúr, var skotinn gegnum munninn. Hann gat greint lögreglunni frá hver morðinginn væri þegar hinir myrtu og særðu fundust á mánudagsmorgun. Riffill- inn hafði verið skilinn eftir á morð- staðnum. Lögreglan fann morðingj- ann sofandi heima hjá móður sinni. Ritzau \fauDro\? Kennslustaðir: Auðbrekka 17, Kópavogi og „Hallarsel“ við Þarabakka 3 í Mjódd. Kennum alla samkvæmisdansa: suðurameríska, standard og gömlu dansana. Einnig barnadansa fyrir yngstu kynslóðina. Einkatímar eftir samkomulagi. Innritun og upplýsingar dagana 2.-6. janúar kl. 13-19 í síma: 64 1111. Kennsluönnin er 18 vikur, og lýkur með balli. / FID Betri kennsla - betri árangur. Dansskóli Sigurðar Hákonarsonar Til viðskiptamanna sparisjóðanna: Um breytingu á kjörum Trompbóka. Samkvæmt ákvörðun Seðlabanka íslands 24. nóvember s.l. er innlánsstofnunum óheimilt að bjóða viðskiptavinum sínum óbundna innlánsreikninga með skiptikjörum taliðfrá 1. janúar 1990. Því munu sparisjóðirnir breyta kjörum Trompbóka 1. janúar 1990 þannig að lœgsta óhreyfð innstœða í sex mánuði, miðað við 30. júní og 31. desember, verði verðtryggð miðað við lánskjaravísitölu auk vaxta samkvœmt ákvörðun sparisjóðsins. Aðrar innstœður á Trompbók bera hins vegar óverðtryggða vexti. Þar eð samanburður óverðtryggðra og verðtryggðra kjara er samkvœmt ofansögðu ekki lengur heimilaður á óbundnum innstœðum munu sérfrœðingar sparisjóðanna fylgjast náið með verðbólguþróun frá mánuði til mánaðar í því skyni að aðlaga óverðtryggð kjör verðtryggðum kjörum og tryggja þannig Trompbókareigendum sem besta ávöxtun sparifjár síns, héreftirsem hingað til. Sparisjóðirnir þakka viðskiptavinum sínum samskiptin á árinu 1989 um leið og þeir óska þeim og landsmönnum öllum velfarnaðar á nýju ári. n SPARISJÓÐIRNIR -fyrir þig og þína Kodak Express 3 MÍNÚTUR Opnumkl. 8.30. Cm TlTTn LJ rmnn LJOSMYNDAÞJONUSTAN HF LAUGAVEGI 178 • SÍMI 68 58 11

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.