Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1990, Qupperneq 14
14
Iþróttir
Handboltastúfar
• Erwin Lanc, forseli IHF.
Erwin Lanc, forseti IHE
(alþjóöa handknattleiks-
sambandsins), sem
baðst afsökunar á því á
dögunum að hafa fullyrt eftir HM
í Tékkó að ísland væri áfram a-
þjóð, hefur verið endurkosinn for-
seti austurríska handknattleiks-
sambandsins. Lanc, sem er fyrr-
verandi utanríkisráðherra Austur-
ríkis, verður formaður fram til árs-
ins 1992.
„Phantom-þotan“
gefur út bók
Austur-þýski markvörðurinn Wie-
land Schmidt, sem af mörgum er
talinn besti markvörður allra tíma
í handknattleik, leikur sem stendur
meö vestur-þýska 2. deildar liðinu
Hameln sem Kristján Arason lék
með um tíma. Schmidt, sem er 36
ára gamall, fékk viðurnefnið
„Phantom-þotan“ eftir heims-
meistarakeppnina í Danmörku
1978. Hann er nú að skrifa bók um
feril sinn og mun bókin bera nafn-
ið: The Phantom - My life and My
Tricks.
Wenta kostaði Bidasoa
rúmar43 miiljónir
Eins og margir handknattleiks-
unnendur vita leikur hinn heims-
þekkti pólski leikmaður Bogdan
Wenta með spánska liðinu Bidasoa
ásamt Alfreð Gíslasyni. Wenta fór
ekki til spánska liðsins fyrir neina
smáaura því að fyrir hann þurfti
Bidasoa að greiða 43,5 milljónir ís-
lenskra króna. Pólskir landsliðs-
menn reyna viðar fyrir sér og þess
má geta að Ryszard Antczak leikur
með ATSV Innsbruck i Austurriki
og markvörðurinn Wislaw Goliat
leikur með belgíska liðinu VZW
Olse Merkensen.
Landsliöió til Seattle
íslenska landsliðið í handknattleik
mun væntanlega fara utan í júlí i
sumar og taka þátt í handknatt-
ieikskeppni góðgerðarleikanna
sem fara fram í Seattle í Bandaríkj-
unum dagana 22.-27. júlí. Andstæð-
ingar íslenska liðsins verða lið Sov-
étríkjanna, Suður-Kóreu, Júgó-
slavíu, Japan, Tékkóslóvakíu,
Spánar og Bandaríkjanna.
Fá iandslið æfa meira
en lið Frakkiands
Leikur íslands gegn Frakkiandi á
nýliðnu heimsmeistaramóti var
leikurinn sem miklu ef ekki öllu
máli skipti fyrir íslenskan hand-
knattleik og óþarfi að fara nánar
út i þá sorgarsálma hér. Þess má
hins vegar geta að landsliðsþjálfari
Frakka, Daniei Constantini, fór
með lið sitt 1 júli 1989 i hálfan mán-
uð til Tékkóslóvakíu í æíingabúðir.
Leikmenn franska liðsins, en fá
landslið í heiminum æfa meira ef
undan er skilið lið Sovétmanna,
voru því ekkí alls ókunnugir mál-
um í Tékkóslóvakíu er þeir mættu
á HM.
Sannkallaðurflótti
frá Metaloplastica
Það er gjarnan talað um að lið hafi
orðið fyrir mikilli blóötöku ef einn
snjall leikmaður hverfur frá við-
komandi liði. En hvað mega for-
ráðamenn júgóslavneska liðsins
Metaloplastica Sabac segja. Liðiö
hefur löngum þótt eítt besta félags-
lið heims og hefur meðal annars
unnið Evrópukeppni bikarhafa.
Segja má að júgóslavneska lands-
líðið haf: yílrgefið liðið en þeir leik-
menn eru: Basic markvörður,
Vujovic, Vukovic, Mrkonja,
Cvetkovic, Isakovic, Portner og
Kuzmanovsky. Allt eru þetta þekkt
nöfn í heimi handknattleiksmanna.
