Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1990, Page 25

Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1990, Page 25
(-> | í h JuÁuHAOjÁJ LAUGARDAGUR 31. MARS .L990. 33 einn yngsti maður í sínu starfi í Bandaríkjunum, 57 ára.“ Kynntust í laugunum Anna hefur ekki sagt mikið yfir kvöldverðinum. Þau kynntust upp- haflega í Sundlaug vesturbæjar en þá var Ólafur á öðru ári í háskóla- námi í Boston og var í sumarfríi heima. Anna vann í Landsbankanum þetta sumar en Ólafur Jóhann í gömlu mjólkurstöðinni. Anna segist hafa verið búin að fylgjast lengi með honum í laugunum áður en hún gat fundið sér upp erindi til að eiga orða- stað við hann. Anna fylgdi honum stuttu síðar til Bandaríkjanna þar sem þau hafa nú dvalið saman í sex ár. Hún sér lítið af Ólafi um þessar mundir og segir að jafnvel á næturn- ar hringi síminn - þá frá Japan. Ólafur Jóhann hefur trú á að í framtíðinni muni þau eiga heimili bæði í Bandaríkjunum og á íslandi. „Við erum mikið á ferðinni miili New York og Kaliforníu, flugtíminn er styttri til íslands þannig að ég gæti vel ímyndað mér að við ættum eftir að búa á báðum stöðum,“ segir hann. Þau eru barnlaus enn sem komið er en aðstoðarforstjórinn hefur hug á að eignast sex börn minnst. „Við mundum kannski frekar vilja ala upp börn á íslandi," segir hann. „Án þess að vera að fordæma þá langar mig nú ekki að eignast Kana,“ heldur hann áfram og brosir. „Ég er viss um að það er vel hægt að ala upp börn á íslandi og vera hér líka.“ Anna hrist- ir höfuðið og segir: „Bjartsýnn." Fær mörg atvinnutilboð Ólafur Jóhann segist ekki sjá fram á breytingar hjá sér í starfi. Hins vegar skortir hann ekki vinnutilboð- in. „Hér er stétt manna sem kölluð er hausaveiðarar „Head Hunters“ og þeir sjá um að þjóða mönnum störf hjá hinum og þessum fyrirtækjum. Slíkum boðum er farið að fjölga hjá mér allnokkuð en ég hef ekki áhuga á að breyta til. Ætli ég fái ekki tilboð vikulega frá hinum og þessum fyrir- tækjum.“ Ólafur Jóhann fær auk þess margar símhringingar frá viðskiptamönnum á íslandi sem vilja leita álits eða fá ráðleggingar. „Ég reyni að hjálpa þessum mönnum eftir bestu getu,“ segir Ólafur Jóhann. „Þeir spyija hvernig þeir eigi að snúa sér í hinum margvíslegustu málefnum - hvernig Ameríkumenn fari að og hvernig hægt sé aö komast inn á markaðinn hér. Þetta eru menn í ýmsum við- skiptum heima og hjá mörgum stór- fyrirtækjum." Ólafur Jóhann segist hafa fengið mjög gott uppeldi í föðurhúsum. „Ég lenti aldrei í neins konar sálarþreng- ingurn," segir hann. „íslendingar kynnast hinu daglega lífi mjög snemma sem er mjög gott. Menn verða alltaf að þora að taka áhættu og ég er nokkuð bíræfinn í því. Ég hef oft tekið áhættu og það hefur gengið upp hingað t±L.“ Mikill prakkari Fótbolti var áhugamál Ólafs á yngri árum og hann var mikill KR-ingur. „Ég ólst upp á Suðurgötu og við strákarnir lékum fótbolta í garðinum hjá heildverslun Péturs Péturssonar sem á þakkir skildar fyrir að skipta um rúður þegar við brutum þær. Ætli ég hafi ekki verið snarbrjálað barn. í barnaskóla var ég t.d. oft rek- inn úr tíma. Annars er ég mjög þakk- látur barnaskólakennaranum sem rak mig úr tímum. Hún sagði að ég væri mikill fyrir mér en það væri ekkert illt í mér,“ segir Ólafur Jó- hann og hlær. „Það var að minnsta kosti engin mannvonska," bætir hann við. Faðir Ólafs Jóhanns og nafni, Ólaf- ur Jóhann Sigurðsson rithöfundur, sem nú er látinn, kenndi syninum lestur löngu áður en hann fór í skóla. „Ég er mjög gamaldags að mörgu leyti enda voru foreldrar mínir vel yfir fertugt þegar þeir eignuðust mig,“ segir Ólafur og fullyröir að í honum hafi alla tíð búið prakkari þrátt fyrir allt. „Maður verður að passa sig á því að hta ekki út eins og uppstoppaður bisnesskarl. Ég geri oft Olafur Jóhann Ólafsson er aðeins 27 ára en er engu að síður orðinn aðstoðarforstjóri hjá stórfyrirtækinu Sony í Bandaríkjunum. Hér er hann fyrir utan skrifstofuhús Sony sem er kirfilega merkt númer 9 með appelsínulitum stórum staf á gangstéttinni. í því að stríða kunningjum mínum svolítið." Mikill lestrarhestur Anna bætir nú inn í samræðurnar að Ólafur Jóhann sé ótrúlegur lestr- arhestur og setjist helst aldrei