Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1990, Qupperneq 24
24
LAUGARDAGUR .31. MARS 1990.
„Ég get ekki neitað því að þessi
uppgangur minn hefur komið mörg-
um eldri starfsmönnum á óvart og
það er ekki laust við að ég finni fyrir
öfund. Ég leiði það hjá mér og um-
gengst alla starfsmenn jafnt, hvort
sem það eru lagermenn eða yfir-
menn,“ sagði Ólafur Jóhann Ólafs-
son, 27 ára gamall, aðstoðarforstjóri
Sony verksmiðjanna í Bandaríkjun-
um og rithöfundur, er helgarblaðiö
heimsótti hann í New York.
Raunar fór viðtalið fram á 107. hæð
í World Trade Center yflr ljúffengum
málsverði og undurfögru útsýni yfir
stórborgina. Það átti vel við að ræða
við Ólaf Jóhann á toppnum svo vel
hefur honum vegnað í Ameríkunni.
Ólafur Jóhann dúxaði svo rækilega
í Menntaskólanum í Reykjavík árið
1982 að enginn hefur ennþá náð að
slá honum við. Það var Guðni rektor
sem átti hugmyndina að því að Ólafur
færi til Bandaríkjanna til frekara
náms.
„Þegar ég var í sjötta bekk í menntó
kailaði Guðni rektor í mig og sagði
mér frá skóla í Boston sem nokkrir
MR-ingar höfðu farið í tii framhalds-
náms. Guöni hafði sótt um fyrir einn
nemanda á ári og bauð mér slíkt hið
sama. Ég haföi ekki hugsað mér þá
að fara til Bandaríkjanna. Var reynd-
ar ekki ákveðinn hvað mig langaði
að gera veturinn eftir svo ég sló til.
Eftir umhugsun valdi ég mér eðlis-
fræði til að gera eitthvað," segir Ólaf-
ur hæverskur.
Dúxaði tyívegis
Ekki var nóg með að Ólafur dúxaði
í MR, hann dúxaði einnig í Boston.
„Það er alyeg voðalegt að fá þennan
dúxstimpil á sig,“ segir hann. „Þjóö-
sagan segir að flestir sem dúxi verði
ruglaðir eða skrítnir á einhvern
hátt,“ heldur hann áfram og hlær.
„Sá árgangur sem ég útskrifaðist
úr var mjög góður, skemmtilegur
bekkur og margir með fínar einkunn-
ir. Allnokkrir með vel yfir 9,40 enda
góðir kennarar í MR. Mér var boðinn
styrkur, þeir borguðu skólagjöld,
fæði og húsnæði þannig að mér leist
vel á þetta."
Ólafur Jóhann segist alltaf hafa
haft gaman af vísindum en eðlis-
fræðina valdi hann einungis að
gamni sínu. „Ég hafði meiri áhuga á
1 bókmenntum og listum en var búinn
að lesa svo mikið af bókmenntum að
mér fannst ég ekkert græða á há-
skólanámi í því fagi. Eðlisfræðin
fannst mér spennandi sem grund-
vallarvísindi en ég ætlaði mér aldrei
að starfa sem eðlisfræðingur. Eftir
að ég lauk náminu ýttu prófessorar
mínir mjög á mig að halda áfram og
klára doktorsnámið. Ég var hins veg-
ar búinn að fá nóg, að mér fannst á
þeim tíma, og langaði mikið til að
setjast niður og skrifa bók. Ég hafði
lengi dundað við skriftir en það fór
allt í skúffuna. Á þessum tíma fór
mig að langa að setja eitthvað á
prent," segir Ólafur ennfremur.
Beið eftir atvinnu-
leyfi og skrifaði bók
Að mati Ólafs fór allt ágætlega með
áætlanir hans. „í gegnum prófessor-
inn minn kynntist ég manni sem heit-
ir Michael Schulhof, sem er núver-
andi forstjóri Sony í Bandaríkjunum.
Hann er einnig eðlisfræðingur og
hafði sama prófessor og ég á sínum
tíma. Þessi maður bauð mér starf hjá
Sony sem ég þáöi. Ég fór heim og
beið eftir atvinnuleyfi og skrifaði bók
á meðan. Það voru smásögur, Níu
lyklar, sem komu út 1986 en það sama
ár komum við hingað út,“ segir Ólaf-
ur Jóhann. Eiginkona hans er Anna
Ólafsdóttir, 26 ára, en hún hefur
kennt Ameríkönum eróbikk, fyrst í
Kaliforníu og nú í New York.
