Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1990, Síða 23
FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1990.
31
Sími 27022 Þverholti 11
Smíöum sumarhús. Sími 91-652388 og
675134.
Ford Econoline 1986 til sölu, 6,9 lítra
dísil, sjálfskiptur, 2 olíutankar, fljót-
andi afturöxlar (Dana 60), tvöföld
hliðarhurð. Upplýsingar í Bílabank-
anum, Bíidshöfða 12, sími 673232. Opið
til kl. 22 virka daga. Ath., rekstrarað-
ilar geta fengið vsk. endurgreiddan.
Framleiði hliðarfellihurðir, áratuga
reynsla, hafa staðist alla íslenska
veðráttu. Framl. einnig handrið,
hringstiga, pallastiga og annast alla
almenna járnsmíði. Járnsmiðja Jónas-
ar, s. 91-54468.
■ Sumarbústaðir
■ BOar til sölu
Isuzu WFR, 8 manna, árg. 1986, til sölu,
fallegur bíll. Verð 650 þús. Uppl. í
síma 92-11146 og 985-20223.
Volvo Lapplander 1981 til sölu, ekinn
aðeins 50 þús., 35" dekk, spil 4ra
tonna. Toppeintak. Uppl. í síma 18285
eftir kl. 19 eða á Borgarbílasölunni,
s. 83150.
Toyota Hilux ’82 dísil til sölu. Uppl. í
sima 91-30733 eftir kl. 18.
■ Ymislegt
MMC Pajero langur, árg. ’87,
turbo, 4x4, ekinn 80 þús., 5 gí
dyra, 7 manna, vökvastýri, rafmagn í
rúðum, blár/silfur, tveir dekkjagang-
ar. Hagstætt verð og góð greiðslukjör.
Uppl. í síma 91-17678 milli kl. 17 og 21.
Toyota Hiace dísil 4x4, árg. ’87, til sölu,
sæti fyrir 8, tvöfaldur gangur af dekkj-
um á íelgum. Skipti á ódýrari koma
til greina. Uppl. í símum 91-678349 og
985-23882.
Danmörk: Til leigu eru tvö glæsileg 6
manna sumarhús á Fjóni. Húsunum
fylgir allt, s.s. sængurföt, sjónvörp,
útvarp, hjól og allt í eldhúsið. Verðið
er miðað við 6 manns, kr. 3.360 á viku
eða 80 kr. danskar á dag á mann. Einn-
ig getur bíll fylgt á 200 danskar kr. á
dag. Uppl. í síma 91-17678 m. kl. 17
og 21 næstu daga.
Mánudaga - föstudaga,
9.00 - 22.00
Laugardaga, 9.00 - 14.00
Sunnudaga, 18.00 - 22.00
Fjölhæfur bíll sem gelur góðar tekjur,
GMC ’87 dísil 4x4, ek. 66 þús., með
snjóplóg. Bíllinn getur hreinsað af
plönum á stuttum tíma. Einnig er
hægt að fá með honum ferðahús f. 4
með öllu, hita, eldhúsi, ísskáp o.fl. 'A
tíma sett á eða tekið af. Uppl. í síma
91-17678 milli kl. 17 og 21.
gftSragAKSTUIi
yuj™,
dv________________Menning
Antígona
í Menntaskólanum við Hamrahlíð
hefur áhugafólk um leiklist valið
verk eftir fomgríska stórskáldið, Só-
fókles til flutnings í ár, harmleikinn
um Antígónu, dóttur Oidípúsar kon-
ungs í Þebu.
Sýning L.M.H. á Nashymingunum
Ionescos í fyrra var algjör andstæða
þessarar sýningar, absúrd leikhús
þar sem óbeislað hugmyndaflug fékk
að ráða við gerð ævintýralegra bún-
inga og gerva og í uppsetningunni í
heild.
Kannski er það þess vegna sem
valin er sú leið við uppfærsluna á
Antígonu að hafa allt sem sem stíl-
hreinast og láta texta þessa mörg
þúsund ára listaverks tala fyrir sig
sjálfan.
Sviðsmyndin í hvítum lit gefur til
kynna grískt umhverfl og búning-
amir eru stílfærðar útgáfur á fatnaði
þess tíma sem verkið gerist á. Sigur-
borg Matthíasdóttir á heiðurinn af
hvorutveggja og hefur ásamt því
hagleiksfólki, sem vann með henni,
búið verkinu hina ágætustu um-
gjörð.
En tiltölulega rúmgott sviðið er lít-
iö notað, leikendumir standa mest
hreyfmgarlausir þegar þeir flytja
textann og hafa að vonum misjafnt
vald á flutningnum þó að greinilega
hafi verið lögð mikil rækt við fram-
sögnina.
