Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1990, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1990, Síða 9
FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 1990. 9 Reykingamenn: Ævin styttist um átján ár Karlmenn sem reykja sígarettnr nær alla ævi lifa átján árum skem- ur en þeir sem aldrei byrja að reykja. Þetta er niðurstaða rann- sóknar sem gerð var á reykingar- vetýum fullorðinna í Erie í Penn- sylvaniufylki í Bandaríkjunum á árunum 1972 til 1974. Þessi rann- sókn er ein sú fyrsta þar sem vís- indamenn ráðast í að kanna áhrif reykinga i heilu samfélagi á ákveönum tíma. Niðurstaða rannsóknarinnar bendir til þess að meiri munur sé á lífslíkum reykingamanna og þeirra sem ekki reykja heldur en álitið hefur verið hingað til. Fyrri rannsóknir um áhrif rey kinga, sem til að mynda bandaríska krabba- meinsfélagið hefur staöið fyrir, bentu tii að munurinn á ævilengd þeirra sem reyktu og þeirra sem ekki reyktu væri sjö til níu ár. Aðrar kannanir gerðu ráð fyrir fimm til tíu ára mun eftir því hversu mikið og hversu lengi við- komandi hafði reykt. Það hefur aldrei verið auðvelt að segja ná- kvæmlega til um hversu æviskeið- ið styttist mikið vegna reykinga þar sem aðrir þættir geta einnig ieitt til hjartasjúkdóma, krabbameins og þjartaslags, helstu sjúkdó- manna sem reykingamenn deyja úr. Með viðtölum við ættingja hátt á fimmta þúsund látinna og viötölum viö nær fjögur þúsund íbúa Erie gátu sérfræðingamir sem unnu að fyrmefndri rannsókn kannað tengsl milli heilsufarsástands og reykinga. Var hópnum skipt niður í smærri flokka reykingamanna, þeirra sem ekki reykja og fyrrver- andi reykingamanna. Samkvæmt sérfræöingunum geta þeir sem ekki reykja eða hætta reykingum snemma búist við að lifa miklu lengur en þeir sem halda reyking- um áfram. Meðal karlmanna í Erie á aldrín- um 50 til 54 ára höfðu 38 prósent alltaf reykt - en það þýddi í raun að þeir höfðu byijað að reykja á táningsaldri - 31 prósent þeirra hafði aldrei reykt og 20 prósent voru hættir. Afgangurinn reykti pípu eða vindla. Þegar Mða tók á ævina létust þeir sem reyktu fyrr en þeir sem ekki reyktu. Af þeim sem náð höfðu 85 ára aldri voru aðeins 5,3 prósent reykingamenn en 37 prósent höfðu aldrei reykL Nær 48 prósent þeirra sem enn voru á lífi voru fyrrver- andi reykingamenn. Heimild; Intornational Herald Tribunc Uppboðshaldari Sotheby’s í New York, til hægri, er að vonum ánægður með söluna í gærkvöldi en þá var Renoir-mynd seld á 4,6 milljarða ís- lenskra króna sem er annað hæsta verð sem fengist hefur fyrir málverk. Simamynd Reuter Renoir-mynd seld á 4,6 milljarða - Japani kaupir tvö dýrustu málverk heims Það virðist ekkert lát á sölu lista- verka á uppboðum þessa dagana. í gærkvöldi var málverk eftir Pierre Renoir, „Au Moulin de la Galette", selt á uppboði hjá Sotheby’s uppboðs- höldurunum í New York á 78,1 millj- ónir dollara eða sem svarar til rúm- lega fiögurra og hálfs milljarðs ís- lenskra króna. Fyrr í vikunni var Van Gogh mynd seld á fimm millj- arða íslenskra króna, einnig á upp- boði í New York en í það skiptið hjá Christie’s. Þaö er hæsta verð sem nokkum tíma hefur fengist fyrir málverk. í fréttum japönsku