Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1990, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1990, Page 4
4 FIMMTUÐAGUR; 22. FEBRÚAR 1990. Fréttir Eirikur Ingi Friðgeirsson, yfirmatreiðslumeistari á Hótel Holti, heldur á loðnu- tylltum kútmaga og siidartríói úr ferskri sild. DV-mynd GVA Menningarverðlaun DV: Loðna í kútmaga Matargerðarlistin hefur ailtaf leik- iö stórt hlutverk viö afhendingu Menningarverðlauna DV og svo er einnig nú. Eríkur Ingi Friðgeirsson, yfirmatreiðslumeistari á Hótel Holti, og samstarfsmenh hafa lagt sig fram við að útbúa nýja og spennandi rétti úr hráefni sem telst sjaldgæft á okkar boröum. Forrétturinn að þessu sinni er loðnufylltur kútmagi í hvítvínssölva- sósu. Eiríkur segist lengi hafa hugsað sér að gera eitthvað gott úr loðnunni sem fæst hér fersk á þessum árs- tíma. Kútmagi þarf töluvert langa suðu og það tók nokkum tíma að finna góða suðuaðferð. Að lokum kviknaði hugmynd um aö fylla hann með hrísgijónum, sjóða og tæma síð- an. Loönan er flökuö og síðan sett í blandara með steinbítskjöti, eggja- hvítu og ijóma. Farsið er bragðbætt með salti, pipar og þarastrimlum. Loðnufarsinu er sprautað í kútmag- ann og hann síðan gufusoðinn í 10 mínútur. Aðalréttur er fersk síid í þremur útfærslum. Sporðstykki er steikt á gamla mátann í feiti, hálft síldarflak - skorið á lengdina - er fyllt með síld- arfarsi sem bragðbætt er meö eplum og annaö hálft er fyllt með venjulegu síldarfarsi. Með þessu er borinn fram kartöflupottur, laukur soöinn í sérríi og kryddi, gulrótarstrimiar og dill- sosa. -JJ Prófkjör Alþýðuflokksins í Hafnarfirði: Engar breytingar í efstu sætum? - Guðmundur Árni gulltryggður í fyrsta sæti „Það verða litlar sem engar breyt- ingar á fimm efstu sætum. Svo mikið er víst aö þau sem eru í þremur efstu sætum halda sínu,“ sagði krati í Hafnarfirði þegar hann var að spá um hugsanleg úrslit í prófkjöri Alþýðuflokksins en próf- kjörið verður haldið dagana 24. og 25. febrúar. Allir sem DV ræddi við sögðu að Guömundur Árni Stefánsson bæj- arstjóri væri öruggur um að halda efsta sæti framboðslistans. Allir voru sammála um að hann nyti taisverðra vinsælda. Jóna Ósk Guðjónsdóttir, forseti bæjarstjórn- ar, var í öðru sæti við síðustu kosn- ingar. Allir viömælendur DV voru á því að Jóna Ósk yrði áfram í ööru sæti. Ingvar Viktorsson mun halda þriðja sæti. Spámennirnir voru ekki eins Fréttaljós Sigurjón M. Egilsson vissir um þau sem voru í fjórða og fimmta sæti. Þó er ekki gert ráð fyrir miklum breytingum - í mesta lagi að Valgerður Guðmundsdóttir og Tryggvi Harðarson hafi sæta- skipti. Tryggvi var í fjórða sæti og Valgerður fimmta við síðustu kosningar. í kosningunum 1986 jók Alþýðu- flokkurinn fylgi sitt verulega 1 Hafnarfirði. Flokkurinn fékk fimm fulltrúa í bæjarstjórn en hafði tvo áður. Kratar eru nokkuð bjartsýnir um að þeir haldi sínu. „Ég hef ekki trú á að fólk láti láta- lætin í Jóni Baldvin aftra sér frá því að kjósa Alþýðuflokkinn í bæj- arstjómarkosningunum,“ sagði einn viðmælenda DV þegar