Þýðing dr. Jóns Gíslasonar er
vönduð og nákvæm á sannkölluðu
gullaldarmáli en eilítið hátíðleg á
stundum.
Leildist
Auður Eydal
Sagan af Antígonu er harmsaga,
byggð á sagnahefð Grikkja. Antígona
er kvenhetja síns tíma. Hún býður
sjálfum konunginum byrginn þegar
hann mælir svo fyrir aö bróðir henn-
ar, Pólíneikes, skuli ekki hljóta
greftrun eftir að hann fellur í bar-
daga, heldur skuli lík hans liggja á
víðavangi þar sem hræætur geta rifið
það í sig.
Þetta er refsing konungs vegna
þess að Pólíneikes hafði farið með
ófriði á hendur ættborg sinni, Þebu.
Konungurinn, Kreon, lætur múra
Antígonu inni í helli og hlifir henni
í engu þó að hún sé heitbundin syni
hans. En örlög Kreons eru þau að
hann missir bæði eiginkonu sína og
son vegna þessara atburða.
Þorvarður Helgason leikstjóri legg-
ur eins og fyrr er sagt mest upp úr
flutningi textans, þannig að stundum
minnti sýningin meira á leiklestur.
Hallur Guðmundsson í hlutverki
Kreons var vörpulegur og hann hef-
ur góða rödd sem kom til skila valds-
mannsbrag og ósveigjanleik kon-
ungs. Brynhildur Björnsdóttir var
líka örugg á framsögninni og tók sig
vel út á sviðinu en áhersla leikstjóra
á hægum flutningi textans og drama-
tískum þögnum fannst mér skemma
fyrir henni og alls ekki skila þeim
áhrifum sem til var ætlast.
Jón Atli Jónasson lék konungsson-
inn og heitmann Antígónu og gerði
það um margt vel þó að hann réði
ekki alls kostar við geðshrærinu
Hemons. Samleikur þeirra Jóns og
Halls var meö ágætum.
Berglind M. Tómasdóttir lék ísm-
enu og spilaði auk þess faflega á
flautu í upphafi (frumsaminn forleik)
og við sýningarlok svo ljóst er að
þarna er er á ferð fólk með fjöl-
breytta hæfileika.
Margir fleiri koma fram í smærri
hlutverkum og í hinum klassíska
gríska kór sem gegnir hér hefð-
bundnu hlutverki.
Valiö á þessum tveimur síðustu
verkefnum L.M.H. sýnir að víða má
leita fanga í leikbókmenntunum. Til-
gangurinn með leiklistastarfí í skól-
um er einmitt sá að vekja áhuga á
þessum bókmenntum auk þess sem
þátttakendur fá dýrmæta reynslu af
allri vinnunni í kringum uppsetning-
amar og af því að komast í kynni við
leiklistargyðjuna sjálfa.
Leikfélag Menntaskólans viö Hamrahliö
sýnir:
ANTÍGONU
Höfundur: Sófókles.
Jón Gíslason sneri úr frummálinu, grisku.
Leikstjórn: Þorvaröur Helgason.
Aöstoðarleikstjóri: Marteinn H. Sigurös-
son.
Leiktjöld og búningar: Sigurborg Matthi-
asdóttir.
Konungur kommúnista
Löngu eftir að leiðtogar risaveld-
anna hafa lýst kalda stríðinu lokiö á
þaö í lífseigum fjörbrotum á íslandi.
Þetta er skiljanlegt þar sem þeim sem
í hirðuleysi byggðu skoðanir sínar á
því líður nú líkt og embættismönn-
um kommúnistaflokka Austur-Evr-
ópu sem trúðu á flokksræðið en sjá
nú alþýðuna velta því eins og spila-
borg.
„Við erum alþýðan, hveijir eru
þið?“ hrópuðu Austur-Þjóðverjar að
flokksleiðtogunum. Þeim varð svara-
fátt. Trúaðir flokksmenn fyrirfóru
sér. Takirðu frá fólki lífslygina tek-
urður lika frá því lífslöngunina. En
þeir sem höfðu leyft sér þann munað
að hugsa sjálfstætt og tjá sig opin-
skátt öðluðust traust fólksins.
Modrow og Gysi vilja engar noma-
veiðar.
Frelsi með ábyrgð
Á Vesturlöndum ríkir lotningar-
blandin undran yfir hinni samfelldu
og hröðu þróun í Austur-Evrópu,
jafnframt því sem menn hálfsköm-
mustulegir keppast við að finna upp-
byggileg viðbrögð.
