Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1990, Side 11
LAUGARDAGUR 31. MARS 1990.
11
á síðuStu tveimur vikum meö fulltrú-
um lögreglu, Reykjavíkm'borgar,
SÁÁ, menntamálaráðuneyti, skóla-
hjúkrunarfræðingum, alnæmis-
nefnd, Rauða krossinum, unglinga-
athvarfi og fleiri. Þessir aðilar eru
flestir sammála um að framboð á
fíkniefnum hafi aukist á síðustu
misserum. Á næstu dögum verður
komið saman aftur og skoðað hvern-
ig skipuleggja skuli forvarnastarf,"
sagði landlæknir við DV eftir fund-
inn í vikunni.
Amar Jensson sagði einnig í sam-
tah við DV í síðastUðinni viku að
kannanir á fíkniefnaneyslu hefðu á
síðustu ámm verið fáar og ófull-
komnar. Skömmu áður lagði Gísli
Árni Eggertsson, fulltrúi æskulýðs-
og tómstundaráðs Reykjavíkur, fram
tiUögu til landlæknis um að gerð yrði
könnun vegna fíkniefnaneyslu i
Reykjavík. Sú tiUaga var studd af
lögreglu og vitnað til áður framkom-
innar tiUögu nefndar á vegum sex
ráðuneyta.
Fulltrúar nemendaráða grunn-
skólanna í Breiðholti hafa komið
þeim ábendingum á framfæri til fjöl-
miðla að þeir sætti sig ekki við órétt-
láta umræðu um Breiðholtið. Þeir
segjast ekki kannast við að hverfið
sé „fíkniefnabæli“. Nemendaráðin
vUja vekja athygli á því aö „vanda-
mál Breiðholtshverfisins séu ekki
meiri en annarra borgarhluta".
Skólahjúkrunarfræð-
ingar mikilvægir
Fram hefur komið að skólahjúkr-
unarfræðingar gegni mikilvægu
hlutverki þegar skólar og fíkniefna-
neysla er annars vegar. Unglingar
hafa tilhneigingu tU að opna sig frek-
ar fyrir þeim sem ekki fara beint með
eitthvert vald. Hér á opnunni kemur
einmitt' fram álit skólahjúkrunar-
fræðings sem unnið hefur að lausn
fíkniefnavandamála nemenda. Hún
segir að framboð og neysla á fíkniefn-
um hafi aukist að undanfornu, verð-
ið sé lágt, auðvelt að ná í efnin en
erfitt fyrir foreldra á þeim heimUum
þar sem fjölskyldumeðlimur reykir
hass að sjá og jafnvel viðurkenna
vandamálið.
Nú skyldi ætla að á næstunni yrði
unnið að því að opna augu almenn-
ings með raunsæjum hætti. Hér er
ekki verið að alhæfa að fíkniefna-
vandamál sé í hverju skúmaskoti
þjóðfélagsins. En miðað við stað-
reyndir, sem fram hafa komið, og
álit og viðbrögð þeirra sem gerst
þekkja hefur fíkniefnavandamálið
síst minnkað hjá flestum aldurs-
hópum á allra síðustu mánuðum.
Nýjar upplýsingar
um kókaínneyslu
Að sögn fíkniefnadeildar lögregl-
unnar varð greinilega vart við stór-
aukningu á neyslu kókaíns á síðasta
ári. Þeir neytendur eru yfirleitt eldri
en tvítugir. Nýjustu upplýsingar um
kókaínneyslu, sem landlækni hafa
borist, eru mjög athyglisverðar en
þær komu fram í DV í ‘síðasta helg-
arblaði. Skýrslur um 60 hjartaáfóll í
Bandaríkjunum hafa borist þar sem
sýnt var fram á að kókaínneysla var
bein orsök. í skýrslunum var mikið
um ungt fólk að ræða. Landlæknir
segir að skýringin á hárri tíðni
hjartaáfalla gæti því verið neysla
kókaíns. Ólafur segir að vandlátir
kókaínkaupendur séu í mestri
hættu. „Besta efnið“ hefur hátt
hreinleikahlutfall en það er hættu-
legast og veldur krampa og stíflu í
kransæðum.