hann var spurður um lélega útkomu flokksins í skoðanakönnunum að undanfömu. Þær skoðanakannan- ir hafa mælt fylgi á landsvísu og í Reykjavík. Erlingur Kristensson, sem var í sjötta sæti síðast, fær eflaust harða keppni um það sæti. Þau sem helst eru nefnd í þá baráttu eru Árni Hjörleifsson, Eyjólfur Sæmunds- son, Garðar Smári Gunnarsson og Klara S. Sigurðardóttir. Alþýðuflokkur og Alþýðubanda- lag mynda meirihluta í bæjarstjórn Hafnarfjarðar. Prófkjör Alþýðu- flokksins er bindandi fyrir tíu efstu sæti.Þátttakendureru25. -sme Guðmundur Oddsson er öruggur í fyrsta sæti - stefnir í átök um þriðja og fjórða sæti krata í Kópavogi Guðmundur Oddsson, skólastjóri og bæjarfulltrúi Alþýðuflokksins í Kópavogi, virðist vera öruggur um að halda sæti sínu í prófkjöri sem fram fer um næstu helgi. Þeir sem DV talaði við voru allir á einu máli um að enginn annar frambjóð- endanna hefði möguleika á að taka sætið af Guðmundi. Nokkrar breytingar hafa orðið á bæjarstjórnarliði Alþýðuflokksins á yfirstandandi kjörtímabili. Rann- veig Guðmundsdóttir. og Hulda Jensdóttir hættu í bæjarstjóm. Annar þeirra sem tóku sæti í þeirra stað, Kristinn Ó. Magnússon, gefur ekki kost á sér nú. Fréttaljós Sigurjón M. Egilsson Sigríður Einarsdóttir mynd- menntakennari, sem tók sæti Huldu í bæjarstjórninni, virðist vera örugg um annað sætið í próf- kjörinu. Viðmælendur DV voru flestir á því að hörð barátta yrði um þriðja og fjórða sæfi listans, á milli Gunn- ars Magnússonar, sem er formaður Alþýðuflokksfélagsins í Kópavogi, og Helgu E. Jónsdóttur. Viömæl- endur DV voru ekki á einu máli um hvort þeirra næði þriðja sæt- inu. Eins má búast við að Ólafur Björnsson, einn af þekktustu íþróttamönnum Kópavogs síðustu ár; geti blandað sér í baráttuna. Helst er talið að ungt fólk geti haft þau áhrif að Ólafur verði í þriðja eða fjóröa sæti listans. Alþýðuflokkurinn á nú þrjá bæj- arfulltrúa og stendur að meirihluta ásamt Alþýðubandalaginu. Alls hafa tíu manns gefið kost á sér í prófkjörinu. Kosið verður á laugardagogsunnudag. -sme í dag mælir Dagfari Falsaður tommustokkur Nú er illt í efni. Vísitalan fer hækk- andi eftir því sem launin lækka. Vísitala byggingarkostnaðar hækkaði um tvö prósent á milli mánaða. Þetta er mun meiri hækk- un en á vísitölu framfærslukostn- aðar og á rætur sínar aö rekja til þess að mælieiningum í vísitölu- húsinu hefur fjölgaö. Þaö tekur sem sagt fleiri stundir hjá húsa- smiðum, rafvirkjum, pípulagn- ingamönnum og múrurum að leggja hönd á vísitöluhúsið í febrú- armánuði heldur en þaö tók þá í janúar. Nú liggur ekkert fyrir um það að vísitöluhúsið hafi stækkað, en af einhverjum ástæðum tekur það iðnaðarmennina lengri tíma að smíða þetta sama hús. Iðnaðar- menn vinna samkvæmt uppmæl- ingu svo ekki verður dregin önnur ályktun af þessari hækkun en sú, að tommustokkurinn hafi minnkað þegar þeir mæla upp vísitöluhúsið í febrúar, frá því sem tommustokk- urinn var þegar þeir mældu húsið í janúar. Menn hafa verið aö halda því fram að tækninni fleygi fram. Iðn- aðarmenn