Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1990, Blaðsíða 21
LAUGARDAGUR 31. MARS 1990.
21
dv_____________________________________________Vísnaþáttur
Það ber þó til ég segi satt
Ég tel affarasælast, áður en ég
sný mér að efni þessa þáttar, að
koma eftirfarandi leiðréttingu á
framfæri: Síðasa vísa í þættinum
laugardaginn 24. febr. er eftir Stef-
án (ekki Sigfús) Eiríksson á Akur-
eyri. Rétt er hún þannig:
Víst kaus ég ungur að vaða
reykinn,
vizkan hjá dyrum beið.
Vonir mínar og veruleikinn
völdu hvort sína leið.
„Sannleikurinn er sagna beztur"
er orðtak sem flestir kannast viö
en fæstir fara eftir. Hugsið ykkur
hvað geröist ef fólk tæki allt í einu
upp á því að segja alltaf sannleik-
ann. Ég las endur fyrir löngu sögu
um mann sem veðjaði við félaga
sinn að hann skyldi segja sannleik-
ann í einn dag. Taldi það engum
vandkvæðum bundið. Hann vann
veðmálið en það kostaði hann vinn-
una. Unnustan sagði honum upp
og vinir hans snerust gegn honum.
Ætli það færi ekki á þann veg fyrir
flestmn. Hreinskilni getur veriö
hættuleg, jafnvel þótt hún sé blönd-
uð gamansemi. Mörgum hættir til
að bæta aöeins við sannleikann og
við hverja viðbót minnkar hann.
Því eldri sem maðurinn verður
þess hraðar hljóp hann þegar hann
var strákur. Meðalhófiö í þessum
efnum er vandratað. Jón Rafnsson
kvað svo:
Þröngt í búi orðið er,
öfugt snúið fíestu.
Þráfalt trúað, því er ver,
þeim sem ljúga mestu.
En það taka ekki allir lygina góða
og gilda. Ólafur Briem, bóndi og
trésmiður á Grund í Eyjaflrði, orti:
Enginn þarf að ætla sér
upp á nokkurn máta,
fyrir satt aö segja mér,
sem ég veit að lygi er.
Sumum fallast hreinlega hendur,
eins og þeim sem kvað eftirfarandi
stöku:
Rekur mig í rogastanz,
reyni ekki að trúa,
því að allir andskotans
útsendarar ljúga.
En það er ekki aldeilis sama
hvernig er logið, samanber vísu
Indriða Þórkelssonar á Fjalli:
Torfi Jónsson
Af því gátu galtóm rök
gullvæg sýnzt hjá honum.
Vann hann fuUa frágangssök
framar öllum vonum.
Þeir eru tíl sem reynist hrein of-
raun að segja sannleikann ef
marka má eftirfarandi stöku um
Kela Færeying eftir Jón Þorsteins-
son:
Það ber þó tU ég segi satt,
samt þó kunni að ljúga.
En úr honum Kela aldrei datt
orð sem mátti trúa.
Og ekki hefur ástandið verið
betra hjá þeim sem svo var um
kveðið:
Sigurjón hefur geðið glatt,
glapinn er hann fógrum konum.
Þó hann reyni að segja satt
má sjálfur andskotinn trúa hon-
um.
Þó tekur stundum út yfir hvað
menn geta verið ómerkilegir:
Þar fannst engin ærleg taug.
Yfir vegferð stranga,
hann laug og sveik og sveik og
laug.
Svona var hans ganga.
Og ekki spiUir það að þekkja
krókaleiðir laganna þegar á þarf
að halda. Það hefur Bjarni Jónsson
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Félags starfsfólks í veitingahúsum verður
haldinn mánudaginn 2. apríl 1990 kl. 15 í Ingólfsbæ,
Ingólfstræti 5. Dagskrá: v.enjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin
frá Gröf, úrsmiður á Akureyri, gert
sér ljóst þegar hann kvað:
Lögin heimta mat á mat,
miklu tekst að ljúga.'
Það er á þeim gat við gat
sem gæðingamir smjúga.
Jóhannes Guömundsson á Húsa-
vík orti um mann sem honum
fannst vera kominn út á hálar
brautir í útvarpsumræðum:
Einhver menntun er í því,
einnig gáfnaskíma,
að ljúga hverju orði í
aUt að klukkutíma.
Guðmundur Guðmundsson,
bóndi í Berufirði eystra, kveður
svo:
Stormasamt við Skuldasker,
skammt á milli brota.
Lygina fyrir lífakker
læra menn þar að nota.
Eftirfarandi mannlýsing er eftir
Jónatan Jakobsson:
Sig úr hverjum vanda vatt,
' vék til hhðar réttlætinu.
Stundum reyndar sagði satt,
sýnu oftar brá þó hinu.
Borgfirðingurinn Guðmundur
Jónsson tekur öllu dýpra í árinni:
Margur lastaveginn velur,
vex oft af því slæmur kur,
einn er lyginn, annar stelur
og hinn þriðji er kjöftugur.
Afleiðingarnar gætu orðiö eitt-
hvað líkar því sem Þórarinn
Bjarnason frá Björnólfsstööum í
A.-Hún. lýsir í stöku sinni:
Æran glatast ýtum hjá
í því Satans vígi,
þar sem matað allt er á
öfund, hatri og lygi.
En þrátt fyrir allt er gott að
vera bjartsýnn og taka undir með
Árna G. Eylands:
Lygin víða leiðir bagar,
Uggur í götu margur steinn.
Síðar koma sumir dagar,
sannleikurinn gildir einn.
Torfi Jónsson
TENS3Í ’90 hljómtækjalínan
Fermingargjöf - framtíðareign
Verð 29.349,- stgr.
SJÓNVARPSMIÐSTÖÐIN
Síðumúla 2, sími 68 90 90
TENSAICOMPO 95
* Útvarp (FM/MW/LW) 2«
minni.
* Magnari 40 W músík
* Kassettutæki tvöfalt
* Equalizer 2x3 banda
* Plötuspilari
hálfsj álfvirkur
* Geislaspilari
* Fjarstýring
Stem 82 hátalarar 70 W músík.
Verð 48.204,- stgr.
TENSAI COMPO 90
* Útvarp (FM/MW/LW) 20
minni.
* Magnari 40 W músík
* Kassettutæki tvöfalt
* Equalizer 2x3 banda
* Plötuspilari hálfsjálfvirkur
* Fjarstýring
Stem 82 hátalarar 70 W músík.
r.
UNCOLN
I NORWEL
Rafsuðuheimurinn í tveimur orðum
Ameríska stórfyrirtækið Lincoln og evrópska Norweld
samsteypan sameinuðu krafta sína 1989.
Sameining þessara risa í rafsuðuiðnaðinum þýðir einfaldlega að
við í Sindra-Stáli erum nú enn betur í stakk búnir til að þjóna
viðskiptavinum með allt er snertir rafsuðu og plasmaskurð.
Það þarf bara að muna tvö orð: Lincoln Norweld.
sindra/ovSTálhf
BORGARTÚNI 31 • SlMAR: 627222 - 21684