Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1990, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1990, Side 14
14 LAUGARDAGUR 31. MARS 1990. Útgáfufélag: FRJÁLS FJOLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELÍAS SNÆLAND JÖNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PALL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11,105 RViK.SÍMI (91 )27022 - FAX: (91 (27079 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11- Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1000 kr. Verð í lausasölu virka daga 95 kr. - Helgarblað 115 kr. Við þökkum ráð Dana Viö eigum að taka vel eftir því, sem Uffe Ellemann- Jensen, utanríkisráöherra Dana, hefur sagt okkur um stööu Norðurlanda gagnvart Evrópubandalaginu. Við eigum aö gera þaö, þótt við séum ekki á þeim buxunum aö ganga í bandalagið, eins og hann vill. Ellemann-Jensen heldur fram, að viðræður Fríverzl- unarsamtakanna við Evrópubandalagið gangi ekki eins vel og norrænir utanríkisráðherrar vilja vera láta. Er það raunar staðfesting á grun, sem áður hefur komið fram, meðal annars nokkrum sinnum í leiðara DV. Við vitum af annarri reynslu, að Sten Andersson, utanríkisráðherra Svíþjóðar, hefur sérkennilegar skoð- anir á utanríkismálum. Hann hefur reynzt Litháum þungur í skauti, meðal annars með yfirlýsingum um, að sjálfstæðissinnar séu öfgasinnaður minnihlutahópur. Erfitt er að skilja fullyrðingar Anderssons, sem sum- ar hverjar eru studdar af Jóni Baldvin Hannibalssyni utanríkisráðherra, um, að Ellemann-Jensen sé að sá misklíð og klofningi á Norðurlöndum með klunnalegum afskiptum af viðkvæmu máli, og beri að afþakka slíkt. Hér í DV og víðar hefur verið haldið fram, að við eigum að reyna að koma á tvíhliða viðræðum við Evr- ópubandalagið og einstök ríki innan þess. Þetta jafngild- ir ekki tillögu um að hætta viðræðum á vegum Fríverzl- unarsamtakanna, eins og Jón Baldvin gefur í skyn. Einnig er rangt, sem stundum er fullyrt, að Evrópu- bandalagið hafi bannað tvíhliða viðræður. Þeir, sem óska eftir viðræðum, fá yfirleitt viðræður, hvort sem er í viðskiptum milli fyrirtækja, ríkja eða samtaka. Við þurfum sjálf að gæta okkar fiskveiðihagsmuna. Við verðum að viðurkenna, að Evrópubandalagið er orðið að öflugum segli. Útflutningsafurðir okkar fara í vaxandi mæli til ríkja innan þess, miklu frekar en til ríkja í Fríverzlunarsamtökunum og til Bandaríkjanna. Og Japan er of langt í burtu til að vera sambærilegt. Austur-Evrópa beinir augum sínum að Evrópubanda- laginu, en alls ekki að Fríverzlunarsamtökunum, þótt þau hafi stundum verið kölluð biðstofa bandalagsins. Fríverzlunarsamtökin eru að verða norrærjn klúbbur, sem gagnast íslenzkum útflutningi ekki nógu vel. Evrópubandalagið er engin fyrirmyndarstofnun. Það er verndarstofnun gamalla atvinnugreina og fyrirtækja í Evrópu gegn hagkvæmara atvinnulífi í Norður- Ameríku og Suðaustur-Asíu. Bezta lýsingin á bandalag- inu er, að það sé risavaxið landbúnaðarráðuneyti. Aðdráttarafl bandalagsins felst ekki í, að það sé að flestu leyti indælt, heldur stafar það af, að þjóðir í ná- grenni þess vilja ólmar komast inn fyrir dyr. Það eru viðbrögð annarra þjóða, til dæmis hugsanlega Norð- manna, sem knýja okkur til að ræða við bandalagið. Við höfum að mörgu leyti góðan viðskiptasamning við bandalagið, þótt saltfisktollar valdi okkur erfiðleik- um. Við viljum gjarna geta haldið áfram að haga seglum eftir vindi og stunda gagnkvæma fríverzlun við önnur viðskiptaveldi, svo sem einkum Japan og Bandaríkin. Bezt væri fyrir okkur að geta verið utan bandalaga í