niður nema með bók í hendi. „Svo les hann svo hratt,“ segir hún. „Hann opnar bók og þá er hún búin og svo þá næstu og hún er búin. Enda er fólk farið að gera grín að lestraráráttu hans,“ segir hún. Ólafur segist nú hafa áhuga á fleiri hlutum svo sem tennis, listum, rauðum vínum sem hann safnar, og hann er sælkeri á mat. Reyndar fer hann svo oft út að borða með viðskiptavinum að þjón- arnir í veitingahúsinu Windows on the World, sem staðsett er í World Trade Center og þykir einn fínasti veitingastaður í New York, eru vel kunnugir honum. Og Mr. Ólafsson fær bestu þjónustu. Þegar þau eru spurð um sameigin- leg áhugamál líta þau hvort á annað og hlæja. „Engin,“ segir Anna. Þau segjast aldrei ræða viðskipti heima fyrir og Ólafur segist hafa það fyrir reglu að ræða þau heldur ekki við kunningja. Oft kemst hann þó ekki hjá því vegna áhuga viðstaddra, sér- staklega í samkvæmum, segja þau. „Ég hef engu að síður mjög gaman af minni vinnu. Það skiptir mestu máli að mér og forstjóranum kemur mjög vel saman. Ef hann færi frá Sony myndi ég hætta." Ný bók í smíðum Ólafur Jóhann hefur ekki haft mik- inn tíma fyrir ritstörfin undanfarið. Engu að síður er hann byrjaður á bók sem á að koma út fyrir jólin 1991. „Hún er ólík fyrri bók minni. Reynd- ar gerist hún hér en einnig í Dan- mörku. Sögumaður er kominn á sjö- tugsaldur. Viðskipti koma þar við sögu og margt annað líka. Það er hægt að lesa bækur á margvíslegan hátt en þær þurfa að koma einhverju róti á hugsunina. Mér finnst hafa borið við hjá íslenskum rithöfundum að skrifa bækur sem ekki eru læsileg- ar. íslendingar eru á eftir aö þessu leyti. Menn halda að vegna þess að bókin sé ólæsileg þá sé hún gáfuleg. Mín skoðun er sú að fólk á að skilja sem það les og hafa skemmtun af í leiðinni." Þess má geta að Ólafur Jó- hann skrifar bækur sínar ekki á tölvu heldur á blað með blekpenna. Það verður ekki sagt um aðstoðar- forstjóra Sony að hann sé stressaður þrátt fyrir mikil umsvif. Raunar geislar hann af léttleika og býr yfir miklum húmor. „Menn verða að ganga í gegnum lífið og hafa gaman að því,“ segir hann. „Ég tek þessu með hæfilegu kæruleysi en ákveðni. Líklegast er ég mjög þrjóskur en reyni að ná samstöðu um þau mál sem ég vil ná fram. Mér gengur vel að semja við Japani og yfirleitt eru það þeir sem styðja mínar ákvarðan- ir þó Bandaríkjamenn standi á móti þeim. Ég nenni aldrei að standa í hasar eða hamagangi. Mér finnst það líka mikilsvert að umgangast alla starfsmenn jafnt hvort sem það er sá sem skúrar eða hinn sem stjórnar. Ekkert fer meira í taugarnar á mér en þegar yfirmenn tala niður til starfsmanna sinna,“ segir Ólafur Jó- hann. I/ Sex milljónir á mánuði í laun Starfssvið Ólafs er að færast meira út í kvikmyndaþátt fyrirtækisins en Sony er að undirbúa miklar breyting- ar er varða sjónvarp. Hugmyndin er sú að fólk geti fengið mynd, sem er verið að frumsýna, beint á sjónvarps- kjáinn í gegnum gervitungl. Hug- myndin er svipuð og hjá Sky Chann- el í Evrópu. Þá er mikil þróun í geisla- spilurum. Myndbönd færast yfir á diska áður en langt um líður og hægt verður að taka upp tónlist um leið og hún er spiluð. Það verður allt á geisladiskum áður en langt um líð- ur,“ segir Ólafur. „Það er margt í þróun, allt í fullum gangi." Ólafur Jóhann er kominn á kaf í viðskipta- málin en þau eru of flókin til að skýra út í þessu viðtali. Sjálfsagt eru margir forvitnir að vita hvað forstjóri í Bandaríkjunum hefur í laun á mánuði. Ólafur Jóhann er ekki tilbúinn að gefa upp sín laun en segir að meöallaun í shku starfi sé um sex milljónir íslenskra króna á mánuði. „Peningar skipta mig engu,“ segir Ólafur Jóhann. „Hvaða máli skiptir þó maöur hafi góð laun á þrítugsaldri. Að mínu mati er eftir- sóknarveröast í lífinu að skilja eitt- hvað eftir sig. Ég mun skilja meira eftir mig í bókum en í viðskiptaheim- inum,“ segir Ólafur Jóhann ðlafsson, aðstoðarforstjóri Sony í Bandaríkj- unum. Þegar helgarblaðiö heimsótti hann á skrifstofu hans daginn eftir kom í ljós að hún er uppi á 43. hæð og aðstoðarforstjórinn horfir yfir Central Park eins og hann leggur sig beintúrskrifborðsstólnum. -ELA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.