Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1990, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1990, Side 8
8 FIMMTUDAGUR 22. FEBRUAR 1990. Útlönd Fimm mUljarða dollara lán Alþjóðabankinn mun líklega lána finun milljarða dollara til ríkja Austur-Evrópu, þar af aUt að 2,5 milijarða dollara til Póllands næstu þtjú árin til að styðja við eihahags- legar umbætur aö því er skýrt var frá í morgun. í dag mun forseti bankans, Barber Conable, undir- rita 360 mUljón dollara lán til Pól- lands og er það fyrsta lánið sem pólska þjóðin hlýtur frá Alþjóða- bankanum síðan Pólland gekk tU liðs við hann árið 1986. Þau ríki Austur-Evrópu sem ekki eiga aðUd að Alþjóðabankanum geta einnig fengið lán ef þau gerast aöUar að bankanum. Ungverja- land, Rúmenía og Júgóslavía eiga þegar aðild að bankanum og Tékkóslóvakía hefur einnig farið fram á að gerast aðUi. Alþjódabankinn hyggst lá um Austur-Evrópu, þar á Póllandi þar sem þessi n tekin, fimm milljarða dollara næaiu þrjú ár. Símamynd Reuter Sumarið þýðingarmikið fyrir Gorbafsjov? Sumarið gæti reynst úrslitavaldurinn fyrir umbótatilraunir Gorbatsjovs Sovétforseta að því er sovéskur hagfræðingur sagði bandariskum þing- mönnum í gær. Valery Makarov, sem er háttsettur í visindaakademíu Sovétríkjanna, sagði að efnahagur Sovétríkjanna færi versnandi án þess að úrbætur væru í sjónmáli. Sagði hann nauðsyn vera á róttækum breyt- ingum í Sovéríkjunum. A þingínu bar einnig bandarískur sérfræðingur, Ed Hewett Irá Brook- ings-stofnuninni, vitni. „Grundvallarbreytingar verða að eiga sér stað,“ sagði Hewett. Hann kvaðst búast við að hnignunar yrði vart í efnahags- lífi Sovétríkjanna nú eftir nær engan hagvöxt árið 1989. Fimm þúsund handteknir í Nepal Lögreglumenn standa vörð í Kathmandu í Nepal. Þar hafa átt sér stað átök milli óeirðalögreglu og borgara. Simamynd Reuter Mannréttindasamtök í Nepal segja að þarlend yfirvöld hafi handtekið fimm þúsund manns í íjökiamótmælum síöan á sunnúdag og að tuttugu hafi látist í róstum. í skýrslu frá samtökunum segir einnig að raótmælend- ur hafi sætt alvarlegum pyntingum. Talsmaður samtakanna, sem ekki vildi láta nafns síns getið, hvatti Sameínuðu þjóðimar til að leggja að stjórnvöldum í Nepal aö sýna stillingu og virða mannréttindi. Stjórnvöld hafa viðurkennt að átta hundruð hafi veriö handteknir síðustu daga. Mótmæli hófust i Nepal um síðustu helgi þegar stjórnandstæðingar fóru fram á fjölflokkakerfi. Talið er að að minnsta kosti tíu hafi látist. í gær höfnuðu stjórnvöld og andófsmenn málamiðlunarsamkomulagi til að binda enda á átökin. Jafnaðarmenn með góðan stuðning Samnkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar um fylgi stjórnmálaflokka í Austur-Þýskalandi, sem birtar voru í dagbiaðinu Berliner Zeitung, hyggst ríflega helmingur Austur-Þjóðverja, eða 53 prósent, kjósa flokk jafnaðarmanna, austur-þýska Sósíaldemókrataflokkinn, í fyrstu frjálsu kosningunum þar í landi í rúma fjóra áratugi en áætlað er að þær fari fram þann 18. næsta mánaöar. í könnuninni kom einnig fram að Hans Modrow, sem er kommúnisti og jafnframt forsætisráðherra, nýtur mestr- ar virðingar stjórnmálamanna í Austur-Þýskalandi. Niðurstöður könnunarinnar benda til að kristnir demókratar fengju þrettán prósent yrði gengið til kosninga nú, en kommúnistar tólf pró- sent. Samkvæmt skoöanakönnunum bæði í Austur- og Vestur-Þýskalandi síðustu dægrin hafa sósíaldemókratar allt frá 36 og upp í 55 prósent fylgi. Er þetta allt að fjórum sinnum meira en sá flokkur sem næstur kemur. Mikið atvinnuleysi í Póllandi Mazowiecki, Póllands. forsætisráðherra Símamynd Reuter Atvinnuleysi í Póllandi tvöfald- aðist milli mánaða, frá janúar til febrúar, og voru eitt hundrað þús- und manns atvinnulaus um miðjan þennan mánuð að því er fram kom í skýrslu vinnumálaráðuneytisins í gær. Þar sagði að 107.009 manns hefðu verið skráðir atvmnulausír þann 15. þessa mánaðar. Á sama tíma í janúar voru 55.800 á atvinnu- leysísskrá. Þetta aukna atvinnuleysi er að- eins eitt sjáanlegt merki vaxandi kreppu í Póllandi. Fastlega er búist við að fjöldi atvinnulausra aukist enn. Stjórnvöld búast við fjögur hundruð þúsund atvinnulausum á árinu en sumir spá því aö atvinnu- lausir verði taldir í milljónum. Ríkisstjórnin, sem er undir