Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1990, Page 16
V
16
fþróttir
Sport-
stúfar
í frétt um vormót Golf-
klúbbs Hellu 1 blaðínu
í gær var rangt farið
með nafn sigurvegar-
ans í keppni með forgjöf. Það var
Sæbjörn Guðmundsson úr GK
sem sigraði en hann er sennilega
þekktari fyrir afrek sín i annarri
íþrótt, knattspyrnunni.
Seaman dýrasti
markvörður Breta
Arsenal greiddi í fyrra-
dag metfé fyrir bresk-
an knattspyrnumark-
vörð þegar félagið
keypti David Seaman frá QPR
fyrir 1,3 milljónir punda, eða um
130 milijónir íslenskra króna.
Fyrra metið átti Crystal Palace
sem í fyrra keypti Nigei Martyn
frá Bristol Rovers fyrir eina millj-
ón punda. Seaman er 26 ára gam-
all og er varamarkvörður enska
landsliðsins. Þetta er í fyrsta
skipti í sögunni sem Arsenal
greiðir milijón pund eða meira
fyrir leikmann. George Graham
segir að ekki séu uppi áform um
aö seija John Lukic markvörö þó
Seaman hafl verið keyptur. „Nú
er ég með tvo af sex bestu mark-
vörðum landsins í liði minu,“
segir Graham.
íþróttaskóli Vals
Knattspyrnufélagið
Valur starfrækir
íþróttaskóla fyrir 6-13
ára börn í sumar og er
þetta þriðja árið í röð sem félagið
gerir það. Þetta eru heils dags,
fjölbreytt iþróttanámskeið fyrir
stelpur og stráka. Hvert nám-
skeiö stendur i hálfan mánuð og
eru leiöbeinendur ailir fullorðnir.
Fyrsta námskeiðið af fimm stend-
ur frá 28. maí til 8. júni og er inn-
ritun hafin á skrifstofu Vals.
Breiðablik og ÍK
á sunnudaginn
Fyrsti stórleikur árs-
ins í knattspyrnunni í
Kópavogi fer fram á
sunnudaginn. Þá mæt-
ast á aðalleikvangi bæjarins liö
Breiöabliks og ÍK og hefst viöur-
eignin kl. 18. Þetta verður fyrri
leikur félaganna um Alison-bik-
arinn, sem gefinn var af Sauma-
stofúnni Alis fyrir nokkrum
árum. Keppt hefur .verið tvisvar
um bikarinn, Breiðablik vann
1987 en ÍK 1988 en keppnin féll
niður í fyrra. Síðari leikurinn fer
fram seinna í sumar.
Austurríki með
tvo markakónga
Austurríkismenn tll-
kynntu í gær hvaða 22
leikmenn skipuðu
landsliðshóp þeirra í
heimsmeistarakeppninni í knatt-
spyrnu á Ítalíu í sumar. Fremstir
í flokki eru tveir af markahæstu
leikmönnum í Evrópu í vetur,
Gerhard Rodax írá Admira Wac-
ker og Toni Polster frá Seyiila.
Hópurinn er þannig skipaður:
Markverðir: Otto Konrad, Mic-
hael Konsel, Klaus Lindenberg-
er.
Varnarmenn: Emst Aigner,
Peter Artner, Michael Baur, Ro-
bert Peci, Anton Pfeffer, Kurt
Russ, Peter Schöttel, Michael
Streiter.
Miöjumenn: Thomas Flögel,
Andreas Herzog, Alfred Hört-
nagl, Manfred Linzmaier, Andre-
as Reisinger, Manfred Zsak.
Framhetjar: Christian Kegle-
vits, Andreas Ogris, Heimo Pfei-
fenberger, Anton Polster, Ger-
hard Rodax.
Austurríkismenn leika i riðli
með ítölum, Tékkum og Banda-
ríkjamönnum.
