Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1990, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1990, Qupperneq 14
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PALL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11,105 RVlK, SlMI (91)27022 - FAX: (91 )27079 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRjALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ARVAKUR HF. Askriftarverð á mánuði 1000 kr. Verð i lausasölu virka daga 95 kr. Helgarblað 115 kr. Viðurkennum Litháen íslenzka ríkinu væri sómi að því að verða fyrsta rík- ið til að viðurkenna Litháen formlega sem sjálfstætt Ttg fullvalda ríki. Slíkt mundi sýna landsfeðrum annarra ríkja, að formleg viðurkenning væri framkvæmanlegur og raunar einnig skynsamlegur leikur í stöðunni. Skiljanlegt er, að Bandaríkin vilji ekki strax viður- kenna Litháen, þar sem þau eru komin í óformlegt bandalag við Sovétríkin um að liðka sem mest fyrir valdsöfnun Gorbatsjovs í Kreml og vilja ekki gera neitt, sem hugsanlega gæti eflt harðlínumenn gegn honum. Hins vegar er marklaust, þegar talsmenn Bandaríkj- anna og nokkurra annarra ríkja, svo sem Frakklands og Danmerkur, afsaka stjórnir sínar með, að þessi ríki hafi á sínum tíma ekki viðurkennt innlimun Litháens í Sovétríkin og þurfi því ekki að viðurkenna fullveldi nú. Slík röksemdafærsla heitir hundalógík og er í þessu tilviki notuð til að reyna að breiða yfir þá staðreynd, að Vesturlönd virðast ófær um að taka siðferðilega rétt á málum Litháa, sem eiga alveg sama rétt til sjálfstæðis og fullveldis og Pólverjar, Tékkar og Ungverjar. Ef ríki, sem á siðferðilegan og sögulegan rétt á sjálf- stæði og fullveldi, lýsir því formlega yfir, ber öllum þjóð- um, sem viðurkenna slíkan rétt, að senda formlega yfir- lýsingu um viðurkenningu á sjálfstæði og fullveldi þess. Allt annað er orðhengilsháttur og aumingjaskapur. Flest ríki Vestur-Evrópu hafa engra þeirra ímynduðu heimspólitísku hagsmuna að gæta, að landsfeður þeirra þurfi að hafa gott veður í kringum Gorbatsjov. Sérstak- lega gildir þetta um Norðurlandabúa, sem hafa löngum litið á sig sem siðapostula og prédikara í umheiminum. Raunar ættu Svíar og Finnar að hafa frumkvæði að formlegri viðurkenningu Norðurlanda á sjálfstæði og fullveldi Litháens, því að þeir eru nágrannar Litháa við Eystrasalt. Fundur utanríkisráðherra Norðurlanda í Svíþjóð í gær var kjörið tækifæri til slíks. En því er eins farið um utanríkisráðherrafundi Norð- urlanda og um Norðurlandaráð og um norræna sam- vinnu yfirleitt, að þetta er allt orðið í meira lagi þreytu- legt og innihaldslítið pappírsflóð, ófært um að mæta óvæntum og sögulegum viðburðum í heimspólitíkinni. Léttvæg er röksemdin um, að ekki megi íþyngja Gor- batsjov í máli þessu. Helzti leiðtogi harðlínumanna í Kreml, Jegor Ligatsjev, hefur sagt berum orðum, að skriðdrekar komi ekki að gagni í Litháen, heldur verði að fara pólitískar leiðir til að komast að niðurstöðu. Ef ísland eitt eða Norðurlönd öll gera það, sem allir vita, að er siðferðilega rétt, og viðurkenna formlega sjálf- stæði og fullveldf Litháens, gerist ekki annað