Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1990, Qupperneq 4
4
FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 1990.
Stjómmál
Spurtá Eskifirði:
Hverju spáir þú um
úrslit kosninganna?
Pétur H. Georgsson: Ég hef trú á að
Sjálfstæðisflokkurinn haidi sínum
þremur mönnum. Ég á ekki von á
verulegum breytingum.
Þórólfur Sverrisson: Sjálfstæðis-
flokkur fær þrjá, Framsókn tvo, Al-
þýðubandalag einn og Alþýðuflokk-
ur einn.
Bára Pétursdóttir: Sjálfstæðisflokk-
ur fær meirihluta.
Sigtryggur Hreggviðsson:' Ég er eng-
inn spámaður. E-listinn breytti
miklu síðast. Hrafnkell má halda vel
utan um þetta ef hann ætlar að ná
fyrra fylgi.
Aðalheiður Ingimundardóttir: Fjöl-
skyldan er í fleiri en einum flokki.
Börnin voru aiin upp við mikið
frjálslyndi - af móöurinni. Ég get því
ekkert sagt svo ég særi engan af
mínu fólki.
Elís Andrésson: Sjálfstæöisflokkur
fær tvo, Framsókn tvo, Alþýðu-
bandalag tvo og kratar einn.
Eskiflörður:
Sjálfstæðismenn skapa
óvissu með sameiningu
Sjálfstæðismenn bjóða fram einn
lista við bæjarstjórnarkosningamar
á Eskifirði. Við síðustu kosningar
voru tveir listar sjálfstæðismanna.
Oddviti þeirra sem buðu fram sér-
lista, Hrafnkell A. Jónsson, er kom-
inn aftur til Sjálfstæðisflokksins. í
síöustu kosningum vann listi Hrafn-
kels stórsigur.
Kjósendur á Eskiflrði eru ekki viss-
ir um aö sjálfstæöismönnum takist
að ná því fylgi sem D-listi og E-listi
fengu í síðustu kosningum. Þó virð-
ast fáir eiga von á miklum breyting-
um.
Fjármál bæjarsjóðs munu vega
þungt í kosningabaráttunni. At-
vinnumál eru ekki eins áberandi og
víða annars staðar. Umhverfis- og
hafnarmál eru Eskfirðingum ofar-
lega í huga. Af samtölum við heima-
menn má búast við að litlar sveiflur
verði í bæjarstjórnarkosningunum
að þessu sinni.
Alþýðuflokkur, Sjálfstæðisflokkur
og Óháðir mynda meirihluta í bæjar-
stjóm Eskifjarðar.
762 eru á kjörskrá á Eskifirði. Karl-
ar eru 387 og konur eru 375.
-sme
Skúli Sigurðsson D-lista:
Ríkissjóður skuldar
okkur 40 milljónir
„Skuldastaða bæjarsjóðs er ekki
góð. Ríkissjóður skuldar okkur 40
milljónir. Ef sú skuld væri frá væri
staðan viðunandi," sagði Skúli Sig-
urðsson sem skipar efsta sæti á fram-
boðslista Sjálfstæðisflokks.
Höfnin er lífæð þessa bæjarfélags
og það þarf að sinna henni. Það ligg-
ur fyrir að setja þurfi 120 metra langt
stálþil fyrir neðan frystihúsiö og inn
að Grjótá. Við smábátahöfnina verða
settar tvær flotbryggjur.
Sorpmálin þarf að leysa og eins að
koma frárennslunum út úr smábáta-
höfninni. Það þarf einnig að laga
umhverfi hafnarinnar. Þá þarf að
steypa þekju á hafskipabryggjuna.
Einnig þarf að halda áfram endur-
bótum á íþróttahúsi, grunnskóla og
leikskóla. Landleysi hefur staðið
okkur fyrir þrifum og því þarf aö
fylla upp við bræðsluna og auka
þannig athafnasvæðið. Það verður
stór og mikil framkvæmd.
Það er margt ógert í æskulýðs- og
íþróttamálum. Útbúa þarf grasvöll.