Margir snjallir ieika
handbolta í Frakklandi
Franska 1. deildin í handknattleik
er orðin geysilega sterk með til-
komu margra frægra erlendra leik-
manna. Þar má nefna júgóslav-
neska markvörðinn Mirko Basic
sem leikur með CHB Venissieux,
Mile Isakovic hjá US Creteil, en það
lið þjálfar Bronislav Pokrajac, sem
gerði Júgóslava að ólympíumeist-
urum 1984, og danski landsliðs-
maðurinn Klaus Sletting Jensen en
hann leikur með USAM Nime.
• Svona litur hún út, bókin sem
þeir Andreas Thiei og Stefan Hec-
ker hafa skrifað.
í tísku að skrifa?
Það eru fleiri heimsþekktir mark-
verðir í handboltanum en Wieland
Schmídt sem eru eða hafa verið að
gefa út bækur. Markverðir vestur-
þýska landshðsins, þeir Andreas
Thiel og Stefan Hecker, hafa geflö
út 144 blaðsíðna bók sem nefnist
Saves Like Ours. í bókinni er ýmis
fróöleikur fyrir markverði og kem-
ur þar margt forvitnilegt fram.
Ætli Eínar Þorvarðarson sé með
skruddu i vinnslu?
Ola Lindgren stóð
vel undir nafni
Hér fer á eftir listi yfir þá leikmenn
í nokkrum löndum Evrópu sem
kosnir voru handknattleiksmenn
ársins á síðasta ári: Peter Pysall,
SC Magdeburg, í Austur-Þýska-
landi, Lars Lundbye, Tastrup IK, í
Danmörku, Jochen Fraatz, Tusem
Essen, i V-Þýskalandi, Jiri Kotrc,
Dukla Prag, í Tékkóslóvakíu, Iztok
Puc, Borac Banja Luca, í Júgóslav-
íu, og Ola Lindgren, Drott, í Svíþjóð
en hann átti marga góða leiki meö
sænska landsliðinu á HM.
Neituðu leikmenn að
fá Roger Carlsson?
Nðkkuö einkennileg fullyrðing er í
einu virtasta handknattleikstíma-
ritinu sem gefið er út í heiminum
og nýkomið er fyrir sjónír lesenda.
Þar er sagt að til greina hafi komið
að sænski þjálfarinn Roger Carls-
son tæki við íslenska landsliöinu
eftir ólympíuleikana í Seoul og má
það rétt vera en ennfremur er full-
yrt að leikmenn íslenska landsliðs-
ins hafi hafnaö Carlsson og neitað
því að hann tæki við liðinu. Skrít-
ið, ef satt er.
Tiedemann á þröskuldi
HM íTékkóslóvakíu
Eins og komið hefur fram í DV
hefur austur-þýski þjálfarinn Paul
Tiedemann þjálfaö landslið Egypta
frá því í júní í fyrra eða frá því að
honum var neitað um fararleyfi til
íslands. Það sýnir vel hve snjall
þjálfari Tiedemann er að mjög litlu
munaði að lið Egyptalands kæmist
í úrshtakeppni HM1 Tékkó. í und-
ankeppninni í Afríku tapaði liðiö
aðeins einum leik, gegn Alsír 17-18,
sem þar með komst til Tékkó.
-SK
MIÐyiKUDAGIJK. ,21 MARS 1990 (
• Pierre Littbarski, leikmaður með v-þýska liðinu Köln, er hér með knöttinn í leik gegn belgíska liðinu Antwerpen i Evrópu-
keppninni í knattspyrnu. Leiknum lauk með jafntefli, 0-0, sem dugði Köln til áframhaldandi þátttöku. Símamynd Reuter
Jafntefli hjá
Aston Villa
gegn QPR í 1. deild ensku knattspymunnar
Tveir leikir fóru fram í 1. deild
ensku knattspyrnunnar í gærkvöldi.
QPR og toppliðið í deildinni, Aston
Villa, skildu jöfn, 1-1, og Crystal
Palace og Derby gerðu sömuleiðis
jafntefli, 1-1.
