Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1990, Blaðsíða 25
FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 1990.
33
Afmæli
Jóhann Ágústsson
Jóhann Agústsson, aöstoðar-
bankastjóri Landsbankans, Fífu-
hvammi 7, Kópavogi, er sextugur í
dag. Jóhann er fæddur í Reykjavík
og ólst þar upp í foreldrahúsum.
Hann lauk gagnfræðaprófi frá
Gagnfræðaskóla Reykjavíkur 1948,
var í bankanámi og frönskunámi í
Institut du Pantheon í París 1952-
1953 og starfsmaður Scandinavian
Bank í London 1974-1975. Jóhann
hóf störf í Landsbanka íslands í
febrúar 1949 og hefur unnið þar
síðan í ýmsum deildum bankans.
Hann varð fulltrúi gjaldeyrisdeild-
ar 1959, deildarstjóri þar 1960, úti-
bússtjóri í Austurbæjarútibúi í
nokkur ár, starfsmannastjóri um
skeið, síðan framkvæmdastjóri af-
greiðslusviðs og hefur verið aðstoð-
arbankastjóri sl. tvö ár. Jóhann
hefur starfað mikið í Frímúrara-
reglunni, sat lengi í stjóm Alliance
Francaise í Reykjavík og hefur
starfað í Lionshreyfmgunni í tíu ár.
Jóhann kvæntist 29. ágúst 1952
SvöluMagnúsdóttur, f. 15. sept-
ember 1933. Foreldrar Svölu eru:
Magnús Jóhannesson, yfirfram-
færslufulltrúi í Reykjavík, en hann
er látinn, og kona hans, Fríða Jó-
hannsdóttir. Jóhann og Svala eiga
þrjú börn. Þau eru Magnús Valur,
f. 2. desember 1954, verkfræðingur
hjá Vegagerð ríkisins, kvæntur
Bjarnveigu Ingvarsdóttur og eiga
þau þrjú börn; Guðmundur Örn, f.
23. desember 1960, markaðsstjóri
hjá Stöð 2, kvæntur írisi Gunnars-
dóttur og eiga þau eina dóttur; Sól-
veig Fríða, f. 30. nóvember 1972,
menntaskólanemi í foreldrahús-
um. Systkini Jóhanns eru Hörður
myndlistarmaður; Kristín hús-
móðir í Bandaríkjunum og Erla,
starfsmaður hjá Flugleiðum í
Reykjavík.
Foreldrar Jóhanns eru: Ágúst
Markússon, f. 30. júlí 1891, d. 30.
desember 1965, veggfóðrarameist-
ari í Rvík, og kona hans, Guðrún
Guðmundsdóttir, f. 4. júlí 1893, d.
27. september 1947. Föðurbróðir
Jóhanns er Karl, afi Markúsar
Arnar Antonssonar útvarpsstjóra.
Ágúst var sonur Markúsar, söðla-
smiðs í Rvík, bróður Guðlaugs, afa
Andrésar Gestssonar nuddara,
Óskars Jónssonar fræðimanns og
langafa Víglundar Þorsteinssonar,
formanns Félags íslenskra iðnrek-
enda. Markús var sonur Þorsteins,
b. í Gröf í Hrunamannahreppi,
bróður Jóns, langafa Þorsteins Ein-
Jóhann Ágústsson.
arssonar íþróttafulltrúa. Þorsteinn
var sonur Jóns, b. á Högnastöðum,
Jónssonar, ættfóður Högnastaða-
ættarinnar. Móðir Markúsar var
Guðrún, systir Ingibjargar,
langömmu Eðvarðs Sigurðssonar
alþingismanns. Guðrún er dóttir
Jóns, b. í Galtafelli, Björnssonar,
b. í Vorsabæ, Högnasonar, lög-
réttumanns á Laugarvatni, Björns-
sonar, bróður Sigríðar, móður
Finns Jónssonar biskups. Móðir
Jóns var Bryngerður Knútsdóttir,
systir Sigríðar, ömmu Tómasar
Guðmundssonar skálds og Hann-
esar þjóðskjalavarðar og Þorsteins
hagstofustjóra Þorsteinssona.