Þá er heilsugæslustöð aðkallandi
verkefni." -sme
Skúli Sigurðsson skipar efsta sæti á
framboðslista Sjálfstæðisflokks.
Guömundur Þ. Svavarsson A-lista:
Viljum trausta og
ábyrga fjármálastjórn
Guðmundur Þ. Svavarsson skipar
efsta sæti á framboðslista Alþýðu-
flokks.
„Alþýðuflokkurinn vill hafa
trausta og ábyrga fjármálastjórn.
Vegna mikilla og íjárfrekra fram-
kvæmda, svo sem við elliheimilið,
þarf að fara varlega," sagði Guð-
mundur Þ. Svavarsson sem skipar
efsta sæti á framboðslista Alþýðu-
flokks.
„Við viljum lýsa yfir ánægju okkar
með stöðuga atvinnu sem við höfum
búið við. Það þarf að kanna mögu-
leika á að byggja upp vemdaðan
vinnustað fyrir eldra fólk þar sem
allir geta fengið vinnu við sitt hæfi.
Við höfum einnig áhuga á að reisa
iðngaröa og auka þar með möguleika
fyrir smærri iðnað.
í hafnarmálum leggjum við áherslu
á stálþil frá frystihúsinu og inn að
Gijótá. Þá þarf aö auka viðlegupláss
í smábátahöfninni og aö svæöið þar
í kring verði lagfært.
Alþýöuflokkurinn telur að ákvörð-
un um ráðningu tæknifræðings hafi
verið rétt og að það hafi skilað sér í
verklegurh framkvæmdum á vegum
bæjarins. Þaö þarf að gera átak í
umhverfsimálum, íþróttamálum og
byggja þjónustuíbúðir fyrir aldraða.“
-sme
Hjalti Sigurðsson G-lista:
Fjármálin bíða
næstu bæjarstjórnar
„Lausn íjármálavandræðanna bíð-
ur næstu bæjarstjómar. Það veltur
allt á því að okkur takist að komast
út úr þeim vandræðum sem við erum
í. Þó ekki þannig að engar fram-
kvæmdir verði á vegum bæjarins.
Þetta verður að leysa með öðmm
hætti,“ sagði Hjalti Sigurðsson sem
skipar efsta sæti framboðslista Al-
þýðubandalags.
„Það er fyrirliggjandi að byggja
þarf eignaríbúðir fyrir aldraða. Viö
höfum fengið heimild til að byggja
tvo verkamannabústaði og tvær
kaupleiguíbúðir á þessu ári.
Það þarf að klára smábátahöfnina
sem fyrst. Það vantar alla aðstöðu
þar til löndunar. Þetta er fram-
kvæmd sem kostar 3 til 4 milljónir.
Þá þarf að klára frágang gatna og
halda því verki vel áfram.
Við í Alþýðubandalaginu stefnum
að því að fá tvo menn kjörna í bæjar-
stjórn og auka þannig áhrif okkar.
Við erum eina mótvægið gegn íhald-
inuhéráEskifirði." -sme
Hjalti Sigurðsson skipar efsta sæti á
framboðslista Alþýðubandalagsins.
Gísli Benediktsson B-lista:
Koma þarf fjármálunum
í viðunandi horf
Gisli Benediktsson skipar efsta sæti
á framboðslista Framsóknarflokks-
ins.
„Við leggjum fyrst og fremst
áherslu á aö koma fjármálum bæjar-
sjóðs í viöunandi horf. Þau eru kom-
in á hættulegt stig vegna mikillar
skuldasöfnunar. Við framsóknar-
menn höfum varað við skuldasöfn-
uninni en það hefur ekki verið hlust-
að á okkur,“ sagöi Gísli Benediktsson
en hann skipar efsta sæti á framboös-
lista Framsóknarflokksins.
„Góð íjárhagsstaða er forsendan
fyrir blómlegu bæjarlífi. Það þarf að
leggja áherslu á umhverfismál. Þá
sérstaklega hvað varðar sorp.
I hafnarmálum þarf að ganga frá
smábátahöfninni og umhverfi henn-
ar. Gera þarf viðlegukant á næstu
árum. Dvalarheimilið er búiö og nú
þarf að hefja framkvæmdir við bygg-
ingu heilsugæslustöðyar og ljúka því
verki á næstu árum. í íþróttamálum
er margt ógert.
