Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1990, Síða 16
16
LAUGARDAGUR 31. MARS 1990.
Skák
„Voðalegur jafnteflisfnykur er
héma,“ varð einum keppanda
Búnaðarbankamótsins að orði er
hann hann átti leið framhjá efstu
borðunum. Þar vom menn frið-
samlegir dag eftir dag, en sem betur
fór var það ekki mjög smitandi.
Áhorfendur fengu því ávallt eitt-
hvað fyrir snúö sinn en það virtist
regla að eftir því sem „neðar dró“
í sahnn urðu skákimar æsilegri.
Jafnteflin á efstu boröum gerðu
tíu stórmeistara að sigurvegurum.
Þar er fyrstan að telja Helga Ólafs-
son og Jón L. Ámason; síðan Sovét-
mennina Polugajevsky, Razúvajev,
Dolmatov og Vaganjan; þá Seiraw-
an og de Firmian frá Bandaríkjun-
um og loks Ernst, Svíþjóð, og Mort-
ensen, Danmörku. Allir fengu þeir
7.5 v. af 11 mögulegum. Þar á eftir
komu fjórir Sovétmenn og einn
Bandaríkjamaður: Makarítsév,
Tukmakov, Azmaiparashvili, So-
kolov og Benjamin, sem allir fengu
7 v.
Með 6,5 v. komu m.a. Margeir
Pétursson og Hannes Hlífar Stef-
ánsson. íslendingar meö 6 v. voru
Halldór G. Einarsson, sem hreppti
þar með fyrsta áfanga sinn að al-
þjóðameistaratitli, Tómas Björns-
son og Héðinn Steingrímsson. Meö
5.5 v. voru m.a. Snorri Bergsson,
Þröstur Þórhallsson og Lárus Jó-
hannesson. Meö 5 v. voru dr.
Kristján Guðmundsson, Þröstur
Árnason og Karl Þorsteins. Sá síð-
astnefndi tefldi við sterkustu and-
stæöingana á mótinu - meðalstig
yfir 2560 - og vann tíu stig, þrátt
fyrir að hafa ekki fengið fleiri vinn-
inga.
Er upp er staöið er kannski eftir-
tektarverðast hvað titillausu ís-
lendingamir stóðu sig vel. Hvað
eftir annað náðu óþekktir menn (á
alþjóðamæhkvarða) höfuðleðrinu
af þekktum meisturum. Það er
greinilegt að breiddin meðal ís-
lenskra skákmanna er að aukast
og er það vel.
Einnig er rétt að minnast á nýju
höfðustöðvar skákhreyfingarinnar
við Faxafen, en aöstæður þar eru
allar hinar ákjósanlegustu - bylt-
ing í skákmálum íslendinga og
vonandi til frambúðar. Mótið fór
vel fram í hvívetna og er þeim sem
að því stóðu til mikils sóma en
kunnátta og leikni íslendinga í
mótshaldi og skipulagningu er
löngu vel þekkt meðal skákmanna.
Úrslitaskákin
Eini ljóðurinn á mótinu var í
rauninni friösemd þeirra sem
flesta höfðu vinninga en áhorfend-
ur vildu vitaskuld sjá menn duga
eða drepast. En þrátt fyrir endur-
teknar samningaviðræður efstu
manna fór þó aldrei svo að ein-
verjir þeirra reyndu ekki að tefla
til þrautar. Ein athygUsverðasta
skák mótsins og sú sem úrslit móts-
ins ultu á var milU Dolmatovs og
Helga Ólafssonar, sem tefld var í
næstsíðustu umferð. Dolmatov er
erfiður þegar hann hefur hvítt og
ætlar að vinna. Frábær byrjana-
þekking og næmur stöðuskilningur
gera það ekkert auöhlaupaverk að
setjast gegnt honum. Skrifari þess-
ara Una veit þetta af eigin reynslu
- eina tapskák hans í mótinu var
með svörtu í Sikileyjarvöm gegn
Dolmatov.
Helgi ákvað að freista ekki gæf-
unnar í Sikileyjarvöminni, sem þó
er helsta vopn hans. í stað þess
bryddaði hann upp á spænskum
leik og fetaði þar í fótspor ekki
ómerkari manns en Anatolys
Karpov. En hann kom ekki að tóm-
um kofunum. Dolmatov hafði nýj-
ung á takteinum og Helgi lenti í
bölvaðri klemmu í miötaflinu.
