Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1990, Page 8
I;8
MlÐVlKb'DAG'UR í\. Míífö Í990.
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta á fasteigninni Vesturgötu 71 b, þinglýst eign Gunnhildar
J. Halldórsd., en talin eign Tómasar Rúnars Andréssonar, verður haldið á
eigninni sjálfri, föstudaginn 23. mars 1990 kl. 14. Uppboðsbeiðandi er
Fjárheimtan hf.
Bæjarfógetinn á Akranesi
Tilboð óskast í 8 veghefla fyrir Vegagerð ríkisins.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri að Borgar-
túni 7, Reykjavík. Tilboð skulu berast á sama stað
fyrir kl. 11.00 f.h. þann 25. apríl 1990, merkt: „Útboð
3565/90", þar sem þau verða opnuð í viðurvist við-
staddra bjóðenda.
INIMKAUPASTOFIMUN RÍKISINS
BORGARTUNI 7. 105 REYKJAVIK
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Lausar stöður
Lausar stöður við Háskólann á Akureyri
Við Háskólann á Akureyri eru lausar til umsóknar eftirtaldar
lektorsstöður:
1. Við heilbrigðisdeild tvær lektorsstöður i hjúkrunarfræði.
2. Við rekstrardeild lektorsstaða í þjóðhagfræði.
3. Við sjávarútvegsdeild lektorsstaða í efnafræði og lektors-
staða í lífefna- og örverufræði.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir,
ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf umsækjenda, ritsmíðar
og rannsóknir, svo og námsferil og störf, skulu sendar mennta-
málaráðuneytinu, Sölvhóli, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík,
fyrir 17. apríl nk.
Útlönd
DV
Tugir þúsunda komu saman i Búdapest í Ungverjalandi í gærkvöldi til að mótmæla ofbeldinu gegn Ungverjum í
Rúmeníu. Símamynd Reuter
Blóðug átök milli
Rúmena og Ungverja
TIL SÖLU
Mót: 15 t., 8 t. plastbáta & polyurethan framleiðslu-
lína.
Tilboð óskast í eftirtalda muni:
Smíðamót fyrir 15 t. plastbáta með öllu.
Smíðamót fyrir 8 t. plastbáta með öllu.
Smíðamót: Fiskeldisker, 3 stærðir - plast.
Smíðamót: Garðlaugamót, hitapottur - plast.
Urethan vinnslulína: Efnisblöndunarsamstæða,
mótapressa, mót og efnislager.
Skriflegum tilboðum ber að skila fyrir 23. mars nk.
á skrifstofu embættisins. Allar nánari upplýsingar
veitir undirritaður, skrifstofu embættisins, Hnjúka-
byggð 33, Blönduósi, sími 9524157.
Skiptaráðandinn í Húnavatnssýslu,
Sverrir Friðriksson, ftr.
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Styrkir
Styrkur til háskólanáms i Japan
Japönsk stjórnvöld bjóða fram styrk handa Islendingi til há-
skólanáms í Japan háskólaárið 1991-92 en til greina kemur
að styrktímabil verði framlengt til 1993. Ætlast er til að styrk-
þegi hafi lokið háskólaprófi eða sé kominn nokkuð áleiðis í
háskólanámi. Þar sem kennsla við japanska háskóla fer fram
á japönsku er til þess ætlast að styrkþegi leggi stund á jap-
anska tungu um a.m.k. sex mánaða skeið. - Umsóknir um
styrkinn, ásamt staðfestum afritum prófskírteina, meðmælum
og heil brigðisvottorði, skulu sendar menntamálaráðuneytinu,
Sölvhólsgötu 4, 1 50 Reykjavík, fyrir 30. maí nk. Sérstök um-
sóknareyðublöð fást í ráðuneytinu.
Norrænir starfsmenntunarstyrkir
Menntamálaráðuneyti Danmerkur, Finnlands, Noregs og Sví-
þjóðar veita á námsárinu 1990-91 nokkra styrki handa íslend-
ingum til náms við fræðslustofnanir í þessum löndum. Styrkirn-
ir eru einkum ætlaðir til framhaldsnáms eftir iðnskólapróf eða
hliðstæða menntun, til undirbúnings kennslu í iðnskólum eða
framhaldsnáms iðnskólakennara, svo og ýmiss konar starfs-
menntunar sem ekki er unnt að afla á islandi.
Fjárhæð styrks í Danmörku er 15.500 d.kr., í Finnlandi 24.000
mörk, I Noregi 21.200 n.kr. og í Svíþjóð 10.000 s.kr. miðað
við styrk til heils skólaárs.