Eskifjörður og Reyðarfjörður þurfa
aö auka samvinnu sín á milli. Ég er
ekki að tala um sameiningu. Það er
hægt að gera margt sameiginlega.
Til dæmis hvað varðar sorp.“
-sme
DV
KOSNINGAR1990
Haukur L Hauksson og Slgurjón Egllsson
ESKIFJÖRÐUR
D
Úrslitin 1986
Alþýðuflokkur fékk 75 atkvæði og
einn mann kjörinn í kosningunum
1986. Höfðu einn áður. Framsóknar-
flokkur fékk 128 atkvæði og tvo menn
kjörna. Hafði tvo áður. Sjálfstæðis-
flokkur fékk 117 atkvæði og einn
mann. Hafði þrjá áður. Óháðir fengu
170 atkvæði og tvo menn. Óháðir
buðu ekki fram 1982. Alþýðubanda-
lag fékk 100 atkvæði og einn mann.
Hafði einn áður. Flokkur mannsins
fékk 21 atkvæði og engan mann.
Þessir voru kjörnir í bæjarstjóm
1986:
Guðmundur Þ. Svavarsson (A), Jón
Ingi Einarsson (B), Gísli Benedikts-
son (B), Skúli Sigurðsson (D), Hrafn-
kell A. Jónsson (E), Þórhallur Þor-
valdsson (E) og Hjalti Sigurðsson (G).
Framboðslisti
Alþýöuflokks:
1. Guðraundur Þ. Svavarsson.
2. Ásbjöm Guðjónsson.
3. Bjamrún K. Haraldsdóttir.
4. Benedikt J. Hilmarsson.
5. Jón Trausti Guðjónsson.
6. Aðalheiður D. Sigurðardóttir.
7. Grétar Rögnvarsson.
8. Sigumrundur Ragnarsson.
9. Magnús Stefánsson.
10. Ema Helgadóttir.
11. Helgi Hálfdánarson.
12. Ari Þórir Hallgrímsson.
13. Magnús Bjamason.
14. Steinn Jónsson.
Framboðslisti
Framsóknarflokks:
1. Gísli Benediktsson.
2. Sigurður Hólm Freysson.
3. Jón Ingi Einarsson.
4. Friögeröur Maríasdóttir.
5. Þorbergur N. Hauksson.
6. Guðni Þór Elísson.
7. Magnús Pétursson.
8. Halldór Jóhannsson.
9. Kristín Lukka Þorvaldsdóttir.
10. Davið Valgeirsson.
11. Jón B. Hlöðversson.
12. Kristín Hreggviðsdóttir.
13. Kristinn Hallgrímsson.
14. Geir Hólm.
Framboðslisti
Sjálfstæðisflokks:
1. Skúli Sigurðsson.
2. Hansína Halldórsdóttir.
3. Hrafnkell A. Jónsson.
4. Andrés Elísson.
5. Úlfar Sigurðsson.
6. Guðrún Karlsdóttir.
7. Svanur Pálsson.
8. Sigriður K. Ingvarsdóttir.
9. Snorri Jónsson.
10. Friðrik Þorvaldsson.
11. Vilhjálmur Bjömsson.
12. Ragnhildur Kristjónsdóttir.
13. Gunnar Gunnarsson.
14. Dagmar Óskarsdóttir.
Famboðslisti
Alþýðubandalags:
1. Hjalti Sigurðsson.
2. Guðrún M. Óladóttir.
3. Elís Andrésson.
4. Ásgeir Hilmar Jónsson.
5. Jómnn Bjarnadóttir.
6. Bragi ÞórhaUsson.
7. Hildur Metúsalemsdóttir.
8. Guðni M. Óskarsson.
9. Bragi Haraldsson.
10. Ásta Svavarsdóttir.
11. Guðni Þór Magnússon.
12. Þorbjörg Eiríksdóttir.
13. Guðjón Bjömsson.
14. Alfreð Guönason.