Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1990, Síða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1990, Síða 24
32 ' FÖSTUDAGtJR 18. MAI 1990. Einn á móti einum - eða: Hvernig þorskur varð ígildi áls Þorskafli á íslandsmiðum þúsundtonn 500 400 1950-1989 10 ára meðaltö! 300 200 100 1950-59 1960-69 1970-79 1980-89* 1990 * Aætlað fyrir árin 1988360þús. tonn og 1989 300þús. tonn. Heimild: Hafrannsóknarstofnun hni-clrofli ó ÍclonHcmiAiim 1 QRQ 10 I DV 26. apríl sl. var grein í Fréttaljósi eftir Gunnar Smára Eg- ilsson. í henni freistar hann þess aö bera saman hreina gjaldeyrisöfl- un á hvert kíló af þorski og áli. í því sambandi er vísað til skrifa minna til iönaðarráðherra þar sem ég tel ekki ýkja fjarri lagi að álton- nið leggi sig á þorsktonn í verð- mætasköpun þjóðarbúsins. Mér er því máhð skylt og ætla að skýra hvernig samlíkingin varð til og á hvaða forsendum. Að taka réttan pól í hæðina Það er fyrst til að taka að í skrif- um mínum til iðnaðarráðherra sl. haust stendur þetta: „Þjóðhagsstofnun hefur lagt mat á nýlegar tillögur Hafrannsókna- stofnunar um heildarveiði á árinu 1990. í tillögunum er m.a. gert ráð fyrir 90 þúsund tonna minni þorsk- veiði en á árinu 1989. Þjóðhags- stofnun telur að tekjur muni lækka í sjávarútvegi um u.þ.b. 7 milljarða króna og samdráttur í þorskveið- um er um 83% þessarar fjárhæðar. Er þá ekki reiknað með óbeinum áhrifum á aðra starfsemi. 90 þús- und tonna minni þorskveiði lækk- ar verga landsframleiðslu um tæp 2%. Samkvæmt áætlunum um nýtt álver hækkar það verga lands- framleiðslu um 4-5% á ári þegar framkvæmdum við orkuver og verksmiðju er lokið og rekstur kominn í eðlilegt horf. Það virðist því ekki fjarri lagi að áhrif hvers tonns af þorski til lækkunar sam- svari hiverju áltonni til aukningar." KjaUaiinn Guðmundur Magnússon prófessor í viðskipta- og hag fræðideild HÍ. Á sæti í nefnd á vegum iðnaðarráðuneytis til ath. á áhrifum nýs álvers. Af þessu má ljóst vera að hér er átt við verðmætasköpun þjóðar- búsins (verga landsframleiðslu) en ekki gjaldeyrisöflun (hvorki verga né hreina). Hvernig varð hugmyndin til? Samlíkingin var til einn góðan veðurdag er ég var að hlusta á há- degisfréttir í útvarpinu. Þar voru raktar tölur frá Þjóðhagsstofnun um mat á tillögum Hafrannsókna- stofnunar um samdrátt í flskveið- um. Tölumar virtust býsna líkar þeim sem ég hafði séð um virðis- auka af samsvarandi magni ál- framleiðslu. Þegar betur var að gáð reyndist hlutfallið vera einn á móti einum. Svar Þjóðhagsstofnunar við spurningu iðnaðarnefndar neðri deildar Alþingis. Samjöfnuðurinn barst um landið og inn á Alþingi. Þjóðhagsstofnun svaraði því hinn 3. þ.m. að beiðni iðnaðarnefndar neðri deildar Al- þingis hvert væri verðmæti áltonns í samanburöi við þorsktonn. Þar segir m.a.: „Vergur innlendur virðisauki af áltonni og þorsktonni er svipaður, en hins vegar eru hreinar gjaídeyr- istekjur tvö- til þrefalt meiri af þorsktonni." Lokaorð Samlíking mín stenst þegar verg- ur virðisauki er settur á vogarskál- arnar. Útreikningar í Fréttaljósi DV miöast hins vegar við hreinar gjaldeyristekjur. Eitthvert villuljós hefur þó leitt greinarhöfund afvega enda er um flókið samspil aðfanga og afurða að ræða. Ég vænti þess að greinarhöfundur kynni sér út- reikninga Þjóðhagsstofnunar að þessu leyti. Að lokum þetta: Líkingamáhnu var ætlað að vekja athygli á nýju álveri sem gæti gert þjóðarbúinu léttbærari samdrátt í þroskveiðum, sbr. mynd. Ég geri mér fulla grein fyrir að með þessu get ég ekki reiknað fisk í sjóinn. Og þó - skerð- ing þorskkvóta nú eykur fiskgengd og afla í framtíðinni. Guðmundur Magnússon „Samkvæmt áætlunum um nýtt álver hækkar það verga landsframleiðslu um 4-5% á