Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1990, Page 12
12
FÖSTUDAGUR 4. MAf 1990.
Spumingin
í hvaða sæti verður
íslenska lagið I
Evrópusöngvakeppninni?
Anita Ólafsdóttir framreiðslustúlka:
Ég spái því einu af tíu efstu sætun-
um.
Edda Waage verkakona: Ætli það
verði ekki í tólfta sæti.
Helga Björg Jónasar og ísak Már:
Við giskum á það sextánda.
Rósa Jónasar: Ég segi það sama. Er
ekki sextánda sætið langeðlilegast?
Hafdís Ingvarsdóttir nemi: Svona í
8. sæti.
Arnheiður Hlin Guðmundsdóttir
nemi: Mér finnst það eigi að hafna í
3. sæti.
Lesendur
„Forkastanlegt((
flugfélag?
Sigurður Guðmundsson skrifar:
I fréttum Stöðvar 2 sl. miðviku-
dagskvöld mátti heyra haft eftir
fjármálastjóra Flugmálastjómar,
að það væri „forkastanlegt" að
Arnarflug skyldi ekki hafa greitt
flugvallarskatt á réttum tíma.
„Stýran" átti við skatt sem var á
gjalddögum 15. mars og 15. apríl sl.
Það hlýtur að vera rétt og eðlilegt
að opinber starfsmaður eigi fullan
rétt á að hafa „opinberar" skoðanir
á svona löguðu! Arnarflug er fyrir
löngu síðan orðið sérstakt eftirlæti
fjölmiðlanna varðandi fréttaflutn-
ing af erfiðleikum. í því efni eiga,
eins og alkunnugt er, ákveðnir fjöl-
miðlar allan heiður skilinn. Smá-
vegis vandlætingar frá opinberum
embættismanni eru þess vegna
fyllilega skiljanlegar og í anda rétt-
lætis!
Allir vita að íslenskir skattþegn-
ar, fyrirtæki og einstakhngar eiga
sérdeilis góða tíma um þessar
mundir. Skattbyrði er léttari hér
en á sjálfum Norðurlöndunum.
Smjör drýpur af hverju strái og
allir em að gera það gott - nema
klaufar eins og Amarflugsmenn.
Eða er það ekki?
Eftir fréttum að dæma hefur Am-
arflug þá sérstöðu meðal íslenskra
fyrirtækja að eiga í rekstrarörðug-
leikum. Það er forkastanlegt og á
því ber að taka af opinberri hörku
- og opinberlega!
Nær væri að vorkenna hornrek-
um eins og Flugleiðum sem þurfa
að hafa áhyggjur af að flytja mun
fleiri farþega til miklu stærri og
fleiri borga en Arnarflug. Amar-
flug þarf bara að hafa áhyggjur af
að fljúga til einnar borgar, Amster-
dam, og getur samt ekki spjarað sig
almennilega og það með fáa far-
þega sem fer fækkandi!
Flugmálstjórn hefur alltaf haft
aht sitt á hreinu. Hún hefur alltaf
greitt skuldir sínar á réttum tím-
um. Þeir sem rukka fyrir snjó-
mokstur á flugvöllum á lands-
byggðinni vita þetta manna best.
Flugmálastjórn er líka fyrirmynd
annarra ríkisstofnana, t.d. í því að
fara ekki út fyrir ramma fjárlaga.
Eða er ekki svo? Fjármálastjóri
slíkrar stofnunar er þess vegna ein-
mitt rétti aðilinn til að tala niður
til Amarflugsmanna og senda þeim
tóninn.
Samkvæmt fréttum Stöðvar 2
„kemur flugmálastjóri heim frá
útlöndum á fóstudaginn". Og þá
eiga sjónvarpsáhorfendur von á
spennandi framhaldi. Skyldi rétt-
lætið að lokum ná framgangi sín-
um gagnvart Arnarflugi?
Samvinnuháskólinn
- skóli með sérstöðu
Steinn A. Pétursson skrifar:
Fimmtudaginn 26. apríl sl. birtist
grein hér á lesendasíðu DV undir
fyrrgreindri yfirskrift og mátti skilja
að hún hefði verið rituð og send sérs-
taklega í blaðið af undirrituðum.
