Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1990, Page 23

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1990, Page 23
5^ M .QPM Afmæli Sigurður Guðni Jónsson Sigurður Guðni Jónsson, apótekari í Apóteki Austurbæjar, Flókagötu 33, Reykjavík, er flmmtugur í dag. Sigurður er fæddur í Fögruhlíð í Jökulsárhlíð í Norður-Múlasýslu og ólst þar upp til sex ára aldurs, er hann flutti til Keflavíkur með for- eldrum sínum. Hann varð stúdent úr stærðfræðideild Menntaskólans á Laugarvatni 1960 og hóf nám við Háskóla íslands sama ár. Hann var við verknám í Lyfjaverslun ríkisins og Holts Apóteki 1961-62 og lauk miðprófi sama ár. Árið 1962 hóf Sig- urður nám við Danmarks Farma- soytyske Hoyskole og lauk cand.- pharm. prófi í júní 1966. Hann starf- aði á vegum landlæknisembættisins hjá Patrekshreppi 1966-67 og var stofnandi og fyrsti lyfsali Patreks Apóteks 1967-84. Hann opnaði lyfj- aútsölu á Bíldudal 1971 og Þingeyri 1973. Árið 1984 tók hann við rekstri Apóteks Austurbæjar. Sigurður var um tíma formaður Björgunarsveit- ar Patreksíjaröar og formaður Nor- ræna félagsins á Patreksfirði um skeið. Einnig starfaði hann í skóla- nefnd. Sigurður kvæntist þann 15.11.1969 Fjólu Guðleifsdóttur hjúkrunar- fræðingi, f. 21.9.1944. Hún er dóttir Guðleifs Kristins Bjamasonar sím- virkja og Sigurborgar Eyjólfsdóttur frá Dröngum, húsmóður í Reykja- vík. Börn Sigurðar og Fjólu eru: Leif- ur, f. 18.8.1970, nemi, og Anna, f. 3.5.1974. Bróðir Sigurðar er Hilmar, f. 12.5. 1932, yfirbókavörður við Bæjar- og héraðsbókasafnið í Keflavík, kvæntur Elísabetu Guðrúnu Jens- dóttur, f. 3.3.1945, kennara, og eiga þauþrjúbörn. Foreldrar Sigurðar voru Jón Guð- jónsson, f. 26.4.1905, d. 28.2.1975, b. og verkamaður í Keflavík, og kona hans, Jóna Guðrún Þorkelína Guðlaugsdóttir, f. 27.2.1908, d. 15.10. 1968, verkakona. Jón var sonur Guðjóns, b. í Fögru- hlíð, Einarssonar, b. á Setbergi í Fellum, Sveinssonar, b. í Götu í Fell- um, bróður Þórunnar, móður Páls Ólafssonar skálds. Sveinn var sonur Einars, b. í Götu, Sigurðssonar. Móðir Einars í Götu var Bóthildur Magnúsdóttir, systir Stefáns, ætt- fóður Sandfellsættarinnar, langafa Árna, afa Helga Seljans og Áma Helgasonar í Stykkishólmi. Stefán var einnig langafi Bóelar, langömmu Geirs Hallgrímssonar. ÞávarStefánlangafiBóasar, . langafa Harðar Einarssonar, fram- kvæmdastjóra Frjálsrar fjölmiðlun- ar, og Kjartans Gunnarssonar, framkvæmdastjóra Sjálfstæðis- flokksins. Móðir Jóns var Sigríður Jóns- dóttir, b. í Fögruhlíð, Þórðarsonar. Móðir Jóns í Fögruhlíð var Sigríður Sigfúsdóttir, systir Kristínar, langömmu Guörúnar, ömmu Sig- mundar Sigfússonar, læknis á Ak- ureyri, og langömmu Péturs Einars- sonar flugmálastjóra. Jóna var dóttir Guðlaugs, báta- og húsasmiðs í Keflavík, Eyjólfssonar, b. á Efri-Steinsmýri í Meðallandi, Eiríkssonar, bróður, samfeðra, Árnýjar, ömmu