Rétt fyrir fyrstu tímamörk missti
Dolmatov af vænlegum kosti og er
40 leikjum var náö var Helgi enn á
lífi. Staða hans Vcir þó enn erfið.
Hann var svo því sem næst búinn
að jafna taflið er hann lék af sér,
rétt fyrir 60. leik.
Þá var gert stutt hlé á skákinni
og síðan haldið áfram fram eftir
nóttu - til þess að skákinni yrði
Jón L. Arnason og Helgi Olafsson, tveir af tíu efstu mönnum á mótinu, fara yfir eina af skákunum i gærkvöldi.
DV-mynd GVA
Búnaðarbankaskákmótinu lokið:
Tíu hrepptu
sigurlaunin
örugglega lokið fyrir lokaumferð-
ina. Dolmatov átti vinningsstöðu
en tók skakkan pól í hæðina. Átt-
aöi sig ekki á því að þótt hann ætti
manni meira í endatafli var staðan
jafntefU. Sannarlega óvenjuleg
jafntefhsstaða, sem minnti helst á
skákþraut. Er skákin fór í biö um
nóttina var útilokað fyrir Dolmatov
að tefla til vinnings og um morgun-
inn bauð hann svo Helga jafntefli.
Hvítt: Sergei Dolmatov
Svart: Helgi Ólafsson
Spænskur leikur
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4
Rf6 5. 0-0 Be7 6. Hel b5 7. Bb3 d6 8.
c3 0-0 9. h3 Bb7 10. d4 He8 11. Rbd2
Bf8 12. Bc2
Breytir frá 12. a4 h613. Bc2 exd4
14. cxd4 Rb4 15. Bbl o.s.frv. sem
Jóhann og Karpov tefldu í Seattle
og nú síðast Timman og Karpov í
Kuala Lumpur. Eins og menn rek-
ur minni til komst Karpov vel frá
þeim vopnaviðskiptum.
12. - Rb813. a4 Rbd714. Bd3 exd4!?
Helga fannst traustasti leikmát-
inn, 14. - c6 ekki fýsilegur kostur,
í ljósi þess að eftir 15. b3 g6 16. Ba3
Dc7 17. Dc2 Had8 18. Habl!? vann
Dolmatov góða skák af Beljavsky
nýlega (á sovéska meistaramótinu
í fyrra).
Skák
Jón L. Árnason
15. cxd4 c5 16. axb5 axb5 17. Hxa8
Bxa8 18. dxc5!?
Eftir 18. d5 c4 má svartur vel við
una en þannig hafa Short og Jó-
hann Hjartarson teflt. Dolmatov
hefur sitthvað til málanna að
leggja.
18. - Rxc5 19. Bxb5 He7 20. Rd4!
Rcxe4 21. Rxe4 Rxe4 22. Be3! Dc8 23.
Da4 Hc7 24. Bfl! h6?!
Betra er 24. - g6 til að auka út-
sýni biskupsins. Hvítur fær nú tak
á stöðunni. E.t.v. má finna að áætl-
un svarts í síðustu leikjum.
25. b4! Bb7 26. b5 d5 27. Rb3!
Dolmatov teflir þennan þátt
skákarinnar af stakri snilld. Þessi
er mun sterkari en 27. b6? Hc3! með
hugmyndinni aö fóma skiptamun
á e3 og skjóta svo biskupnum til
c5. í því tilviki ætti svartur góð
gagnfæri.
27. - Rd6 28. Ra5 Ba8 29. b6 Hc2 30.
Hbl Hc3 31. Bd4 Hcl 32. Hxcl Dxcl
33. Dd7 Dd2 34. Rb3 Dc2 35. Dd8 Bc6
s m
7 1 i
6 A Jl A
5 A
4 Jl
3 & A
2 m A A
1
abcdefgh
36.Ra5?
Eftir 36. Bc5! ætti svartur í mikl-
um erfiðleikum. Helga tekst nú að
töfra fram vörn þótt tímanaumur
sé.
36. - Rb7! 37. Rxb7 Bxb7 38. Db8
Dc8! 39. Dg3
Eftir drottningakaupin ætti
svartur ekki í erfiðleikum með að
halda sínu. En nú er staða hans enn
erfið þótt þaö versta sé yfirstaðiö.
