Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1990, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1990, Blaðsíða 26
34 FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 1990. LífsstíU /f===h PAPRIKA Hagkaup Bónus 450 599 GURKUR Mlkllgaróur Bónus 95 149 TÓMATAR Hagkaup Bónus ll 410 585 SVEPPIR Nóatún Mlkllgaróur I I I 418 549 VINBER Mlkllgaróur Nóatún ■ I 275 425 Paprikur er nú hægt að fá í fimm litum, gulum, appelsínugulum, rauðum, grænum og fjólubláum, en verðið fer ákaflega mikið eftir litnum. DV kannar grænmetismarkaðinn: Paprika lækk- ar í verði Það er lítil hreyfing á grænmetis- markaðnum í þessari viku og meðal- verð á flestum tegundum grænmetis er mjög svipað og það hefur verið, þó örlítið lægra á sumum. Verð á papriku hefur lækkað um 8% frá því í síðustu viku, en einnig hafa sveppir lækkað um 14%. Ber þó að taka sveppaverðinu með nokk- urri varúð því þeir fást ekki alls stað- ar. Það var Hagkaup sem var með hæsta verðið á grænu paprikunni eða 599 krónur kílóið, en ódýrust var paprikan í Bónus sem seldi paprik- una á uni 450 krónur, þar munar því 33%. Meðalverð var 509 krónur. Græna paprikan var ákaflega mis- falleg. Sums staðar virtist hún alveg fersk og ekki hægt að sjá neitt at- hugavert við hana, en annars staðar var hún orðin fremur slöpp. Ódýrustu tómatana var einnig að finna í Bónus, en þar kostaði kílóið 410 krónur, þar sem þeir voru seldir i 1/2 kg pokum. Dýrustu tómatarnir voru í Hagkaup á 585 krónur, en þeir voru einnig mjög fallegir og girnileg- ir, alveg mátulega þroskaðir og stór- Sparigrís vikunnar: Verslunin BÓNUS ir. Verðmunur er í þessu tilviki því 43%. Bónus átti einnig vinninginn er kom að gúrkunum en þeir selja kíló- ið á 95 krónur. Mikligarður kom dýr- astur út með kílóið á 149 krónur, eða 57% dýrari. Um 31% verðmunur var á svepp- unum. Eins og áður sagði voru þeir ekki til alls staðar og t.d. er Bónus yfirleitt ekki með sveppi eða vínber. Þar sem þeir fengust aftur á móti voru þeir dýrastir í Nóatúni, á 549 krónur, en ódýrastir í Miklagaröi á 418 krónur. Sveppirnir í Nóatúni voru þó alveg einstaklega fallegir, af góðri stærð og ljósir. Það munar 55% á dýrustu og ódýr- ustu vínberjunum í þessari viku. Þau ódýrustu fengust í Nóatúni á 275 krónur, en dýrust voru þau í Mikla- garði á 425 krónur. Það er enn sama sagan að grænu vínberm eru heldur ræfilsleg og dökkblettótt og er þá nægtum sama hvar niður er borið. Aftur á móti má nú víða fmna virki- lega góð blá vínber, bæði stór og bragðgóð. í Hagkaupum voru bláu vínberin á 339 krónur, í Miklagarði á 534 krónur og í Fjarðarkaupum á 350. Bónus býður lægsta veröið á kart- öflum, eða á 61,60 krónu kílóið fyrir fimm kílóa poka. Nóatún býður næst best með þriggja kílóa poka á 249, eða 83 krónur kílóið. Flestir eru þó með tveggja kílóa pokana frá Ágæti á 243, - en Hagkaup selur einnig fimm kílóa poka á 445 krónur eða 89 krónur kíló- ið. -GHK Sértilboð og afsláttur: TVeggja lítra Fanta á 75 krónur Það er af sem áður var er það tíðk- aðist ekki aö selja vörur á tilboðs- verði. Nú á tímum keppast verslanir við að hafa sértilboð til að kynna ein- hverja ákveðna vöru og þar með auka sölumöguleika hennar. Sér- staklega kemur þetta sér vel þegar ný vara er á markaðnum en þá snýst allt um að kynna hana sem best fyr- ir tilvonandi kúnnum. Eins og fyrri daginn eru fjöldamörg tilboð í gangi í flestum verslunum bæjarins. í Bónus er hægt að fá tveggja lítra Fanta á 75 krónur. Þetta hljóta að teljast gífurlega góð kaup þegar litið er á þá staðreynd að í sjálfsölum kostar Fantadós, 33 cl, yfirleitt 70 krónur. í sömu verslun er einnig hægt að fá þrjú kíló af Sparr þvottaefni á 264 krónur, Bugles pakka á 119 krónur og heildós af Falani ferskjum á 79 krónur. Hagkaup býður nú upp á SS osta- og grillpylsur á 159 krónur, Wasa rískökur á 106 krónur pakkann, Ma Ling sveppi á 106 krónur dósina og aspas frá sama fyrirtæki á 99 krónur. I nokkurn tíma hefur talsvert verið gert af því að setja rauða æpandi miða á ýmsar tegundir af áleggi með orðinu „ódýrt“. Að gefnu tilefni skal fólki bent á að láta ekki glepjast strax heldur/ muna að bera alltaf saman kílóverð á áleggi. „Ódýra“ áleggið gæti verið jafndýrt og ef til vill dýr- ara en áleggið við hhðina sem ekki á athygli manns vísa. -GHK Tómatar Verð í krónum 1 Sveppir Vínber «

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.