Sigurbjarnar Ein- arssonar biskups og Aðalheiðar Bjarnfreðsdóttur alþingismanns. Móðir Eyjólfs var Guðrún Ásgríms- dóttir, b. á Oddum í Meðallandi, Árnasonar, b. í Botnum, Eiríksson- ar, bróður Sverris, langafa Jóhann- esar Kjarvals. Móðir Jónu var Málhildur Þor- kelsdóttir, b. á Harðangri á Vatns- leysuströnd, Jónssonar, b. á Strympu á Rangárvöllum, Þorkels- sonar. Móðir Málhildar var Guðrún, systir Guðríðar, langömmu Oddnýj- ar, móður Jónatans Þórmundssonar prófessors. Guðrún var dóttir Egils, b. á Þóru- stöðum á Vatnsleysuströnd, Guð- Sigurður Guðni Jónsson. mundssonar, prests á Kálfatjörn, bróður Þorvaldar, langafa Finn- boga, föður Vigdísar forseta. Guðmundur var sonur Böðvars, prests í Guttormshaga, Högnasonar „prestaföður", prests á Breiðaból- stað í Fljótshlíð, Sigurðssonar, afa Tómasar Sæmundssonar Fjölnis- manns, langafa Helga, fóður Ragn- hildar alþingismanns og Tómasar prófessors. Sigurður Guðni tekur á móti gest- um á heimili sínu, Flókagötu 33, í dag, miðvikudaginn21. mars, milli kl. 17 og20. Til hamingju mec >afmælið21.mars 80 ára Bjarkarholti 1, Mosfellsbæ. Sigurjón Gottskálksson, Hásteinsvegi64, Vestmannaeyjum. 40ára ErnaHjaltadóttir, Fellsenda II, Miðdalahreppi. Hlynur Andrésson, 70ára Kristín Vigfúsdóttir, Melseli2,Reykjavík. Jósteinn Kristjánsson, V tltiiöGUUíiuic llj. yuj ii.yya vV5t< Páll J. Pálsson, Hátúni 12, Reykjavik. Ystaseli 28, Reykjavík. Magnús Sigurðsson, Dalsgerði 2B, Akureyri. RoIfSörby, 60 ára Stelkshólum 2, Reykjavík. Stefanía Hákonardóttir, Heiðarbakka 7, Keflavík. IjX la öKUglJUlu yOaclsUUI 111 . Ásgarði 67, Reykjavík. Sigurbjörg Jónsdóttir Sigurbjörg Jónsdóttir, Hverfisgötu 92A, Reykjavík, varð áttatíu og fimm ára í gær, 20. mars. Eiginmaður Sigurbjargar var Helgi Jóhannsson Hafliðason, f. 18.8. 1908, d. 30.1.1965, bifvélavirki og koparsmiður í Reykjavík. Helgi var sonur Hafliða Jóhanns, skipstjóra á Búðum í Eyrarsveit, Jóhannssonar og Helgu Jónsdóttur, b. á Fáskrúðs- bakka í Miklaholtshreppi, Gíslason- ar. Systur Helga: Mínerva, f. 20.6. 1903, og Karlotta Jónbjörg, f. 1904, dóung. Börn Sigurbjargar og Helga: Guðbjörg Jóna Olsen, f. 8.4.1932, búsett í Danmörku, gift Svend A. Olsen.f. 30.6.1920. Hafdís Helga, f. 12.11.1933, búsett íReykjavík. Kristín, f. 5.8.1935, gift Einari Torfasyni frá Vestmannaeyjum, f. 23.4.1923. Hulda Elvý, f. 17.2.1940, búsett í Reykjavík, var gift Ragnari Kristni Hjaltasyni, f. 28.3.1939. Ómar Þór, f. 11.7.1941, búsettur í Reykjavík. Kristján Hafþór, f. 12.1.1945, fórst með flugvél sinni þann 27.10.1982, kaupfélagsstjóri Saurbæinga og síð- ar ísfirðinga, var kvæntur Guðnýju Kristjánsdóttur, f. 7.3.1945. Helgi, f. 7.10.1946, bóndi og bíl- stjóri í Landeyjum, kvæntur Rós Óskarsdóttur, f. 6.2.1949. Bræður Sigurbjargar: Kristján, f. 1.9.1902, dó um tvítugt, og Guðjón