„Ég byrjaði að vinna hjá Sony í
Kaliforníu.. Reyndar hafði ég verið í
stöðugu símsambandi við þá þann
tíma sem ég beið eftir atvinnuleyfi.
Nokkrum sinnum flaug ég hingað en
annars vissi ég ósköp lítið hvað ég
var að taka að mér. í fyrstunni starf-
aði ég við að líta á þá tækni sem Sony
hafði yfir að búa og gera tillögur að
tækjum sem hægt væri að búa tíl.
Starfssviðið var kallað sérfræðingur
í rannsóknum. í því starfi var ég
nokkra mánuði. Ég verð að viður-
kenna aö ég þekkti ekki mikið inn á
Verð aldrei
uppstoppaður
bisnesskarl
- segir Ólafur Jóhann Ólafsson, aðstoðarforstjóri Sony í Bandaríkjiinum
Ólafur Jóhann ásamt eiginkonu sinni, Önnu Ólafsdóttur. Hún hefur kennt
Ameríkönum eróbikk meðan eiginmaðurinn bjargar viðskiptamálum.
DV-myndir ELA
amerískan eöa japanskan fyrirtækja-
rekstur í upphafi. Þetta kom þó
fljótt," segir Ólafur Jóhann.
Starfaði í hátækninni
Flestir setja samasemmerki milli
hljómtækja, sjónvarpstækja og Sony
fyrirtækisins en Ólafur Jóhann var
hins vegar aö vinna við tæknimálin,
tölvur og hluti í tölvur. „Sony fram-
leiðir meirihlutann í flestar þær tölv-
ur sem eru á markaðnum, t.d. Mac-
hintosh og IBM, þó þeirra nafn komi
þar hvergi fram. Þessi hlutdeild Sony
í tölvumarkaðnum nemur tveimur
milljörðum Bandaríkjadala á ári.
Heima á íslandi er Sony nafnið
kannski ekki stórt en í könnun á
þekktustu vörumerkjum, sem gerö
var hér í Bandaríkjunum á síðasta
ári, voru IMB, Coca Cola og Sony í
efstu sætunum."
Skrifstofur Sony sem Ólafur Jó-
hann byrjaði að vinna fyrir voru
staðsettar í San Fransisco en hann
hafði auk þess aðgang að rannsókn-
arstofunum sem ílestar eru í Japan.
„Ég hef mikið verið í Kalifomiu und-
anfarið og verð á næstunni vegna
mikilla skipulagsbreytinga sem nú
eiga sér stað hjá fyrirtækinu. Ég er
að flytja margar deildir, t.d. frá Colo-
rado, New Jersey og Los Angeles yfir
til San Fransisco. Staðurinn þar sem
Sony er staðsett er kallað Kísildalur
og er helsta hátæknisvæði Banda-
ríkjanna."
Ólafur Jóhann segir að fyrsta verk-
efni hans hafi verið þægilegt að því
leyti að hann kynntist vel öllum inn-
viðum fyrirtækisins og ýmsum deild-
um þess. „Sony veltir tuttugu mill-
jörðum dollara á ári sem í dag eru
tuttugufóld fjárlög íslenska ríkisins."
Fór hratt upp
Hann segir að ráðgjafastarfiö hafi
meðál annars falið í sér ákvarðanir
um kaup og sölu á fyrirtækjum. „Ég
var aðeins nokkra mánuði í því starfi
en þá tók ég að mér að stjórna deild
með hátækni í sambandi við tölvur.
Þar var ég í stuttan tíma en fór síðan
að reka fyrirtæki Sony í tölvuiðnað-
inum. í þeirri deild hafði ég umsjón
með geisladiskum fyrir tölvur. Smám
saman jukust umsvifm og ég fór að
hafa umsjón með rannsóknarstofum
víös vegar um Bandaríkin. Allt leiddi
þetta hvað af öðru og ég fór að vinna
mikið fyrir forstjóra Sony í fyrir-
tækjakaupum og samningum við fyr-
irtæki. Fyrsta fyrirtækið sem Sony
keypti var hljómplötuútgáfan CBS.