39. - Dc6 40. Bd3 Dd6 41. Dg4 g6 42.
De2 Bg7 43. De8+ Df8 44. De3 Bxd4
45. Dxd4 Dd6 46. f4 Kf8 47. f5 gxf5
48. Bxf5 Ke7 49. Khl Kf8 50. Bd3 Ke7
51. Bb5 Df6 52. De3+ De6 53. Da3 + !
Kf6
Ekki 53. - Dd6 vegna 54. Da7! og
vinnur.
54. Dc3+ De5 55. Dcl Kg7 56. Dc7
Dxc7 57. bxc7 Bc8 58. Kh2 Kf6 59.
Kg3 Kg5?
Eftir skákina kom í ljós að 59. -
Ke5! heföi gefið svörtum jafntefU.
Helgi var í tímahraki og tapar dýr-
mætum tíma með þessum ranga
kóngsleik.
60. Bd3 d4 61. Bc2 Kf6 62. Kh4 Ke5
63. Kh5 Kd6 64. Kxh6 Kxc7 65. h4
Bg4 66. h5 Be2 67. Kg5 d3 68. Bb3 d2
69. h6?
Eftir þetta er skákin einungis
jafntefli, þótt ótrúlegt sé. Hins veg-
ar hefði 69. g4! leitt til vinnings,
eins og Dolmatov sýndi fram á.
Ekki gengur þá 69. - dl = D 70. Bxdl
Bxdl 71. KfB! og vinnur.
69. - Bd3 70. Kf6 Bg6 71. g4 Kd6
72. g5
Þótt svartur missi biskup sinn í
næstu leikjum fyrir h-peðið er stað-
an jafntefli. Eitt afbrigðið er 72. Bdl
Kd5 73. Kg7 Ke4 74. h7 Bxh7 75.
Kxh7 f5! og báðir vekja upp drottn-
ingar.
72. - Kc5 73. Kg7 Kd4 74. h7 Bxh7
75. Kxh7 Ke5 76. Kh6 Kf4 77. Bc2
Kg4 78. Bdl+ Kf4 79. Kh5 Kg3 80.
Bg4 Kf2 81. Kh6 Kg3
Og jafntefli samið.
Skoraði á Browne
Lítum að lokum á bráðskemmti-
lega skák aldursforseta mótsins,
Davíðs Bronsteins, við Walter
Browne úr sömu umferð. Bron-
stein gerði sér lítið fyrir og skoraði
Browne á hólm í eftirlætisafbrigði
þess síðamefnda af Sikileyjarvörn.
Bronstein hafði betur eftir byrjun-
ina og spann laglega úr stöðunni.
Hvítt: Davíð Bronstein
Svart: Walter Browne
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4
Rf6 5. Rc3 a6 6. Bg5 e6 7. f4 Be7 8.
Df3 Dc7 9. 0-0-0 Rbd7 10. g4 b5 11.
Bxf6 Rxf6 12. g5 Rd7 13. f5 Bxg5+
14. Kbl Re5 15. Dh5 Dd8 16. Hgl h6
Browne hefur teflt svona margoft
með svörtu mönnunum og síðasta
leikinn fann hann sjálfur í nýlegri
skák við landa sinn Wolff.
17. fxe6 g6 18. exf7+ Kxf7 19. De2
Kg7 20. h4!?
Wolff þessi lék 20. Rd5 en eftir 20.
- Hf8 21. Dg2 Ha7! komst hann lítt
áleiðis og tapaði um síðir.
20.-Bxh4 21. Rf5 +! Kh7?
Browne gefur sjálfur upp í skýr-
ingum sínum 21. - Bxf5 22. exf5 HfB
en vafalaust hefur hann óttast
hugsanlega endurbót öldungsins.
En leikur hans í skákinni er slakur.
22. Hxd6! Df8 23. Dh2! Bxf5 24. Dxe5
De7 25. Dxe7+ Bxe7 26. Hc6 Hhc8
27. Hb6 Hxc3
Annars fellur á g6 og svartur á
slæma stöðu.
28. exf5! He3 29. Bd3 Bc5 30. Hbxg6
Hae8 31. a4! bxa4 32. f6! Hxd3 33.
Hg7+ Kh8 34. Hhl!
Og Browne gafst upp.
-JLÁ