Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1990, Síða 6
6
LAUGARDAGUR 31. MARS 1990.
Utlönd
Eistland:
Fyrsta skrefið í
sjálfstæðisátt
Eistlcndingar, íbúar cins þriggja
Eystrasaltsríkjanna, hafa nú ákvcöiö
aö fylgia aö nokkru lcyti fordæmi
granna sinna, Litháa, sem sagt hafa
skiliö viö ríkjasamband Sovétríkj-
anna. í gær var samþykkt ályktun á
þingi Eistiands þar scm yfirráðum
sovéskra stjórnvalda í lýöveldinu var
hafnaö. Mcð þcssu hafa íbúar Eist-
lands skipaö sér á bekk með Lit-
háum. Eistlendingar hafa þó ekki
tekiö skrefið til fulls á sama hátt og
ráðamenn í Litháen geröu fyrr í
mars því þeir fyrrnefndu samþykktu
að fullt sjálfstæöi kæmi ckki til fyrr
en eftir ákveöinn ,,aölögunartíma“.
Ályktun þingsins í Eistlandi náði
fram að ganga í gær þrátt fyrir viö-
varanir minnihlutahóps Rússa á
þingi um hugsanlega borgarastyrj-
öld. Ljóst er að þessi samþykkt er enn
ein ögrunin gegn 'Gorbatsjov Sovét-
forseta en hann hefur krafist þess
að Eystrasaltsríkin bíöi þar til nýtt
lagafrumvarp um framkvæmd sam-
bandsslita lýðveldanna hefur veriö
samþykkt á sovéska þinginu.
Bush Bandaríkjaforseti sendi Gor-
batsjov persónulegt bréf síöla dags á
fimmtudag þar sem hann hvatti tii
friðsamlegrar lausnar á deilum sov-
éskra ráðamanna og Litháa. Tals-
maður Bush sagði í gær aö í bréfmu
hafi Bandaríkjaforseti lýst yfir
stuðningi viö þrá Litháa eftir sjálfsá-
kvörðunarrétti og skýrt frá þeirri
skoðun bandarískra stjórnvalda aö
lausn á deilunum megi finna meö
samningaviðræðum.
Bandarikjastjórn hefur ekki form-
lega viðurkennt sjálfstæðisyfirlýs-
ingu Litháa. Mikil spenna hefur ríkt
i Litháen síðustu daga, sérstakiega í
kjölfar þess að sovéskir hermenn
voru sendir þangað fyrri réttri viku
og lögðu undir sig nokkrar opinberar
byggingar.
Dimitri Yazov, sovéski varnar-
málaráðherrann, lýsti því yfir í gaír
að fyrrverandi ráðamenn í Litháen
hefðu tekið þá ákvörðun að samein-
ast ríkjasambandi Sovétríkjanna af
fúsum og frjálsum vilja árið 1940 og
gætu því ekki sagt skilið við það án
heimildar Sovétstjórnarinnar. Hann
staðhæfði aö aöeins 26 prósent íbú-
anna styddu Sajudis, samtök sjálf-
stæðissinna sem hafa meirihluta á
iitháiska þinginu, og aö fæstir vildu
ekki að lýðveldiö segöi skilið við
ríkjasambandið.
Yazov.sagði aö í stjórnarskránni
væri kveðið á um aö lýðveldin geti
sagt sig úr Sovétríkjunum en að slíkt
yrði aö gerast eftir settum reglum.
Hinir nýkjörnu leiðtogar lýðveldis-
ins segja að Litháen hafi verið inn-
limað inn í Sovétríkin með valdi og
að þeir hafi nú endurheimt sjálfstæði
lýðveldisins. Reuter
„Litháar hafa gert upp hug sinn. Nú er komið að okkur,“ er letrað á spjald
sem stuðningsmenn sjálfstæðis fyrir Eistiand, eins þriggja Eystrasaltsríkj-
anna, héldu uppi er þeir komu saman fyrir framan þinghús lýðveldisins fyrr
í vikunni. Simamynd Reuter
Stríðsástand í S-Afríku
Ekkert lát virðist á blóðugum átök-
um milli blökkumanna í Natal-daln-
um í Suður-Afríku en óttast er aö
hundruð manna hafi látist í átökum
þar síðustu vikur. Forseti landsins,
F.W. de Klerk, óttast að deilurnar
kunni að ógna umbótum þeim sem
stjórn hans reynir nú aö innleiða og
sagði í gær að svo gæti farið aö
stjórnvöld teldu sig knúin til að grípa
til róttækra aðgerða.
Lögregla segir að þrjátíu og sjö
hafi látist í róstum á sex svæðum í
dalnum síðan á sunnudag. Aðrir ótt-
ast að fjöldi látinna kunni að vera
tvöfalt hærri.
