Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1990, Síða 24
32
iwfi'i mm íw
FIMMTUDAGUR 15. MARS 1990.
Menning
Fer myndlist í vaskinn?
Viröisaukaskattur hefur komið af
stað nokkrum taugatitringi á ís-
lenskum listaverkamarkaði, engu
síður en öðrum mörkuðum, og spyrja
listamenn, listmiðlarar og uppboðs-
haldarar sig nú hvaða áhrif skattur-
inn muni hafa á afkomu þeirra.
Að vísu eru öll kurl ekki enn kom-
in til grafar í þeim efnum.
„Við höfum danska reglugerð um
virðisaukaskatt af listaverkasölu til
hliðsjónar og erum smátt og smátt
að laga hana að okkar aðstæðum,“
sagði Bjarnveig Eiríksdóttir í fjár-
málaráðuneytinu.
„Þaö er í rauninni ekki fyrr en við
erum búin að úrskurða um alls kon-
ar vafaatriði að við erum komin með
reglugerð sem hægt er að beita að
gagni. Þangað til verðum við óhjá-
kvæmilega að skoða hvert tifelli fyrir
sig, vega það og meta.“
Sýnt er að vaskurinn kemur ekki
til með að hafa bein áhrif á afkomu
myndlistarmanna því sala þeirra á
eigin verkum er alveg undanþegin
vaski.
Þar af leiðandi mega myndlistar-
menn, hvort sem þeir heita Erró,
Eiríkur Smith eða eitthvað annað,
auðvitað gefa eigin verk hverjum
sem þeir vilja, án þess að vaskurinn
komi þar nærri. Að sögn Guörúnar
Brynleifsdóttur hjá ríkisskattstjóra
tekur þetta einnig tif aðila sem gefa
einkasöfn sin opinberum stofnunum
eða einhverjum öðrum.
Vandræðaleg uppákoma vegna
innflutnings á verkum Errós um
daginn stafaði m.a. af því að hsta-
maðurinn flutti verkin ekki inn sjálf-
ur en að öllu jöfnu feggst vaskur á
listaverk sem flutt eru inn til sölu
eða dreifingar af þriðja aðila.
Galleríum gerðar búsifjar
Myndlistarmenn þurfa heldur ekki
að greiða vask er þeir leigja sér sýn-
ingarsali því samkvæmt reglugerð-
inni er skammtímaleiga fasteigna
undanþegin honum.
Hins vegar getur vaskurinn gert
galleríum búsifjar og þar með óbeint
skaðað hagsmuni myndlistarmanna,
a.m.k. gert þeim erfitt fyrir.
Áður greiddu gallerí ekki söluskatt
Gallerírekstur í Reykjavík - leggst hann af? Myndin er tekin í Nýhöfn við Hafnarstræti.
af listaverkum sem þau voru með til
sýnis og sölu en eiga nú að leggja
vask ofan á myndverð, það er þá
upphæö sem listamenn vilja fá fyrir
verk sín, plús sölulaun.
„Með þessum skatti ætla stjórnvöld
greinilega að ganga af íslenskum
galleríum dauðum," sagði Pétur Þór,
einn af aðstandendum Gallerí Borg-
ar.
„Vegna aðstæöna hér á landi hefur
rekstur sýningarsala ævinlega verið
1 jámum. Vaskurinn gerir endanlega
út af við sýningarhald og listmiðlun
af þessu tagi og beinir öllu í fyrra
horf, þegar hstamenn urðu að kosta
eigin sýningar að öllu leyti og standa
í því að kynna list sína.“
Svala Lárusdóttir, annar eigandi
listasalarins Nýhafnar, lýsti einnig
yfir megnri óánægju með vaskinn.
„Til að gera sem flestum kleift að
eignast myndir höfum við reynt að
hafa álagningu okkar í i algjöru lág-
marki. Nú kemur vaskur ofan á allt
saman sem þýðir tæpa 25% hækkun
á verði listaverka. Hætt er við að
bæði kaupendur og listamenn snúi
baki við okkur sem veitum þessa
nauðsynlegu þjónustu."
Aftur í gamla fyrirkomulagið
„Eftir tilkomu vasksins er hæpið
að það borgi sig lengur fyrir mynd-
listarmenn að láta gallerí sjá um sýn-
ingar fyrir sig,“ segir Sigurður Or-
lygsson listmálari. „Menn verða
sennilega aö taka aftur upp gamla
fyrirkomulagið, aö sýna hver í sínu
horni og eyða bæði tíma og pening-
um í að kynna verk sín og selja. Það
ómak hafa galleríin tekið af lista-
mönnum.
