Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1990, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1990, Side 15
FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 1990. 15 Siðareglur fyrir embætt- ismenn og borgarfulltrúa Reykjavíkurborg hefur Qölmörg- um hæfum og samviskusömum starfsmönnum á að skipa, það sama gildir um flesta þá sem eiga að hafa stjórn borgarinnar á hendi. Eftir fjögurra ára setu í borgar- stjórn er mér þó ljóst að mjög brýnt er að setja ákveðnar siðareglur, bæði fyrir borgarfulltrúa og emb- ættismenn. Þeir atburðir hafa gerst í borgar- kerfinu að bæði kjörnir fulltrúar og embættismenn hafa fallið svo í freistni að það er nauðsynlegt. Með siðareglum á ég m.a. við að samin verði nákvæm starfslýsing, skipurit, þar sem greinilega er tek- ið fram hverjar eru skyldur borgar- fulltrúa og embættismanna og hvaða heimildir hver og einn hefur til ákvarðanatöku. Það verður að vera ljóst hvað hver yíirmaður á að gera og hvaða siðferðilegum reglum ber að fylgja og hver ber ábyrgð á hverjum þætti. Borgin hefur miklar tekjur sem innheimtar eru af borgurunum. Þessum tekjum ber að verja skyn- samlega og heiðarlega þannig að þær verði öllum borgarbúum til hagsbóta. Oslóarborg hefur sett mjög strangar siðareglur sem e.t.v. geta orðið okkur til leiðbeiningar. Ak- ureyrarbær hefur einnig verið að móta slíkar reglur og auðvitað er ekki síður ástæða til þess í Reykja- vík. Ábyrgð kjörinna fulltrúa Okkur borgarfulltrúum er lögð mikil ábyrgð á herðar. Við erum kjörin til þess að hafa stjórn borg- arinnar á hendi fjögur ár í senn. Þessa ábyrgð eigum við að taka alvarlega og axla hana af sam- viskusemi. Það er fráleitt að borg- arfulltrúar noti þá aðstöðu sem borgarbúar veita þeim með kosn- ingu til að hlynna sérstaklega hver Kjállariim Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi Framsóknar- flokksins í Reykjavík að öðrum eða til þess að ákvarða sjálfir einkafríðindi sér til handa. Borgarráð er skipað fimm borgar- fulltrúum. Þeir eiga að fara með daglega stjórn borgarinnar í um- boði borgarstjórnar. Fyrir borgar- ráð á að leggja allar meiri háttar fjárhagsákvaröanir og afgreiða þær þar með formlegum hætti en á því er misbrestur. Bílar handa borgarstjóra Það er fásinna að borgarstjóri geti einsamall á síðkvöldi ákveðið að nú kaupi borgin undir hann „Kadiljak" og hringt síðan morg- uninn eftir i Vélamiðstöð borginn- ar og gefið fyrirmæli um að panta einn slíkan. Það er fásinna að borg- arstjóri geti á öðru kvöldi ákveðið sjálfur að bæta við sig öðrum lúx- usbíl og hringt eftir jeppa. Það er fásinna að borgarstjóri geti án þess að spyrja kóng eða prest látið kaupa lúxusbíl handa vini sínum, sem einungis hafði á hendi stjórn- arformennsku í Granda. Það er ófært að einstakir borgar- fulltrúar séu í braski með lóðir. Það gengur ekki að borgarfulltrúi láti úthluta sér lóð undir verslunar- og skrifstofuhúsnæði þar sem skipu- lagt hafði verið „grænt svæði“ og braski síðan með hana í gróða- skyni. Það gengur heldur ekki að borgarfulltrúi reki gervifyrirtæki til þess að láta hlutina líta út öðru- vísi en þeir eru. í upphafi hvers árs er afgreidd fjárhagsáætlun. Tekist er á um hana á löngum og ströngum fund- um enda á hún að vera stefnu- markandi. Engar greiðslur má inna af hendi aðrar en þær sem þar eru tilgreind- ar, án formlegs samþykkis borgar- ráðs. Þessi hefur ekki verið raunin. Undanfarin ár hafa tekjur borgar- innar verið stórlega vanáætlaðar og borgarstjóri og embættismenn hafa ráðstafað mestum hluta þeirra að eigin geðþótta. Veitingahúsa- kaup, jarðakaup og margvíslegar aðrar framkvæmdir hafa verið íjármagnaðar með þessum hætti. Kóngar í borginni Embætti borgarverkfræðings hefur á undaníörnum árum komist upp með það að starfa alltof sjálf- stætt og án aðhalds frá kjörnum fulltrúum. Embætti gatnamálastjóra heyrir undir borgarverkfræðing. Um hendur gatnamálastjóra fer fimmta hver króna sem borgin hefur til