Einnig er athyglisvert að yfirmað-
ur fíkniefnadeildar segir að oft hafi
heyrst orörómur um að krakk sé í
gangi í Reykjavík. Deildin hefur tekið
efni úr umferð sem átti að vera krakk
en var það ekki við nánari athugun.
Efnið sem shkt hefur því ekki komiö
fram ennþá hjá lögreglu.
Fíkniefni
tengjast afbrotum
Ómar Smári Ármannsson hjá for-
vamadeild lögreglunnar sagði við
DV að það væri vitað að ávana- og
fíkniefni tengdust gjarnan öfbeldi,
innbrotum, þjófnuðum og jafnvel
ránum. Engin sérstök heildarkönn-
un hefur þó fariö fram á því hlutfalli.
Svokallaðir „smákrimmar"
frömdu 3-4 innbrot að jafnaði á dag
í Reykjavík á síðasta ári samkvæmt
könnun DV og lögreglu í ársbyrjun.
Innbrotin og þjófnaðirnir er í mörg-
um tilfellum gjarnan ætlað að fjár-
magna kaupin hjá „fíklunum". Þessi
tegund afbrota, sem dagblöð skýra
svo oft frá, eru nefnilega oftar tengd
fíkniefnum en ætla mætti og almenn-
ingur gerir sér grein fyrir. í fréttum
vegna innbrota er sjaldnast greint frá
þessum staðreyndum.
Vandamálið er álitið alvarlegra
þegar ungir og óharðnaðir þjóðfé-
lagsþegnar eiga í hlut - þó þeir séu
kallaðir smákrimmar. Afbrot af
þessu tæi virðast vera orðin svo sjálf-
sögð í augum þeirra sem þau fremja.
Þess vegna ber að leggja sérstaka
áherslu á forvarnarstarf, viðhorfs-
mótun unga fólksins, fræðslu til for-
eldra og þess fólks sem vinnur með
ungu fólki. Þá þarf sérstaklega að
gæta að atvinnumálum ungs fólks,
nemendum og fleiri áður en það fer
út á braut afbrota.
Fíkniefnaneysla hefur keðjuverk-
andi.áhrif. En ef einum hlekk er
kippt í burtu fara hinir hlekkirnir
líka. Öðrum lögbrotum myndi fækka
ef tækist að sporna við fíkniefna-
neyslu sem nú hefur greinilega færst
í aukana.
-ÓTT
■■■—»-— í \
- W~v K 4
SOLUSYNING
UM HELGINA
LAUGARDAG KL. 10-18, SUNNUDAG 12-18
TOP VALUME
fellihjólhýsi fyrir
allar árstíðir
Nýkomín tíl landsíns ný gerð,
sérstaklega hönnuð fýrír ísland.
Allur hugsanlegur útbúnaður í vagninum.
Margar gerðír.
4% AFSLATTUR EF PANTAÐ ER FYRIR 7. APRIL
HRINGDU OG VIÐ SENDUM
BÆKLING UM HÆL
SEGLAGERÐIN
ÆGIR
EYJARSLÓÐ 7, SÍMI 621780
Ferðaleikur DV, Bylgjunnar og Veraldar
Ferðaseðill nr. 1
Vinningur: Terð til Costa del Sol 12. júlí
að verðmæti kr. 50.000 með Ferðamiðstöðinni Veröld.
Hlustaðu á Bylgjuna í dag og fylgstu
með VERALDI sem er á ferðalagi
um heiminn.
Á hvaða áfangastað er Veraldur í dag?
Fóstleggðu seðilinn strax í dag.
Merktu umslagið:
Ferðaleikurinn 1990 - nr. 1
[ Ég hlustaði á VERALD á Bylgjunni fm 98,9 og tel að hann sé
□ Tokyó □ Costa Del Sol □ Mallorka
staddur
Nafn____
Jleimasími
HeimilL
Þegar þú hefur fundið svarið teiknaðu þá merki Veraldar í reitinn hér fýrir neðan:
Vinnusími