Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1990, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1990, Blaðsíða 15
FÖSTUDAGUR 18. MAI 1990. 15 Stöndum saman um velferðina í Kópavogi Nú eru liðin 12 ár síöan Alþýðu- flokkurinn komst í meirihluta í Kópavogi. Fyrstu átta árin var meirihlutinn myndaður með Al- þýðubandalagi og Framsóknar- flokki en síðustu flögur árin hafa Alþýðuflokkur og Alþýðubandalag stjórnað bænum. Á þessum árum hefur Kópavogur tekið miklum breytingum og raun- ar svo miklum aö undrun sætir. Það hefur alla tíð verið stefna okk- ar jafnaðarmanna að velferð mannsins sé sett í öndvegi. Þess vegna höfum við byggt upp hér í Kópavogi öðruvísi bæ en annars staðar gerist. Viö höfum á þessum árum lagt megináherslu á félags- lega þáttinn þó framkvæmdir hafi vissulega verið geysilega miklar. Kópavogsmódelið Félagsmálastofnun Kópavogs á sér enga hliðstæða hér á landi, en mörg sveitarfélög hafa mikinn vilja til að koma sínum málum í svipað horf. í Kópavogi er uppbygging félags- þjónustunnar með allt öðrum hætti en t.d. í Reykjavík. Félagsmála- stofnun Reykjavíkur er fyrst og fremst vandamálastofnun en í Kópavogi er Félagsmálastofnunin alhhða þjónustustofnun, sem sinnir öllum velferðarmálum flöl- skyldunnar. Þar má nefna atvinnu- mál, íþróttir, tómstundir unglinga og aldraðra að ógleymdum dagvist- armálunum. Þetta fyrirkomulag er Kjallarirm Guðmundur Oddsson formaður félagsmálaráðs Kópavogs einsdæmi á landinu. Þetta er hið svonefnda Kópavogsmódel. Hér á eftir verður gerð grein fyr- ir einum þætti hinnar miklu félags'- þjónustu, sem fram fer í Kópavogi, en öðrum þáttum verða gerð skil síðar. Staða leikskólans Á síðustu tiu árum hefur ekkert sveitarfélag á íslandi byggt upp sinn leikskóla jafnhratt og Kópa- vogskaupstaður. Á síðustu átta árum hafa verið teknir í notkun flórir þriggja deilda leikskólar og að auki hafa þrír aðrir verið stækk- aðir. Árið 1981 samþykkti bæjarstjórn Kópavogs 10 ára áætlun um upp- byggingu leikskólans með það að markmiði að ná á þessu tímabili þeim áfanga að helmingur barna á aldrinum 0-6 ára ætti kost á ieik- skólarými. Með opnun hins nýja leikskóla, sem verið er að byggja í Suðurhlíðunum, á komandi hausti mun þessu marki vera náö, enda sem næst 10 ár frá samþykktinni. Frá og með næsta hausti verður heildarflöldi rýma á hinum níu leikskólum Kópavogsbæjar um 780, en 1. des. sl. voru börn á aldrinum 0-6 ára 1.623. Frá sama tíma verð- um við búin aö fullnægja um 70% af þörf barna á aldrinum 2-6 ára. Auk þessa rekur Kópavogsbær tvö skóladagheimili sem rúma 40 börn. Alls starfa 170 starfsmenn á leik- skólum og skóladagheimilum Kópavogsbæjar og þar af'70 fóstrur. Gott starfsfólk Kópavogur hefur haldiö þeirri sérstöðu meðal sveitarstjórna að allir leikskólar okkar eru vel mannaðir fagmenntuöu fólki og um langa hríð höfum við haft tvær fóstrur á hverri deild í öllum okkar leikskólum. Við skulum ekki gleyma því aö það er kannski frekast í þessum þætti sem það skiptir höfuðmáli aö hafa félagslega hugsandi stjórn- endur í sveitarfélaginu. Forsenda góðrar starfsemi er að hafa gott og vel menntað starfsfólk. Það höfum viö i Kópavogi- Skipulagsbreytingar Mikil endurskoðun hefur átt sér stað á skipulagi dagvistarþjón- ustunnar. Sérstök rannsókn var gerð á þörfmni og voru niðurstöður hennar lagðar til grundvallar þeim skipulagsbreytingum sem gerðar hafa verið. Bæjarstjórn samþykkti þær hugmyndir sem lagðar voru fram og síðustu mánuði hafa verið í gangi tilraunir á þremur leikskól- um bæjarins. Helstu skipulags- breytingarnar voru þessar: 1. Komið var á sveigjanlegum vist- unartíma, 4-5-6 og 9 klst., og þannig komið til móts við þarfir barna/foreldra. Jafnframt var daglegur starfstími leikskólans lengdur um rúmlega eina klst. á dag. 2. Hin hefðbundnu skil milli dag- heimila og leikskóla voru rofin og öllum börnum, sem dvelja lengur en 5 klst. á dag, er boðiö upp á næringarríkar máltíðir. 