Leikur QPR og Aston Villa var
mjög íjörugur og hefðu úrslit leiksins
geta orðið 5-5 ef leikmenn liðanna
hefðu nýtt marktækifærin. Colin
Clark skoraði mark QPR á 50. mín-
útu en 15 mínútum fyrir leikslok
tókst Dananum Kent Nielsen að jafna
metin. George Graham, fram-
kvæmdastjóri Arsenal, var á leikn-
um og fylgdist grannt meö markverði
QPR, David Seaman. Hann hefur ör-
ugglega ekki orðið fyrir vonbrigðum
með Seaman því hann átti stórleik í
markinu.
Leikur Crystal Palace og Derby var
mjög haröur og þurfti að flytja Ian
Whright, leikmann Crystal Palace, á
sjúkrahús eftir harða tæklingu eins
leikmanns Derby. Andy Gray skor-
aöi mark Palace á 73. mínútu en
Mark Whright jafnaði metin fyrir
Derby á 80. mínútu. -GH/-GSv
Richard Möller tekur
við danska landsliðinu
- í knattspyrnu til næstu Qögurra ára
Richard Möller Nielsen var í gær
ráðinn landsliðsþjálfari Dana í knatt-
spyrnu og stýrir liðinu væntanlega
næstu fjögur árin. Eins og DV sagði
frá í gær hætti Vestur-Þjóðverjinn
Horst Wohlers við að taka við liðinu
á mánudagskvöldiö eftir að hafa ver-
iö ráðinn á sunnudag!
Nielsen er 52 ára gamall og var
aðstoðarþjálfari landsliðsins þegar
Sepp Piontek stýrði því. Piontek
sagöi sjálfur á sunnudag þegar Wohl-
ers var ráðinn að hann skildi ekki
þá ákvörðun, eðlilegast hefði verið
að Nielsen tæki við.
Richard Möller Nielsen er yfirþjálf-
ari B 1909 en Friðrik Friöriksson
landsliðsmarkvörður lék þar undir
hans stjórn árin 1988 og 1989. Þar
leikur nú Aðalsteinn Víglundsson frá
Akranesi eins og DV sagði frá í gær.
-VS
Bikarleikir í handboltanum
Fimm leikir eru á dagskrá í kvöld ast. í Digranesi leika UBK-B og FH
í 32-liða úrslitum í bikarkeppni karla kl. 19. Stjarnan og ÍR leika í Garðabæ
í handknattleik. Valur og Valur-B kl. 20. ÍBV og KA leika í Eyjum og
leika á Hlíðarenda kl. 18 og þetta er hefst leikurinn kl. 20 og í Digranesi
annað árið í röð sem þessi lið mæt- leika HK og KR kl. 20.30. -GH
Köln og
Mónakó
áfram
- í Evrópukeppniimi
Tveir leikir fóru fram í Evrópukeppninni
í knattspyrnu og voru það síðari viðureign-
ir félaganna. í Belgíu léku Antwerpen og
vestur-þýska liðið Köln í UEFA bikarkeppn-
inni. Leiknum lauk með jafnteíii, 0-0, og fer
Köln áfram þar sem liðiö vann fyrri leikinn
á heimavelli, 2-0.
Þá léku í Frakklandi Mónakó og spænska
liðið Real Valladolhd í Evrópukeppni bikar-
hafa. Fyrri leiknum sem fram fór á Spáni
lauk með markalausu jafnteíli og í leiknum
í gær var sama staða eftir venjulegan leik-
tíma og framlenginu. Þurfti að grípa til víta-
spyrnukeppni sem lauk sem sigri Mónakó,
3-1. Markvörður Mónakó var hetja hðsins
þvi hann varði tvær vítaspyrnur Spánverj-
anna.
-GH
Markalaust hjá
ÍR og Víkingi
í slökum leik
- á Reykjavíkurmótmu
Einn leikur fór fram á Reykjavíkurmótinu í
knattspyrnu í gærkvöldi. ÍR og Víkingur skildu
þá jöfn, 0-0, í frekar slökum leik á gervigrasinu
í Laugardal.
Næsti leikur á mótinu er á fimmtudagskvöld
þegar KR og Fylkir leiða saman hesta sína.
• í handboltanum var einn leikur á dagskrá.
ÍBK fékk Selfoss í heimsókn í 2. deild kvenna og
sigruðu Selfossstúlkur, sem nýlega unnu sér
sæti í 1. deild, 18-27.
-GH