Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1990, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 1990.
5
Fréttir
Sýni úr Sauðár-
krókstunnun-
um til Árósa
- niöurstööur væntanlegar í næstu viku
Sýni úr tunnunum 28 sem grafnar
voru upp við Steinullarverksmiðj-
una á Sauðárkróki fyrir skömmu
voru send út til dönsku iðntækni-
stofnunarinnar í Árósum í gær.
Að sögn Ólafs Péturssonar, efna-
verkfræðings hjá Hollustuvernd rík-
isins, eru tunnurnar sjálfar ennþá í
vörslu Steinullarverksmiðjunnar.
Hann sagði að ekki stafaði hætta af
þeim þar sem þær eru geymdar
núna. Þær tunnur sem í eru fljótandi
efni bíða eftir að verða sendar utan
til eyðingar.
Guðjón Jónsson, forstöðumaður
efnatæknisviðs Iðntæknistofnunar,
sagði að gert sé ráð fyrir að niður-
stöður greiningar sýnanna í Árósum
berist í næstu viku. Þrenns konar
sýni voru send utan til greiningar.
„Það hefði verið of kostnaðarsamt
og tímafrekt að forvinna rannsókn á
sýnunum hérlendis. Þess vegna var
sá kostur valinn að senda þau til
Danmerkur. Það hefði verið mun
dýrara og erfiðara að láta greina efn-
in hérlendis," sagði Guðjón í samtali
viðDV. -ÓTT
Árni Baldursson heldur á 7 punda urriða úr Rangánum, þeim stærsta úr
ánum það sem af er veiðitimabilinu. DV-mynd Hallgrimur
Góð veiði í Geirlandsá
„Veiðin gekk ágætlega, það veidd-
ust 34 fiskar er Vatnamótin voru
opnuð, sá stærsti var 9 pund,“ sagði
tíðindamaður okkar á árbakkanum
og bætti við: „Það var kominn tími
til að opna, menn héldu þetta ekki
út lengur."
„Við vorum um helgina í Vatna-
mótum og veiddum vel á fyrsta hálfa
deginum, fengum 12 stykki, en síðan
uðru það miklir vatnavextir að það
varð óveiðandi,“ sagði Þórhallur
Guöjónsson, formaður Stangaveiði-
félags Keflavíkur, í gærdag. „í Vatna-
mótum hafa veiöst um 60 flskar. í
Geirlandsá hefur veiðin verið verið
góð og eru komnir nokkrir vænir,
einn 12 punda og fáeinir 10 punda.
Þeir fengu 17 í Geirlandsá á sama
tíma og við veiddum 12 í Vatnamót-
unum,“ sagði hann ennfremur.
„Veiðin hefur gengið rólega enda
hefur verið kalt, ætli það séu ekki
komnir á milli 35 og 40 fiskar,“ sagði
Ægir Þorgilsson á Hellu er viö spurð-
um frétta af Rangánum. „Stærsti
fiskurinn er 7 pund. Vonandi fer veð-
urfarið að batna og fiskurinn að
taka,“ sagði Ægir.
„Það hefur verið reytingsveiði í
Þorleifslæknum, engin mokveiði. Ég
fékk fjóra fiska þegar ég fór og sá
nokkra væna,“ sagði veiðimaður
sem var að koma úr læknum í vik-
unni. -G.Bender
Dagmæöur á ísafirði:
Varaðar við hertum
aðgerðum skattstjóra
Helga Guörún, DV, feafiröi:
í síðustu viku sendi skrifstofa skatt-
stjórans í Vestfjarðaumdæmi félags-
málastjóranum á ísaflrði, Guðjóni
Brjánssyni, fyrirspurn um það hverj-
ir hafi leyfi til að taka aö sér pössun
á börnum í heimahúsum. Óskað var
eftir upplýsingum um greiðslur ísa-
íjarðarkaupstaðar til dagmæöra og
beðið var um nöfn, kennitölur og
fjölda barna í umsjá hverrar dag-
móður. Félagsmálastjórinn svaraði
bréfi skattstjóra og upplýsti að ísa-
fjarðarkaupstaður greiðir starfandi
dagmæðrum á ísafiröi ekki laun.
