Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1990, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1990.
11
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
James Brown
- sem nú er orðinn 56 ára og oft
nefndur guðfaðir soultónlistar-
innar, þarf nú ekki lengur að sitja
inni á daginn líka. Hefur hann
nú leyfi til að vinna í hinu al-
menna þjóðfélagi en Brown af-
plánar nú sex ára dóm fyrir lík-
amsárás í State Park Correction-
al Center í Suður-Karólínufylki.
Brown hefur leyfi til að vinna á
skyndibitastöðum og slá gras fyr-
ir vegagerðina, en má hvergi vera
þar sem áfengir drykkir eru hafð-
ir um hönd. Nokkuð hefur verið
um það að útvarpsstöðvar hafi
viljað fá hann fyrir plötusnúð, en
ekkert hefur enn verið ákveðið
um slíkt.
Amold
Schwarzeneg-
ger
og eiginkona hans, María Shriv-
er, eignuðust dóttur þann 13. des-
ember. Var frumburðurinn
skírður Katherine Eunice
Schwarzenegger, og er miðnafnið
fengið frá móður Maríu, Eunice
Shriver. Að sögn talsmanns
þeirra hjóna mun barnið vera
alveg eins og móðirin, eða gull-
fallegt. Arnold, sem nýlega lauk
við að leika í sálfræðilegri hroll-
vekju, „Total Recall", í Mexíkó,
mun nú taka sér frí um tíma til
að geta verið með fjölskyldunni.
Um miðjan mars mun María svo
aftur halda til starfa hjá sjón-
varpsstööinni NBC.
Lech Walesa
mun nú hafa selt Mount Comp-
any og Wamer Bros rétt til að
gera kvikmynd um ævi sína og
störf. Eftir því sem sögur herma
mun Walesa hafa hagað sér sem
sannur kapítalisti við samninga-
gerðina og náð að fimmfalda til-
boð fyrirtækjanna. í upphafi átti
hann að fá 12 milljónir, en Walesa
vissi hvers virði hann var og fór
fram að meira. Þá var tilboðið
hækkaö í 30 milljónir en það var
samt ekki nóg fyrir Walesa því
hann hafði heyrt að í Hollywood
hefðu verið borgaðar 60 mÚljónir
fyrir rétt til aö kvikmynda ævi
brasilísks umhverfisverndar-
sinna, og hann væri sko ekki
minna virði. Warner Bros gafst
upp og Walesa fær sínar 60 millj-
ónir.
Meðal þeirra sem heilsuðu upp á Gunnar voru Þór Magnússon og Víglund- Gunnar í hópi systkina sinna. F.v. Jóhanna, Lúðvíg, afmælisbarnið, Ásta,
ur Þorsteinsson. Lengst til vinstri á myndinni er bróðir hans, Hjálmtýr. María og Hjálmtýr.
DV-myndir KAE
Borgarstarfs -
maður sjotugur
Þann 16. febrúar sl. varð Gunnar Hjálmtýsson sjötugur. Ekki er víst að ur hann sópað götur hennar í fjöldamörg ár.
nafnið hljómi kunnuglega í eyrum margra, en fleiri kannast við andlitið. Haldið var upp á stórafmælið á Loftleiðum þann 18. febrúar og var margt
Gunnar er nefnilega einn af þeim mörgu sem halda borginni hreinni og hef- um manninn eins og títt er þegar haldið er upp á svo merkan áfanga.
Hönd i hönd leiddust þau Barron
og Jane um götur Hollywood. Þá
vissi hún ekki að hann var með
eyðnismitaður.
Jane Fonda
hræðist
eyðni
Jane Fonda getur ekki á heilli sér
tekið um þessar mundir. Maðurinn,
sem hún átti í nokkuð innilegu sam-
bandi við eftir að slitnaði upp úr
hjónabandi hennar fyrir tæpu ári,
greindist ekki alls fyrir löngu með
eyðni.
Sá er um er rætt er Barron Matal-
on, hárgreiöslumeistari í Hollywood.
Hann og Jane eru tahn hafa átt í
ástarsambandi, alla vega segja slúð-
urdálkaskýrendur að þau hafi ferð-
ast saman til Evrópu þar sem þau
dvöldu á sama hóteli fyrir utan öll
stefnumótin sem þau áttu í Holly-
wood.
Þegar það svo uppgötvaðist að
Barron var eyðnismitaður voru þau
Jane hætt að vera saman. En Jane
er eigi að síður mjög hrædd um aö
hún hafi smitast af eyðni áf Barron,
eða svo segir góður vinur hennar.
Sami vinur Jane hefur eftir henni
að henni líði mjög illa vegna þessa
því það sé hægt að ganga með eyðni-
veiruna í sér í marga mánuði án þess
að hún greinist í blóðinu. Það líða
þvi væntanlega margir mánuðir áð-
ur en Jane fær úr því skorið hvort
hún er smituð eða ekki.
)
STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR
SÉRTLBOÐ HELGARINNAR
Þú þarft ekki aö ieita lengra
Grundarkjör
Opið: Mánud.-fimmtud. Föstud. Laugard. Sunnud.
REYKJAVÍKURVEGI72, HAFNARFIRÐI, S. 53100 9-20 9-21 10-18 11-18
GARÐATORG11, GARÐABÆ, S. 656400 9-19 9-20 10-18 11-18
FURUGRUND3, KÓPAVOGI.S. 46955 0G 42062 9-20 9-20 10-18 11-18
STAKKAHLÍÐ 17, REYKJAViK, S. 38121 9-20 9-20 1M6 Lokað
BRÆÐRABORGARSTÍG 43. REYKJAVÍK.S. 14879 9-20 9-20 10-16 Lokað
VERSLANIR FYRIR ÞIG