3. Samheitið leikskóli var tekið upp yflr dagheimili og leikskólá, en um leið var innritunar- og út- hlutunarreglum breytt. Nú geta allir sótt um leikskólarými fyrir börn sín frá eins árs aldri í sam- ræmi við þarfir hvers og eins. Þetta breytta fyrirkomulag hefur aukið nokkuð framboð á dvalar- tíma, en aukin nýting húsnæðisins er vissulega af liinu góða. Það er mat manna að þessar breytingar hafi gefist svo vel að full ástæða sé til að koma þessu á í öllum leikskól- unum. í hugum okkar jafnaðarmanna er leikskólinn afar stór þáttur í vel- ferðarkerfinu. Það á að heyra sög- unni til að menn líti á leikskólann sem einhverja geymslustofnun, því þetta á að vera sjálfsagður valkost- ur hvers einasta barns. Vilji Kópavogsbúar tryggja áfram- haldandi þróun félagsþjónustunn- ar í bænum og þá um leið að Köpa- vogur verði áfram mesti velferðar- bær á landinu, þá er öruggasta leið- in að kjósa Alþýöuflokkinn í kom- andi kosningum. Guðmundur Oddsson „Kópavogur hefur haldið þeirri sér- stöðu meðal sveitarfélaga að allir leik- skólar okkar eru vel mannaðir fag- menntuðu fólki.“ Af hverju Flokkur mannsins? illa staddan veitingarekstur i borginni", segir m.a. í greininni. Nú eru borgarstjórnarkosningar í nánd og sjö framboðslistar hafa komið fram. Mörgum finnst nóg um þennan flölda framboða og það á jafnt við um þá sem styöja núver- andi stjórn og þá sem eru andvígir henni. Fyrir þá sem vilja engar breyting- ar er málið tiltölulega einfalt, þeir kjósa að sjálfsögðu Sjálfstæðisflokk- inn en fyrir hina sem eru orðnir langþreyttir á því að hafa lítiö sem ekkert um líf sitt og umhverfi aö segja er máhð ögn flóknara. Vilt þú breytingar? Margir eru orönir mjög þreyttir á að meirihluta flármagns borg- arbúa er varið í stórhýsasöfnun. Ráðhúsið þarf ekki ,að ræða mikið meir, því allir vita aö fleiri þúsund manns skrifuðu undir undir- skriftalista gegn byggingu þess á sínum tíma, en töluðu fyrir daufum eyrum meirihlutans. Annað dæmi um virðingarleysi gagnvart peningum borgarbúa er „auðkúlan-1 á Öskjuhlíðinni. Sjálf- sagt verður þetta hiö fallegasta hús en spurningin er hvort ekki hefði verið hægt að nota þennan hagnað, sem varð af rekstri Hitaveitunnar, til annars, eins og t.d. lækka hitun- arkostnað í borginni, hækka laun borgarstarfsmanna eða leysa dag- vistunarvanda borgarbúa. Að því ógleymdu, að það er álita- mál hvort Reykjavíkurborg eigi að fara í samkeppni við illa staddan veitingarekstur í borginni. í kom- andi borgarstjórnarkosningum þurfa kjósendur í Reykjavík að gera upp við sig hvort þeir vilja að haldið sé áfram að eyða peningum borgarinnar í byggingar á minnis- vörðum og reddingar fyrir fyrir- tæki sem borga í kosningasjóð Sjálfstæðisflokksins eða að þeim KjaUarinn Áshildur Jónsdóttir markaðsstjóri. Skipar 1. sæti á lista Flokks mannsins til borgarstjórnar veröi varið í að byggja liér upp manneskjulega borg þar sem borin er virðing fyrir skoðunum fólks og því gert kleift að lifa