en, að bæði mjúklínumenn og harðlínumenn í Kreml sannfær- ast betur um, að of erfitt sé að hamla gegn málinu. Litháar hafa haldið mjög vel á sínum málum. Algert samkomulag er milli fullveldisflokksins, sem er í meiri- hluta á þinginu, og kommúnistaflokksins, sem varð undir í kosningunum, um að halda á málum eins og gert hefur verið. Þingið er einróma í afstöðu sinni. Engar íjöldagöngur eða hátíðahöld voru í tilefni hinn- ar sögulegu niðurstöðu þingsins í Litháen. Forustumenn landsins gæta sín að búa ekki til skilyrði fyrir íhlutun Rauða hersins, svo sem varð 1 Azerbajdzhan, þar sem trúarofsi hljóp með sjálfstæðismenn á villigötur. Smáríki eins og ísland hefur lítil tækifæri til að láta gott af sér leiða í umheiminum og veraldarsögunni. Formleg viðurkenning Litháens er slíkt tækifæri. Jónas Kristjánsson l‘'IMMTUI)A(JUK 15. MAItS 1990. Þingmaður á villigötum Guðmundur G. Þórarinsson al- þingismaður fullyrðir aö íslcnsk skólabörn séu vannærð í grein sinni „Borgarytirvöld á villigöt- um“ í Dagblaðinu 28. febrúar síð- astliðinn (1). Segir hann að „matar- æði og fæðuvenjur skólabarna valdi því að þau eru í reynd van- nærð, einkum í Reykjavík, og að margir foreldrar hafi þungar áliyggjur af þessu". Er greinin byggð á þingsályktunartillögu tjög- urra framsóknarmanna um skóla- máltíðir í grunnskólum í liaust, sem nýverið var til umræðu á Al- þingi. Grein þingmannsins er fádæma ruglingsleg, full af getsökum og órökstuddum fullyrðingum, og hlýtur hún aö hafa valdið foreldr- um, einkum í Reykjavík, þungum áhyggjum. Er full ástæða til að leið- rétta það sem missagt er og gera nánari grein fyrir matarvenjum og heilsufari skólabarna. Vannæring er sjaldgæf Heilsuvernd í skólum fylgist með heilsufari skólabarna og skráir í skólaskýrslur sem senda á skóla- yfirlækni í lok hvers skólaárs (2). Samkvæmt þessum skýrslum er „áberandi megurð" skráö meðal 0,9% skoðaðra grunnskólabarna í Reykjavík skólaárið 1988-89. í nokkrum öðrum þéttbýlisstöð- um (Akureyri, Akranesi, Selfossi og Kópavogi) teknum saman er tíðnin 0,5% að jafnaði fyrir skólaár- in 1987-88. Þessi litli munur getur ekki talist marktækur því svo fá tilfelli er um að ræða og verulegar sveiflur eru á milli ára, jafnvel inn- an sama sveitarfélags. Vannæring er því ákaflega sjald- gæf meðal skólabarna hér á landi og engin vissa er fyrir því að hún sé algengari í Reykjavík heldur en í öðrum sveitarfélögum landsins. Til að kanna hvort skortur væri á einstökum næringarefnum meðal skólabarna var járnbúskapur 10-11 ára skólabarna í Reykjavík athug- aður (3). Niðurstöður sýndu að hann væri í góðu lagi og að blóð- leysi vegna járnskorts væri mjög fátítt meðal 10 ára barna í Reykja- vík. Enda þótt rannsóknir á heilsu og líðan skólabarna hafi verið van- ræktar á íslandi, bendir vöxtur og þroski íslenskra barna og unglinga, lífslíkur og dánartölur ekki til þess að næringarskortur og vannæring sé heilsufarslegt vandamál hér á landi (4). Hins vegar er líklegra að „ofeldi", sem getur valdið ótímabærum veikindum og dauða um og eftir miðjan aldur í formi t.d. hjarta- og æðasjúkdóma og krabbameins, hefjist