Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1990, Síða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1990, Síða 30
38 LAUGARDAGUR 31. MARS 1990. Lífsstíll Þrándheimur Reykjavík 1 Þórshöfn 7' Helsinki 9° tóhólmur 12° Glasgow Kaupmannahöfn 13' imborg 10' Berlín 9 Luxemborg 13 S- Barcelona 0 ^^Mallorca 15 Malaga 15° -^x* Algarve 16°/CI Heifiskfrt Wjnnipeg 2' Lénskýjaö Hálfskýjafi Chicago 3 Skýjafi Atlanta 8 Aiskýjaö Los Angeles 12° lOrlando 20’ DVJRJ Snjókoma Þmmuvefiur Rigning V Skúrir Með bíl og tjald: Frjáls eins og fuglinn - ferðast um Evrópu Þaö er mun ódýrari kostur aö fara meö eigin bíi og tjaldvagn eöa tjald á vit hins óþekkta á tjaldstæðum Evrópu heldur en að gista á hótelum eða í heimagistingu. Þar er líka hægt að njóta þess að vera í tjaldi sem trauðla er hægt á íslandi, jafnvel ekki yíir hlýjustu sumarmánuðina vegna kulda og trekks. Það er hins vegar mun stað- virðrasamara víða í Evrópu og því betur hægt að njóta útilegunnar, það er jafnvel hægt að stóla á að það sé hægt að grilla úti alla daga án þess aö þurfa að byrja á því að finna skjól- sæla gjótu eða eiga það á hættu að það rigni á steikina. Það er sem sagt hægt að njóta þess að nota útiieguút- búnaðinn. Svo fylgir því ákveöið ferðafrelsi að þurfa ekki að vera bú- inn að panta eða ofskipuleggja ferða- lagið fyrirfram. Það er hægt að dvelja eins lengi á hverju tjaldsvæði og hver vill og ekki þárf að panta fy rirfram. Ferðir Tvær leiðir Það eru tvær leiðir til þess að fara með eigin bíl úr landi og tjaldvagn, annars vegar með færeysku far- þegaferjunni Norrænu eða með foss- um Eimskipafélagsins, Laxfossi eða Brúarfossi. Viðkomustaðir fossanna eru í Reykjavík, Immingham á Englandi, Hamborg í Þýskalandi og Antwerpen í Belgíu. Norræna siglir hins vegar frá Seyð- isfirði til Færeyja, Danmerkur, Nor- egs og Shetlandseyja. Svo er að sjálfsögðu hægt að kaupa Veðrið í útlöndum HITASTIG IGRÁÐUM -10 laagra HH Otll-S 1 tlls S11110 11 til 15 16 til 20 20 tii 25 Byggt á veðurfréttum Veöurstofu Islands kl. 12 á hádegl, föstudag pakkann flug og bíl og taka tjaldið og viðleguútbúnaðinn með sér út. Góð þjónusta Það er víða hægt að finna tjald- stæði og þau eru merkt inn á öll vega- kort og á hraðbrautunum eru greini- legar merkingar sem sýna hvar næsta tjaldstæði er að finna. Yfirleitt er ekki langt á milli þeirra. Auk þess er hægt að fá upplýsingar um tjald- stæði á upplýsingaskrifstofum fyrir ferðamenn og á feraðskrifstofum. Tjaldstæðin eru flest mjög vel úr garði gerð. Þar eru þjónustumið- stöðvar þar sem hægt er að þvo þvott, öll hreinlætisaðstaða er fyrir hendi og matvöruverslanir eru gjarnan staðsettar í nágrenninu, brauðbúðir og jafnvel góðir veitinga- staðir. Tjaldstæðin eru öruggir staðir. Þau eru afgirt og þar eru öryggisverðir á vakt sem eiga að sjá til þess að ekki séu aðrir á ferð um tjaldsvæðin en þeir sem þar búa á hverjum tíma. Það er fremur ódýrt að gista á tjald- svæðum í Skandinavíu, meðalverð fyrir fjölskyldu er á milli 900 og 1000 krónur nóttin, sem er miklu ódýrara en að gista á hótelum. Á mörgum tjaldsvæðum er sömu- leiðis að finna góða leikaðstöðu fyrir börn, leikvelli og í Danmörku er á flestum tjaldstæðum hægt að leigja reiðhjól. Flakkað að vild Það er því hægt að vera frjáls eins fog fuglinn með því að taka bílinn með í fríið og tjaldið eða tjaldvagn- inn. Þaö er hægt að flakka á milli tjaldstæða að vild, það eina sem fólk þarf í raun og veru að hafa í huga er að þegar skipt er um tjaldstæði að það borgar sig að finna nýjan