Móðir Guðrúnar var Guðrún Guð-
mundsdóttir, prests í Hruna,
Magnússonar, prests á Þingvöllum,
Sæmundssonar, prests í Miklabæ,
Magnússonar, b. í Bræðratungu,
Sigurðssonar. Móðir Sæmundar
var Þórdís Jónsdóttir (Snæfríður
íslandssól). Móðir Ágústs var Jó-
hanna Sveinbjörnsdóttir, b. í Ási,
Jónssonar, og konu hans, Kristínar
Einarsdóttur, systir Ingveldar,
langömmu Steinþórs Gestssonar
alþingismanns.
Móðursystir Jóhanns er Andrea,
amma Kristjáns Oddssonar, fram-
kvæmdastjóra íslandsbanka. Guð-
rún var dóttir Guðmundar, veit-
ingamanns í Rvík, bróður Guð-
mundar, langafa Jóhanns Hjartar-
sonar stórmeistara. Guðmundur
var sonur Ámunda, b. á Sandlæk í
Gnúpverjahreppi, Guðmundsson-
ar og konu hans, Guðríðar Guð-
mundsdóttur, b. í Langholti,
Björnssonar. Móðir Guðríðar var
Guðrún Ámundadóttir, smiðs og
málara í Syðra-Langholti og vefara
í Innréttingunum í Rvík, Jónsson-
ar. Móðir Guðrúnar Guðmunds-
dóttur var Kristín, systir Magnús-
ar, afa Stefáns Péturssonar, aðstoð-
arbankastjóra Landsbankans.
Kristín var dóttir Andrésar, b. og
hreppstjóra í Syðra-Langholti í
Hrunamannahreppi, Magnússon-
ar, alþingismanns í Syðra-Lang-
holti, Andréssonar, langafa Ás-
mundar Guðmundssonar biskups
og Sigríðar, móður Ólafs Skúlason-
ar biskups. Móðir Magnúsar var
Margrét Ólafsdóttir, b. á Efra-Seli,
Magnússonar og konu hans, Mar-
ínar Guðmundsdóttur, b. á Kóps-
vatni, Þorsteinssonar, ættfoður
Kópsvatnsættarinnar. Móðir
Andrésar var Katrín Eiríksdóttir,
b. og dbrm. á Reykjum á Skeiðum,
Vigfússonar, ættföður Reykjaætt-
arinnar, langafa Sigurgeirs Sig-
urðssonar biskups, föður Péturs
biskups. Móðir Katrínar var Ing-
unn Eiríksdóttir, b. í Bolholti, Jóns-
sonar, ættföður Bolholtsættarinn-
ar, langafa Páls, langafa Björns
Líndals, aðstoðarbankastjóra
Landsbankans. Þau hjónin taka á
móti gestum í Akoges-salnum í Sig-
túni 3, Reykjavík, á afmæhsdaginn,
föstudaginn 4.5. milli klukkan 17
og 19:00.
Kristín Friðriksdóttir
Kristín Friðriksdóttir, húsfreyja frá
Rauðhálsi í Mýrdal, er áttatíu ára í
dag.
Kristín var húsfreyja aö Norður-
Hvoli í Mýrdal 1929-72 en þá flutti
hún að Laugardælum í Flóa og það-
an á Kirkjuveg 8 á Selfossi.
Kristín giftist 30.11.1929 Kristjáni
Bjarnasyni, b. að Norður-Hvoli.
Börn Kristinar og Kristjáns eru
Bjarni, f. 1929, vélaverkfræðingur
og rektor Tækniskóla íslands,
kvæntur Snjólaugu Bruun húsmóð-
ur; Elínhorg, f. 1930, húsmóðir, gift
Baldri E. Jóhannessyni mælinga-
verkfræðingi; Ester, f. 1931, hjúkr-
unarkona á Akureyri, gift Bjarna
Gestssyni vélgæslumanni; Friörik,
f.1932, löggiltur rafverktaki í
Reykjavík, kvæntur Auði Sigurðar-
dóttur húsmóður; Magnús, f. 1938,
skrifstofustjóri Búnaðarbanka ís-
lands í Vík í Mýrdal, kvæntur Thor-
dis A. Kristjánsson húsmóður; Þór-
arinn, f. 1945, framkvæmdastjóri á
Akureyri, kvæntur Guðrúnu Hall-
grímsdóttur; Sigríður Kristín, f.
1946, húsmóðir í Reykjavík, og Sig-
urður, f. 1951, búsettur í Svíþjóð,'
kvæntur Ölfu Hjaltalín
Systkini Kristínar eru Vigfús, f.