Lofsamleg grein um Sigurð Sveinsson:
„Vinstri hand-
ar klístrarinn“
- Sigurður skoraði 160 mörk fyrir Dortmund í vetur
Þórarinn Sigurösson, DV, V-Þýskalandi:
Vestur-þýska tímaritið Deutsche
Handballwoche birti nýlega grein
um íslensku stórskyttuna Sigurð
Sveinsson, sem lék með OSC Dort-
mund í 2. deildar keppninni í vet-
ur. Sem kunnugt er hefur Sigurður
leikið lengi í Vestur-Þýskalandi,
var í fimm ár hjá Lemgo í úrvals-
deildinni, kom heim sumarið 1988
og lék með Val en fór aftur til Dort-
mund í fyrra. Hann hefur nú kvatt
Vestur-Þýskaland og hyggst enda
ferilinn með Valsmönnum.
Greinin um Sigurð fer hér á eftir
í lauslegri þýðingu:
„Linke Klebe“ er hugtak sem
notað er í Ruhr-héraðinu. Þetta
hugtak hefur hvorki með kvikind-
isskap að gera (link þýöir kvikind-
islegur), né límefni (Klebstoff þýöir
lím). Þetta þýðir einfaldlega: „Guð
minn góður hvað hann er skot-
fastur og það með vinstri!"
Skýtur eins
ogJohnWayne
Lothar Emmerich, sem skoraði 115
mörk fyrir Borussia Dortmund í
knattspymunni, hefur hingað til
verið sá eini sem mátt hefur nota
vörumerkið „Linke Klebe.“ En í
júlí 1989 fékk hann samkeppni. Ef
nú er talað um „vinstri handar
klístrarann" er ekki lengur átt við
Emmerich heldur Sigurð Sveins-
son. Hann skýtur nefnilega eins og
John Wayne gerði þegar hann var
upp á sitt besta - snöggt og hnitmið-
að. í 160 skipti „klístraði" Siggi
Sveins boltanum í mark andstæð-
inganna síðasta vetur. Enginn ann-
ar leikmaður náði að skora svo
mörg mörk í norðurriðli 2. deildar-
innar.
Þrátt fyrir markakóngstitilinn er
íslendingurinn ekki beint ánægður
með árangurinn í Dortmund.
Markakóngur - hvaða þýöingu hef-
ur slíkur persónulegur árangur í
hópíþrótt? Fyrir utan mörkin 160
(og jafnmargar ef ekki fleiri falleg-
ar sendingar) á hann ekki margar
góðar minningar um gengi Dort-
mund.
Vottar ekki fyrir
drambi eða sýndarmennsku
Honum kom mjög vel saman við
hina leikmennina. Öllum líkaði vel
við víkinginn, vegna kímnigáfunn-
ar, vingjarnleikans og vegna þess
að ekki vottar fyrir drambi eða
sýndarmennsku vegna eigin vel-
gengni.
Sigurður fór til Dortmund fyrir
orð eigandans, Uli Bucker, sem
ræddi við hann eftir B-heimsmeist-
arakeppnina í Frakklandi. Hann
þekkti líka Gunter Klein að góöu
frá dögum sínum hjá Lemgo og
treysti líka forsetanum og varafor-
setanum, Frank Roring og Fried-
heim Nahle, og ætlaði því að vera
í þrjú ár í Dortmund.
En í desember 1989 hætti þjálfar-
inn, forsetinn og varaforsetinn
hættu í mars, Sigurður er farinn
og Bucker hefur tilkynnt að hann
muni segja af sér á næsta aðalfundi
félagsins í haust.
Sorglegur endir
Áhangendur Dortmund hlökkuðu
til þess að hafa Sigurð í liði sínu
næstu þrjú árin, alveg fram að
næstsíðasta leik liðsins í 2. deild-
inni í vor. Þá vann Dortmund yfir-
burðasigur á Bad Schwartau, sem
komst upp í úrvalsdeildina, 29-21.
Fagnaðarlátum áhangendanna
ætlaði aldrei að linna og þeir gerðu
sér vonir um að eftir þessa frammi-
stöðu myndi Bucker hætta við að
selja liðið. En svo fór ekki og
keppnistímabilinu lauk því á sorg-
legan hátt.
Konungurinn
frá Luttfeld
Eftir að hafa dvalið í eitt ár í heima-
landi sínu varð vinstri handar
skyttan á ný vör við fiöringinn í
hinum skotharða vinstri handlegg
- fiðring fyrir nýjum áskorunum
frá öðrum löndum. Sigurður, sem
hefur skorað 992 mörk í 1. og 2.
deild, yfirgaf Lemgo á sínum tíma
sem „konungurinn frá Luttfeld".
