Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1990, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1990, Side 20
20 LAUGARDAGUR 31. MARS 1990. Kvikmyndir Schwarzenegger í nýj- um framtíðarþriller Nýjasta kvikmynd Arnold Schwarzenegger, Total Recall, er framtíð- armynd sem gerist að miklum hluta á reikistjörnunni Mars. Total Recall er nýjasta kvik- mynd Arnolds Schwarzeneg- gers. Verður hún frumsýnd vestanhafs seinna á árinu. Þaö sýnir hversu óhemju traust peningamennirnir í Hollywoo- od hafa á Schwarzenegger aö Total Recall er búin að liggja í nokkurn tíma án þess að nokk- uð hafi verið gert þótt allir séu vissir um að handritið sé'gott og myndin komi til með að verða vel sótt. Allir útreikning- ar geröu aftur á móti ráð fyrir þaö dýrri kvikmynd aö enginn lagði í að taka áhættuna fyrr en Schwarzenegger lýsti áhuga sínum á að leika aðalhlutverk- ið. Þá risu augabrúnirnar á framleiðendum og ekkert var til sparað, enda er lokakostnað- urinn viö myndina sagður vera 60 milljónir dollara. Söguþráðurinn gerist í fram- tíðinni. Schwarzenegger leikur Kvikmyndir Hilmar Karlsson Doug Quaid, sem er í góðri vinnu og á eiginkonu sem hann elskar og góða vini. Eini ljóðurinn á lífi hans eru draumfarir sem hann fær stanslaust, draumfarir sem ganga út á það að hann lifi öðru lífi á Mars. Til að fá lausn á þessu leitar hann á náðir fyrir- tækis sem nefnist Rekall In- corporated, fyrirtæki sem sér- hæfir sig í að gera drauma ein- staklingsins að veruleika. Quaid fer í meðferð en aðgerð- in fer úr skorðum og áður en hann veit af er hann hundeltur af atvinnumorðingjum sem hafa fengið skipun um að drepa hann. Á ílótta sínum finnur hann myndband eitt sem merkt er honum. Þegar hann setur það í myndbandstæki kemur mynd af honum á skjáinn og rödd hans segir: „Vertu viðbúinn miklum fréttum. Þú ert ekki þú heldur ég.“ Er þetta allt draum- ur eða veruleiki? Um það snýst dæmið fyrir Quaid. Hvað sem því líður fmnur hann aö lausn veröur ekki fundin nema hann fari til Mars. Paul Verhoeven Leikstjóri er Paul Verhoeven og þeir sem sáu RoboCop er ljóst að honum er vel treystandi til að koma þessum ílókna sögu- þræði til skila. Verhoeven er hollenskur og fæddist í Amst- erdam. Hann eyddi sínum fyrstu árum sem kvikmynda- gerðarmaður í hollenska sjón- varpinu. Alþjóðlega frægð hlaut hann meö kvikmyndinni Turkish Delight sem tilnefnd var til óskarsverðlauna sem besta er- lenda kvikmyndin. Síðan komu Keetje Tippel og Soldier of Or- ange sem var tilnefnd til Golden Glope verðlaunanna í Banda- ríkjunum. Hann hélt áfram í heimalandi sínu og kórónaði verk sín þar meö Fjóröi maöur- inn sem fékk fjölda alþjóðlegra verölauna, meðal annars var myndin kosin besta kvikmynd af gagnrýnendum í Los Ange- les. Nú var komin röðin að Bandaríkjunum. Hans fyrsta kvikmynd þar var Flesh and Blood sem gerðist á miðöldum og var blóðug saga um valda- baráttu og ástríður. Aðalhlut- verkið lék hollenski leikarinn Rutger Hauer sem hafði einmitt hlotið alþjóðlega frægð í mynd- um Verhoevens. Flesh and Blo- od vakti athygli og fékk