þjóðbraut siglinga og flugs milli hinna stóru viðskipta- segla heimsins og bjóða hér fríhöfn fyrir hvers konar vörur og þjónustu. En íslenzkir stjórnmálamenn eru því miður ekki nógu víðsýnir til að efla slíka sérstöðu. Og raunar hefur í vetur verið meira vit í orðum Elle- mann-Jensens heldur en orðum Andersons og Jóns Baldvins. Verið getur, að við eigum engra kosta völ. Jónas Kristjánsson Sjálfstæði Lithá- ens og samloðun Sovétríkjanna Mikhail Gorbatsjof heimsótti Lit- háen fyrr í vetur, þegar kommún- istaflokkur landsins var aö búa sig undir aö slíta tengshn við komm- únistaflokk Sovétríkjanna. Hann ræddi viö flokksforustuna á fund- um og almenning á götum úti. Þeg- ar Sovétleiðtoginn sá aö Litháar sátu viö sinn keip hagaði hann kveðjuorðum viö brottförina á þá leið aö þeir myndu fá vilja sínum framgengt en þaö tæki tíma og hann yröu þeir aö ætla sér. Þeir sem ráða ferðinni í Vilnius, höfuðborg Litháens, kusu aö fara öfugt aö. í þingkosningum hlaut sjálfstæðishreyfmgin Sajudis yfir- gnæfandi meirihluta og þegar við blasti breyting á stjórnarskrá Sov- étríkjanna meö stórauknum völd- um forsetaembættis, ákvað forusta Sajudis aö hafa hraðan á að koma fram meö sjálfstæðisyfirlýsingu áður en Gorbatsjof settist í nýja forsetaembættið, meðal annars með aukin völd til íhlutunar í ein- stökum lýðveldum. Þingsetningu í Vilnius var því hraðaö, þótt enn ætti eftir að útkljá skipun nokk- urra þingsæta í síðari umferð kosn- inganna og sjálfstæðisyfirlýsing samþykkt 11. mars. Sovéska þingið lýsti yfirlýsing- una frá Vilnius jafnharðan ólög- lega og fól Gorbatsjof að sjá um aö þar yrði farið aö sovéskum lögum. Sovétherinn hefur haft sig mjög í frammi, hertekið byggingar kommúnistaflokksins í Vilnius og safnað vopnum frá varasveitum jafnt og veiðimönnum. Litháar stroknir úr sovéskri herþjónustu hafa veriö handteknir. Þegar þetta er ritað virðist öldur hafa lægt í bih og aðilar vera að þreifa sig áfram að viðræðugrundvelli. Vytautas Landsbergis, forseti sjálfstæðisstjórnarinnar í Vilnius, og nánustu samstarfsmenn hans í forustu Sajudis virðast í senn hafa reynt með skjótri ákvaröanatöku að láta Gorbatsjof standa frammi fyrir gerðum hlut og skapa Litháen sérstöðu meðan enn er svigrúm til, skyldi hann ekki verða langær á valdastóli. Niðurstaöan er að fyrsta prófraun á Gorbatsjof í forsetaemb- ætti með framkvæmdavald snýst um tilveru Sovétríkjanna. Geti Lit- háen tekið sér sjálfstæði með ein- faldri, einhliða samþykkt hefur það ekki aðeins fyrirsjáanleg eftirköst í hinum Eystrasaltsríkjunum held- ur ekki síður í Moldavíu í suð- vestri, Georgíu, Armeníu og As- erbadsjan í Kákasus, jafnvel Mið- Asíulýðveldunum og Úkraínu. Þetta er líka meginástæðan til að beiönir Landsbergis til umheims- ins um viðurkenningu á stjórn sinni mæta daufum eyrum. Form- lega er því auðvitað haft á oddi, að stjórnin uppfyllir ekki frumskil- yrðið til viðurkenningar, hún ræð- ur ekki landinu sem hún segist stjórna. Þar ræður sovétherinn því sem hann vill. En meginástæðan til að George Bush og Margaret Thatcher leggja megináherslu á að hvetja aðila tii stillingar og gætni er að stjórnir þeirra láta sig öllu varöa hvernig af reiðir viðleitni Mikhails Gorbatsjofs og manna hans til friðsamlegrar ummyndun- ar Sovétríkjanna. Upplausn þeirra í umbrotum er atburðarás sem eng- inn má til hugsa meðal ábyrgra stjórnmálamanna, ekki síst af því að um kjarnorkuveldi er að ræða með víða dreifð gereyðingarskeyti. í samanburði við þetta keppikefli láta ríkisstjórnir vestrænna ríkja sér í léttu rúmi liggja hvort Litháar