ráðstöfunar. Þetta embætti, þessi deild, er alveg á skjön við allt í kerfinu vegna þess að yfir því er engin stjórn kjörinna fulltrúa. Þar eru þó teknar afdrifaríkar ákvarð- anir sem snerta okkur öll. Embætti byggingarfulltrúa heyrir einnig undir borgarverkfræðingsembætt- ið. í haust bað ég um skýrslu um það í hve miklum mæli starfsmenn byggingafulltrúa teiknuðu og hönnuðu hús í frítímum sínum. Það kom fram að þetta var í tals- vert miklum mæli hjá einstökum starfsmönnum. Alvarlegast við það er að síðan eiga þessir sömu menn að yfirfara sínar eigin teikningar og hafa eftirlit með sjálfum sér. Ráðhús og borgarleikhús Ráöhúsinu var valinn staður í Tjörninni. Hvar sú ákvörðun var tekin er á huldu en hún lá fyrir áður en ég kom í borgarstjórn. Ég átti þátt í að velja þá teikningu sem byggt er eftir. Mér þótti hún fall- egust, fyrirferðarminnst og falla betur að umhverfinu en hinar til- lögurnar. Eg hef hins vegar alveg frá upp- hafi gagnrýnt mjög harðlega hvernig staðið hefur verið aö öllum framkvæmdum. Þannig ákvað verkefnisstjórn Ráðhússins að sniðganga Innkaupastofnun borg- arinnar sem er stóralvarlegt mál. Rokið var af stað með alltof miklum hraða. Menn treystu á að vitneskja um aðstæður á byggingarstað kæmu í ljós eftir að framkvæmdir voru hafnar. Allur kostnaður hefur þar af leiðandi orðið mikið meiri, svo sem hönnunarkostnaöur, sem er orðinn tæplega 500 milljónir. Svona blómstrar spilling og ráð- leysi í skjóli óstjórnar og klíku- skapar. Borgarleikhúsið er annað ljótt dæmi. Það fór á síðasta ári 40-50% fram úr áætlun. Þar var þó borgar- stjóri sjálfur formaður byggingar- nefndar og hefði átt að vita manna best að það á að sækja um aukafjár- veitingu til borgarráðs ef fram- kvæmdir fara fram úr fjárhagsá- ætlun. Leyniklíka íhaldsins Þá er komið að einum ljótasta þætti þessa máls. í blöðum í vetur var vakin athygli á leynifélagi íhaldsmanna í embættismanna- kerfi borgarinnar og starfar það undir forsæti borgarstjóra. í leyni- félag þetta fá ekki aðrir inngöngu en karlar sem kjósa Sjálfstæðis- flokkinn. Konur fá þar engan að- gang, ekki heldur Egill Skúli á meðan hann var borgarstjóri. Þessir herrar eru hinir eiginlegu stjórnendur borgarinnar okkar. Þessu verður að breyta. Við borgarbúar eigum heimtingu á því að kjörnir borgarfulltrúar, sem ábyrgðina bera, stjórni borg- inni. Það er kominn tími til að hnekkja ofurveldi Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavik. í skjóli hans hefur margur ósómi safnast fyrir. Þegar einn flokkur hefur stjórnað svona lengi er þessari hættu boðið heim. Setjum því bæði stjórnend- um og embættismönnum ákveðnar siðareglur. Burt með spillinguna úr borgarkerfinu. Sigrún Magnúsdóttir „Það er fráleitt að borgarfulltrúar noti þá aðstöðu sem borgarbúar veita þeim með kosningu til að hlynna sérstaklega hver að öðrum eða til þess að ákvarða sjálfir einkafríðindi sér til handa.“ Kópavogsbúar - sundlaugin okkar er lögleg keppnislaug I grein Helga Helgasonar, for- manns ungra sjálfstæðismanna í Kópavogi, sem birtist í DV 24. apríl 1990, er því slegið fram að sund- laugin okkar, sem á að taka í notk- un 15. september nk., sé ekki lögleg keppnislaug. Ég vil spyrja: Hvað er þessi maður að gefa í skyn? Þessi sundlaug uppfyllir öll skilyrði sem gerð eru tii venjulegrar keppnis- laugar fyrir þær keppnir sem við íslendingar munum bjóða upp á. Er hann að slá ryki í augu Kópa- vogsbúa með svona hálfkveðnum visum eða hafa sjálfstæðismenn hugsað sér að byggja sundlaug sem eingöngu væri hægt að nota fyrir keppni? Þess konar laug þarf að vera jafndjúp, 180 sm á dýpt, og yfirbyggð. Sundlaugar, sem notað- ar eru á ólympíuleikum og heims- meistarakeppnum í sundi, eru af þessari gerð. Ætla sjálfstæðismenn að bjóðast til að halda heimsmeist- arakeppni í sundi í Kópavogi? Finnst þeim það ekki einum of stór biti þegar þeir hafa ekki burði til að standa með bæjarstjórn Kópa- vogs að byggingu íþróttahúss undir heimsmeistarakeppnina