Blóðug átök milli andstæðra hópa
blökkumanna i hverfum þeirra víðs
vegar um Suður-Afríku ógna nú
umbótum forsétans. Rúmlega íjögur
hundruð blökkumenn hafa látist síð-
an umbætur þessar voru fyrst kynnt-
ar fyrir tveimur mánuðum og vax-
andi hætta er talin á að hvítir Suður-
Afríkubúar grípi til aðgerða. Hvítir
öfgasinnar eru nú þegar taldir eiga
hlut að máli í nokkrum árásum í
hverfum blökkumanna.
Tveir af þekktustu leiðtogum
blökkumanna í landinu, Nelson
Mandela, varaforseti Afríska þjóðar-
ráðsins, og Mangosuthu Buthelezi,
leiötogi Inkatha-hreyfmgarinnar,
hafa hvatt til friðar en þaö hefur
engan árangur borið. Fylgismenn
Sameinuðu lýöræðisfylkingarinnar,
sem er hliðholl Afríska þjóðarráðinu,
og stuðningsmenn Inkatha-hreyfing-
arinnar hafa átt í deilum í þrjú ár
en síöustu vikur hefur mikil harka
hlaupiö í átökin. Má segja að hálfgert
stríð ríki þeirra í milli og óttast sum-
ir að stjórnvöld telji sig nauðbeygö
til að grípa til harkalegra aðgerða til
að binda endi á blóðsúthellingarnar.
Reuter
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbaekurób. 3-5 LB
Sparireikningar
3ja mán. uppsbgn 4-6 lb
6mán. uppsögn 4,5-7 Ib
12mán.uppsögn 6-8 Ib
18mán. uppsögn 15 Ib
Tékkareikningar, alm. 0,5-1 Allir nema
Sértékkareikningar 3-5 Sp Lb
Innlan verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1.5 Allir
6mán. uppsögn 2,5-3,0 Lb.Bb,-
Innlán meðsérkjörum 2.5-3,25 Sb Sp
Innlángengistryggð
Bandarikjadalir 6.75-7.25 Sb
Sterlingspund 13,5-14.25 Sb
Vestur-þýsk mörk 6,75-7.25 Sb.lb
Danskarkrónur 10,5-11,2 Bb
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvíxlar(forv.) 18,25-18.5 Ib.Sb
Viðskiptavixlar(forv.)(1) kaupgengi
Almennskuldabréf 18,5-19 Ib.Bb,- Sb
Viðskiptaskuldabréf(l) kaupgengi Allir
. Hlaupareikningar(vfirdr.) 25-26,5 Ib.Bb
Utlan verðtryggð
. Skuldabréf 7.5-8.25 Lb.Bb
Utlan til framleiðslu
Isl. krónur 17,5-19,5 lb
SDR 10,95-11 Bb
Bandarikjadalir 9,95-10 Bb
Sterlingspund 16,75-17 Lb.Bb
Vestur-þýskmörk 10.15-10,25 Bb
Húsnæðislán 4.0
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 30
MEÐALVEXTIR
överðtr. mars 90 22,2
Verðtr. mars 90 7.9
VÍSITÖLUR
Lánskjaravisitala mars 2844 stig
Lánskjaravísitala apríl 2859 stig
Byggingavisitala mars 538 stig
Byggingavisitala mars 168,2 stig
Húsaleiguvísitala 2,5% hækkaö 1. jan.
VERDBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Einingabréf 1 4,782
Einingabréf 2 2,619
Einingabréf 3 3,150
Skammtímabréf 1,626
Lífeyrisbréf
Gengisbréf 2,106
Kjarabréf 4,735
Markbréf 2,522
Tekjubréf 1.980
Skyndibréf 1,420
Fjolþjóðabréf 1,270
Sjóðsbréf 1 2,304
Sjóðsbréf 2 1,728
Sjóösbréf 3 1.613
Sjóðsbréf 4 1,363
Vaxtasjóðsbréf 1,6295
Valsjóösbréf 1,5325
HLUTABREF
Söluverð að lokinni jofnun m.v. 100 nafnv.:
Sjóvá-Almennar hf. 600 kr.
Eimskip 413 kr.
Flugleiðir 136 kr.
Hampiðjan 190 kr.
Hlutabréfasjóður 176 kr.
Eignfél. Iðnaðarb. 185 kr.
Skagstrendingur hf. 373 kr.
Islandsbanki hf. 158 kr.
Eignfél. Verslunarb. 158 kr.
Olíufélagið hf. 415 kr.
Grandi hf. 162 kr.
Tollvörugeymslan hf. 120 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb= Iðnaðarbank-
inn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnu-
bankinn, Úb= Útvegsbankinn, Vb =
Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóðirnir.
Nánari upplýsingar um peningamarkað-
inn birtast i DV á fimmtudögum.
NUM i DAG
uu/
jarlfnn
V E I T I N G A S T O F A ■
TRYGGVAGÖTU 20