Fyrir nokkrum dögum renndi
flutningabíll upp að Schleppen
Pfad 5 í Dortmund. Siggi, eiginkona
hans, og litla dóttirin, Auður, pökk-
uðu niður húsgögnum og persónu-
legum munum. Hvert var ferðinni
heitið? Á heimaslóðir til að byrja
með, en hver veit - kannski lýkur
henni í Dormagen þar sem hann
getur þénað mjög vel.
Handknattleiksmenn á íslandi fá
lítið eða ekkert borgað fyrir íþrótt
sína en þar getur Sigurður tekist á
við framtíöaratvinnu sína og þar
þekkir hann land og þjóð og hugs-
unarhátt fólksins. Kannski mun
hann einhvern tíma á þessum
hræðilega löngu vetrarkvöldum í
Noröurhafi líka hugsa til Dort-
mund og segja: „Eiginlega var dvöl-
in hjá OSC mjög ánægjuleg þrátt
fyrir allt. Bara að áhorfendur heföu
verið fleiri.“
• Sigurður Sveinsson hefur ákveðið að leika handknattleik á íslandi á
næsta vetri. Sigurður lék i vetur með Dortmund í Vestur-Þýskaiandi við
góðan orðstír.
Haukur jafnaði sitt eigið heimsmet
- á vormóti ÍR í fxjálsum íþróttum 1 gærkvöldi
Vormót ÍR í fijálsum íþróttum fór
fram að Varmá í gærkvöldi. Haukur
Gunnarsson jafnaði sitt eigið heims-
met í 100 metra hlaupi, hljóp á 12, 8
sekúndum. Pétur Guðmundsson
sigraði í kúluvarpi, kastaði 19,28
metra. Birgitta Jóhannsdóttir,
UMSE, sigraði í 400 metra hlaupi á
44,20 sek, Þuríður Ingvarsdóttir,
HSK, sigraði 100 m grindahlaupi á
15,2 sek, Þórdís Gísladóttir, HSK,
sigraði í hástökki, stökk 1,75 m.
Oddný Árnadóttir, ÍR, sigraði í 100 m
hlaupi á 12,2 sek oh einnig í 400 m
hlaupi á 57,3 sek og loks sigraði Ein-
ar Einarsson, Ármanni, í 100 m
hlaupi á 10,5 sek.
-JKS
FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 1990.
FÖSTUDAGUR Í8. MAÍ 1990.
25
íþróttir
• Vestmannaeyingar, sem eru nýliðar i 1. deild, mæta Fram í Eyjum á morgun. Eyjamenn hafa æft á grasi undanfarna daga
og á myndinni er Sigurlás Þorleifsson, þjálfari liðsins, á fullri ferð með knöttinn á æfingu iiðsins í gær.
DV-mynd Ómar Garðarsson
79. íslandsmótið
hefst á morgun
- stórleikur 1. umferðar er leikur FH og KA 1 Hafnarfirði
íslandsmótið í knattspyrnu, það 79. í
röðinni, hefst á morgun, laugardag. Heil
umferð er í 1. deildar keppni karla um
helgina og einnig hefst keppni í 4. deild.
Áhugaverðasti leikurinn í fyrstu um-
ferð 1. deildar er án efa viðureign tveggja
efstu hðanna frá því í fyrra, FH og KA,
sem fram fer í Kaplakrikanum í Hafnar-
firði á sunnudaginn kl. 16. Öllum á óvart
böröust þessi tvö félög um íslandsmeist-
aratitilinn í fyrra, og KA hafði betur eft-
ir æsispennandi lokaumferð. KA-menn
ættu að vera með sitt sterkasta lið en
hjá FH vantar Magnús Pálsson, sem er
í leikbanni, og markvörðinn og fyrirlið-
ann Halldór Halldórsson, sem er ekki
búinn að ná sér eftir uppskurð. í stað
hans ver Þorsteinn Bjamason, fyrrum
landsliðsmarkvörður, mark Hafnar-
fjarðarliðsins. Leikið verður á grasi,
væntanlega á æfingasvæði FH í Kapla-
krikanum.