Tímaritið The Economist lýsir vel-
þóknun á stefnu Alþjóöagjaldeyris-
sjóðsins gagnvart Austur-Evrópu en
hann gerir strangar arðsemiskröfur
við lánveitingar þangað, enda yrðu
ríkin aldrei sjálfbjarga meö flárgjöf-
um. Iðnaður hvílir víða á gamalli
heíö. Þannig áttu t.d. Volkswagen og
Porsche sér uppmnalega tékkneskar
fyrirmyndir. Frjálst eignarhald í fyr-
irtækjum og aðlögun aö markaðs-
kerfi em ekki markmið í sjálfu sér
heldur þjóðfélag frelsis með ábyrgð
á samborgurum og vistkerfi.
Hið jákvæða viö umfjöllun um
Austur-Evrópu á Vesturlöndum er
að lítiö hefur boriö á sjálfbirgings-
hætti í garð þeirra sem aldir em upp
í kommúnisma, enda væri slíkt ekki
viö hæfl þar sem lýðræöisþróunin
er að öllu leyti borin uppi af alþýðu
hlutaðeigandi landa.
Hún er tilkomin þrátt fyrir þá sem
á Vesturlöndum einangruðu sig í
hugarheimi kalda stríösins en alls
ekki vegna meintra yfirburða sann-
leiksástar og óbilandi frelsisbaráttu
þeirra. Aö öðrum ólöstuöum eru það
frekar menn eins og Willy Brandt og
Richard Nixon sem hvor á sinn hátt
rufu jámtjaldið.
Kjallariim
Jón Hjálmar Sveinsson
verkamaður
Nýr tími, nýtt hlutverk
I Morgunblaðinu hefur Guðmund-
ur H. Garðarsson undanfarið reynt
að kenna mönnum að varast Vil-
borgu Haröardóttur og Jón Baldvin
- því aö einu sinni kommi alltaf
kommi - hin pólitíska holdsveiki sé
ekki bara ólæknanleg heldur einnig
ófyrirgefanleg. En það eru ekki skoö-
anir manna, sem til lengdar skipta
máli né hvernig þeir fengu þær, held-
ur hvernig þeir viöhalda þeim meö
gagnrýni og skoðanaskiptum eða
meö því að látast hvorki heyra né
sjá. Styrkur lýöræöis felst ekki í því
að allir hafl rétt fyrir sér heldur aö
sem flestir fylgi sannfæringu sinni
en hafi líka hæfileikann til aö læra
og þroskist viö mistök. Þaö er kald-
hæönislegt að Guömundur skuli
halda því fram aö NATO hafl beinlín-
is átt að hindra valdatöku komma í
ríKjum þess. Lýöræði ver sig ekki
með ofbeldi en það var einmitt Var-
sjárbandalagiö sem meö sameinuð-
um herstyrk bældi niður meint vald-
arán í Tékkóslóvakíu ’68; réðst inn í
sjálft sig.
NATO er byggt gegn utanaðkom-
andi ógnun og aðild að því er von-
andi fijáls. Eins og réttlæting sjálf-
stæðs austur-þýsks ríkis hverfur
með hruni flokksræðisins hverfur
gmndvöllur NATO með lýðræðis-
þróun Austur-Evrópu, nema aöilar
vilji skilgreina það upp á nýtt sem
pólitískan vettvang, hlutverk sem
Efnahagsbandalagiö er að taka frá
NATO. Þjóðlegum hervörnum er
ekki lokið; maðurinn er ekki hafmn
yfir vopnaburð en heimurinn er ann-
ar en hann var fyrir „ostpolitik” og
glasnost.
Rýmið fyrir hinum ungu
Islenskir vinstri menn standa í
uppgjöri og endumýjun. Samstaða
þeirra yngri virðist áhugamál jafnt
Marðar Árnasonar sem Birgis Árna-
sonar. En skýrsla Páls Kr. Pálssonar
og félaga um ástæöur fylgishruns
hægri manna hefur því miður farið
fyrir lítið. Þar var varað við ímynd
kalda stríösins. Jón Magnússon dáir
Carl I. Hagen, en Framfaraflokkur-
inn norski er langt á undan því elli-
heimili sem þingflokkur Sjálfstæðis-
flokksins er.
Kjartan Gunnarsson lýsti því sem
viðurkenningu á starfsemi SVS og
Varðbergs að Vigdís, forseti íslands,
skuli hafa sótt fund þeirra. Eftir síö-
ari heimsstyijöldina var stofnaöur
andkommúnískur félagsskapur í
Noregi. Hákoni sjöunda konungi var
boðið aö veröa verndari félagsins.
Norskir kommar höfðu veriö virkir
í andspymunni og eru fylgjandi her-
vörnum en á móti NATO. Formlega
er konungur æösti yflrmaöur hers-
ins. Hákon neitaði aö taka þátt í fé-
laginu og sagði: „Ég er líka konungur
kommúnistanna.“
Jón Hjálmar Sveinsson
„Styrkur lýðræðis felst ekki 1 því að allir
hafi rétt fyrir sér, heldur að sem flestir
fylgi sannfæringu sinni..