Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1990, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1990, Side 22
22 LAUGARDAGUR 31. MARS 1990. Helgarpopp öðlast tónlistin gildi Sinéad O'Connor vinnur sigra með nýrri plötu Guð gefi mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt. Kjark til aö breyta því sem ég get breytt. Og vit til að greina þar á milli. Á þessum oröum æðruleysis- bænarinnar hefst önnur plata írsku söngkonunnar Sinéad O’C- onnor. Þessi fyrrverandi vand- ræðahnáta, sem eyddi hluta af unglingsárum sínum á upptöku- heimili, hefur nú fengið gæfuna í hð með sér og saman vinna þær stöllur sæta sigra. Frumburður Sinéad O’Connor, The Lion and the Cobra, sem var útgefin árið 1987 beindi kastljósi poppskríbenta að þessari smávöxnu, sköllóttu og snareygöu írsku stelpu. Henni var hampaö sem athyghsverðasta ný- Uöa téðs árs og helstu von kvenna- poppsins. í annari viku nýhafins árs kættust fjölmargir aðdáendur Sinéad en þá sendi hún á markað fyrstu afurö sína í tæp tvö ár. Ekki var smíöin þó aö öUu leyti úr hug- arfylgsnum írans því aö hér var um gamalt lag úr smiöju Prince að ræða. Sinéad hafði heyrt lagið á plötu hljómsveitarinnar The Fam- Uy sem ættuð er frá MinneapoUs fylki Bandaríkjanna, seint á árinu 1986 og strax orðið skotin í því með fyrrgreindum afleiöingum. Skot- held lagasmíð Prince og mögnuð meðhöndlan Sinéad O’Connor (fiutningur + útsetning) hefur faU- ið rokkunnendum vel í geð og lagið hefur farið sigurfor um heiminn á undanfomum vikum. Nothing compares 2 U var í mánuð í efsta sæti vinsældalistans í Englandi og í síðustu viku var lagið í efsta sæti vinsældaUstana í Þýskalandi, HoU- andi og Ástralíu svo dæmi séu tek- in. Lagið hefur einnig náð eyrum Bandaríkjamanna og var í síðustu viku í 33. sæti BUboard-Ustans í sinni annarri viku á lista en það er árangur sem stórstjömur á borð við Michael Jackson og Bmce Springsteen væru fuUsæmdar af. Nothing Compares 2 U undirbjó þvi jarðveginn vendUega fyrir útkomu breiðskífunnar I do not want what I havent got. Eftirvænting þeirra sem þegar höfðu beðið misserin mörg jókst um aUan helming og aðrir sem ekki höfðu heyrt tónUstarmannsins get- ið fengu áhuga á frekari kynnum. Þannig jókst sala á fyrri plötu Siné- ad O’Connor, The Lion and the Cobra, það mikið í febrúarmánuði sl. að platan fór inn á topp 40 breiö- skífuUstans í Bretlandi tveimur og hálfu ári eftir útkomu. Loksins Þann 12. mars sl. kom loks I do not want what I havent got fyrir augu og eyru almennings og er óhætt að segja að gripurinn standi undir þeim væntingum sem uppi vom (það er altént reynsla undir- ritaðs). Hér er á ferð ein af þeim Umsjón: Snorri Már Skúlason plötum sem vonUtið er aö lýsa með orðum, en slíkt vandamál er gjam- an samnefnari áheyrilegustu af- urða rokksins á hverjum tíma. Hér skal þó farið nokkrum orðum um plötuna en sá ljóður er á slíkri umfjöllun að þrátt fyrir að grannt hafi verið hlustað á I do not want what I havent got, þá hefur undir- rituðum gengið treglega að finna galla á grip. Lofrulla Sinéad O’Connor hefur afrekað ljóðræna plötu með sinfónísku ívafi. Þannig er allt yfirbragð I do not want what I havent got fremur rólegt og einfalt, hljóðfæraleikur fábreyttur en hnitmiðaður. Tals- vert ber á gmnnhljóðfæmm rokks- ins, trommum, bassa og gítar en áhrif og vídd tónlistarinnar em aukin meö vönduðum strengja út- setningum þar sem ekkert er of eöa van. Þegar engilþýð rödd söng- konunnar er sett fram fyrir allt þetta nálgast hljómkviðan full- komnun. Textar plötunnar fjalla flestir um tilfmningar, brostna ást og óréttlæti í samfélaginu. Þannig má með réttu segja að tónlistin öðhst gildi þegar litið er í djúpblá augu söngkonunnar sem umslag plötunnar skartar, því greinilegt er að eigin reynsla Uggur til grund- vallar í textagerðinni. Þijú lög skera sig nokkuð úr heildarmynd plötunnar. Þar skal fyrst nefna Jump in the river, lag með þungan en þéttan botn þar sem rífandi gítarleikur Sinéad O’Conn- or og smekklegur bassaleikur Andy Rourke (áður í Smiths) fara mikinn. Þetta lag minnir nokk á Jesus and Mary Chain og þá má sjá hve langt Sinéad getur farið frá sinfónískum ljóðlínum án þess að gæðum tónlistarinnar hraki. Sine- ad syngur reynslusögu í skemmti- legu rokklagi, Nýju fötin keisarans og þriðja lagið, sem stingur í stúf, er byggt á gömlu keltnesku þjóð- kvæði. Umrætt lag ber titiUnn I am streched on your grave en i því nálgast Sinéad þá sögu og fortíð, sem kvæðið geymir, á heldur óvenjulegan hátt. Botninn í laginu er einfaldur trommuheilataktur studdur bassaleik. Raunar eru þessi tvö hljóöfæri í aðalhlutverk- um og er útkoman hip hop-kenndur ljóðasöngur, þar sem fiðluleikur í enda lagsins undirstrikar hver uppruni þess er. Athygli vekur fjöl- hæfni Sinéad O’Connor sem tón- listarmanns á þessari nýju plötu. Auk þess aö semja níu af tíu lögum plötunnar, spilar hún á gítara, hljómborð og sér um áslátt á stöku stað. Það er hins vegar í útsetning- um sem hún vinnur stæstu sigr- ana, en þær eru á köflum hreint frábærar. Söngkonan hefur greini- lega næmt eyra fyrir því hvaða umgjörð hentar rödd hennar best og í hvaða ljósi hennar fær best notið. Strengjaútsetningarnar eru sérstaklega smekklegar. Annars er með I do not want what I havent got eins og fallegt málverk, hver og einn veröur upplifa sjálfur þá fegurð sem býr í verkinu. Að mati undirritaðs er hér á ferðinni besta plata sem rokkiö hefur ahð af sér það sem af er ári. Nothing compar- es 2 it.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.