öðlast sjálfstæði árinu eða áratugn- Erlend tíðindi Magnús Torfi Ólafsson um fyrr eöa síðar. Enginn efast nefnilega um að núverandi stjórnendur Sovétríkj- anna eru búnir að sætta sig við að óhjákvæmilegt sé og að sumu leyti hagstætt fyrir Sovétstjórnina að Eystrasaltsríkin fái sjálfstæði. Þau gætu vegna sögu sinnar og sér- stööu orðið þýðingarmikill miölari í verslun og öðrum samskiptum milli slavneska baklandsins í austri og Vestur-Evrópu. Að þessu lýtur áhugi Gorbatsjofs á að koma Eystrasaltsríkjunum í beint sam- band viö Norðurlandaráð. Ráðu- nautar Sovétleiðtogans sjá fyrir sér fulla aöild Eistlands, Lettlands og Litháens að Norðurlandaráði, sem meðal annars veiti sameinuðu Þýskalandi mótvægi í norðri og þá sérstaklega viö Eystrasalt. En áður en sú framtíðarsýn ræt- ist þarf margt að gerast og marga ásteytingarsteina aö forðast. Gor- batsjof ávarpaði nýskipað ráðgjaf- aráð sitt, Forsetaráðið, fyrir viku. Þar skipaði hann í fremsta sæti aðkaliandi úrlausnarefna nýrri valdaskiptingu milli stjórna Sovét- lýðveldanna og miðstjórnarinnar í Moskvu. Eftir því sem ráða má af umræðu um þetta efni í Sovétríkj- unum er um það aö ræða að lýð- veldin fái sjálfræði með sjálfstæðu löggjafarvaldi en miðstjórnin fari áfram með landvarnir og utanrík- ismál. Vera má að slíkt fyrirkomu- lag fullnægði óskum Úkraínu- manna. Öðru máli gegnir um þjóðir Eystrasaltsríkjanna. Bæði Lettar og Eistlendingar feta sömu braut og Litháar en ætla sér að fara mun hægar í sakirnar. Ástæðan er með- al annars að í þessum löndum búa langtum fleiri af rússnesku og öðru slavnesku þjóðerni en í Litháen þar sem Rússar munu vera um 10% landsmanna. Kommúnistaflokkur Eistlands hefur þegar ákveðið að segja skihð við kommúnistaflokk Sovétríkjanna en gefur mönnum misserisfrest til að velja á milli meirihlutans sem vill slit og minni- hluta sem lýst hefur yfir stofnun nýs flokks með óbreyttri aðild að Sovétflokknum. Mesta hættan á árekstrum í Lit- háen stafar sem stendur af her- þjónustu ungra Litháa í Sovéthern- um. Þeir eru taldir 35.000 alls og hafa margir mátt sæta aðkasti og misþyrmingum af hálfu annarra hermanna eftir að sjálfstæðismálið komst á oddinn. Voru margir þeirra sem yfirgáfu herbúðir og leituðu hælis litháískra hjálpar- stofnana illa leiknir eftir barsmíð- ar. Við bætist að þessa dagana kem- ur til framkvæmda herkvaðning nýs árgangs ungra manna í Sovét- ríkjunum og er giskað á að hún nái til 9.000 Litháa. Fáir eru líklegir til að gefa sig fram af fúsum vilja eins og mál standa og herkvaðning þeirra með valdi af heimilum sín- um gæti ekki farið fram átaka- laust. Því hefur Landsbergis forseti beðið Litháen-þing að vinda bráðan bug að lagasetningu um þjónustu herkvaddra við þörf verkefni í landinu. Jafnframt biður hann þingið um að leggja á hilluna áform um stofnun varnarliðs sjálíboða- liða svo ekki spretti upp nýtt mis- klíðarefni. Ofstopamenn í forustu Sovét- hersins virðast líklegastir til vand- ræða. Yfirhershöföingi landhers- ins, Valentín Varenníkof, sem stjórnar hersveitunum í Litháen, hélt því til dæmis fram í viðtali við Sovétskaja Rossia, málgagn rúss- neskra þjóðrembumanna, að Lit- háar söfnuðu vopnabirgðum í pakkhús og fengjust viö að reisa fangabúðir yfir tilvonandi pólitíska fanga. Svona uppspuni er auðvitað ekkert annað en blekkingaáróður til að réttlæta óyndisúrræði. Magnús Torfi Ólafsson Vytautas Landsbergis, forseti Litháens (t.v.), ræðir við K. Prunskene forsætisráðherra í hléi milli þingfunda í Vilnius á fimmtudag. Simamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.