„Hins vegar hefur það fyrirkomulag
gilt um nokkurt skeið að bæjarsjóður
niðurgreiði þjónustu dagmæðra til
foreldra í forgangshópi", segir í bréf-
inu til skattstjóra.
Sama dag og umrætt bréf félags-
málastjóra til skattstjóra var dagsett,
þ.e. 25. apríl sl„ sendi félagsmála-
stjóri dagmæðrum bréf þar sem hann
varar þær við mögulegum aðgerðum
skattstjóra. Þar segir hann meðal
annars: „Samkvæmt laganna bókstaf
eru dagmæðralaun skattskyldar
tekjur. Það er hins vegar alkunna að
dægmæður um land allt hafa ekki
þurft að hafa af þessu áhyggjur. Það
er ekki ljóst á þessu stigi livað veldur
því að skattstjórinn í þessu umdæmi
hefur frumkvæði að hertu eftirliti
með skattheimtu af dagmæðraþjón-
ustu því ekki hafa borist fregnir um
svipaðar aðgerðir annars staðar frá.
í framhaldi af þessu bréfi mínu er
mögulegt að þið fáið einhverjar fyrir-
spurnir frá skattstjóra, þótt engin
vissa sé fyrir því. Ef til vill lætur
embættið þetta nægja um sinn,“ seg-
ir Guðjón Brjánsson, félagsmála-
stjóri á ísafirði, í bréfi sínu til dag-
mæðra.
bortfarstiói Auglýsing um narkosninsfar í Revkiavík
laugardaginn 26. maí 1990.
ÞESSIR LISTAR ERU í KJÖRI: B-LISTI, BORINN FRAM AF FRAMSÓKNARFLOKKI. 1. Sigrún Magnúsdóttir. 11. Hafdís Harðardóttir. 21. Steinunn Þórhallsdóttir.
2. Alfreð Þorsteinsson. 12. Þór Jakobsson. 22. Einar Bogi Sigurðsson.
3. Hallur Magnússon. 13. Edda Kjartansdóttir. 23. Sigriður Jóhannsdóttir.
4. Áslaug Brynjólfsdóttir. 14. Sveinn Grétar Jónsson. 24. Anna Huld Óskarsdóttir.
5. Ösk Aradóttir. 15. Höskuldur B. Erlingsson. 25. Eyþór Björgvinsson.
6. Sigurður Ingólfsson. 16. Guðrún Einarsdóttir. 26. Helgi Hjartarson.
7. Margeir Daníelsson. 17. Gunnþóra Ónundardóttir. 27. Örnólfur Thorlacius.
8. Arnþrúður Karlsdóttir. 18. Kristján Andri Stefánsson. 28. Þrúður Helgadóttir.
9. Anna Kristinsdóttir. 19. Steingerður Gunnarsdóttir. 29. Steinunn Finnbogadóttir.
10. Þorsteinn Kári Bjarnason. 20. Magni Ólafsson. 30. Haraldur Ólafsson.
D-LISTI, BORINN FRAM AF SJÁLFSTÆÐISFLOKKI.
1. Davíð Oddsson. 11. Jóna Gróa Sigurðardóttir. 21. Ragnar Júliusson.
2. Magnús L. Sveinsson. 12. Hilmar Guðlaugsson. 22. Inga Dóra Sigfúsdóttir.
3. Katrin Fjeldsted. 13. Hulda Valtýsdóttir. 23. Haraldur Andri Haraldsson.
4. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson. 14. Guðmundur Hallvarðsson. 24. Helga Bachmann.
5. Anna K. Jónsdóttir. 15. Margrét Theodórsdóttir. 25. Pétur Hannesson.
6. Árni Sigfússon. 16. Haraldur Blöndal. 26. Áslaug Friðriksdóttir.