hjá börnum á grunnskóla- aldri. Sýna skólaskýrslur í Reykja- vík og áðurnefndum þéttbýlisstöð- um að tíðni „offitu“ meðal skóla- barna er um 6%, jafnt meðal drengja og stúlkna og óháð búsetu. Er löngu tímabært að þetta sé rannsakað frekar, því fram að miðjum aldri fimmfaldast þessi tíðni (5). Matarvenjur Matarvenjur og fæðuval skóla- barna hefur sáralítið verið rann- sakað hér á landi. Baldur Johnsen læknir rannsakaði mataræði skólabarna á Vestfjörðum og í Reykjavík 1938-39 og Manneldisráð kannaði mataræði 10-14 ára barna í Reykjavik 1977-78 (6,7). Þessar kannanir voru takmarkaðr og gilda varla lengur vegna aldurs og því ekki hægt aö alhæfa um mataræði skólabarna út frá þeim í dag. Manneldiskönnun heilbrigðis- ráðuneytisins og Manneldisráös, sem nú er að hefjast og nær til fólks á öllu landinu, 15 ára og eldri, mun ekki gefa svör um mataræöi skóla- barna nema að mjög takmörkuðu leyti. Bráöabirgðaniðurstöður liggja KjaHarinn Hrafn V. Friðriksson, dr. med. yfirlæknir og jafnframt skólayfirlæknir i heilbrigðis- ráðuneytinu hins vegar fyrir um matarvenjur 11-15 ára skólabarna af öllu landinu, sem skólayfirlæknir og heilbrigðisráðuneytið öfluðu sl. vor með könnun á lifnaðarháttum og heilsu skólabarna. Samkvæmt þeim borða langflest skólabörn daglega morgunmat (80-90%), há- degismat (85-98%) og kvöldmat (98-99%). Af eðlilegum ástæðum er algeng- ara að börn í dreifbýli (91-98%) og „öðru þéttbýli" (93-95%) heldur en á Reykjavíkursvæðinu (84-85%) borði hádegismat, því oft er styttra heim eða heimavist á staðnum fyr- ir börn sem lengra eru aðkomin úti á landi. Á Reykjavíkursvæðinu bæta börnin sér þetta upp með því að boröa mun oftar nestispakka í skólanum daglega (46-57%) heldur en börn í „öðru þéttbýli" (42^9%) og í dreifbýli (24-32%). Stúlkur borða nestispakka í skólanum oftar en drengir og bæta sér væntanlega þannig upp að þær boröa sjaldnar morgunmat en drengir. Algengt er aö börn borði bita fyrir svefn og drengir oftar (49-56%) en stúlkur (34-37%) og oftar í þéttbýli en í dreifbýli. „Aukabitarnir“ Þessar niðurstöður gefa til kynna að matarvenjur skólabarna séu í góðu lagi hér á landi, óháð búsetu. Einnig að vannæring meðal þeirra sé ólikleg ef fæðuval heimilanna er í lagi, sem ég hef fulla ástæðu til að halda að sé. Annað mál eru „aukabitarnir" sem skólabörn kunna að kaupa sér á milli mála. Þar er fyrst og fremst um að ræða aukaorkuneyslu sem ekki hefur næringarfræðilegt gildi nema hún fari að verða verulegur hluti af heildarorkuþörfmni. Þessi aukaorkuneysla er fyrst og fremst í formi sætinda sem geta stuðlað að tannskemmdum og valdið offitu meðal barnanna. Tannskemmdir hafa til skamms tíma verið mjög algengar hér á landi og algengari hér en meðal nágrannaþjóða okk- ar. Hollari neysluvenjur meðal þjóð- arinnar og öflugt forvarnastarf í skólum á undanfómum árum hef- ur nú þegar stórum bætt tann- heilsu skólabarna. Einkum á þetta við um þéttbýlisstaði eins og Reykjavík og Akureyri, þar sem skólatannlækningar eru til fyrir- myndar. Hefur tannskemmdastuð- ull (DMFT) 12 ára skólabarna í Reykjavík lækkað um 40% á fjór- um árum, úr 