Eyjamenn byrja
gegn bikarmeisturunum
í Eyjum mæta nýliðar ÍBV, sem nú leika
í 1. deild á ný eftir fjögurra ára fjarveru,
bikarmeisturum Fram á morgun klukk-
an 14. Eyjamönnum hefur gengið mjög
vel í vorleikjunum, hafa æft á grasi aö
undanfomu og gætu reynst Frömurum
mjög erfiðir andstæðingar. Frömurum
var spáö íslandsmeistaratitlinum af
forráðamönnum 1. deildar liðanna í vik-
unni og þeir verða væntanlega með full-
skipað lið. Hjá ÍBV vantar Inga Sigurðs-
son sem er í leikbanni.
Hvað gera KR-ingar
gegn Víkingum?
KR-ingum er spáð góðu gengi í sumar
og þeir hefja mótið á morgun á grasvelli
sínum í vesturbænum gegn Víkingum
klukkan 14. KR vann Reykjavíkurmótið
á dögunum án þess að vera með fullskip-
að lið og getur líklega ekki teflt fram
öllu sínu besta vegna meiðsla. Víkingum
er spáö áframhaldandi fallbaráttu og
þeir eru óskrifað blað vegna mikilla
breytinga frá síðasta tímabili.
Malarbarátta
á Akureyri
Þór og Stjörnunni var spáð falli í 2. deild
og þessi félög mætast einmitt á malar-
velU Þórsara á Akureyri klukkan 14 á
morgun. Þórsarar rétt sluppu við fall í
fyrra, björguðu sér í síðasta leik, en hafa
styrkst síðan þá. Stjarnan er að leika í
fyrsta skipti í 1. deild eftir að hafa kom-
ið á tveimur árum úr þeirri þriðju, og
hér er því um eldskírn þeirra Garð-
bæinga að ræða. Þeir verða án Svein-
björns Hákonarsonar sem er í leikbanni.
Valur og ÍA
úr öldudalnum?
Lið Vals og ÍA ollu bæði vonbrigðum á
síðasta ári og náðu sínum lakasta ár-
angri í 1. deild í langan tíman, höfnuöu
í 5. og 6. sæti. Þau ljúka fyrstu umferð-
inni þegar þau mætast á æfingagrasi
Valsmanna á Hlíðarenda klukkan 20 á
sunnudagskvöldið. Báöum liðum hefur
gengið brösuglega í vorleikjunum og það
verður fróðlegt að fylgjast með því
hvernig þessi tvö gömlu stórveldi hefja
íslandsmótið. Landsliðsmaðurinn Alex-
ander Högnason leikur ekki með ÍA þar
sem hann er í leikbanni.
-VS
Chicago
í undanúrslit
Chicago Bulls vann í fyrrinótt sigur í ein-
víginu við Philadelphia 76ers í úrslitakeppninni
um bandaríska meistaratitilinn í körfuknatt-
leik. Chicago vann.á heimavelli sínum, 117-99,
og sigraði því í fjórum leikjum en 76ers náði
einum sigri. Það verða því Chicago og Detroit
Pistons sem mætast í úrslitaleik Austurdeildar-
innar, en í Vesturdeildinni mætir Phoenix Suns
annaðhvort San Antonio Spurs eða Portland
Trailblazers í úrslitum.
Michael Jordan var að vanda í aðalhlutverki
hjá Chicago og skoraði 37 stig. Scottie Pippen
gerði 29 stig en hjá 76ers voru drýgstir þeir Ron
Anderson með 20 stig og Charles Barkley sem
skoraði „aðeins“ 17.
76ers voru með undirtökin lengi vel og leiddu,
62-63, í hálfleik. En með frábærum varnarleik
sá Chicago til þess að gestirnir gerðu aðeins 36
stig í síðari helmingi leiksins og sigldu fram úr.
-VS
Lið Haukanna
styrkist enn
Hauka.
Lið Hauka í handknattleik styrkist með hverjum degi.
