Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1990, Page 22

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1990, Page 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 1990. Utlönd Fall Berlinarmúrsins síðla á síðasta ári er án efa sá atburður sem er mörgum táknrænn fyrir þær sviptingar og umrót sem áttu sér stað í Austur-Evrópu árið 1989. Þessi illræmdi múr er nú einungis minnisvarði í hug- um Evrópubúa sem og annarra, minnisvarði um kalda stríðið og skiptingu Evrópu. Símamyndir Reuter ■ ■ DV DV - Breyt - Gerðum, C t símanúmer í Gerðum, Katrín Eiríksdóttir Lyngbraut11 sími 92-27118 >arði Garði: KAHÍVTE KARATEFÉLAG VESTURBÆJAR Byrjenda- og fram- haldsnámskeið hefjast 4. janúar. Innritun i simum 12355 og 12815. Ánanaustum 15 — Reykjavlk — Slmi 12815 Ásakanir um ofbeldi og kosning- asvindl einkenndu kosningar þær sem fram fóru í Panama í maí á síðasta ári. Á þessari mynd má sjá stuðningsmann þáverandi einvalds í Panama, Manuels Antonio Nori- ega, beija á vara-forsetaframbjóð- andaefni stjómarandstöðunnar, Guillermo Ford. Að kosningunum afstöðnum, þegar allar líkur bentu til yfirgnæfandi sigurs stjómar- andstöðunnar, lýsti Noriega þær ógildar. Noriega dvelst nú í sendi- ráði Páfagarðs í Panamaborg en þar leitaði hann hælis eftir að bandarískir hermenn réðust inn í landið seint á árinu 1989 með það m.a. fyrir augum að handtaka Noriega og draga hann fyrir dóm- stóla í Bandaríkjunum þar sem hann er eftirlýstur. Ford er nú varaforseti Panama. Forseti er Guillermo Endara. Alexander Dubcek, sem var í for- ystu fyrir umbótahreyfmgunni Vorið í Prag í Tékkóslóvakíu fyrir röskum tveimur áratugum, var kominn í fremstu röð stjómarand- stæðinga í landinu í nóvember á síðasta ári en þá náði umbótabylgj- an, er gekk yfir Austur-Evrópu árið 1989, til Tékkóslóvakíu. Dubcek, sem fluttur var hlekkjaður til Sov- étiíkjanna eftir innrás flestra að- ildarríkja Varsjárbandalagsins inn í Tékkóslóvakíu árið 1968, var kos- inn forseti tékkneska þingsins rétt fyrir áramótin síöastliðin. Rúmenar börðust innbyrðis í lok síðasta árs er byltingarhugmyndir Austur-Evrópu náðu loks til þessa lokaöa lands. Aimenningur og her- menn áttu í blóðugum bardögum við liðsmenn öryggissveita fyrmrn forseta, Nicolae Ceausescu, og geis- aði mikil barátta á götum Búkarest. Sviptingasamt ár: Myndir ársins 1989 Miklir og harðir bardagar áttu sér stað milli skæruliða og stjórnar- hermanna í El Salvador seinni hluta ársins 1989. Þetta voru hörðustu bardagar milli þessara aðila síðastliðinn áratug og varð mikið mann- tjón. Ljósmyndari Reuters náði þessarl mynd af starfsmönnum neyðar- hjálpar El Salvador aö störfum í einu héraða landsins þar sem miklir bardagar áttu sér stað.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.