Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1990, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1990, Síða 12
12 Sælkerinn LAUGARDAGUR 31. MARS 1990. Taj-Mahal: Indverskur veitinga- staður í Reykjavík Reykvíkingar þckkja nú orðið nokkuð vel kínverskar maíreiðslu- aðferðir, enda eru starfandi í Reykja- vík nokkrir „Kina-staöir". Indversk- ur matur virðist ekki vera eins vel þekktur nema á meðal þeirra ísiend- inga sem hafa dvalist í London við nám og störf. Hvergi í Evrópu er eins mikið úrvai af góðum indverskum veitingastöðum og í London. Einn af þeim betri er Last days of the Rai (22 Drury Lane, WC2. sími 836 1628). Hér í Reykjavík er starfandi ágætis indverskur veitingastaður, Taj- Mahal, að Laugavegi 34 a. Eigendur eru hjónin Einar Óskarsson og Anna Peggý Friðriksdóttir. Nokkur mis- skiíningur virðist ríkjandi hér á landi varðandi indverskan mat. Margir halda að hann sé eins og kín- verskur matur og að hann sé alltaf bragðsterkur. Indverskur matur er töluvert frábrugðinn þeim kín- verska. Galdurinn við indverska matreiðslu er að kunna að krydda og þá ekki síður aö blanda kryddin rétt. Indland er eiginlega heil heims- álfa og hafa íbúarnir mörg trúar- brögð. Trúarbrögð hafa veruleg áhrif á neysluvenjur fólks. Hindúar borða t.d. ekki nautakjöt og múslímar borða ekki svínakjöt. Þá er veðurfar og staðhættir ólíkir á Indiandi og hefur það vitaskuld veruleg áhrif á það hvaða afurðir íbúarnir fram- leiöa. Þaö má því fullyrða að ind- verskur matur sé mjög fjölbreyttur. Umsjón: Sigmar B. Hauksson Hluti Indverja er jurtaætur og líkleg- ast hefur ekkert 'eldhús upp á að bjóða eins mikið úrval af jurtaréttum og það indverska. Indverskur matur er j)ví að jafnaði ekki bragðsterkur því það er undir matreiðslumannin- um komið hvað hann blandar mikið af chilipipar í karríblönduna. Á Ind- landi blandar hver matreiðslumaður kryddið eftir sinni hefö og margar húsmæður eiga sínar eigin karri- blöndur. Fjölmargir indverskir réttir eru mjög bragðmildir enda oft soönir með ávöxtum í kókosmjólk. Indverj- ar matreiða oft á pönnu sem þeir nefna karhai og er ekki ósvipuð hinni kínversku wok eða kínapönnunni. Einnig nota þeir pönnu sem kallast tava en hún er mest notuð við brauð- bakstur. Indverjar borða gjarnan brauð með matnum, t.d. nan, sem er ókryddað brauð, eða roti sem er kryddað brauð. Þá eru svokallaðir tandooriofnar mikið notaðir en þess- ir ofnar eru hlaðnir úr múrsteini. Réttir, sem eru steiktir í tandooriofn- um, eru oftast marineraðir í jógúrt sem hefur verið krydduö eftir kúnst- arinnar reglum. Tandooriréttirnir eru yfirleitt mjög vinsælir á meðal Vesturlandabúa. Ef miðað er við ind- versk veitingahús í nágrannalöndum okkar, t.d. á Norðurlöndunum, er Taj-Mahal mjög góður veitingastað- ur. Matseðillinn gefur nokkuö góða mynd af indverska eldhúsinu. Kjöt- réttirnir eru fleiri en fiskréttirnir sem er skiljanlegt. Tandooriréttirnir eru hreinasta afbragð og er óhætt að mæla með tandoorikjúklingnum. Á indverskum veitingahúsum á Vest- urlöndum má oft sjá lambakjöt á matseðlinum. Á Indlandi er hins veg- ar geitakjöt algengara. Á Taj-Mahal má fá öndvegis lambakjötsrétti og ætti markaðsnefnd sú, sem sér um sölu á lambakjöti, að heimsæka Taj- Mahal og kynna sér hvað hægt er að matreiða ljúffenga rétti úr íjalla- lambinu margumtalaða. Margir virðast enn ragir við að bragða á ind- verskum mat en þeir sem komist hafa á bragðið vita fátt betra matar- kyns en indverska rétti. Anna Peggy starfar sjálf á Taj- Mahal og ættu þeir sem ekki hafa kynnst indverskum mat áður að spjalla við hana og fá góð ráð. Taj- Mahal er eini indverski veitingastað- urinn á íslandi og það er vel þess virði að eyða þar kvöldstund og kynnast indverskri matargerðarlist. Þið munuð ekki verða fyrir von- brigðum.. Anna Peggy að störfum á veitingahúsi sínu, Taj-Mahal við Laugaveg. 0 Nýr STORNO farsími tUS kr. aei vsk hlýtur oi vero oprílgobL ...en svo er ekki. Vegna mikilla vinsælda STORNO 440 farsímanna og hagstæðra innkaupa getum við boðið glænýjan STORNO 440 farsíma í bíl á aðeins 83.788 kr. staðgreitt m. vsk og STORNO 440 bíla- og burðatæki á aðeins 99.748 kr. staðgreitt m. vsk. Símarnir eru tilbúnir til ísetningar og innifalið í verðinu er móðurstöð, talfæri, bílloftnet, kaplar, hljóðnemi og hátalari fyrir handfrjálsa notkun. Ekki nóg með það, við bjóðum líka greiðsluskilmála. STORNO farsímarnir eru v.-þýsk gæðavara og búa yfir öllum fullkomnustu eiginleikum farsíma og með STORNO 440 gétur notað þjónustu tölvubanka og boðkerfisins. Gríptu tækifærið því við eigum takmarkaðar birgðir af þessum vönduðu og ótrúlega ódýru farsímum. Komdu í söludeildir Pósts og síma og staðfestu pöntun strax á morgun. Viö spörum þér sporin SÖLUDEILDIR Verð miðað við staðgreiðslu og gengi 30.3.1990. PÓSTUR OG SÍMI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.