Þau gegna alls staðar mikilvægu
hlutverki. Ég trúi því varla að það
eigi að kippa fótunum undan íslensk-
um galleríum með þessum hætti.“
Það er þó huggun harmi gegn fyrir
gallerí, að minnsta kosti þau sem
hafa uppboðsleyfi, að þeim er áfram
heimilt að bjóða upp listmuni fyrir
fólk án þess áð greiða af þeim vask.
Eftir sem áður munu tíu prósent af
uppboðsverði renna í höfundasjóð.
En kaupi uppboðshaldarar sjálfir
verk til að bjóða þau upp verða þeir
hins vegar að greiða vask af upp-
boðsverði. En þar sem skilin milh
sölu og umboðssölu eru ekki alltaf á
tæru verður trúlega erfitt fyrir ríkið
að komast yfir sinn hlut af slíkum
viðskiptum.
Reglugerð um virðisaukaskatt
verður sem sagt ekki til að bæta hag
myndlistarinnar í landinu.
-ai.
Súld:
Bræðslan í gangi
Steingrímur Guðmundsson, trommuleikari í
hljómsveitinni Súld, lét þess einhvers staðar
getið að rokkáhugamenn köhuðu tónlist þeirra
djass en djassistar segðu hana vera rokk. Það
er kannski einmitt i þessu sem vandi djass/rokk-
bræðings liggur. Hann hlýtur ekki alveg náð
fyrir eyrum fjölmargra sem eru þó áhugasamir
um annan hvorn þessara tónlistargeira. í bræð-
ingi má fmna öll stílbrigði en oft vilja léttari
tegundir hans hafna milli dagskrárliða, eða sem
undirleikur í auglýsingum í útvarpi og sjón-
varpi, og þar með er þessi músík gjarnan léttvæg
fundin, því miður. - En nóg um það.
í Heita pottinum 10. mars var hljómsveitin
Súld mætt til leiks eftir tveggja ára hlé með
nýja liðsmenn i farteskinu: hinn snjalla slag-
verksleikara Maarten van der Valk og Pál Páls-
son bassaleikara sem kemur yfir í djassinn úr
gospel- eða trúartónlist. Hljómsveitin hitti strax
í mark með kynningarlaginu „From You“ eftir
bassistann Abe Laboriel og síðan kom „Ekki
neitt“ eftir hljómborðsleikarann Lárus Gríms-
son, funksamba með tilheyrandi slagverkssóló-
um. Þriðja lagið var svo perla úr söngvasafni
Mingusar, „Goodbye Pork Pie Hat“. Þar var
Tryggvi Hubner gítarleikari og aðalsólóisti
sveitarinnar í aðalhlutverki og minnti dálítið á
Jeff Beck sem er einn af mörgum sem gert hafa
þessu skh.
Flott sánd
Eins og oftar þetta kvöld lék Tryggvi þetta
mjög vel óg hreint glæshega á köflum; sándið
flott, ekkó og sveif smekklega notuð og spilíríið
allt mjög blæbrigðarikt (dýnamískt). „Kjarn-
orkuvopnalaust svæði" heitir lag eftir Steingrím
sem Lárus lék á pikkólóflautu. Laghnan er með
Hljómsveitin Súld, ný útgáfa.
Djass
Ingvi Þór Kormáksson
austrænum blæ en það var ekki fyrr en um
miðbik verksins að það hrökk almennilega í
gang og varð míög ferkantað (funkað) og upplífg-
andi. Lagið eftir Stevie Wonder var hálfgert
antiklimax eftir þetta.
Gestur kvöldsins mætti eftir hlé og lék eitt lag
með hljómsveitinni. Það var Guðmundur Ing-
ólfsson sem dragspilið þandi í „Scotch and Wat-
er“ eftir Zawinul sem er samið snemma á 7.
áratugnum er höfundurinn lék með sextett
Cannonball Adderleys. „Heit sósa“ nefnist svo
lag eftir bassaleikarann sem hófst á smekkleg-
um conga-barsmíðum Maartens; melódísk
samba í Metheny-stílnum. Sumum fannst hún
þó heldur stutt í annan endann í flutningi.
