Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1990, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1990, Blaðsíða 29
LAUGARDAGUR 31. MARS 1990. 37 J3V Handbolti unglinga Spennandi keppni í 4. flokki karla lokið - úrslitin réðust á markatölu Um síðustu helgi fóru fram úrslitin í 4. flokki karla. Það er óhætt segja að tvísýnni úrslitakeppni hefur ekki verið leikin í langan tíma hér á landi og sem dæmi varð FH íslandsmeist- ari á markatölu. Það voru Valsmenn sem sóttu um að fá að halda þessa úrslitakeppni í minningu féíaga síns, Magnúsar Blöndal, sem lést á síöasta ári. Valsmenn stóðu mjög vel að framkvæmd keppninnar og eiga þeir þakkir skildar fyrir. FH íslandsmeistari Eins og áður sagði varð FH íslands- meistari eftir mikla baráttu við Stjörnuna, Þór Ak. og Val sem veriö hafa ósigrandi í allan vetur. FH vann alla leiki sína á mótinu nema tvo sem enduðu með jafntefli. FH gerði jafn- tefli við Stjörnuna, 12-12, og við Val, 10-10. FH-ingar fengu því 12 stig. Stjarnan fékk einnig 12 stig en liðið gerði jafntefli við FH eins og áður sagði og jafnefli við Val, 10-10. Markatala þeirra var hins vegar lak- ari en FH-inga og lenti Stjarnan því í 2. sæti sem verður að teljast mjög góður árangur. Þór Ak. hafnaði í 3. sæti og kom árangur þeirra nokkuð á óvart og má segja aö þeir hafi komið mest á óvart allra liða í keppninni. Liðið tapaði aðeins tveim leikjum - á móti Stjörnunni, 19-16, og á móti FH, 12-9. Valsmenn, sem hafa verið ó- sigrandi í allan vetur, höfnuðu í 4. sæti. Þessi úrslit hljóta að hafa verið mikil vonbrigði fyrir liðið en svona Valsmenn urðu að sætta sig við 4. sætið að þessu sinni en liðið hefur verið ósigrandi í vetur. Hér skorar það eitt marka sinna á móti Reyni, Sandg. FH tryggði sér Islandsmeistaratitilinn í 4. flokki karla með sigri á Þór Ak. í síðasta leiknum á mótinu. Hér er eitt marka FH í uppsiglingu. er handboltinn, ekkert er öruggt fyr- irfram. Valur fékk 10 stig, jafnmörg og Þór Ak., en Þór vann innbyrðis- viðureign þessara liða. Týr Ve. varð í 5. sæti með 6 stig og stóðu sig ágætlega en herslumun- inn vantaði hjá þeim i nokkrum leikj- um og þess vegna varð liðið ekki ofar. KR hafnaði í 6. sæti og fékk liðið 3 stig. Reynir, Sandg., fékk 2 stig og hafnaði í 7. sæti og Víkingar ráku lestina að þessu sinni fengu aðeins 1 stig. Að móti loknu var verðlaunaaf- hending og veittu Valsmenn auka- verðlaun til leikmanna sem þóttu hafa skarað fram úr. Verðlaun þessi voru veitt til minningar um Magnús Blöndal en þess má geta að hann þjálfaöi einmitt 4. flokk Vals í upp- hafl þessa keppnistímabils. Besti leikmaður mótsins var valinn Ari Allansson, Val. Besti markvörðurinn var valinn Jónas Stefánsson, FH. Besti sóknarmaðurinn var valinn Arnar Pétursson, Týr Ve. og besti varnarmaðurinn var valinn Viðar Erlingsson, Stjörnunni. Þar með lauk skemmtilegu íslands- móti í 4. flokki karla. Heimaliðið best í Eyjum - ÍBV íslandsmeistari í 4. flokld kvenna Leikmenn ÍBV komu mjög ákveðnir til leiks í úrslitatörninni. DV-mynd Ómar Úrslitakeppni 4. flokks kvenna fór fram í Vestmannaeyjum um síðustu helgi og var hart barist í öllum leikj- um átta bestu liðanna í þessum ald- ursflokki. Fyrirfram var búist við að Haukar Umsjón: Heimir Ríkarðsson og Brynjar Stefánsson og Fram, sem höfðu unnið deildar- keppnirnar fyrr um veturinn, yrðu í tveimur efstu sætunum en annað átti eftir að koma á daginn. Lið ÍBV kom sterkt til leiks á heimavelli og tapaði ekki leik að þessu sinni. Sterk vörn Eyjastúlkna lagði grunninn að sigri þeirra en andstæðingarnir áttu í hinum mestu erfiðleikum með aö finna leið að marki þeirra. Baráttan