7. Júlíus Hafstein. 17. Ólafur F. Magnússon. 27. Þórir Stephensen.
8. Páll Gíslason. 18. Sigriður Sigurðardóttir. 28. Jónas Bjarnason.
9. Guðrún Zoega. 19. Katrín Gunnarsdóttir. 29. Ingibjörg J. Rafnar.
10. Sveinn Andri Sveinsson. 20. Ingólfur S. Sveinsson. 30. Geir Hallgrímsson.
G-LISTI, BORINN FRAM AF ALÞÝÐUBANDALAGI. 1. Sigurjón Pétursson. 11. Elin Þ. Snædal. 21. Monika M. Karlsdóttir.
2. Guðrún Ágústsdóttir. 12. Hulda S. Ólafsdóttir. 22. Arnar Guðmundsson.
3. Guðrún Kristjana Óladóttir. 13. Hildigunnur Haraldsdóttir. 23. Sigrún Valbergsdóttir.
4. Ástráður Haraldsson. 14. Kolbrún Vigfúsdóttir. 24. Sigurbjörg Gisladóttir.
5. Stefanía Traustadóttir. 15. Einar D. Bragason. 25. Þorbjörn Broddason.
6. Einar Gunnarsson. 16. Soffia Sigurðardóttir. 26. Stefán Karlsson.
7. Gunnlaugur Júliusson. 17. Nanna Dröfn Sigurdórsdóttir. 27. Ida Ingólfsdóttir.
8. Guðrún Sigurjónsdóttir. 18. Sigþrúður Gunnarsdóttir. 28. Guðmundur Þ. Jónsson.
9. Páll Valdimarsson. 19. Guðrún Ása Grimsdóttir. 29. Tryggvi Emilsson.
10. Valgerður Eiriksdóttir. 20. Ólafur Jensson. 30. Adda Bára Sigfúsdóttir.
H-LISTI, BORINN FRAM AF NÝJUM VETTVANGI. 1. Olína Þorvarðardóttir. 11. Sigurður Rúnar Magnússon. 21. Halldóra Jónsdóttir.
2. Kristín Á. Ólafsdóttir. 12. Ásbjörn Morthens. 22. Kristin B. Jóhannsdóttir.
3. Bjarni P. Magnússon. 13. Rut L. Magnússon. 23. Haraldur Finnsson.
4. Guðrún Jónsdóttir. 14. Reynir Ingibjartsson. 24. Vilhjálmur Árnason.
5. Hrafn Jökulsson. 15. Helgi Björnsson. 25. Skjöldur Þorgrimsson.
6. Ásgeir Hannes Eiríksson. 16. Árni Indriðason. 26. Guðrún Ómarsdóttir.
7. Gísli Helgason. 17. Aðalheiður Fransdóttir. 27. Ragnheiður Daviðsdóttir.
8. Aðalsteinn Hallsson. 18. Björn Einarsson. 28. Magnús H. Magnússon.
9. Pálmi Gestsson. 19. Kristrún Guðmundsdóttir. 29. Magnús Torfi Ólafsson.
'10. Kristín Dýrfjörð Birgisdóttir. 20. Gunnar H. Gunnarsson. 30. Guðrún Jónsdóttir.
M-LISTI, BORINN FRAM AF FLOKKI MANNSINS.
1. Áshildur Jónsdóttir. 11. Steinunn Pétursdóttir. 21. Sigurbergur M. Ólafsson.