1897, vinnumaður á Rauðhálsi; Sig-
urður, f. 1898, útgerðarmaður í Vest-
mannaeyjum; Þorbergur, f. 1899,
skipstjóri á Sviða; Oddsteinn, f. 1903,
útgerðarmaður í Vestmannaeyjum;
Árþóra, f. 1904, húsfreyja á Borg í
Stykkishólmi; Högni, f. 1907, sjó-
maður í Vestmannaeyjum; Sigríður,
f. 1908, húsfreyja í Vestmannaeyj-
um, nú í Reykjavík; Ólafur, f.1911,
umsjónarmaður Gagnfræðaskólans
á Selfossi; Ragnheiður, f. 1912, hús-
freyja í Vestmannaeyjum; Þórunn,
f. 1901, húsfreyja í Vestmannaeyj-
um; Ragnhildur, f. 1902, húsfreyja í
Vestmannaeyjum; Þórhallur, f.
1913, smiður og kennari í Skógum
undir Austur-Eyjaflöllum, og Þór-
halla, f. 1915, húsfreyja í Kópavogi.
Foreldrar Kristínar voru Friðrik
Vigfússon, b. á Rauðhálsi, og kona
hans, Þórunn Sigríður Oddsdóttir,
húsfreyja frá Pétursey.
Meðal föðursystkina Kristínar eru
Elsa, straukona í Skólastræti 5,
Reykjavík, Þorbergur Halldór, for-
sætisráðherra á eyju í Kyrrahafinu;
Helga, húsfreyja á Bergstaðastræti
26, átti Jóhannes Jónsson, trésmið
í Kvöldúlfi hf„ frá Deildartungu.
Meðal móðursystkina Kristínar
eru Sigurður, skipstjóri og hafn-
sögumaður í Reykjavík, átti Herdísi
Jónsdóttur frá Skipholti í Hruna-
mannahreppi; Jón, trésmiður í
Reykjavík, átti Jórunni Guömunds-
dóttur húsfreyju, og Guðrún, hús-
freyja á Ránargötu 32, Reykjavík,
átti Kristinn Einarsson skútuskip-
stjóra.
Friðkrik var sonur Vigfúsar, óð-
alsb. á Ytri-Sólheimum í Mýrdal
Þórarinssonar og konu hans, Þór-
dísar Berentsdóttur, óðalsb. á Ytri-
Sólheimum, Sveinssonar, og konu
hans, Helgu Þórðardóttur, prófasts
á Felli í Mýrdal, Brynjólfssonar, b.
í Skipagerði í Landeyjum, Guð-
mundssonar. Faðir Vigfúsar er Þór-
arinn Eyjólfsson frá Mörtungu, b. á
Seljalandi í Fljótshverfi, Þórarins-
sonar. Kona Þórarins á Seljalandi
er Guðríður Eyjólfsdóttir, b. á Ytri-
Sólheimum, Alexanderssonar, föð-
urbróður Berents Sveinssonar.
Fyrri kona Eyjólfs og móðir Guðríð-
ar á Seljalandi er Gauðríður Sigurð-
Kristín Friðriksdóttir.
ardóttir, prests í Eystri-Ásum,
Högnasonar, prófasts og staðar-
haldara á Breiðabólstað í Fljótshlíð
(Presta-Högna) Sigurðssonar.
Móðir Kristínar, Þórunn Sigríður
er dóttir Odds Jónssonar frá Jóns-
húsi í Vestmannaeyjum og konu
hans, Steinunnar Sigurðardóttur,
húsfreyju frá Kaldrananesi, Eyjólfs-
sonar, Þorsteinssonar í Breiðuhlíð.
Kona Eyjólfs í Breiðuhlíð var Ólöf,
systir Guðríðar á Seljalandi.
Jóhanna J. Thorlacius
Jóhanna J. Thorlacius, deildar-
stjóri á Vistheimilinu á Vífilsstöð-
um, Markarflöt 3, Garðabæ, er
fimmtugídag.
Jóhanna fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp í austurbænum. Hún
lauk námi við Hjúkrunarskóla ís-
lands 1962, varhjúkrunarfræðing-
ur við Landspítalann ööru hvoru
frá 1962-66, við Kleppsspítalann frá
1966 og í nokkur ár skólahjúkruna-
rfræðingur við Flataskóla í
Garðabæ en hefur sl. tólf ár starfað
á Vistheimilinu á V ífilsstöðum.