í hand- bolta 1995? Keppnislaug af þessari gerð er ekki ætluð fyrir almenning og allra síst fyrir börn. Geta Kópavogsbúar hugsað sér að svamla í sundlaug sem er það djúp að meðalmaður nær hvergi til botns. Sú sundlaug, sem er í byggingu í Kópavogi, er ætluð til almenningsnota og í henni verður hægt að halda sundkeppni. Það er undarlegt með sjálfstæðis- menn. í öðru orðinu tala þeir um aðhald og í hinu gefa þeir í skyn svo mikið bruðl á fjármunum al- mennings að það tekur engu tah. Nei, Helgi Helgason, þú þarft ekki að halda að Kópavogsbúar sjái ekki í gegnum þennan blekkingavef þinn. Málflutningur af þessu tagi er engum til sóma. Sigur Kópavogsbúa í Foss- vogsdeilunni Það er öllum ljóst, sem fylgjast með stjórnmálum í Kópavogi, að fullnaðarsigur vannst í Fossvogs- deilunni þegar aðalskipulag Kópa- vogs var samþykkt og staðfest af ráðherra, Jóhönnu Siguröardóttur, þann 24. apríl 1990. Þennan sama dag birtist fyrrnefnd grein eftir Helga Helgason þar sem hann vík- ur að deilunni um urðun sorps milli Kópavogs og Reykjavíkur á vordögum 1989. Ég vil segja við þig Helgi, þú hefur misskilið þetta mál. Deilan um urðun sorps er eitt af þeim málum sem félagar þínir í Reykjavík vilja örugglega gleyma. Ef bæjarstjórn Kópavogs hefði ekki rift samningnum við Reykjavíkur- borg vorið 1989 stæðum við ekki með pálmann í höndunum í dag. Og aö lokum þetta: Ef þú hefur hugsaö þér að leggja stjórnmál fyr- ir þig skalt þú kynna þér málin á öðrum vettvangi en hjá Spaugstof- unni í Gamla bíói. Nú er það í höndum bæjarstjórn- ar Kópavogs hvort Fossvogsbraut verður lögð um dalinn. Afstaða meirihlutans í bæjarstjórn Kópa- vogs (Alþýöuflokks og Alþýðu- bandalags) er ljós. Fossvogsbraut kemur ekki til greina. En hver er afstaða Sjálfstæðisílokksins? Er hægt að treysta honum fyrir fram- tíð dalsins? Sjálfstæðisflokkurinn hefur sýnt það og sannað í þessu máli að honum er ekki treystandi þegar á hólminn er komið. Eru Kópavogsbúar tilbúnir að leggja Fossvogsdalinn undir í komandi bæjarstjórnarkosningum? Ég vil einnig á þessum stað beina orðum mínum til Braga Michaelssonar, bæj arfulltrúa Sj álfstæöisflokksins. Það sem þér getur dottið í hug, Bragi! í grein hans, sem birtist í DV 24. apríl sl„ leggur hann til að Hótel- og veitingaskóli íslands verði byggður í tengslum við fyrirhugað íþróttahús í Kópavogsdal í staðinn fyrir grunnskóla. Kópavogsdalur hefur verið deiliskipulagður undir íbúabyggð og mun verða byggður á næstu árum. Augljóst er að byggja þarf grunnskóla með íþróttahúsi á þessu svæði og hefur hann verið inni í myndinni frá því að svæðið var skipulagt. Þegar rík- isstjórnin fór þess á leit við bæjar- stjórn Kópavogs að reisa íþrótta- hús fyrir heimsmeistarakeppnina í handknattleik 1995 var ákveðiö að sameina þessi tvö verkefni í eitt og ættu' kostir þess að vera öllum skýrir. Mér er ómögulegt að skilja hagræðinguna í því að byggja Hót- el- og veitingaskólann í Kópavogs- KjaUarinn Sigríður Einarsdóttir bæjarfulltrúi Alþýðuflokks í Kópavogi dal í staðinn fyrir grunnskólann. Bragi, þú veist það eins vel og ég að ætlunin er að byggja Hótel- og veitingaskóla íslands í tengslum viö Menntaskólann í Kópavogi. Það fjármagn, sem ríkið veitir til skól- ans, er sama fjármagnið hvort sem það fer niður í Kópavogsdal eða í menntaskólalóðina. Hefur þú kannski hugsað þér að byggja Hót- el- og veitingaskólann í Kópavogs- dal en grunnskólann á mennta- skólalóðinni? Hvers eiga börnin í Kópavogsdal að gjalda? Er bæjar- fulltrúi Sjálfstæðisflokksins líka að reyna að slá ryki í augu Kópavogs- búa? Ætlar þú að gera það að til- lögu þinni að hætta við byggingu grunnskóla í Kópavogsdal eða gleymdir þú honum bara í þessum útreikningum þínum? Sigríður Einarsdóttir „Nú er það í höndum bæjarstjórnar Kópavogs hvort Fossvogsbraut verður lögð um dalinn. Afstaða meirihlutans íbæjarstjórn... erljós. Fossvogsbraut kemur ekki til greina.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.