Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1990, Síða 7
LAUGARDAGUR 31. MARS 1990.
Fréttir
Siglfirðingar óánægðir með Vegagerðina:
Getum mokað meira
fyrir minni pening
„Viö getum mokað meira fyrir
minni pening. Þaö er óhætt að segja
að Siglfirðingar eru óánægðir með
hvemig snjómokstri er háttað,“
sagði ísak J. Ólafsson, bæjarstjóri á
Siglufirði.
Snjómokstrinum er stjórnað frá
Sauðárkróki en þar er Vegagerðin
með bækistöðvar. ísak segir að mikil
heimasjónarmið séu ríkjandi. Menn
séu sendir frá Sauðárkróki þegar
næg tæki og menn eru til staðar á
Siglufirði. ísak segir að ekki sé vafi
á að mun ódýrara sé oft á tíðum að
láta Siglfirðinga um moksturinn.
Óánægja Siglfirðinga er ekki ný.
Þeir hafa lengi verið ósáttir við
snjómoksturinn og telja að hiklaust
sé hægt að moka meiri snjó fyrir
minna fé, aöeins ef staðið er öðruvísi
aö framkvæmdunum.
„Bæjarstjóm hefur samþykkt
ályktanir og annað án nokkurs
árangurs. Allir þéttbýlisstaðir vestan
viö okkur fá mokstur fimm daga í
viku en hingað er aðeins mokað á
mánudögmn og föstudögum. Þriðja
deginum er bætt við ef ekki er mik-
ill snjór. Eins erum viö ósáttir við
hvernig er mokað. Þeir fara oft í
gegnum skaflana. Þaö er fljótt að
teppast aftur ef gerir einhvern vind.
Það hefur því oft komið fyrir að hing-
að sé aðeins fært fáar klukkustundir
í viku,“ sagði ísak J. Ólafsson.
-sme
Loðnuvertíö lokið?
Ekkert að finna
Emil Thorarensen, DV, Eskifirði:
Fremur dauflega horfir nú með
loðnuveiðamar en eftir er að veiða
um 100 þúsund tonn af þeim 760 þús-
undum sem heimilt var að veiða.
Grétar Rögnvarsson, skipstjóri á
Jóni Kjartanssyni, sagði í samtali við
DV á fimmtudagskvöld að enginn
hefði fengið loðnu frá þvi á sunnudag
en Jón Kjartansson er nú ásamt
fimm öðrum austfirskum loðnubát-
um á Lónsbugtinni,
„Hér er ekkert að finna, sennilega
allt búið, allavega er ekkert sem
bendir til annars. Mikil leit hefur
verið en allt kemur fyrir ekki, afgjör
ördeyða og eins gott að fara að hætta
þessu í stað þess að eyða olíu í leit
að einhverju sem ekki er til,“ sagði
Grétar. Hann sagði ennfremur aö
hann hefði haft spurnir af nokkrum
bátum báðum megin við Snæfellsne-
sið en þar væri heldur ekkert að hafa.
FERMINGARTILBOÐIN HLJOMA VEL
EN HVERNIG HLJÓMA
~rr^
u
URNAR“?
TJBL
harman/kardon
UBL
Við bjóðum takmarkað magn af þessum „dúndur“ hljómtækjum:
2 stk. JBL TLX 14 (100 vött).
1 stk. HD 800 geislaspilari m/fjarstýringu.
1 stk. HK 440 vxi útvarpsmagnari (2x30 vött, 20 amp.)
á einstöku verði: 59.470.-
HUÓMTÆKJA-/HLJÓÐF/ERAVERSUJN STEINA
SKULAGÖTU 61 - SÍMI 14363
Hættuástand
í Horna-
Júlía Imsland, DV, Höfn:
Mikið brim ásamt stórstreymi í
þessari viku hefur haft mjög slæm
áhrif á innsiglingaleiðina um Horna-
fjarðarós. Að sögn Ólafs Einarssonar
hafnsögumanns er nú aðeins 4-5
metra dýpi í ósnum á fjöru þar sem
áður var 8-9 metra dýpi. Grynnst er
á móts við nýja ósinn á Suðurfjöru
en hann hefur breikkað mikið núna
frá því sem áður var. Þar gengur
sjórinn óhindrað inn í innsiglinguna.
Miklar breytingar hafa orðið á
Austurfjörum oghefur tanginn styst
mikið. Að sögn Ólafs er ástand inn-
siglingarinnar mjög alvarlegt eins og
hún er núna og hann reiknar ekki
með að hægt sé að taka inn stærri
skip en strandferðaskipin og þau
aðeins á flóði.
Dýpkunarskipið Perlan hefur und-
anfarið dælt upp úr innsiglingunni
við ósinn en hætt er við að þar hafi
mikið fyllst upp aftur eftir sjógang-
inn núna.
Eldsvoði á
Hellissandi
Eldur kviknaði í kyndiklefa í
tveggja hæða einbýlishúsi á Hellis-
sandi í fyrrinótt. Talið er að eldsupp-
tök hafi verið þau að brennari í
kyndiklefanum hafi sprungið. Femt
var sofandi í húsinu þegar eldurinn
kom upp. Allir náðu að forða sér út
og engan sakaði.
Mikill reykur og hiti myndaðist af
brunanum og voru reykkafarar
slökkviliðs sendir inn í húsið. Vel
gekk að slökkva eldinn og urðu
skemmdir ekki miklar. Tveir menn
frá Rannsóknarlögreglu ríkisins
komu á staðinn til að rannsaka elds-
upptök. -ÓTT
r
Verð á Subaru Legacy Sedan 1,8, 16 ventla, GL
gjörsamlega hlaðinn öllu því besta,
kr. 1.299.000,- stgr.
Ingvar
Helgason M
Sævarhöföa 2
sími 91-674000
Gerðu verðsamanburð - það gerum við stöðugt
BE ! _
{ . A ■ I v - i L . I —'ó- L: V " : ,i
V Ki 1$I i imi 1 ^ ga
isa in
llll lö I