ágæta dóma en áhorfendur létu sig vanta. Áhorfendur létu sig ekki vanta á næstu kvikmynd Ver- hoevens, RoboCop, sem vakti mikla athygli og varð mjög vin- sæl. RoboCop er framtíðar- mynd um lögregluþjón sem drepinn er af glæpamönnum, „lífgaður" við og gerður að óvinnandi „vélmanni". Verhoeven virðist kunna vel við að leikstýra framtíðar- myndum. Alla vega hafa engar fréttir borist um aö hann hafi í hyggju að snúa sér aö raunsæj- um kvikmyndum aftur. -HK Góðir gestir á franskri kvikmyndahátíð I dag hefst í Regnboganum frönsk kvikmyndavika. Verða sýndar átta úrvalskvikmyndir, flestar nýlegar. í tilefni kvik- myndavikunnar heimsækja okkur þrír gestir, þekkt nöfn úr frönskum kvikmyndaheimi, tveir leikstjórar og ein leik- kona. Leikkonan er Annie Girardot, sem er fædd 1931. Hún er ein- hver virtasta leikkona Frakka nú og hefur hlotiö fjölda viður- kenninga fyrir leik sinn. Hún fékk gullpálmann í Feneyjum 1965 fyrir leik sinn í Trois Chambres a Manhattan og Ces- ar verðlaunin frönsku fyrir leik sinn í Docteur Francoise Gail- land. Hún hefur leikið fyrir marga af fremstu leikstjórum Frakka. Girardot kemur hér til að vera viðstödd frumsýningu á Ástargamanleikur (Comédie d’amour) sem er nýjasta kvik- mynd hennar. Meö henni kemur leikstjóri myndarinnar, Jean-Pierre Rawson. Hann er fæddur 1936. Hann gerði sína fyrstu kvik- mynd í fullri lengd 1972 en hafði áður gert margar stuttmyndir. Rawson var búinn að bíða lengi eftir tækifæri til að gera Ástar- gamanleik. Þriðji gesturinn sem kemur er franski leikstjórinn Alain Jessua. Hann kemur til að vera við frumsýningu myndar sinnar í mesta sakleysi (En tout innocence). Jessua byrjaði feril sinn sem aðstoðarmaður hjá nokkrum af bestu leikstjórum Frakka, má þar nefna Jaques Becker, Marc- el Ophuls, Marcel Carné og Yves Allegret. Jessua var verð- launaður fyrir sína fyrstu stutt- mynd, en það er ekki fyrr en 1963 að hann gerir fyrstu kvik- myndina í fullri lengd. Hann er meðal þekktustu leikstjóra Frakka, leikstýrir ekki mörgum myndum, en ávallt þegar koma nýjar kvikmyndir frá honum vekja þær mikla athygli. -HK Franski leikstjórinn Alain Jessua. ROBERT REDFORD er leikari sem leikur ekki í hvaða mynd sem er. Staðreyndin er sú aö hann leikur ekki í nema einni mynd á tveggja ára fresti. Hann hefur nú nýlokið við aö leika í Havana sem leikstýrð er af uppáhaldsleikstjóra hans, Sidney Pollack. Mynd þessi er rómantiskur þriller sem ger- ist á síðustu dögum Batista. Leikur Redford mann sem lætur reka fyrir vindi eins og sagt er. í því stríðsástandi sem einkennir Havana hittir hann unga konu sem gift er uppreisnarforingja. Þau heillast hvort af öðru en vandamálin eru mörg. Gerist mynd- in á sjö dögum, síðustu dögum Batista- stjórnarinnar. Meðleikarar Redfords eru Lena Olin, sem er á góðri leið meö að verða næsta sænska stórstirnið í kvikmyndum, og Raul Julia. Hugmyndin aö Havana er ekki nýtilkomin. Handritið er búðíð að velkjast um í kvikmyndaverum í Hollywood ailt frá því 1978 þegar það var gert lýðum ljóst að Jane Fonda og Jack Nicholson myndu leika