Svingaði með látum
Af tveimur lögum eftir Tryggva var „Smá-
smuguleg eftirgrennslan" áhugaverðara. Allt
virtist reyndar einhvern veginn í öfugri röð í
því lagi sem minnti pínulítið á þá sálugu banda-
rísku sveit, Dixie Dregs. í lokin voru svo flutt 3
lög eftir tónskáldið Lárus. „Lalli rólegt“ er seiö-
magnað lag sem gaman væri að fá að heyra aft-
ur. Það var látið hökta í halaklipptum takti um
tíma, annaðhvort til að svæfa ekki áheyrendur
eða halda slagverksleikaranum, og kannski
fleirum, við efnið. „Lalli nýtt“ var næst, rokk-
bræðingur þar sem Páll sýndi hvað hann kann
á bassa, og það er allnokkuð, og slagverksmenn
kveiktu svo í tundri og allt svingaði þetta með
miklum látum. Mér skhst svo að G. Ingólfsson
eigi nafngiftina að síðasta laginu, „Flótti stiga-
mannsins yfir spýtnaakurinn", sem er nafn viö
hæfi þótt furðulegt sé. Synkópísk fingraleikfimi
hjá Lárusi og Tryggva setti svip sinn á þetta
verk. Ég saknaði þess annars að heyra aldrei
„ekta hreint" rafpíanósánd úr græjum Gríms-
sonar.
Hljómsveitinni var vel fagnað og greinilegt að
áheyrendur kunnu vel að meta þessa nýju Súld.
Hún flytur aðgengilegri músík en eldri útgáfan
og jafnframt fiölbreytilegri. Trommufrík fá líka
aukabónus frá Súldarmönnum. Takk fyrir.
Snorri Sigfús
á nútímatón-
listarhátíð
Dagana 12.-18. maí næstkom-
andi verður haldin í Stokkhólmi
tónlistarhátíð sem eingöngu er
helguð nútímatónhst.
Á þessum sex dögum verða yfir
20 tónleikar haldnir á hátíðinni..
Sérstakir heiðurgestir hennar
veröa tónskáldin Toru Takem-
itsu frá Japan, Wolfgang Rihm
frá Vestur-Þýskalandi og Per
Nörgárd frá Danmörku.
Eitt íslenskt tónskáld, Snorri
Sigfús Birgisson, á verk á hátíð-
inni, kammerverk fyrir klarínett,
selló og píanó er nefnist „.. .the
sky composes promises". Stock-
holm Arts Trio flytur þessa tón-
smíð, ásamt verkum eftir Peter
Maxwell Davies og Sjostakovitsj.
Snorri Sigfús Birgisson tónskáld.
Ný Aðventa
Aöventa er sú af bókum Gunn-
ars Gunnarssonar sem víðast
hefur farið og hefur verið dreift
í risastórum upplögum.
Nú hefur Almenna bókafélagið
sent frá sér sjöttu íslensku útgáfu
Aðventu með formála eftir Svein
Skorra Höskuldsson.
Nefnist formálinn Frá Skriðu-
klaustri til Viðeyjarklausturs og
er þar rakin ævi Gunnars og höf-
undarferhl á greinargóðan hátt.
Á þessi útgáfa eflaust eftir að afla
•höfundi nýrra lesenda meðal
yngri kynslóðarinnar.
Louisa á
samsýningu
Louisa Matthíasdóttir listmál-
ari tekur nú þátt í samsýningu í
New York er nefnist „Objects
Observed-Contemporary Still
Life“ (Horft á hluti - Nýjar upp-
stillingar) sem fer fram í Gallery
Henoch við Woosterstræti.
Með Louisu á sýningunni eru
raunsæir hstamenn á borð við
Janet Fish, Ralph Goings og
Wayne Thiebaud.
Borgin rekur
strengja-
kvartett
í fréttatilkynningu frá Félagi
íslenskra tónlistarmanna, sem
gefin er út í tilefni af 50 ára af-
mæh félagsins, er sagt frá því að
borgarráð Reykjavíkur hafi nú
ákveðið að gangast fyrir stofnun
atvinnustrengjakvartetts og
muni ráða hljóðfæraleikara í
hálft starf til að starfa í honum.
„Þetta eru bestu tíðindi sem tón-
listarmönnum hafa lengi borist,"
segir í fréttatilkynningunni.
Norræn
sagnritun
Þeir sem hafa áhuga á forn-
bókmenntunum geta nú skellt sér
á splunkunýtt verk um norræna
sagnaritun, „Die Aníange der
islandisch-norwegischen Gesc-
hichtsschreibung" eftir Gudrun
Lange sem gefið er út af Menning-
arsjóði í bókaflokknum Studia
Islandica.