Jóhanna giftist 20.4.1961 Ólafi Þ.
Thorlaciusi, deildarstjóra við Sjó-
mælingar Islands, f. 21.10.1936, en
hann er sonur Guðna Thorlaciusar
skipstjóra, sem lést 1975, og Mar-
grétar Ó. Thorlaciusar, húsmóður
íReykjavík.
Börn Jóhönnu og Ólafs eru Mar-
Jóhanna J. Thorlacius.
grét Ó. Thorlacius, f. 10.11.1961,
hjúkrunarfræðingur og nemi í
Ljósmæðraskólanum, búsett í
Garðabæ, gift Heimi Kristinssyni,
f. 1960, og eiga þau tvö börn, Heiðu
Lind, f. 1986 og Kristin Bjarna, f.
1987; Sigríður E. Thorlacius, f. 8.8.
1963, stúdent og flugfreyja hjá Flug-
leiðum, búsett í Garðabæ, gift Við-
ari Magnússyni, f. 1960 og eiga þau
einn son, Ólaf Th. Viðarsson, f.
1987; Þórdís Thorlacius, f. 8.9.1964,
stúdent og nemi í fataiðn, í foreldr-
ahúsum, og Theodóra Thorlacius,
f. 24.5.1974, nemi í Garðaskóla.
Bróðir Jóhönnu er Þorkell Jó-
hannesson, f. 23.3.1934, búsettur í
Garðabæ, kvæntur Veru Thómas-
dóttur og eiga þau tvö börn, Thóm-
as Þorkelsson og Önnu Þorkels-
dóttur.
Foreldrar Jóhönnu: Jóhannes
Zoega Magnússon, f. 7.4.1907, d.
13.1.1957, prentsmiðjustjóri í Al-
þýðuprentsmiðjunni í Reykjavík,
og Sigríður E. Þorkelsdóttir, f. 27.6.
1909, húsmóðir.
Snjólfur Fanndal
Snjólfur Fanndal framkvæmda
stjóri, Mýrarseli 7, Reykjavík, er
fimmtugur í dag, 4. maí. Hann og
kona hans, Erla Ingimundardóttir,
taka á móti gestum í veitingahúsinu
Glæsibæ milh klukkan 17 og 19:00 á
afmælisdaginn.
Úrval, ódýrara en áður
Náið í eintak strax
Urval, tímarit
Snjólfur Fanndal.
Til hammgju meö
afmæliö 4. maí
85ára
Sveinsína Aðalsteinsdóttir,
Reykjavegi 80, Mosfellsbæ.
80 ára
Jón Bjarnason,
Austurbyggð 17, Akureyri.
Sveinn Gamalíelsson,
Kópavogsbraut 20, Kópavogi,
70 ára
Ríkharður Gestsson,
Bakkagerði, Svarfaðardalshreppi.
Mekkín Guðnadóttir,
Möðruvallarstræti 7, Akureyri.
StefánG. Svavars,
Álfheimum 36, Reykjavík.
60ára
Þorgerður Sveinsdóttir,
Jörundarholti 206, Akranesi.
50ára
GuðriðurÞórarinsdóttir,
Hvassaleiti 153, Reykjavík.
Sigmar Björnsson,
Mánasundi 1, Grindavík.
40ára
Sæmundur Valtýsson,
Hæðargerði 33, Reyðarfirði.
Örn Þór Einarsson,
Litlagerði 13, Hvolhreppi.
Jón Ingimundarson,
Núpi, Öxarfiarðarhreppi.
Petrína Bára Árnadóttir,
Faxabraut 12, Keflavík.
Björn B. Berthelsen,
Miðtúni 7, Tálknafirði.
Sveinn Adolfsson,
Birkiteig 10, Keflavík.
Rúnar Jakobsson,
Norður-Reykjmnll, Mosfellsbæ.
Rósa Emelía Sigurjónsdóttir,
Birkihrauni 2, Skútustaðahreppi.
Una Svava Skjaldardóttir,
Torfufelli 25, Reykjavík.
Hnukur Björnsson,
Hæðargarði 24, Reykjavík.
Kristín Ellen Hauksdóftir,
Sólvöllum 18, Breiðadalshreppi.
Sæmundur Alexandersson,
Heiðarbóli 61, Keflavik.