aðalhlutverkin í myndinni. Sú varð þó aldrei raunin. * * * JAMES CAAN telur sig hafa verið í mikilli lægð undanfarin ár. Koma bæði til persónu- leg vandamál og litiö úrval handrita sem honum hafa borist. Hann er nú fullur bjart- sýiri á að næsta kvikmynd hans, Misery, komi honum á rétta braut. Misery er gerð eftir metsölubók Stephen Kings sem komið hefur út i íslenskri þýðingu undir nafninu Eymd. Leikstjóri verður Rob Reiner sem er ekki alveg ókunnur verkum Kings því hann leikstýrði Stand By Me sem var gerð eftir einni sögu Kings. Ekki var Caan sá fyrsti sem framleiðendur vildu í hlutverk ritliöf- undarins sem slasast í bílslysi og er bjargaö af konu einni sem heldur honum á heimili sínu gegn vilja hans. Það var Warren Beatty sem fékk fyrstur boð um hlutverkið en þeg- ar hvorki var hægt að fá já eða nei frá hon- um í nokkra mánuði var leitaö til Caan sem tók hlutverkinu fegins hendi. „Ég var á leið til ítah'u til að leika í einhverri ruslmynd þegar kallið kom,“ segir Caan. Aðrir leikar- ar í Misery eru Lauren Bacall, Kathy Bates og Richard Famsworth. * * * BRUNO GANZ, þýski leikarinn góðkunni sem heimsótti okkur á síðustu kvikmynda- hátið til aö vera viðstaddur sýningu á Him- mel úber Berlin, er nýbúinn að leika í kvik- mynd sem er leikin á ensku. Er það Strap- less sem leikstýrð er af hinum eftirtektar- verða breska leikstjóra, David Hare. Þetta er rómantísk kvikmynd með „slæmurn" endi. Bruno Ganz leikur dularfullan mann sem verður á vegi læknis eins sem Blair Brown leikur. Önnur stór hlutverk í mynd- inni eru í höndum Bridget Fonda og Alan Howard. ★ * ★ BRUCE WILLIS situr heima hjá sér þessa dagana og telur alla þá dollara sem hann fékk fyrir að tala hlutverk bams í myndinni Look Who’s Talking sem Stjörnubíó mun bráðlega taka tii sýninga. í raun getur þessi saga aðeins gerst í Hollywood. Aðstandend- ur myndarinnar vildu ólmir fá afnot af rödd Willis. Hann var tregur en jánkaði loks. Hann neitaði aftur á móti aö taka laun, að- eins prósentur. Willis vann i fjóra daga viö að tala inn á myndina. Svo geröust ósköpin. Strax eftir frumsýningu þótti ljóst að mynd- in yrði óhemjuvinsæl. Aðstandendurmynd- arinnar urðu auðvitað óhemjuglaðir enbro- sið stirðnaði á þeim þegar farið var að reikna út laun Willis. Look Who’s Talking er nú búin að raka inn 130 milljónum dollur- um og laun Willis fyrir íjóra daga eru hvorki meira né minna en 10 milljónir dollara. Og reyni nú hver sem er aö reikna tímakaup hans í íslenskum krónum. ★ ★ ★ MICHAEL KEATON er sjálfsagt á hátindi ferils síns hvað vinsældir snertir. Hann get- ur valið úr hundruðum kvikmyndahand- rita. Samt valdi liann aukahlutverk i Pacific Heights sem sitt næsta verk. Ástæðan er sú, að hans sögn, að hann vildi breyta til, hætta að leika „góða drenginn“ og leika einhvern virkilega slæman. Leikur hann hálfgeðveik- an leigjanda sem hefur uppi skuggaleg áform um að drepa húseigandann sem hann leigir hjá. Það er John Schlesinger sem leik- stýrir en aðalhlutverkiö leikur Melanie Griffith.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.