Skammt er síðan forráðamenn félagsins sömdu við míög
sterkan tékkneskan landsliösmann og nú hafa tveir
þekktir handknattleiksmenn gengiö til liðs við
Fyrstan skal telja Magnús Ámason markvörð en hann lék sem
kunnugt er áöur með liði FH. Magnús er bróðir Guöjóns, fyrirliða
íslandsmeistaranna, og mun styrkja lið Hauka miög mikið enda
sterkur markvörður á ferð. Hinn nýi Haukamaöurinn er Pétur
Amarsson en hann kemur úr Breiðabliki. Pétur lék áður með
Njarðvík og er rajög efnilegur leikmaður. Það er greinilegt að
Haukar ætla sér stóra hluti í framtíðinni í handboltanum og und-
ir stjóm Viggós Sigurðssonar er liöið til ails liklegt, hvort sem þaö
verður í 2. eöa 1. deiid.
-SK
United enskur
bikarmeistari
- sigraði Crystal Palace, 1-0, á Wembley
Gurmar Sveinbjömsson, DV, Englandi:
Manchester United varð í gær-
kvöldi enskur bikarmeistari í knatt-
spyrnu í sjöunda skipti í sögu félags-
ins. Manchester United og Crystal
Palace áttust við öðru sinni í úrslita-
leik bikarkeppninnar á Wembley í
gærkvöldi og sigraði United í leikn-
um með einu marki gegn engu. Liðin
áttust einnig við síðasta laugardag
og varð þá jafntefli, 3-3, eins og flest-
um er kunnugt.
Leikurinn stóð
ekki undir nafni
Seinni úrslitaleikurinn í gærkvöldi
reis ekki undir nafni og olli hann 80
þúsund áhorfendum vonbrigöum,
nema að sjálfsögðu stuðningsmönn-
um Manchester United, sem fögnuðu
ákaft í leikslok. Greinilegt var að
fyrri úrslitaleikurinn um síðustu
helgi sat í leikmönnum beggja liða.
Bæði liðin sköpuðu sér sárafá mark-
tækifæri og fyrri hálfleikur var sér-
lega dapur. Ein breyting var gerð á
liðskipan Manchester United, Les
Sealey tók stöðu Jim Leighton í
markinu, og greip hvað eftir annað
vel í leikinn. Leighton var sakaður
um lélega frammistööu í fyrri leikn-
um og missti stöðuna í liðinu.
Seinni hálfleikurinn var skömm-
inni skárri en sá fyrri en samt ekki
til að hrópa húrra fyrir. Á 60. mínútu
dró til tíðinda, Neil Webb átti langa
sendingu inn á vítateigshornið, þar
tók hinn 22 ára gamli vinstri bak-
vörður Lee Martin við knettinum og
skoraði undir þaknetið. Þess má geta
að Martin hefur veriö hjá Manc-
hester United frá 12 ára aldri. Bryan
Robson, fyrirliði United, átti góðan
skalla í þverslá í seinni hálfleikn-
um.
Lið Crystal Palace komst næst því
að jafna metin þegar Andy Gray átti
skot í stöng en lengra komust leik-
menn Palace ekki. Ian Wright, sem
skoraði tvö mörk í fyrri leiknum,
kom inn á í síðari hálfleik og sást
lítið sem ekkert.
• Lee Martin, vinstri bakvörður Manchester United, hampar hér bikarnum
á Wembley-leikvanginum í Lundúnum i gærkvöldi. Lee skoraði sigurmark
United i siðari hálfleik. Símamynd Reuter
Robson tók við
bikarnum í 3. skipti
Bryan Robson tók við hinum eftir-
sótta bikar en þetta er í þriðja skipfc
sem hann tekur við bikarnum á ferl-
inum. Alex Ferguson, framkvæmda-
stjóri liðsins, er fyrsti stjórinn til að
stýra liði frá lokum seinni heims-
styrjaldar, til sigurs í bikarkeppni í
teimur löndum. Ferguson stýrði
skoska félaginu Aberdeen til sigurs
í skoska bikarnum áður en hann
gerðist framkvæmdastjóri Manc-
hester United.
Til smávægilega óeirða kom til
meðan á leiknum stóð og eins eftir
hann og voru að minnsta kosti 26
manns handteknir.
-JKS
CÖ
■f.
M
METRO
KR
FORMPRENT
Hverfisgötu 78, simar 25960 - 25566
VIKINGUR
Laugardag kl. 14.00
á KR-velli
Knattspyrnuskóli KR
1. námskeið byrjar 5. júni.
Innritun hafin.
Upplýsingar og innritun
í síma 27181