Benjamín, f. 30.8.1906, bílstjóri í Reykjavík. Auk þess á Sigurbjörg einn hálfbróður, Guðbjörn Ingvar, f. 15.10.1922. Sigurbjörg Jónsdóttir. Foreldrar Sigurbjargar voru Jón, b. í Smádalakoti og síðast í Fram- nesi í Holtum, Halldórsson og Guð- björgJónsdóttir. Jón var sonur Halldórs, b. á Ósa- bakka á Skeiðum, Vigfússonar, b. í Lambhúskoti, Vigfússonar. Móðir Halldórs á Ósabakka var IngibjörgHalldórsdóttir. Móðir Jóns var Þorbjörg Jónsdóttir, b. í Unnarholti, Guðbrandssonar og Guðfinnu Jónsdóttur. Guðbjörg var dóttir Jóns, for- manns í Einkofa á Eyrarbakka, Jónssonar, b. á Vindheimum í Ölf- usi, Jónssonar. Móðir Jóns í Einkofa var Guðrún Jónsdóttir. Móðir Guðbjargar var Kristín Ólafsdóttir, b. í Eystra- Geldingaholti og Baugsstöðum í Flóa, Nikulássonar og Sólveigar Gottsveinsdóttur frá Steinsholti í Eystrihreppi. Olgeir G.Á. Gíslason Olgeir G.Á. Gíslason. Olgeir G.Á. Gíslason verkamaður, Brúarholti 3, Ólafsvík, er sextugur ídag. Olgeir er fæddur á Gullhúsum í Snæfjallahreppi og alinn upp á ísaflrði. Eiginkona hans er Þórunn S. Jó- hannsdóttir húsmóðir, f. 10.2.1933. Olgeir mun taka á móti gestum á laugardaginn, 24. mars, kl. 20 á heimili sínu. Andlát Matthías Jónasson Dr. Matthías Jónasson prófessor, Þinghólsbraut 3, Kópavogi, lést þriðjudaginn 13.3. sl. Hann verður jarðsettur frá Kópavogskirkju í dag, miðvikudaginn 21.3., klukkan 13.30. Matthías fæddist í Reykjarfiröi við Arnarflörð 2.9.1902 og ólst þar upp í foreldrahúsum. Hann stundaði sjó- mennsku frá 1923-28 en hóf þá nám við MA og lauk þaðan stúdentsprófi 1930. Matthías stundaði nám í upp- eldisfræði, sálarfræði, heimspeki, félagsfræði og mannkynssögu viö háskólann í Leipzig og lauk þaðan doktorsprófi 1936. Hann var við framhaldsnám í uppeldisfræði og sálarfræði við háskólann í Leipzig 1935-45 og var styrkþegi Sjóðs séra Hannesar Árnasonar prestaskóla- kennara 1939-42. Matthías var lektor við háskólann í Leipzig 1936-40, settur prófessor þar 1940-45, stundakennari við HÍ í uppeldisfræði 1952-57 og prófessor við HÍ1957-73. Þá var hann for- stöðumaður rannsókna á vegum menntamálaráðuneytisins á greind- arþroska íslenskra skólabarna 1945-57. Matthías var forgöngumaður að stofnun Barnaverndarfélags Reykjavíkur 1949 og síðar níu ann- arra barnaverndarfélaga, sem og stofnun Landssambands íslenskra barnaverndarfélaga. Hann var for- maður Barnaverndarfélags Reykja- víkur og Landssambands íslenskra barnaverndarfélaga um alllangt skeið frá stofnun þeirra. Þá var hann frumkvöðull að stofnun Heim- ilissjóðs taugaveiklaðra barna 1961. Matthías skrifaði mikinn flölda rita á íslensku og þýsku um uppeld- is- og sálarfræði. Meðal þekktari rita hans má nefna eftirtalin: Recht und Sitthchkeit in Pestalozzis Kultur- historie(doktorsritgerð), 1936; Is- land, Schicksal eines germanischen Stammes, 1943; Athöfn og uppeldi, 