Síðan komu smærri fyrirtæki, svona
hundrað, hundrað og fimmtíu milljón
dollara fyrirtæki. Þetta voru alls
kyns fyrirtæki m.a. eitt sem framleið-
ir kísilflögur og annað sem framleiðir
sjónvarps- og útvarpstæki í flugvélar.
Síðan létu þeir mig reka fyrirtæki
sem nefnist Sony Video Shopper sem
þeir keyptu til að eignast videorétt á
myndum frá stórfyrirtækjunum og
til að læra á viðskiptin áður en þeir
eignuðust Colombia kvikmyndaver-
ið. Nú er verið að selja þetta fyrir-
tæki. Kaupin á Colombia eru stærstu
kaup Sony í Bandaríkjunum.“
Michael Schulhof, forstjóri Sony,
sér um allt framtíðarskipulag fyrir-
tækisins og ég starfa fyrir hann. Ég
flutti til New York til að vera í betra
sambandi við umheiminn. Ég er með
menn sem reka tölvudeildina í Kali-
forniu, þeir heyra undir mig, en sjá
um allan daglegan rekstur.“
Óvænt forstjórastaða
Þau Ólafur Jóhann og Anna fluttu
til New York í september sl. en áður
hafði hann búið meira eða minna á
hótelum í New York. Þann 1. mars
sl. var Ólafi Jóhanni boðin staða að-
stoðarforstjóra fyrirtækisins. „Jú,
ætli ég sé ekki langyngsti forstjórinn
en þegar menn skjótast svona hratt
upp falla þeir bara mun hraðar nið-
ur,“ segir Ólafur Jóhann.
Hann segir að peningar hafi aldrei
skipt sig neinu máli og hann hafi
ekki tekið við starfinu þeirra vegna.
„Þetta er vel launað en það réð ekki
úrslitum,“ segir Ólafur Jóhann.
Á einni viku fær hann á bilinu
fimmtíu til sextíu tilboð frá banda-
rískum fyrirtækjum sem vilja láta
kaupa sig. „Mörg þeirra eru í ein-
hvers konar tækni. Mitt er síðan að
meta hvort kaupin borgi sig. Ég tek
ákvarðanir en endanlegt vald er auð-
vitað í höndum forstjórans."
Ólafur Jóhann segist aldrei vera
smeykur um að gera vitleysu. „Það
þýðir ekkert að hafa áhyggjur af
slíku, þá kæmi maður engu í verk,“
segir hann. „Maður reynir bara að
gera sitt besta en allir geta gert mis-
tök, ég reyni bara að gera færri mis-
tök en aðrir."
Daglega þarf Ólafur Jóhann að vera
í sambandi við aðalskrifstofur í Jap-
an, hvort sem það er í gegnum síma,
fax eða að fara á fundi þar. Hann
segist ekki hafa tölu á hversu oft
hann. hafi farið til Japans en lætur
næga aö segja: Alltof oft. „Það er
erfitt að fara yfir, langt flug, margir
fundir og ekki síst mikið skemmtana-
líf á Japönum."
Margir meðalmenn
Þessa mánuðina er mjög mikið að
gerast innan veggja Sony fyrirtækis-
ins. Miklar endurskipulagningar eiga
sér stað og Ólafur Jóhann segist hafa
í mörgu að snúast. „Á meðan á þessu
stendur gerir maður lítið annað en
að vinna,“ segir hann. „Þetta er
ákveðin hagræðing sem er í gangi.
Sumar deildir byrjuðu smátt en hafa
þanist út. Við erum að reyna að
skipta deildum upp í sjálfstæðar ein-
ingar og láta þær standa undir sér
sjálfar. Í leiðinni minnkum við alla
skriffinnsku og annað slíkt. Þetta er
mjög góð þróun sem hefði átt að ger-
ast fyrr.“
Ólafur Jóhann segir að það sé mik-
ið af meðalmönnum í bandaríska
fiármálaheiminum og það hafi
kannski komið honum á óvart.