Vil ég taka skýrt fram að svo var
ekki og var þessi úrdráttur úr grein
í 10. tbl. BT (skólablaði Samvinnuhá-
skólans) birtur algerlega án samráðs
og heimildar af minni flálfu, og þykir
mér það miður því svo er með flest
mál að á þeim eru tvær hliðar.
Óliðleq þjónusta á Stöð 2
Óánægður áskrifandi hringdi:
Ég er áskrifandi að Stöð 2. Þann
Óánægður áskrifandi telur þjónustu
Stöðvar 2 vera óliðlega.
26. april greiddi ég afnotagjaldið að
stöðinni fyrir maímánuð og hringdi
svo daginn eftir til aö fá lykilnúmer-
ið. Þetta hafði ég oft gert áður og aflt
gengið vel en nú brá svo við að mér
var sagt að hringja síðar.
Ég hringdi aftur þann 30. apríl til
að fá uppgefið lykilnúmerið en þá
neitaði sú sem svaraöi staðfastlega
að greiðsla hefði borist og þó er ég
með stimplaða kvittunina í höndun-
um. Hún sagði mér að hringja daginn
eftir, sem var 1. maí, og þegar ég taldi
að það væri lokað þá fékk ég það
svar að það væri opið.
Þetta finnst mér vera afar óliðleg
þjónusta því nú þarf ég að hringja
þrisvar í stað einu sinni eins og ég
hef hingað tfl gert.
SkiHi til óþurftar
Hafnfirskur sundlaugarg. skrifar:
í mörg ár hefur verið skflti á aust-
urgafli vesturbæjarlaugarinnar í
! Hafnarfirði sem segir að fyrir aftan
hana sé bílastæði. En það er svo til
ógemingur að komast inn á það því
á því miðju er braggi og á þessum
slóðum er gangbraut frá Flókagötu
og mega bæjaryfirvöld þakka fyrir
að oft hafa ekki orðið slys þarna. Það
er kannski beðiö eftir því.
Ég get ekki skilið umhyggju bæjar-
yfirvalda fyrir þessu fyrirbrigöi þvi
alltaf stendur það öllum til óþurftar
sem þarna eiga leið um og kannski
ekki þeim til ánægju sem þarna búa
í kring án þess að ég viti það. En
mér er spum, eiga þeir sundlaugar-
gestir sem þessa laug stunda að hafa
þetta fyrirbrigði fyrir augunum um
ókomin ár? Eða þar til slys hefur
htotist af? Vonandi ekki.
Ég skora því á bæjaryfirvöld að
gera bót á þessu og það sem allra
fyrst.
Sigriði finnst kaup borgarstjóra á Hótel Borg mjög snjöll.
■■ l„. 4 '• H H
fll* mwmmí iHIhÍiÍ ...
Snjöll kaup á
Hótel Borg
Sigríður Sigurðardóttir skrifar:
Mjög var það snjallt hjá Davíð
Oddssyni að kaupa Hótel Borg, rétt
framan við nefið á ráðvilltum og hik-
andi alþingismönnum. Þingmenn
hafa raunar lagt undir sig sex til átta
hús í nánd við þinghúsið, en hafa
verið mjög tvístígandi varðandi Hót-
el Borg sökum þess að þá grunaði
aö kaupin yrðu óvinsæl. Sem sagt,
þarna var að verki hin venjulega
kjósendahræösla.
Þingmenn hafa lengi haft ágirnd á
Hótel Borg og hafa um langt skeið
verið þar með ýmiss konar aðstöðu
(til fundarhalda o.fl.). - Því sagði
þernan á Borginni forðum, eftir þá
reynslu: „Alþingismenn. Oj barasta.
Pissa í vaskinn.“(?)
Réít var það, sem Davíð borgar-
stjóri sagði í sjónvarpinu, að leysa
mætti húsnæðisvanda þingsins með
fækkun þingmanna. Davíð fækkaði
borgarfulltrúum úr 21 í 15 sem gafst
mjög vel.
Gönguskíði tapaðist
Þórður hringdi:
Fyrir um það bil mánuði fór ég með
fjölskyldu minni í skíöaferð Vestur-
bæjarskóla en annað gönguskíðið úr
pari kom aldrei fram. Að öllum lík-
indum hefur einhver tekið skíðið
með sér heim í ógáti.
Skíðið er af tegundinni Artis Ruben
og er hvítt og blátt unglingaskíði.
Þeir sem vita hvað af skíðinu varö
geta hringt í síma 29345.