næturstaö áður en haldiö er í skoð- unarferðir eða í bæjarferðir því það getur verið erfiðleikum háð að finna bílastæði ef fólk er að dragnast með tjaldvagna aftan í bílunum inni í borgum og bæjum. Tjaldað undir stóru tré. DV-myndir GVA Aðstaða á tjaldsvæðunum er yfirleitt mjög góð. I gönguferð um Frankfurt Það eru ófáir íslendingar sem sækja Frankfurt heim á hverju ári og njóta þess sem borgin hefur upp á að bjóða. Vinsæll þýskur rithöfundur, sem búiö hefur í Frankfurt um áratuga skeið, Horst Krúger, komst svo að orði í tímaritsgrein nýlega að borgin væri loksins komin af gelgjuskeiðinu og orðin fullorðin. Þetta er hverju orði sannara. Frankfurt var nær ger- eyðilögð í seinni heimsstyijöldinni. Uppbyggingin að henni lokinni hefur verið fremur hröö og virðist sem margar götur og hverfi borgarinnar hafi byggst upp án þess að nokkur gerði kröfur um samræmi, stíl eða aðlaðandi umhverfi. Af þessum sök- um fékk Frankfurt heldur slæmt orð á sig, bæði erlendis og meðal Þjóð- verja sem sögðu aö þetta væri kulda- leg og óaðlaöandi iðnaðarborg. Svona var málum komið í lok sjö- unda áratugarins en þá fóru hlutirn- ir heldur betur að breytast. Um leið og borgarbúar hófust handa við að komast í nánari tengsl við sögu borg- arinnar og endurbyggja hús, sem eyðilögðust í stríðinu, fóru fram- sæknir arkitektar að teikna mið- borgina upp á nýtt frá allt öðru sjón- arhorni. Fram á þennan dag hefur hver skýjakljúfurinn af öðrum risið á bökkum Main-árinnar og ber nú flestum saman um að vel hafi til tek- ist. í því sambandi má til dæmis benda á glæsibyggingu Þýska bank ans Die Deutsche Bank. Á síðustu árum hefur jafnframt verið lagt kapp á að fjölga grænum svæðum í Frank- furt. Um leið gerðist það að menning- unni var gert hærra undir höfði, kaffihúsum og veitingastöðum hefur fjölgað og svona mætti lengi halda áfram að telja. Við skulum fara i stuttan göngutúr um miðbæinn og hefjum fórina vð Gömlu óperuna, Die alte Oper. Þessi gamla og virðulega bygging var tekin aftur í notkun árið 1981 eftir gagnger- ar endurbætur eftir eyðileggingu heimsstyrjaldarinnar síðari. Þarna eru ekki bara fluttar óperur. Húsið var þannig innréttað að unnt er að hafa þar menningarviðburði af öðr- um toga eins og sirkus eða leikhús, popþhljómleika sem sinfóníutón- leika, ráðstefnur og grímudansleiki og er hér aðeins fátt eitt nefnt. Frá óperunni er ekki nema spölkorn í Fressgrass. Hvort sem litið er til hægri eða vinstri má segja að í hverju húsi sé annaöhvort veitingastaður eða sælkeraverslun af einhverju tagi. Sá sem á leið um Fressgrass verður ósjálfrátt svangur. Fyrr en varir er Fressgrass á enda og leiðin liggur niöur á Haupwache sem er torgið sem allar leiðir liggja til í Frankfurt. Á vinstri hönd tekur við aðalverslunargatan í Frankfurt, Die Zeil. Um hana er stöðugur straumur fólks frá morgni til kvölds. Héðan er ekki nema um fimm mín- útna gangur niður á Römertorg, en það færir okkur heim sanninn uin að hversu mikð sem endurbygging gömlu húsanna þar kostaði hafi þetta framtak margborgað sig enda borg- arbúar stoltir af þessu torgi sínu þar sem þýsku keisararnir voru krýndir til forna. Við getum fetað í fótspor þeirra og gengið aðeins lengra og þá komum við til dómkirkjunnar en þar er meðal annars hægt að skoða Krýn- ingarkapelluna. Það er skrýtiö að vera staddur á Römertorgi miðju og virða fyrri sér hin fornu hús og hins vegar þessa aðlaðandi skýjakljúfa sem setja nú orðið hvað mestan svip á miðborgina.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.