„Margir menn hafa komist mjög
langt án þess að vera heilsteyptir eða
neitt sérstaklega klárir heldur," segir
hann. Sjálfur segist hann hafa verið
algjörlega ómótaður þegar hann lauk
námi.“
Þar sem Ólafur Jóhann verður
mikið á flakki milli New York og
Kaliforniu næstu mánuöi hafa þau
hjónin ákveðið að taka sér íbúð á
leigu þar einnig. Anna kann betur
við sig í Kaliforníu, þar sem hún
hafði eignast marga vini, og Ólafur
segir að hún geti ráðið á hvorum
staðnum hún búi. „Ég verð hvort eð
er til skiptis hér í New York og í
Kalifomíu næstu mánuði," segir
hann.
Skammsýni
helsta meinsemdin
í sland á hug þeirra líka og þau segja
engin jól vera nema heima. „Ég fer
alltaf í rjúpurnar hennar mömmu og
hangikjötið," segir Ólafur. „Auk þess
reyni ég að skreppa heim á tveggja
mánaða fresti.“
Ólafur segir að Skandinavía og þar
með ísland séu lítið dæmi fyrir Sony.
„Þeir mættu standa sig betur heima,"
segir hann. „Heima selja þeir vörur
frá helsta samkeppnisaðila Sony í
sömu verslun, Panasonic. Markaður-
inn er bara svo lítill þannig að það
er skiljanlegt."
Bandaríski fiármálaheimurinn er
harður. Ólafur segist standa utan við
þann heim. „Það borgar sig ekki að
vera samtvinnaður honum. Það eru
svo miklar sviptingar í þessum heimi
og ef maður ætlaði að láta hjartað slá
í takt við Wall Street þá lifði maður
nú ekki lengi. Meginmismunur á jap-
önskum og bandarískum fyrirtækj-
um er sá að bandarísk fyrirtæki
þurfa að gera skil á þriggja mánaða
fresti á veltu og hagnaði sem veldur
því að menn hér er of skammsýnir,
hugsa ekki til lengri tíma. Japanir
hugsa hins vegar lengra fram í tím-
ann og þess vegna eru þeir jafnsterk-
ir og raun ber vitni. Japanir eru til í
að láta deildir tapa peningum í nokk-
ur ár ef þeir trúa því að peningarnir
skili sér síðar. Helsta meinsemd í
amerísku viðskiptalífi er skammsýni.
Það er mikið talað um að Japanir séu
að yfirtaka amerískt viðskiptalíf en
Ameríkumenn eru ríkasta þjóðin
ennþá og það er margt gott hérna.
Háskólar í Bandaríkjunum eru til
dæmis mjög góðir,“ segir Ólafur Jó-
hann.
Óþolinmæði
helsti kosturinn
Skjótur frami Ólafs Jóhanns hjá
Sony fyrirtækinu hefur komið mörg-
um á óvart. Hann segist aldrei hugsa
um þannig hluti og hann hafi ekkert
sóst eftir þessum óvænta frama. Þó
þarf vissan metnað. „Maður verður
að vera tilbúinn að gera hluti sem
öðrum mundi líka illa ef maður telur
þá rétta og vera tilbúinn til að láta
reka sig daginn eftir. Ákveðið kæru-
leysi er nauðsynlegt. Mig langaði
reyndar alltaf að flytja til New York
og táka þátt í staifseminni hér en
bjóst aldrei við að það yrði svo
fljótt."
Forstjóri Sony, Michael Schulhof,
sagði í viðtali við amerísk blöð fyrir
stuttu að Ólafur Jóhann væri sá
maður sem hann myndi treysta í for-
stjórastöðu fyrirtækisins. Ólafur seg-
ir hins vegar að þessi sami maður sé
sá sem haldi í sig hjá fyrirtækinu.
„Hann er klárasti bisnessmaður sem
ég hef hitt. Hann hefur stóran heila
og hjarta með samvisku. Það er
skemmtilegt að vinna með honum
enda er þetta maður sem lætur hlut-
ina ganga á stundinni. Einhver sagði
við hann að það versta við mig væri
hversu óþolinmóður ég væri. Hann
taldi það minn helsta kost enda erum
við líklega .jafnóþohnmóðir. Þessi
maður er einn af færustu forstjórum
í bandarísku viðskiptalífi. Hann stóð
m.a. fyrir kaupunum á CBS og síðan
Colombía. Schulhof er stjama í viö-
skiptalífinu hér um þessar mundir.
Hann er gyðingur, eðlisfræðingur og