Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1990, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1990, Side 3
FÖSTUDAGUR 4: MAÍ 1990. 3 Fréttir Skúll Alexandersson 1 slag viö þingflokk Alþýðubandalagsins: Meinað að tala í eldhúsdagsumræðunum - Stefán Valgeirsson bauð honum að tala í sínum tíma en Skúli hafnaði því Til mikilla átaka kom milli Skúla Alexanderssonar, þingmanns AI- þýðubandalagsins á Vesturlandi, og þingflokks Alþýðubandalagsins við umræður um kvótafrumvarpið í efri deild í fyrrinótt. Þessi átök héldu síð- an áfram í gær. Skúli hefur algera sérstöðu í þingflokknum í kvótamál- inu og þess vegna fór hann fram á það að fá að tala fyrir hönd flokksins í eldhúsdagsumræðunum í gær- kveldi. Eftir langar og strangar við- ræður við ráðherra flokksins var þessari ósk Skúla hafnað. Þá bauð Stefán Valgeirsson, þing- maður Samtaka um jafnrétti og fé- lagshyggju, Skúla að tala í hluta af sínum ræðutima. Þessu boði hafnaði Skúli hins vegar. En hvers vegna? „Mér þótti sem ég gengi of langt við að sýna fram á slæm vinnubrögð þingflokks Alþýðubandalagsins í sambandi við kvótafrumvarpiö með því að fara að tala um þau í ræðutíma annars þingflokks í eldhúsdagsum- ræðu,“ sagði Skúh. Hann var þá spurður hvort hann teldi sér sætt áfram í þingflokknum eftir þau átök sem áttu sér staö milli hans og ráðherranna og raunar for- manns þingflokksins Uka í gær og fyrrinótt. Skáksamband íslands: Skipt um for- seta á næsta aðalfundi „Ég hef tilkynnt mínum samstarfs- mönnum að ég gefi ekki kost á mér til endurkjörs sem forseti Skáksam- bands íslands, á þingi þess 19. maí næstkomandi," sagði Einar S. Ein- arsson, forseti SÍ í samtali við DV. Hann tók við formennsku aftur í Skáksambandinu fyrir ári síðan. Einar sagði að ýmsar ástæður lægju til þess að hann gæfi ekki kost á sér áfram. Hann sagðist í fyrsta lagi hafa litið svo á þegar hann tók að sér formennskuna í fyrra að það væri aðeins til bráðabirgða. Önnur' ástæðan og ekki veigaminni væri sú' að hann hefði mjög mikið að gera sem forstjóri VISA á íslandi. Taflfélag Reykjavíkur er lang- stærsta og áhrifamesta félagið innan Skáksambands íslands. Jón G. Briem, formaður TR, sagði að ekki lægi ljóst fyrir hver tæki við af Ein- ari S. Einarssyni. Ýmsir hefðu verið nefndir en enginn hefði enn sam- þykkt að taka starfið að sér. Að sögn Einars S. er fjárhagur Skáksambandsins slæmur. Þar kem- ur bæði til að tap varð á skákmótun- um tveimur, sem haldin voru hér í vetur, og einnig hitt að nýja hús- næðið við Faxafen hefur verið sam- bandinu mjög dýrt og erfitt. Skák- sambandið hefur ekki fengið þá fyr- irgreiðslu sem vonast var eftir frá ríkinu og ekki heldur fengið krónu úr félagsheimilasjóði. Þá hefur DV heimildir fyrir því að nokkrir samstarfsörðugleikar hafi verið innan stjórnar Skáksambands íslands síðasta starfsár. Einar S. þyk- ir nokkuð einráður og fer oft sínar eigin leiðir og lætuf menn standa frammi fyrir gerðum hlut. Þessu hafa menn innan stjómar Skáksam- bandsins ekki viljað una og all marg- ir þeirra lýstu því yfir að þeir hefðu ekki stutt Einar áfram í stöðu forseta Skáksambands íslands, ef hann hefði gefið kost á sér áfram. -S.dór „Ég ætla ekki að gera þeim það til geðs að segja mig úr þingflokknum. Ég ætla aldeilis ekki að draga mig inn í einhverja skel í kvótamálinu. Öðru nær. Það var ekki ég sem brást í af- stöðunni til kvótafrumvarpsins held- ur þingflokkurinn. Ég var kjörinn af þingflokknum til aö taka sæti í ráðgjafanefndinni um kvótafrumvarpið. Þangað fór ég með fast ákveðnar samþykktir þing- flokksins og vann allan tímann sam- kvæmt þeim. Ég skrifaði svo undir frumvarpsdrögin með fyrirvara og gerði sérstaka bókun þar um. Þetta þótti ráðherrum Alþýðubandalags- ins ekki nóg og samþykktu í þing- flokknum aðra bókun enn harðorð- ari en mín var. Ég var sáttur við þetta. Síðan gerist ekkert fyrr en í apríl að ýmsar nýjar tillögur komu fram, meðal annars frá Alþýðuflokknum á síðustu stundu. Þær tillögur voru strax teknar til umræðu í ríkisstjórn en okkar tillögur voru aldrei ræddar. Síðan verður lendingin sú að engin af okkar kröfum náði fram að ganga en þessar furðulegu tillögur um úr- eldingarsjóðinn teknar inn. Og þetta lætur þingflokkurinn bjóða sér. Er nema von að maður sé ósáttur við svona vinnubrögð og vilji skýra frá þeim,“ sagði Skúh Alexandersson. -S.dór

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.