um efstu sætin stóö á milli ÍBV, Hauka og KR, sem kom mjög á óvart um þessa helgi. Leikur ÍBV og KR var fyrir margra hluta sakir mjög athyglisverður, en bæði höin mættu mjög ákveðin til leiks og léku frábæran varnarleik allan leik- inn. Endaði leikurinn með sigri ÍBV, 3-2, eftir að staðan í hálfleik hafði verið, 2-1, þeim í vil. Mest spennandi leikur úrslitatarn- arinnar aö þessu sinni var án efa viöureign ÍBV og Hauka enda reynd- ist það vera úrslitaviðureignin. Mikil taugaspenna var í leikmönnum beggja liða og nokkuð um mistök í sóknarleik liðanna. Varnarleikur þeirra var hins vegar nokkuð hnökralaus og skiptust liðin á að skora. Skemmtileg viðureign þessara liða endaði með sanngjörnu jafntefli, 6-6. Þetta var eina stigið sem ÍBV tapaði í úrshtunum á meðan Haukar töpuðu fyrir Gróttu, 9-10, og FH, 10-12, og þar meö hafði ÍBV tryggt sér íslandsmeistaratitilinn í 4. flokki kvenna 1990. Keppnin um næstu sætin var mjög spennandi. Haukastúlkurnar tryggðu sér silfurverðlaunin að þessu sinni með stórsigri á helstu andstæðingum sinum, KR, 11-5. Þrátt fyrir þetta tap geta KR-stúlk- urnar vel við unað en þriðja sætið féll þeim í skaut. Grótta varð í fjórða sæti en Gróttu- stúlkurnar töpuðu fyrir KR, ÍBV og Fram naumlega en unnu aðra leiki sína. í fimmta sæti varð lið FH og' Fram varð í sjötta sæti. Þessi lið tryggðu sér rétt til aö leika í 1. deild í upphafi næsta keppnistímabils en Víkingur, sem varð í sjöunda sætinu, og UBK, sem hafði ekki erindi sem erfiði um þessa helgi og tapaði öllum leikjum sínum, hefja keppni í 2. deild. Vel var staðið að umsjón hjá ÍBV og brydduöu umsjónararaöilar upp á þeirri nýbreytni að heiðra nokkra leikmenn að loknu móti. Besti leik- maður mótsins var valinn Brynja Steinsen, KR, og besti markmaður var Laufey Jörgensen, ÍBV. Markahæstar í úrslitatörninni voru þær Margrét Bjarnadóttir, Fram, og Elísabet Sveinsdóttir, UBK. Víkingar með yfirburði - í úrslitum 2. flokks kvenna Víkingar urðu Islandsmeistarar í 2. fiokki kvenna er úrslitatömin fór fram í Garðabæ um síöustu helgi. Víkingar unnu alla leiki sina öragglega enda hafa Víkingsstúlk- urnar sýnt það og sannað í leikjum sínum í vetur að þær hafa umtals- verða yfirburði yfir aðra andstæð- inga sína. Urslitaleikur keppninnar að þessu sinni stóð á milli Víkings og Sfjömunnar en bæði þessi hð hafa á að skipa mjög góðum hóp leik- manna sem hafa leikiö lengi sam- an. Víkingar voru ávallt fyrri til að skora i leik þessara höa Stjarnan hleypti Víkingi aldrei langt frá sér. I hálfleik var jafnt, 4-4, en fljótlega upp úr miðjum seinni hálfleik náðu Víkingsstúlk- urnar tveggja marka forastu sem Sfjarnan náði ekki að ógna. Endaði leikur þessara liða með sanngjörn- um sigri Víkings, 10-8. Leikmenn KR komu mjög á óvart í þessari úrslitatörn en hð þeirra er nær eingöngu skipað leikmömi- um úr 3. flokki. KR tryggöi sér silf- urverðlaunin með því að bera sig- urorð af Stjörnunni, 10-8, og þá gerði KR-hðið einnig jafntefli við Gróttu, sem lenti í fjórða sæti, 12-12. Stjarnan varð aö gera sér þriðja sætið að góðu að þessu sinni en Stjörnustúlkumar era vanar keppninni viö Víkmg í þessum ald- ursflokki en óvanar því að láta önnur lið skjótast upp fyrir sig, eins og KR geröi að þessu sinni. Grótta og í síðustu umferð og tryggðu KR-stúlkurnar sér þar með annað sætið að þessu sinni. ÍBK hlaut fimmta sætiö með því að vinna Fram, Hauka og FH en FII tryggöi sér sjötta sætiö með sigri á Fram og Haukum. FH byrjar því í 1. deild á næsta ári en Fram og Haukar sem urðu i tveimur neðstu sætunum hefja keppni í 2. deild.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.