2. Sigríður Hulda Richards. 12. Stígrún Ása Ásmundsdóttir. 22. Freydis Jóna Freysteinsdóttir.
3. Halldóra Pálsdóttir. 13. Brynjar Ágústsson. 23. Jóhanna Dögg Pétursdóttir.
4. Friðrik Vaígeir Guðmundsson. 14. Ásbjörn Sveinbjörnsson. 24. Hrannar Jónsson.
5. Einar Leo Erlingsson. 15. Guðmundína Ingadóttir. 25. Sigurbjörg Ása Óskarsdóttir.
6. Sigurður Sveinsson. 16. Margrét Gunnlaugsdóttir. 26. Anton Jóhannesson.
7. Guðmundur Garðar Guðmundsson. 17. Elísabet Rósenkarsdóttir. 27. Ásvaldur Kristjánsson.
8. Svanhildur Oskarsdóttir. 18. Tryggvi Kristinsson. 28. Skúli Pálsson.
9. Guðmundur Sigurðsson. 19. Sigrún Baldvinsdöttir. 29. Elin Þórhallsdóttir.
10. Aslaug 0. Harðardóttir. 20. Jóhanna Eyþórsdóttir. 30. Erling St. Huldarsson.
V-LISTI, BORINN FRAM AF KVENNALISTA. 1. Elín G. Ólafsdóttir. 11. Hulda Ólafsdóttir. 21. Sigrún Sigurðardóttir.
2. Guðrún Ögmundsdóttir. 12. Bryndís Brandsdóttir. 22. Sigrún Agústsdóttir.
3. Ingibjörg Hafstað. 13. Elin Guðmundsdóttir. 23. Helga Thorberg.
4. Elin Vigdis Ólafsdóttir. 14. Stella Hauksdóttir. 24. Sigríður Lillý Baldursdóttir.
5. Margrét Sæmundsdóttir. 15. Guðrún Agnarsdóttir. 25. Borghildur Maack.
6. Hólmfríður Garðarsdóttir. 16. Hólmfríður Árnadóttir. 26. Magdalena Schram.
7. Guðrún Erla Geirsdóttir. 17. Kristín Jónsdóttir. 27. Sigriður Dúna Kristmundsd.
8. Helga Tuliníus. 18. Guðný Guðbjörnsdóttir. 28. Kristín Ástgeirsdóttir.
9. Kristin A. Árnadóttir. 19. María Jóhanna Lárusdóttir. 29. Laufey Jakobsdóttir.
10. Ina Gissurardóttir. 20. Málhildur Sigurbjörnsdóttir. 30. Ingibjörg Sólrún Gisladóttir.
Z-LISTI, BORINN FRAM AF GRÆNU FRAMBOÐI. 1. Kjartan Jónsson. 11. Anna M. Birgisdóttir. 21. Björn Steindórsson.
2. Óskar D. Ólafsson. 12. Sigurður B. Sigurðsson. 22. Halldór Carlsson.
3. Gunnar Vilhelmsson. 13. Þór Ó. Víkingsson. 23. Sigurður Ó. Gunnarsson.
4. Sigrún M. Kristinsdóttir. 14. Guðrún Ólafsdóttir. 24. Máni Svansson.
5. Sigurður Þ. Sveinsson. 15. Jón G. Daviðsson. 25. Fríða Jónsdóttir.
6. Sigríður E. Júllusdóttir. 16. Bjarni Hákonarson. 26. Jóhannes K. Kristjánsson.
7. Metúsalem Þórisson. 17. Ingunn Arnardóttir. 27. Kristvin J. Sveinsson.
8. Guðmundur Þórarinsson. 18. Ásgeir Sigurðsson. 28. Íris B. Smáradóttir.
9. Árni Ingólfsson. 19. Birna Tómasdóttir. 29. Sigurður Bragason.
10. Sigurður M. Grétarsson. 20. Stefán Bjargmundsson. 30. Olafur R. Dýrmundsson.
Kjörfundur hefst kl . 9.00 árdegis og lýkur honum kl. 11.00 síðdegis.
Yfirkjörstjórnin hefur á kjördegi aðsetur í kennarastofu Austurbæjarskólans.
Yfirkjörstjórnin í Reykjavík, 2. maí 1990. Guðmundur Vignir Jósefsson. Helgi V. Jónsson. Guðríður Þorsteinsdóttir.