Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1990, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1990, Blaðsíða 27
FIMMTUDAGUR 15. MARS 1990. 35 Sviðsljós Ólyginn sagði... Roger Moore hefur ekki tekiö illa í þá hugmynd aö leika í næstu James Bond- mynd. í augum margra er hann hinn eini og sanni Bond og gaml- ir aödáendur kunna heldur illa viö Timothy Dalton í hlutverk- inu. Þaö stendur þó ekki til að Moore leiki sjálfan Bond oftar heldur er hugmyndin aö hann leiki fóöur meistaraspæjarans. Ef af því verður hefur Bond fetað í fótspor Indiana Jones sem fékk föður sinn til liðs viö sig í síðustu mynd. Þá var annar gamall Bond-leikari kallaður til sögunn- ar. Það var enginn annar en Sean Connery. Angela Lansbury á að hafa ákveðið að hætta að leika í Morögátu. Þættirnir er eitt vinsælasta sjónvarpsefni sem nú er framleitt í heiminum og er sagt að framleiðendurnir hafi verið gráti nær þegar þeir fréttu af ákvörðun leikkonunnar. Þeir kunnu þó ráð við vandanum, tóku upp seðlaveskið og buðu Lansbury 12 milljónir króna í laun á viku. Þá fannst henni mátulegt að hætta við að hætta og leikur því áfram í Morðgátu. Kelly McGillis á von á barni í júní. Sagt er í Hollywood að ekkert þyki nú finna en að eignast börn og er McGillis ekki ein um það af stór- stjörnum þar vestra að vera ólétt. Sigourney Weaver á von á barni í vor og Kate Capshaw einnig. Barnsfaðir hennar er enginn annar en Steven Spielberg. Þá var Jennifer Beals einnig í þessum hópi en hún eignaðist barn í jan- úar. Mæðgurnar Benazir og Bakhtawar. Dóttirin fæddist 25 janúar. Frístæl- og tísku línukeppni Alþjóðleg frístæl- og tískulínu- keppni var haldin á Hótel íslandi fyrir stuttu og þótti keppnin takast mjög vel. Slagorð keppninnar var Verndum ósonlagið. Stóð dagskrá keppninnar frá hádegi fram til kl. eitt um nóttina. Var fullt út úr dyrum á Hótel íslandi allan daginn. Keppni þessi er alþjóðleg og komu erlendir keppendur og aðilar frá Bandaríkjunum, Bretlandi, Dan- mörku, Svíþjóð, Finnlandi og Ítalíu til að taka þátt í keppninni og fylgj- ast með. Það var tímaritið Hár og fegurð sem haföi veg og vanda af þessari miklu keppni og var það duglegt við að kynna hana erlendis með góðum árangri. í keppninni voru veitt samtals tutt- ugu og fimm verðlaun, auk þess sem Hár og fegurð valdi Elsu Haralds- dóttur og Torfa Geirmundsson hársnyrtimenn ársins. Peningaverð- laun voru veitt þeim sem voru stiga- hæst í hárgreiðslu og hárskurði. Lára Óskarsdóttir og Jón H: Guð- mundsson fengu hvort um sig 75.000 krónur. Á þessari mynd sjást, talið frá vinstri: Valerie Stewart, sigurvegari i get- raunakeppni sem fór fram; Norman Bloomfield, umboös- og blaðamaður; Denise Gaze, blaðamaður frá Hairdresser and Beautician; Xavier Wenger, forseti heimssamtaka hársnyrifólks og tæknilegur ráðgjafi keppninnar; Pét- ur Melsteð, ritstjóri Hárs og fegurðar, og Helga S. Jóhannsdóttir, formaður sambands hárgreiðslu- og hárskerameistara, en hún átti afmæli sama dag og keppnin fór fram. Á þessum fjórum myndum má sjá sýnishorn af greiðslum sem litu dagsins Ijós á þessum eftirminnilega sunnudegi á Hótel íslandi. Benazir Bhutto eignast dottur Benazir Bhutto, forsætisráðherra Pakistans, hefur í fleiru aö snúast en aö stýra landinu. Hún þarf að samræma hlutverk þjóöhöfðingja og uppeldi tveggja barna. Bilawal sonur Bhutto er nú orðinn hálfs annars árs en hann fæddist skömmu áður en móðir hans var kjörin í embætti. í lok janúar fædd- ist síðara barnið, dóttirin Bakh- tawar. Benazir Bhutto varð heimsfræg fyrir andstöðu sína við Zia Ul-Haq hershöfðingja eftir að hann hafði látið taka Zulfiqar föður hennar af lífi og siðar fyrir að verða fyrsta konan til að vera kjörin til að leiða ríki múhameðstrúarmanna. Þegar hún gekk með soninn boð- aði Zia Ul-Haq til kosninga og hag- aði málum svo að kjördag bar upp á 16. nóvember árið 1988, sama dag- inn og Benazir átti að eiga barnið. Svo fór þó að sonurinn fæddist 12. september og Benazir tókst að leiða kosningabaráttuna síðustu vikurn- ar. Eiginmaður Benazir er Asif Zard- ari. Hann er þekktur kaupsýslu- maður í Pakistan og þó ekki síöur frægur sem einn fremsti pólóleik- ari landsins. Benazir Bhutto með börnin tvö, þau Bilawal og Bakhtawar, og amman, Begum Nusrat, aðstoðar við uppeld- ið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.