6,82 árið 1983-84 í 4,14 árið 1987-88 (8). Svipað hefur lík- lega gerst víðar og var t.d. tann- skemmdastuðull 11-12 ára barna á Akureyri 3,2 áriö 1987-88 (9). Fyrir áratug var tannskemmda- stuöull (DMFT) um 8,6 fyrir 12 ára börn á öllu landinu aö jafnaði. Allt bendir til þess aö hann hafi núna lækkaö um meira en helming og er um stórkostlegan árangur að ræða í heilbrigðismálum íslend- inga ef rétt reynist. Er líklegt að við náum innan skamms markmiði Alþjóðaheil- brigðismálastofnunarinnar um tannskemmdastuðul lægri en 3, allavega í stærstu sveitarfélögun- um. Til að svo megi verða þarf enn að beita sér gegn „bitum milli mála“ meðal barna og unglinga, hvetja til reglulegrar tannburstun- ar, notkunar flúors á tennur eða í töfluformi og reglulegs eftirlits með tönnum hjá tannlækni. Ennfremur kemur flúorbæting neysluvatns fyllilega til álita sem einn skásti kosturinn í baráttunni gegn tannskemmdum hér á landi. Niðurstaða Rannsóknir á heilsu, næringu og matarvenjum skólabarna hér á landi benda ekki til þess að þau séu vannærð. Geta foreldrar, einkum í • Reykjavík, og alþingismaðurinn andað léttar þess vegna. Hins vegar er líklegt að ofbeldi geti verið byrjandi vandamál með- al íslenskra skólabarna, sem nauð- synlegt er að rannsaka nánar. Reyndar þarf að efla ransóknir á heilsu og lifnaðarháttum skóla- barna og unglinga yfirleitt hér á landi. Matarvenjur 11-15 ára skóla- barna virðast vera með eölilegum hætti, langflest borða morgunmat, hádegismat og kvöldmat daglega. Meira en helmingur skólabarna á Reykjavíkursvæðinu 11-15 ára borðar daglega nestispakka í skól- anum en í dreifbýli um helmingi færri. Tannskemmdir eru á hröðu und- anhaldi meðal skólabarna á ís- landi, væntanlega vegna hollari neysluvenja og öflugs forvarna- starfs. Þrátt fyrir að nú hafi birt yfir heilsufari íslenskra skólabarna veröa foreldrar, skóli og opinberir aðilar að halda vöku sinni áfram og tryggja að ætíð sé sem best búið að íslenskri æsku. Alþingismanninum og öðrum, sem um jafnmikilvæg og viðkvæm mál fjalla á opinberum vettvangi, ráðlegg ég að vanda skrif sín svo þau valdi ekki fólki áhyggjum að tilefnislausu og virði það sem vel hefur verið gert. Hrafn V. Friðriksson Heimildir: 1. Guðmundur G. Þórarinsson. Dag- blaðið 28. febrúar 1990. 2. Hrafn V. Friðriksson. Heilsuvernd í skólum, Fréttablað lækna mars 1990. 3. Laufey Steingrímsdóttir. Heilbrigðis- máj 2:1985. 4. Ólafur Ólafsson og Jónas Ragnars- son. Heilbrigðismál 1:1984. 5. Nikulás Sigfússon. Offita, Manneldi og neysla, rit heilbrigðis- og trygginga- málaráðuneytisins 1/1989. 6. Baldur Johnsen. Læknablaðið 9. tbl. 1941. 7. Baldur Johnsen. Könnun Manneld- isráðs 1977-78. Heilbrigðisskýrslur, fylgirit 1984. 8. Heilbrigðisráð Reykjavíkur. Árs- skýrsla 1988. 9. Árni Þórðarson. Rannsókn á tann- heilsu barna á Akureyri. Dagur 23. nóvember 1988. „Hins vegar er líklegra aö „ofeldi“, sem getur valdið ótímabærum veikindum og dauða um og eftir miðjan aldur í formi t.d. hjarta- og æðasjúkdóma og krabbameins, hefjist hjá börnum á grunnskólaaldri. ‘ ‘

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.