hér eins og uppréttir menn. Rikisstjórnarframboðin þrjú Nú mætti halda að valið fyrir þá sem vilja seinni kostinn sé á milli sex framboðslista minnihlutans, en sú er ekki raunin. Ríkisstjórnar- framboðin: Alþýðubandalag, Framsóknarflokkur og Nýr vett- vangur munu ekki gera neinar breytingar hér í borg, því þau hafa sannað það með setu sinni í íhalds- sömustu ríkisstjórn fyrr og síðar að þau eru ekki fulltrúar almenn- ings heldur undir sömu sökina Seld og hitt íhaldið, fulltrúar flármagn- seigenda. Nýr vettvangur - blekkj- andivon Margir kunna að halda að Nýr vettvangur sé nýtt afl í íslenskri pólitík, en það er ekkert nýtt við það að gömlu flokkarnir og flokks- brot fái sér andlitslyftingu og kalli sig ferskum nöfnum, því innihaldið breytist ekkert þó að umbúðirnar séu nýjar. Á undanförnum árum hafa kom- ið fram ýmsir nýir valkostir sem fólk hefur sett traust sitt á. Allir vita hvernig fór fyrir Bandalagi jafnaðarmanna og Borgaraflokk- urinn hefur nú kiofnað í öreindir sínar og það nýjasta heitir „Nýr vettvangur". Það eina sem þessir svokallaöir „nýir" valkostir gera er að villa um fyrir fólki og tefla fyrir raunverulegum breytingum. Flokkur mannsins er húmanísk- ur flokkur sem vill setja velferö manneskjunnar í öndvegi. Við viljum opna kerfið og gefa almenningi kost á að vera með í ákvarðanatöku í öllum helstu mál- efnum borgarinnar með því að koma á bindandi skoðanakönnun- um. Við viljum breytta forgangsröð á því hvernig peningum borgarbúa er varið. Til dæmis gætu borgar- yfirvöld leyst húsnæðisvanda Reykvíkinga með því að kaupa húsnæði á almennum markaði og endurselja með kaupleiguformi eða leigja á sanngjörnu verði. Þessi leið gæti líka leyst vanda eldri borgara sem vilja gjarnan minnka við sig og flytja í þjónustuibúð en eiga í erfiðleikum með það. Hvernig starfar FM öðruvisi? Flokkur mannsins er flokkur mannréttinda. Við munum aldrei styðja eða réttlæta brot á mann- réttindum. Við erum líka eini flokkurinn sem hefur enga hags- munaaðila á bak við sig og getum staðið við það sem við segjum. Það er mismunurinn á okkur og hinum. Á fundi sem Kvenréttindafélag íslands hélt laugardaginn 12. maí sl. þar sem einungis kvenframbjóð- endum var boðið lýsti ég því yfir að ég gæti ekki tekiö þátt í fundin- um vegna þess að tilhögun hans var mannréttindabrot. þaö er mannréttindabrot að leyfa einung- is öðru kyninu málfrelsi. Ef þessi fundur hefði verið hald- inn af einhverjum karlaklúbbnum og aðeins karlar haft rétt til fram- sögu er ekki vafamál að konum hefði fundist á sér brotið. ég geðri skýra grein fyrir þessu og hvatti alla meðframbjóðendur mína til þess að gagna með mér af fundi í mótmælaskyni. Raunin var sú að ég gekk ein frambjóðenda af fundi. FM málsvari fólksins! Alli^ flokkarnir segjast styðja mannréttindi en eitt er að segja og annað að framkvæma. Fólk er orð- ið vondauft af því að stjórnmála- menn segja eitt fyrir kosningar og gera síðan annað. Það er tími til kominn að fólkiö í borginni fái full- trúa í borgarstjórn sem stendur viö það sem hann segir. Það mun ég óhrædd gera verði ég kosin í borg- arstjórn. Ef þú, lesandi góður, vilt raunverulega breytingar er Flokk- ur mannsins valkostur fyrir þig. Áshildur Jónsdóttir „Borgaryfirvöld gætu leyst húsnæöis- vanda Reykvíkinga með því að kaupa húsnæði á almennum markaði og end- urselja með kaupleiguformi eða leigja á sanngjörnu verði.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.