Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1990, Qupperneq 27
FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1990.
35
LífstOl
Apótekarar gagnrýna auglýsingar um heimsendingu:
Yfirlýsing félagsins atvinnurógur
- segir starfsfólk Laugavegsapóteks
„Þetta er nú ekki óyggjandi brot
á lyf]alögum,“ sagði Jón Bjömsson,
formaður Apótekarafélags íslands,
í samtali við DV. „Það er deilt um
túlkun laganna í þessu efni. Viö
vildum hins vegar koma því á
framfæri að þessa þjónustu hafa
apótek ávallt veitt væri þess óskað.
Við hefðum viljað að apótekin
hefðu samstarf um að auglýsa hana
sérstaklega."
„Þessi þjónusta annarra apóteka
hefur verið á fárra vitorði," sagði
Hjörleifur Þórarinsson lyfjafræð-
ingur í samtali við DV.
„Mér finnst að þeir sem stóðu að
yfirlýsingunni ættu'frekar að snúa
sér að því að veita faglega og góða
þjónustu í stað þess að innrétta
læknastofur, mata eigin krók og
róghera starfsfólk annarra apó-
teka.“
-Pá
Apótekarafélag íslands hefur birt
yfirlýsingu í öllum dagblöðum þar
sem auglýsingar Laugavegsapó-
teks um heimsendingu lyfja era
harðlega gagnrýndar og sagðar
vera brot á lyfjalögum og skapa
hættu á mistökum.
„Þessi yfirlýsing félagsins er ekk-
ert annað en atvinnurógur," sagði
Hjörleifur Þórarinsson, yfirlyfja-
fræðingur í Laugavegsapóteki, í
samtali við DV. „Öll vinna í apótek-
inu, þar með talin þessi heimsend-
ingarþjónusta, er undir faglegri
stjórn lyíjafræðinga þar sem öllum
lögum og reglugerðum er fylgt. Við
höfum starfandi hér á landi Lyfja-
eftirlit ríkisins sem eftirlitsaðila
apóteka og það hefur ekkert haft
út á þessa þjónustu að setja.
Frá því að Laugavegsapótek hóf
að senda lyf heim til fólks og sækja
til þess lyfseðla, því að kostnaðar-
lausu, hafa á annað þúsund manns
notfært sér þessa þjónustu og eru
aldraðir og öryrkjar meira en níu-
tíu af hundraði þess hóps.
„Við höfum átt ánægjulegt sam-
starf við sjúklinga, aðstandendur
þeirra, lækna, heimahjúkrun,
heimahlynningu krabbameins-
sjúklinga og marga fleiri," sagði
Hjörleifur Þórarinsson, „þeir einu
sem haft hafa horn í síðu þessarar
þjónustu eru nokkrir apótekarar
hér í bæ sem nú hafa fengið stjórn
félagsins til þess að birta þessa fá-
heyrðu yfirlýsingu."
ID
UM HE\MSEND\NGULVFnd^
Vegna ^ v\U Apotekaraielag
enirfarandi fram'. væðinU hafa um arab J ^
skapa hæ<,u 8
u/iAta reg'or om .„.Ai„«arfv\»st,
Yfirlýsing Apótekarafélagsins sem deilt er um.
Stjórn Sorpeyðingar höfuðborgarsvæðisins við opnun efnamóttökunnar í
Kópavogi í gær. DV-mynd BG
Móttaka
hættulegra efna
tekur til starfa
Móttaka þar sem safnað verður
saman umhverfismengandi efnum,
sem ekki má urða með öðru sorpi,
var opnuð á vegum Sorpeyðingar
höfuðborgarsvæðisins í Kópavogi í
gær.
Móttökustöðinni er ætlað að taka á
móti efnaúrgangi sem fellur til í
sveitarfélögunum og ekki má urða
né losa í sjó samkvæmt nýrri meng-
unarreglugerð. Svæði það sem tekið
er á móti efnum frá nær frá Hafnar-
firði til Kjalarness.
í móttökustöðinni verður búið um
efnin til flutnings úr landi. Danska
fyrirtækið Kommunekemi a/s, sem
er í eigu dönsku sveitarfélaganna,
tekur við þeim til eyðingar þar til
íslendingar geta leyst þann vanda
sjálfir. Itarlegar leiðbeiningar um
frágang og merkingar efnanna verða
á næstunni sendar á, vinnustaði á
höfuðborgarsvæðinu.
Reiknað er með að á þessu ári komi
um 150 tonn af mengandi efnum í
móttökustöðina en vitað er að tals-
vert magn hættulegra efna bíður
eyðingar. Húsnæðið að Dalvegi 7 í
Kópavogi er bráðabirgðahúsnæði og
er ráðgert að móttakan verði þar
aðeins í rúmt ár en flytji í Gufunes
vorið 1991.
Efnum sem tekið er á móti verður
skipt í 8 flokka: olíuúrgang, lífrænan
efnaúrgang með halogen eða brenni-
steinsupplausnarefni, lífrænan efna-
úrgangur án halogens og brenni-
steins, úrgang með kvikasilfri, dýra-
og plöntueitur, ólífrænan efna-
úrgangogannanúrgang. -Pá
Leiðrétting:
Hörður bakari
ódýrastur
í frétt DV í gær um niðurstööur
verðkönnunar á brauðum og kökum
víxluðust nöfn bakaría. Hið rétta er
að karfa með kökum var ódýrust í
Harðarbakaríi á Akranesi á 565
krónur en dýrust hjá Guðnabakaríi
á Selfossi á 1.194 krónur. Munurinn
er 111%. Hér með er beðist velvirð-
ingar á þessum afglöpum.
-Pó
Wefwhwg ém æiím hmwm
Æw ® ÆMsÆ ‘N-/
cið méimssAm þwi sem
wli þessl kona þmmm I
Reykjovík wmrwm
smmméím uns - mé
iiJllilrll H eitlliwai nsiklw
síðdegis
winno úti fyrir húdegi
ef mméwr skipfl ekki
uns skoðun.
Reykjavík síðdegis á Bylgjunni
alla virka daga kl. 17:00-19:00.
Vettvangur hlustenda - símatímar
- viðtöl - fréttir - málefni
Ifðandi stundar.
Nýr maður við hljóðnemann:
Sigursteinn Másson.