Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1990, Page 19

Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1990, Page 19
LAUGARDAGUR 31. MARS 1990. 19 Sviðsljós Veronica árið 1985. Allir gláptu á hana á ströndinni. Hún hélt að það væri vegna þess hve hún væri grönn og vel vaxin. Veronica í dag. Hún er 25 ára og 53 kíló. Hún vonast til að geta yfir- unnið sjúkdóminn með tímanum. VíöáttunúMí baðstrendur Danmörkvi.. §§§fe"' Pað angar allt og sýður af ánægju þegar sumarið nær hámarki í Danmörku. Komið og finnið það sjálf. Víðáttmiklar strendur. Grænir skógar og engi. Og allskonar skemmtigarðar s.s Tivoli, Fárup Sommerland, Legoland og Knuthenborg Safaripark. Pað er allt að finna í elsta konungsríki veraldar. Og hjá Danland býr maður með allt innan seilingar. Rétt við bestu baðstrendur Danmerkur. Komið á staðinn og njótið sumarsins. Við hlökkum til þess að geta boðið ykkur allt það sem sannarlega getur talist danskt. Hringið og fáið sendan bækling og verðlista. f Y HIRTSHALS ) BLOKHUS [>\NMARKS TURISTRAD NORRÆNA FbRÐASKRIFSTOFAN. SMYRIl. LINE - ÍSIANI) Laugavegur 3 Fjarðargata 8 Reykjavík SeyðisQörður S.: 91-626362 S.: 97-21111 Danland Megrunin varð sjúkleg: Svelti sig nærri í hel Veronica Perry er 165 sm á hæö og fyrir fimm árum vó hún aðeins 30 kíló. Hún var ekkert nema skinn og bein þegar hún var lögð inn á sjúkrahús í skyndi. Matarskammtur hennar yfir einn dag var tvö epli og sex dósir af diet kók. „Ég kom ekki meiru niður,“ segir hún. Foreldrar Veronicu skildu þegar hún var tveggja ára gömul. Hún bjó hjá móður sinni á Englandi en faðir- inn flutti til Ástralíu. Þegar hún var átján ára flutti hún til föður síns en dvölin hjá honum olli henni von- brigðum. Stuttu seinni varð mikil truflun á mataræði hennar. Veronica borðaði ekki grænmeti í mörg ár en sætindi voru þess meira á borðum. Hún fitn- aði og eins og flestar ungar stúlkur langaði hana að missa nokkur kíló. „Mér gekk vel að losa mig við kílóin og var orðin ánægð með hve grönn ég var orðin. Ég kunni vel við mig á ströndinni og fékk oft hrós fyrir hversu vel vaxin ég væri. Hugsunin var orðin sú að missa eitt kíló í við- bót og verða enn flottari." Veronica ákvað aö láta sér nægia 800 kaloríur á dag. Hún steig á vigt- ina á hverjum morgni og deginum var bjargað ef vigtin sýndi aðeins minna en daginn áður. Ef vigtin sýndi meira svelti hún sig enn meira en venjulega. Þannig gekk lífið hjá Veronicu næstu mánuði. Lífið sner- ist í kringum vigtina og á tólf mánuð- um missti hún einn þriðja af líkams- þyngd sinni. „Ég var komin niður í 30 kíló og þegar ég gekk á ströndinni góndi fólk á eftir mér. Sjálf hugsaði hún um það eitt að líta stórkostlega út. Móðir hennar fékk fréttir af dótturinni og kom til Ástralíu og bað hana að leita sálfræðings. Hann sagði að hún væri með sjúkdóminn anorexíu (sjúklegt lystarleysi). Veronica trúði því ekki. Engu að síður var hún lögð inn á sjúkrahús þar sem hún átti að þyngj- ast um 1250 grömm á viku. Veronica grét yfir þessu ranglæti. Hún var þó komin upp í 51 kíló tveimur mánuð- um sírar og var útskrifuð frá sjúkra- húsinu. Hún gekk út með það fyrir augum að létta sig aftur. Eftir sex mánuði var hún aftur komin hiður í 30 kíló. Hún þjáðist af næringar- skorti og var alvarlega sjúk. Augu hennar fóru að opnast fyrir á hvaða stigi hún væri og ef hún leit- aði sér ekki lækninga yrði hún dauð- ans matur. „Ástandið var orðið þannig að ég kom engu niður nema vatni og kaffi. Nú vildi ég þyngjast en gat það ekki.“ Veronica bað um sjúkrahúsvist í þetta skiptið. Á fimm mánuðum þyngdist hún aðeins um fimm kíló. „Nú verður þú að bjarga þér sjálf, við getum ekki meira gert,“ sögðu læknar við hana og hún var útskrifuð. Veronica fór til móður sinnar á Englandi. Þar leitaði hún einnig til sálfræðings sem sagði henni að ef hún þyngdist ekki yrði hún rúmhggj- andi áður en langt um liði. Veronica fór á sinn eigin 1200 kaloríu kúr á dag og tókst hægt og sígandi að ná þeim 53 kílóum sem hún vegur í dag, 25 ára gömul. Sjúkdómurinn þjáir hana enn. Hún vonast til að geta komist yfir sálar- ástand sitt með tímanum, fá áhuga á karlmönnum og geta lifað eðlilegu lífi. Megrunin fyrir fimm árum hefur eyðilagt líf hennar og framtíðarvon- ir. En hún gerir sér grein fyrir sjúk- dómnum og hefur lært að lifa með honum - nokkuð sem margir hafa ekki getað og þá er ekkert nema dauðinn sem blasir viö. FUSADAGAR VERÐLÆKKUN VEGGFLÍSAR Verð frá kr. 975 GÓLFFLÍSAR Verðfrá kr. 995 rrP XXXXXXXXXXXXXXX 1 <^> G.Á. Böðvarsson hf. Grensásvegi 11, sími 91 -83500 Byggingavörur Selfossi, sími 98-21335 ngar^ nflstan hf Stillholti 16, Akranesi, sími 93-11799 M METRO Álfabakka 16, sími 91 -670050 Bæjarhrauni 16, Hafnarfirði, sími 91 -652466

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.