Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1990, Síða 3
FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 1990.
3
DV
Sjötug dönsk kona komst nýlega að því að hún er hálfíslensk:
Fréttir
„Það er ekki vottur
af íslendingi í mér“
- er dóttir Guðbrands Jónssonar prófessors og danskrar vinnustúlku
Úrklippan úr Politiken þar sem Inger Eichwald greinir frá þvi að hún hafi
komist að þvi á efri árum að hún ætti íslenskan föður.
„Eftirnafn mitt er Eichwald en ég
er í raun Guðbrandsdóttir," segir hin
tæplega sjötuga danska kona Inger
Eichwald í viðtali við danska dag-
blaðið Pohtiken og stoltið leynir sér
ekki í röddinni. Inger hefur vitað að
hún er fósturbam frá því hún var
fjórtán ára gömul. Það var hins vegar
ekki fyrr en eftir að hún varð ellilíf-
eyrisþegi að sannleikurinn kom fylli-
lega í ljós. Þá komst hún að því að
hún var ávöxtur leynilegs ástarfund-
ar íslensks prófessors og vinnu-
stúlku í húsi í Kaupmannahöfn árið
1930, eins og segir í danska blaöinu
Politiken 7. maí síðastliðinn. Faðir-
inn var Guðbrandur Jónsson, próf-
essor og sérfræðingur í kirkjusögu
miðalda.
Inger komst að því að hún var fóst-
urbam þegar ein frænka hennar með
laust málbein talaði af sér. Þegar
Inger reyndi að komast að því hver
hún væri í raun og vem snem fóstur-
foreldrar hennar út úr. Það var erfitt
fyrir þá að segja henni sannleikann
ekki síst þar sem fósturfaðirinn haföi
sett skilyrði fyrir hjónabandi sínu
og fósturmóðurinnar. Enginn mátti
nokkum tíma vita að þau hjón gætu
ekki eignast börn. Það var því ekki
fyrr en fyrir nokkrum árum, eftir lát
fosturforeldranna, að Inger komst á
sporið um raunverulega foreldra
sína. Hún sá andlátsauglýsingu móð-
ur sinnar í blaði og komst í samband
við hálfsystur sína. Þá fóru hlutirnir
skyndilega að rúlla.
Sjötugsafmæli á íslandi
„Mér var ráðið frá því að grafa
dýpra en ég var komin en við það
varð ég bara þijóskari. Þaö er ekki
vottur af íslendingi í mér en mér
finnst engu að síður að ég hafi öðlast
eins konar innri ró við að komast að
hinu sanna um foreldra mína. Ég hef
nefnilega lifað við lygi mestan hluta
ævinnar" segir Inger.
Inger kemur til Islands í sumar til
að halda upp á sjötugsafmælið sitt.
Hún tekur börn sín og barnabörn
með til að niðjar Guðbrands geti
kynnst nánar. Hún á fjóra íslenska
hálfbræður hér á landi.
Hver er ég?
Inger er formaður samtaka fullorð-
inna fósturbarna sem heita Hver er
ég? Hjálpa samtökin fósturbömum
við aö finna líffræðilega foreldra sína
og beijast einnig fyrir rétti þeirra.
Þannig krefjast samtökin þess að
skýrt komi fram á skírnarvottorði
barna að þau séu ættleidd. Inger er
á þeirri skoðun að fósturbörn eigi
rétt á að vita um uppruna sinn eins
fljótt og þau hafa vit til.
„Það á að nota fyrsta tækifæri sem
gefst til að segja börnunum frá líf-
fræðilegum foreldrum sínum. Marg-
ir fósturforeldrar hafa gripið til þess
ráðs að bíða þar til á fermingardag-
inn með að lyfta hulunni af leyndar-
málinu. Það er hins vegar hreinn og
beinn sadismi að segja barninu frá
slíku á hátíðisdegi í lífi þess.“
í samtökunum eru um eitt hundrað
meðhmir en mun fleiri hafa snúið sér
til þeirra um aðstoð. Talið er að um
100 þúsund fósturbörn á öllum aldri
séu í Danmörku.
Týndur hlekkur
„Þaö að gefa barn frá sér leysir
ekki foreldra undan þeirri siðferði-
legu skyldu að svara börnunum þeg-
ar þau leita til þeirra síðar meir. En
það er hins vegar í lagi að foreldr-
arnir viti ekkert um örlög barnsins
þar sem það á aö fá ró og frið til að
undirbúa fund sinn með foreldr-
unum, ef það kærir sig um að hitta
þau. Það má ekki gleyma að fóstur-
foreldrarnir gáfu okkur húsaskjól og
önnuðust okkur frá því við vorum
lítil. Þau tengsl sem þannig hafa
myndast rofna ekki. Hins vegar getur
þaö valdið óróa og nagað mann innan
að vita af týndum hlekk í tilverunni.
Að þegja slíkt í hel er eins og að
byggja hús í hlíðum eldfjalls."
-hlh
Nýr glæsilegur Volvo
Volvo 460 er glæsileg viðbót við framhjóladrifnu 400 línuna sem
markaði tímamót hjá Volvo. Volvo 460 er bíll sem sameinar öryggi,
frábæra aksturseiginleika og fágað útlit.
Volvo 460 er ríkulega búinn:
Öflug 106 hestafla vél með beinni innspýtingu, 5 gíra beinskipting eða
4 gíra sjálfskipting, framhjóladrif, álfelgur, vökvastýri/veltistýri,
lúxusinnrétting, upphituð framsæti, rafstýrðar rúður og speglar,
samlæsing á hurðum/skottloki, litað gler o.fl.
Volvo á einstöku verði
Verðið á Volvo 460 er eiostaklega gott, eða frá 1.344.000 kr. stgr.
kominn á götuna.
Bílasýníng í Keflavík hjá BG
- laugardag og sunnudag -
Brimborg hf.
FAXAFENI 8 • S. 68 58 70