Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1990, Side 28

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1990, Side 28
T A S K O T I Ð Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 FD w" ■ 1» KH I Frjálst,óháö dagblað MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 1990. 14 milljónir í Kringlutorg Reykjavíkurborg hefur ákveöið aö setja 14,5 milljónir króna í fram- kvæmdir viö að ganga frá stórum hluta Kringlutorgs í sumar. Kringlu- torgið veröur á stærö viö Austurvöll og mun tengja saman Kringluna 4, 6,12 og Borgarleikhúsið. Þorvaldur S. Þorvaldsson, for- stöðumaður Borgarskipulags, segir aö meöal annars verði gert ráö fyrir útileiksviði á Kringlutorginu. Um það hvort til standi að Reykja- vikurborg byggi gleryfirbyggingu yfir torgið segir Þorvaldur það ekki standa til. „Það verður nú varla byggt yfir Kringlutorgið. Hins vegar hafa verið uppi hugmyndir um það á meðal verslunareigenda i Kringlunni að tengja saman gömlu Kringluna við Kringluna 4 og 6 með glergöngum. Þetta eru aðeins hugmyndir og Reykjavíkurborg kemur þar hvergi nærri.“ -JGH Eftirlýstur maö- ur handtekinn Ungur eftirlýstur maður var hand- tekinn í gærkvöldi. Hafði hann illa fengið veski og ávísanahefti undir höndum. Einnig fundust í fórum hans áhöld til fíkniefnaneyslu. Mað- urinn hafði verið eftirlýstur af Saka- dómi, RLR og rannsóknardeildar lög- reglu í Reykjavík. Hann haföi ekki. sinnt boðun sakadómara og mætti ekki til yfirheyrslna hjá lögreglu- embættunum. Maðurinn situr nú í fangageymslum lögreglunnar. _______________________-ÓTT Stolið úr bens- ínsjálfsölum Þrír þjófnaðir og skemmdarverk hafa verið framin á bensínsjálfsölum í höfuðborginni á síðustu dögum. Mikið tjón hefur orðið á sjálfsölunum á hveijum stað. Einnig hefur tugum þúsunda verið stolið. Öll málin eru í höndum Rannsóknarlögreglu ríkis- ins. -ÓTT íslandsbanki á Akureyri: Guðjón verður útibússtjóri Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Guðjón Steindórsspn hefur verið ráðinn útibússtjóri íslandsbanka á Akureyri en bankaráð íslandbanka gekk frá ráðningunni á fundi sínum í gær. Guðjón hefur starfað að bankamál- um í 20 ár, fyrst í Búnaðarbanka en síðan 1977 hefur hann stýrt útibúi Iðnaðarbankans á Akureyri. LOKI Er þetta ekki viðskiptalegt kringlukast? Sjöstjaman VE fórst við Vestmannaeyjar í gær: Fimm menn komust í gúmbjörgunarbát - eins úr áhöfninni er saknað Netabáturinn Sjöstjarnan VE fórst í gærmorgun við Vestmannaeyjar. Sex manna áhöfn var á bátnum og komust flmm í björgunarbát og var bjargað. Eins skipverja er saknað. Lóðsinn frá Vestmannaeyjum bjargaði mönnunum eftir að neyð- arsendir í björgunarbátnum hafði vísað á staðinn í gegnum gervi- tungl, Sjöstjarnan, 75 tonna eikarbátur, hélt í róður frá Vestmannaeyjum um sjöleytið í gærmorgun. Slæmt veður var, austan hvassviðri sem versnaði þegar leið á morguninn. Um klukkan 10 var komið ofsaveð- ur og var báturinn þá staddur inn af EUiðaey og hélt sjó. Fékk báturinn skyndilega á sig brot og lagðist á hliöina. Reyndi skipstjórinn, Haraldur Traustason, að keyra bátinn upp þegar annað brot reið yfir. Bátinn lagði þá alveg þannig að honum varð ekki bjarg- að. Komust fimm skipverjar i björgunarbát en náöu ekki að ekki Þrídrangar Sjöstjarnan VE 92 sökk NV af Elliðaey kl. 10:05 V Ðliðaey Kl. 13:01 sást til gúmmibjörgunar- báts skipbrots- mannanna á reki skammt frá Þri- dröngum og var þeim bjargað skömmu síðar r^VESTMANNA- EYJAR OVJU Sjöstjarnan VE sem fórst við Vest- mannaeyjar i gærmorgun. senda út neyðarkall. Sá sem saknað er komst ekki í bátinn. Um tveimur klukkustundum síð- ar, rétt fyrir klukkan 12.00, lét flug- turninn í Vestmannaeyjum Ágúst Bergsson, skipstjóra á Lóðsinum, vita að heyrst hefðu sendingar frá neyðarsendi. „Viö reyndum strax að miða út mjög veik neyðarmerki sem við heyrðum og voru þau í stefnu inn- an við Eyjar,“ sagði Ágúst. „Þegar við komum í Faxasund, norðan Heimaeyjar, var merkið skýrara án þess að við næðum ná- kvæmri staðsetningu. Svo fengum viö aðra nákvæmari og kom hún frá stað rétt framan viö Lóðsinn og eftir um 15 mínútur sáum við gúmbjörgunarbátinn. Stuttu seinna tókst að koma mönnunum um bórð. Gekk það vel þrátt fyrir ofsaveður. Mennirnir voru kaldir og blautir en fljótir aö jafna sig eft- ir að við klæddum þá í þurr fót og gáfum þeim heitt að drekka. Um borð í Lóðsinum er ullarfatnaður fyrir 10 til 12 sem slysavarnakonur í Eyjum gáfu fyrir nokkrum árum. Hjálpaði það mikið." Mennirnir voru búnir að vera hátt í þrjá tíma í björgunarbátnum og hafði rekið frá Elliðaey vestur að Þrídröngum undan veðrinu. Klæddu þeir sig í álpoka sem voru í bátnum og náðu upp góðum hita en þegar frá leið rifnuðu þeir utan af þeim. Komið var með skipbrotsinemv ina tii Vestmannaeyja um hálfþrjú- leytið í gær. Neyðarsendar, eins og sá sem vís- aði Lóðsinum á skipbrotsmennina, eru komnir i nokkra báta. Þykja þeir hafa sannað gildi sitt því eng- inn var farinn að sakna Sjöstjöm- unnar þegar tilkynning um neyð- arsendingar kom, Varðskiþ tók líka þátt í leitinni. Fann það annan björgunarbátinn af Sjöstjörnunni og brak úr bátn- um. Skipverjar af Sjöstjörnunni við komuna tii Vestmannaeyja í gærdag. DV-myndir ÓG Veðrið á morgun: Él á víð og dreif Á morgun verður vestanátt um sunnanvert landiö, en norðvest- anátt norðaustanlands, víðast kaldi eða stinningskaldi, en hæg- ari breytileg átt norðvestanlands. Lægir síðdegis. Léttskýjað aust- anlands en él á víð og dreif í öðr- um landshlutum. Frost verður á bilinu 2-5 stig. NÝJA SENDIBÍLASTÖÐIN 68-5000 Úti að aka í 40 ár BÍLALEIGA v/Flugvallarveg 91-61-44-00

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.