Umsóknir skulu berast menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu
4, 150 Reykjavík, fyrir 25. apríl nk. og fylgi staðfest afrit próf-
skírteina, ásamt meðmælum. Sérstök eyðublöð fást í ráðuneyt-
inu.
og hundruð særst. Hermennirnir
gerðu enga tilraun til að stöðva Ung-
verja þegar þeir tóku til við hefndar-
aðgerðir sínar seint í gærkvöldi þeg-
ar Rúmenar höfðu haft sig á brott.
Rúmenar eru í miklum meirihluta
í Tirgu Mures og hafa þeir reiðst
kröfum Ungverja um meira sjálfs-
forræði frá því að Ceausescu einræð-
isherra var tekinn af lífi í desember
siðastliðnum. Eitt af því sem vakti
sérstaka reiði Rúmena núna var
skilti í búðarglugga Ungverja þar
sem á stóð: „Rúmenar fá ekki af-
greiðslu.“ Rúmenar lokuðu búðinni
og þar með fór ofbeldisskriðan af
staö.
Herskáir Ungverjar, sem héldu
kyrru fyrir í miðborg Tirgu Mures í
gærkvöldi, hétu því að fara hvergi
fyrr en yfirvöld hefðu orðið við öllum
kröfum þeirra. Vilja þeir meðal ann-
ars fá meiri yfirráð yfir eigin málum
og að kennsla fari einnig fram á ung-
versku.
Reuter
Sameining Þýskalands:
Búast við myntbandalagi í apríl
Vestur-Þjóðverjar búast við að
samningur um saméiningu gjald-
miöla þýsku ríkjanna verði tilbúinn
í lok næsta mánaðar aö því er heim-
ildarmenn innan Bonn-stjórnarinn-
ar sögöu í gær. Myntbandalag af
slíku tagi, þar sem vestur-þýska
markið yrði innleitt í Austur-Þýska-
land, gæti svo tekið gildi innan sex
til átta vikna frá undirritun samn-
ingsins, sögðu heimildarmennirnir.
Heimildarmennirnir sögðu þó ekki
frá þeim skilyrðum sem slíkt banda-
lag yrði bundið né hvaða skilyrði
yrðu að vera til staðar til undirritun-
ar. Helmut Kohl, kanslari Vestur-
Þýskalands, bauð löndum sínum
austan landamæranna sameiningu
efnhags, félagskerfis og gjaldmiðla
ríkjanna sem undanfara pólitískrar
sameiningar þýsku ríkjanna. Nefnd,
skipuð fulltrúum beggja landa, hefur
verið sett á laggirnar tii að undirbúa
jarðveginn.
Stjómarmyndunarþreifingar
standa nú sem hæst í Austur-Þýska-
landi í kjölfar niðurstaðna kosning-
anna á sunnudag þar sem hægri
menn, Bandalag fyrir Þýskaland,
unnu yfirburða sigur. Vilja þeir að
Lothar de Maiziere, leiðtogi kristilegra demókrata í '‘.•■stur-Þýskaiandi, á
tali við Martin Kirchner, háttsettan embættismanna íiukksins, í Austur-
Berl ín í gær. Simamynd Reuter
samsteypustjórn verði mynduð inn-
an tveggja vikna til að tryggja að
sameining á sviöi efnahags og fjár-
mála hefjist sem fyrst. Talsmenn
Bandalags frjálsra demókrata, sem
fékk alls 21 þingsæti í kosningunum,
sögðu í gær að Bandalag fyrir Þýska-
land hefði boöið þeim til stjórnar-
mynundarviöræðna.
Reuter
Sex menn hafa beðið bana og yfir
þrjú hundruö særst í átökum milli
Rúmena og Ungveija í borginni
Tirgu Mures í Transylvaníu í Rúm-
eniu. í fréttum rúmenska útvarpsins
í morgun var ekki greint frá þjóðerni
hinna follnu. Mikil spenna var sögð
vera í Tirgu Mures í morgun.
í hefndarskyni fyrir árásir Rúmena
kveiktu Ungverjar í verslunum og
hóteh eftir aö Rúmenar höfðu dreift
sér er líða tók á kvöldið. Átökin í gær
voru þau alvarlegustu milli rúmen-
skra þjóðernissinna og eins af minni-
hlutahópunum í landinu frá lokum
seinni heimsstyrjaldarinnar.
Tugir þúsunda efndu til mótmæla
í Búdapest í Ungverjalandi í gær-
kvöldi gegn ofbeldinu gegn Ungverj-
um í Rúmeníu.
Rúmensk yfirvöld sendu skrið-
dreka til Tirgu Mures í gær til að
skilja á milli fylkinganna en þeim
hafði lent saman öðru hvoru frá því
á fóstudaginn. Þegar hermenn komu
á vettvang höfðu þegar nokkrir fallið
Ungverska leikritaskáldiö Andras
Suto kom til að leita læknishjálpar
i Búdapest i gær. Hann hatði verið
barinn i Tirgu Mures i Rúmeníu af
rúmenskum þjóðernissinnum.
Símamynd Reuter