hafa verið taldir njóta góðs af nýjum verkfærum og hrað- virkum tækjum sem geri þeim kleift að ljúka við verk sín á mun skemmri tíma en áður. Uppmæl- ingin hefur aö sjálfsögöu ekki breyst þótt tímaspamaðurinn og fljótvirknin aukist, enda hefur upp- mæhng verið heilög kýr á íslandi. Uppmælingaraöalhnn er ekki aðall fyrir ekki neitt. Hann kemur með sinn tommustokk, mælir fermetr- ana og lengdarmetrana og tekur sinn taxta, hvort sem tækin breyt- ast eöa verkin léttast. Svo er upp- mælingin hagkvæm aö því leyti aö húsbyggjandinn er aldrei spuröur um álit, samningar um kaup og kjör eru óþarfir, vegna þess að meistarinn semur við sveininn og meistaranum er sama hvort hann borgar meira eða minna fyrir vinn- una. Húsbyggjandinn borgar brú- sann. Eina vörnin sem sauðsvartur al- múginn á í þessari stöðu er að mæla vísitöluna og gæta þess aö vísitöluhúsið stækki ekki. Þannig telja menn sig geta komið í veg fyr- ir innbyggðar hækkanir, meðan taxtarnir hækka ekki meir en laun- in á hinum almenna markaði. Þaö var þetta sem þeir skrifuðu upp á í hinum frægu kjarasamningum á dögunum sem þjóðin hefur verið að hrósa síðan. En í kjarasamningunum og út- reikningunum gleymdu þeir einu. Þeir gleymdu aö taka tommustokk- inn með í reikninginn. Tommu- stokkurinn er nefnilega það vopn sem uppmælingaraöalhnn bregður á loft og gamalt máltæki segir að þegar sverð þitt er styttra þá geng- urðu feti framar. Það er akkúrat þetta sem uppmæhngarstéttin hef- ur gert. Tommustokkurinn reynist styttri en áður og iðnaðarmennim- ir hafa gengið feti framar. Forsvarsmenn vinnuveitenda og almennra launþega eru að rífast út af þessu. Voru jafnvel svo vit- lausir að mæla vísitöluhúsið upp á nýtt með gamla tommustokknum. En það þýðir ekkert að rífast út í uppmælingarmenn eða halda því fram með einhverjum rökum að vísitöluhúsið sé óbreytt að stærð. Ekki geta uppmælingarmenn gert að því þótt tommustokkurinn þeirra styttist í kjarasamningum eða því að hann hafi veriö lengri í janúar heldur en hann er í febrúar. Voru ekki allir að tala um að fólk þyrfti að herða sultaróhna, skera niður útgjöld, minnka við sig í þessu og hinu? Auðvitað minnkar tommustokkurinn eins og allt ann- að þegar shkir kjarasamningar eru gerðir og iðnaðarmenn hafa tekið þessu möglunarlaust og stigið skrefi framar í lífsbaráttu sinni til að mæta lífskjaraskerðingunni. Ef menn vilja fylgjast með upp- mælingaraðlinum eiga kjararann- sóknarnefndir og hagstofur að hætta að fylgjast meö stærð vísi- töluhússins. Þeir eiga að hætta að mæla greiðslurnar fyrir fermetr- ana. Það sem á að gera er að mæla tommustokkinn og búa th nýja vísitölu, vísitölu tommustokksins. Þannig er hægt að fylgjast með uppmælingunni og brúa bilið milh uppmælingar og framfærslu. Að öðru leyti á aö láta uppmælinga- raðalinn í friði. Hann er heilagur sem áður. Hann getur ekkert að því gert ef nú eru seldir styttri tommu- stokkar en í gamla daga. Menn verða að fylgjast með tískunni og - framförunum. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.