frétta- stofunnar Kyodo í morgun var skýrt frá því að einn og sami maður hefði keypt bæði verkin. Talið er að þessi maður, Ryouei Saito, rúmlega sjötugur heiðurs- stjórnarformaður Daishowa-papp- írsverksmiðjunnar, hafi veðsett landareignir sínar til að undirbúa sig fyrir þessi uppboð. Hann á nú dýr- asta listasafn sem vitað er um í einkaeign, tvö af dýrustu málverkum heims. % Saito vísaði á bug fréttum um að kaup Japana á listaverkum ýttu und- ir sífellt hækkandi verð þeirra á al- þjóðavettvangi, að því er fram kom í Sankei-dagblaðinu í Japan í morg- un. „Ég veit að margir munu gagn- rýna mig en ég tel að eftir fimmtíu til hundrað ár muni heimurinn skilja hvað lá að baki,“ sagði Saito. „Ef ég hefði ekki keypt myndina hefði hún aldrei komið til Japan." Reuter Útlönd Timisoara: Róstur á kosningafundi Kosningafundur í Timisoara, vöggu byltingarinnar í Rúmeníu, endaði með róstum þegar unglingar réðust á stuðningsmenn Þjóðfrelsis- hreyfingarinnar með brotnum fána- stöngum. Um fimm þúsund stuðningsmenn Þjóðfrelsishreyfingarinnar, flestir konur, höfðu safnast saman á Óperu- torginu í borginni og um þrjú hundr- uð stjórnarandstæðingar hrópuðu slagorð gegn þeim. Nokkrir ungling- ar reyndu að troða sér upp á ræðu- pall og konur sem ætluðu að stöðva unglingana voru slegnar í andlitið. Unglingarnir toguðu einnig í hár kvennanna og hentu þeim til jarðar. Að minnsta kosti fimm konur voru leiddar á brott með blæðandi hendur og andlit. Lögreglumenn og óvopnað- ir hermenn stóöu álengdar en gerðu enga tilraun til aö skakka leikinn. Orðrómur hafði verið á kreiki um að forsætisráðherra landsins, Petre Roman, myndi flytja ávarp á kosn- ingafundinum og höfðu þess vegna margar konur safnast saman í þeirri von að geta virt fyrir sér hinn laglega ráðherra. í Búkarest lauk Ion Iliescu forseti kosningabaráttu sinni við fagnaðar- læti stuðningsmanna sinna en stúd- entar efndu samtímis til mótmæla- göngu og sökuðu forsetann um að vera kommúnista. Uiescu sagði við stuöningsmenn sína að aðeins Þjóð- frelsishreyfingin gæti tryggt lýðræði í Rúmeníu og vísaði á bug ásökunum stjómarandstæðinga um að flokkur hans hefði stolið byltingunni í des- lon lliescu, (orseti Rúmeniu, á lokakosningafundi í Búkarest i gær. Þing- og forsetakosningar fara fram i Rúmeníu á sunnudaginn. Símamynd Reuter ember. Samkvæmt skoðanakönnunum mun Þjóðfrelsishreyfingin vinna auðveldan sigur í forsetakosningun- um á sunnudaginn og talið er að flokknum muni ganga jafnvel í í þingkosningunum aem fram fara sama dag. Hundruð alþjóðleglegra eftirlits- manna munu verða í Rúmeníu til að fylgjast með því hvort kosningamar fara réttilega fram en blöð stjórnar- andstöðunnar skrifuðu í gær aö þeir kæmu of seint til að koma í veg fyrir að Þjóðfrelsishreyfingin hagræði úr- slitunum sér í hag. Alls eru 82 flokkar í framboði í þingkosningunum og fiöldi óháðra frambjóðanda. Reuter Itölsk borðstofusett Borð úr gleri, stáli og einnig úr viði stækkanleg) GP-húsgögn hf. Helluhrauni 10, s. 651234 Hafnarfirði. Margar gerðir af borðstofustólum HUSGÖGN Þýsku leðursófasettin komin - einstök gæði Verð frá kr. 148.500 stgr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.