for- sæti Mazowieckis, eins liðsmanna Samstöðu, reynir nú að stöðva verðbólguhraðann og bæta efnahaginn. Alþjóðabankinn mun í dag undirrita tvær lánveitingar til Póllands, alls 360 miUjónir dollara. DV Háttsettur sovéskur umbótasinni: Vill aukin völd forseta stofnun nýs og öflugs embættis for- seta. Til slíks þarf stjórnarskrár- breytingu og er slíkt einungis hægt á fulltrúaþingi. í kjölfar mikilla rósta og óstöðug- leika víðs vegar um Sovétríkin, frá Moldavíu til róta Kákasusfjalla og Mið-Asíulýðveldanna, hefur stuðn- ingur aukist við hugmyndir um að forseti hafi mun skýrari völd. Alex- eyev sagði 1 viðtali við Moskvufréttir að töf gæti leitt til hruns Sovétríkj- anna. Eins og nú standa mál er Gor- batsjov þjóðarleiðtogi vegna þess að hann heldur stöðu forseta forsætis- nefndar Æðsta ráðs Sovétríkjanna, það er þingsins. Slíkt embætti felur í sér skyldur og skuldbindingar þjóð- arleiðtoga. í Moskvufréttum sagði að forseta- stjórn gæti fyllt upp í það tómarúm sem myndst þegar völd og áhrif kommúnistaflokksins' fara þverr- andi. í stjórnaskrá landsins er ekki gerður skýr munur á völdum flokks og stjórnar. Alexeyev kvaðst telja að sá sem hlyti hið nýja embætti forseta ætti að segja skilið við flokkapólitík- ina. Reuter Háttsettur sovéskur þingmaður og þekktur umbótasinni, Sergei Alexey- ev, hvatti í gær til þess að völd Mik- hails Gorbatsjovs forseta yrðu aukin. Þetta var haft eftir Alexeyev í viku- ritinu Moskvufréttir. Alexeyev, sem er í forsæti stjórnar- skrárnefndar Sovétríkjanna, sagði að styrkja þyrfti stöðu forseta til að koma í veg fyrir hrun landsins. Gor- batsjov hefur lagt til að sett verði á laggirnar nýtt og valdamikið emb- ætti forseta en þessi tillaga er hluti áætlunar hans um enduruppbygg- ingu ríkisins og yfirfærslu valda og áhrifa frá kommúnistaílokknum til rílússtj órnarinnar. í Moskvufréttum sagði að Æðsta ráðið væri nú að undirbúa fund full- trúaþingsins þar sem fjallað yrði um Mikhail Gorbatsjov, forseti Sovétríkjanna. Simamynd Reuter Minnkandi ólga á verðbréfamörkuðum Þegar kauphöllinni í Tokýo var lokað í dag hafði verð á verðbréfum mjakast upp á við eftir mikið verð- fall í gær. Verðfallið, sem var það mesta frá því skömmu eftir mánu- daginn svarta, 19. október 1987, varð vegna ótta við vaxtahækkun. Verð á mörkuðum í Evrópu lækkaði lítilsháttar í gær, einnig vegna ótta við vaxtahækkun, bæði í Japan og Evrópu. Talið er að að- sókn í lán muni aukast vegna þarf- arinnar á að fiármagna umbætur í Austur-Þýskalandi. I Bandaríkjun- um gætti taugatitrings en lækkun- in þar varð lítil. Fjármálaráðherra Frakka, Pierre Beregovoy, hefur_ varað Vestur- Þýskaland við vaxtahækkun. Kvað hann slík viðbrögð, vegna óvissun- ar um fyrirhugaða samræmingu gjaldmiðla þýsku ríkjanna, óþörf. Reuter Mótmæla skýrslu um mannréttindabrot Yfirvöld í Peking vísuöu í gær á bug skýrslu bandaríska utanríkis- ráðuneytisins um víðtæk brot á mannréttindum í Kína og töluðu um rangfærslu og óréttmæta íhlutun. Stjórnarerindrekar í Kína sögðu aö fyrstu viðbrögð yfirvalda þar, sem birtust í stuttri athugasemd á innsíðu málgagns kommúnistaflokksins, hefðu verið hljóðlátari en búist hafði verið við. Þótti þeim greinilegt að kínversk yfirvöld væru enn að reyna að bæta samskiptin við Bandaríkin. Hins vegar sögðu stjórnarerindrekar það ekki ólíklegt að sendiherra Bandaríkjanna í Kína yrði kallaður til kínverska utanríkisráðuneytisins og honum afhent mótmæli. Bentu stjórnarerindrekamir á að í Dagblaði alþýðunnar hefði þess ekki verið get- ið hvaða áhrif málið myndi hafa á samskipti Bandaríkjanna og Kína. Erfitt þykir fyrir kínversk yfirvöld að ráðast á öll atriðin í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins þar sem sumar ásakanirnar í henni eru byggðar á opinberum kínversk- um heimildum. í skýrslu utanríkisráðuneytisins kemur fram mikil ánægja með þróun mannréttindamála í Austur-Evrópu. Reuter Sendifulltrúi Kína i mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna veifaði spjaldi meö nafni lands síns til að trufla ræðu kínversks andófsmanns á fundi nefndarinnar í Genf í gær. Kínverska sendinefndin dró í efa rétt námsmanns- ins til að ávarpa mannréttindanefndina og kallaði hann glæpamann. Símamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.