1947; Nýjar menntabrautir, 1955; Greindarþroski og greindarpróf, 1956; Veröld milli vita, 1964; Mann- leg greind. Þróunarskilyrði hennar og hlutverk í siðmenntuðu þjóð- félagi, 1967; Nám og kennsla. Mennt- un í þágu framtíðar, 1971; Frumleg sköpunargáfa, 1976, ogUppeldi ungra barna, 1969. Matthías var kjörinn félagi í Vís- indafélagi íslendinga 1959, heiðurs- félgi íslenskra sálfræðinga 1972 og riddari íslensku fálkaorðunnar 1973. Hann var heiðursdoktor frá KHÍ frá 1989. Matthías kvæntist 12.8.1937 Gabriele Jónasson, f. Graubner, cand mag., húsfreyju, f. 16.2.1912, dóttur Adolfs Graubner ofursta, síð- ast í Stuttgart í Vestur-Þýskalandi, og koriu hans, Margarethe Graub- ner, f. Cramer, húsfreyju. Börn Matthíasar og Gabriele eru Sigrún, f. 21.2.1938, stúdent og skrif- stofumaður hjá Þjóðhagsstofnun; Björn, f. 8.12.1939, hagfræðingur við Fjárlaga- og hagsýslustofnun flár- málaráðuneytisins, kvæntur Ernu Bryndísi Halldórsdóttur, löggiltum endurskoðanda; Margrét, f. 21.12. 1949, kennari við Hagaskólarin í Reykjavík, gift Guðmundi Bjarna- syni verslunarmanni, og Dagbjört, f. 28.6.1952, húsfreyja í Kópavogi, gift Jóni Þorleifi Jónssyni húsamið. Matthías átti tólf systkini og eru þrjúþeirraálífi. Foreldrar Matthíasar voru Jónas Ásmundsson, f. 3.9.1865, d. 13.9. 1946, bóndi, búfræðingur og hrepp- stjóri í Reykjarfirði, og kona hans, Jóna Ásgeirsdóttir, f. 20.7.1874, d. 30.9.1938, húsfreyja. Jónas var sonur Ásmundar, b. á Borgum í Þistilfirði, Jónassonar, b. á Borgum, Ásmundssonar. Móðir Ásmundar á Borgum var Signý Halldórsdóttir. Móðir Jónasar í Reykjarfirði var Kristjana Jóns- dóttir. Jóna var dóttir Ásgeirs, b. á Álfta- Dr. Matthías Jónasson. mýri í Arnarfirði, bróður Friðriks, langafa Guðmundar J. Guðmunds- sonar, formanns Dagsbrúnar og Verkamannsambandsins. Hálfbróð- ir Ásgeirs var Auðunn, langafi Styrmis ritstjóra og Blöndals- bræðra, þeirra Benedikts, Halldórs og Haraldar. Ásgeir var sonur Jóns, prests í Álftafirði, Ásgeirssonar, prófasts í Holti í Önundarfirði, bróð- ur Þórdísar, móður Jóns forseta og Jens rektors, langafa Jóhannesar Nordal. Ásgeir í Holti var sonur Jóns, prófasts í Holti, Ásgeirssonar, prests í Dýraflarðarþingum, Bjarna- sonar. Móðir Ásgeirs í Holti var Þorkatla Magnúsdóttir, prests á Söndum, Snæbjarnarsonar. Móðir Jóns á Álftamýri var Rannveig, systir Jóns, prests í Arnarbæli, langafa Árna, fóður Matthíasar Á. Mathiesen, fyrrv. ráðherra. Rann- veig var dóttir Matthíasar, stúdents í Vigur og á Eyri í Seyðisfirði við Djúp, hálfbróður Markúsar, langafa Ásgeirs Ásgeirssonar forseta. Matt- hías var sonur Þórðar, stúdents í Vigur, Ólafssonar, lögsagnara á Eyri, Jónssonar. Móðir Asgeirs á Álftamýri var Guðrún Guðmunds- dóttir, b. á Auðkúlu, Arasonar. Móðir Jónu var Jóhanna Bjarna- dóttir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.