ári þegar framkvæmdum við orkuver og verksmiðjur er lokið.. Með málflutningi sínum að undan- förnu í ræðu og riti hafa sjálfstæð- ismenn í Kópavogi vegið svo harkalega að starfsemi og framtíð- armöguleikum íþróttafélaganna í Kópavogi að það nálgast hrein skemmdarverk. Menn geta haft misjafnar skoðan- ir á gildi íþrótta, hvort sem um er að ræða keppnisíþróttir eða al- menningsíþróttir og það er ekkert óeðhlegt. Það er hins vegar sjald- gæft og nánast einsdæmi að heill flokkur manna taki höndum sam- an og hefji slíka aðför sem nú er í gangi í Kópavogi af hálfu D-listans. Og í hveiju er sú aðför fólgin? * Sjálfstæðismenn hóta að rifta samkomulagi því sem gert hefur verið um byggingu íþróttahúss í Kópavogsdal. * Sjálfstæðismenn segja að bygg- ingin muni rýra framkvæmdafé bæjarins stórlega næstu árin. * Sjálfstæðismenn reyna að telja fólki trú um að ailar fram- kvæmdir í þágu öflugrar íþrótta- starfsemi í bænum séu hreint bruðl og þær séu á kostnaö ann- arra „brýnni verkefna". KjaUarinn Ólafur Björnsson skipar 5. sæti á lista Alþýðuflokksins i Kópavogi Það er heldur óskemmtilegt hlut- skipti íþróttafélaganna í bænum og óverðskuldað að þau skuli nú, eftir áratuga starf í þágu barna og ungl- inga þessa bæjar, vera notuð eins og grýla á bæjarbúa af mönnum sem láta ekkert tækifæri ónotað til að dásama „fijálsa félagastarf- semi“. En menn hafa það þá á hreinu í eitt skipti fyrir öll að þegar þessir menn tala um dásemdir „fijálsra félaga“ þá eru þeir ekki að tala um íþróttafélögin í Kópa- vogi. Arðsemi íþrótta Sjálfstæðismenn í Kópavogi skilja ekki enn að arðsemi er hægt að sjá í fleiru en beinhörðum pen- ingum. Þeir skilja ekki að með því að fá ungt fólk til þátttöku í iþrótta- og æskulýðsstarfi hvers konar er veriö að vinna mikilvægt forvarn- arstarf. Þeir meta einskis það óeig- ingjarna sjálfboðastarf sem hundr- uö bæjarbúa leggja af mörkum í þágu bama og unghnga og þar með bæjarfélagsins í heild. Og þeir munu sennilega ekki átta sig á gildi slíks starfs fyrr en þeir verða búnir að koma því fyrir kattarnef. Sjálf- stæðismenn ættu að vita að þegar börnin eru „á götunni" þá kemur fyrir lítið þó hún sé malbikuð. Þeir sögðu já en meintu nei Bæjarstjóm Kópavogs var ein- huga um það á sl. ári að gera stórá- tak í uppbyggingu íþróttamann- virkja og útivistarsvæða í bænum og þá stóðu fulltrúar allra flokka að baki þeirri ákvörðun að gera samstarssamninga við íþróttafé- lögin í bænum um þá uppbyggingu. Tilkoma nýja íþróttahússins er sannarlega í anda þeirrar stefnu sem þá var mörkuð og því er af- staða Sjálfstæðisflokksins nú, nokkmm mánuðum og einu próf- kjöri seinna, algjörlega á skjön við það sem þeir höföu áður samþykkt. Þessi nýja afstaöa Sjálfstæðis- flokksins ber vott um skammsýni og skort á kjarki til að takast á við brýnt hagsmunamál íþróttahreyf- ingarinnar í bænum og þar með bæjarbúa allra. En hún er því mið- ur staðreynd. Sjálfstæðisflokkurinn mun því, fái hann til þess tækifæri, rifta þeim samningi sem þegar hefur verið gerður og hann mun um leið greiða „frjálsri félagastarfsemi" í bænum þungt högg. Og þar „hegg- ur sá er hlífa skyldi". Leggjum ekki vopnin upp í hendurnar á þeim Það er í valdi Kópavogsbúa að koma stefnu þeirra í þessu mikil- væga máh fyrir kattamef og engra annarra! Það verður best gert með því að tryggja áframhaldandi sam- starf þeirra flokka sem nú ráða ferðinni í málefnum bæjarins. Það hefur sýnt sig á undanförn- um árum, og er enn undirstrikað með þeim áformum sem nú eru uppi, að þar er fólk sem þorir. Þorir þú? Þá kýst þú X-A þ. 26. maí nk. Ólafur Björnsson „Þessi nýja afstaða Sjálfstæðisflokks- ins ber vott um skammsýni og skort á kjarki til að takast á við brýnt hags- munamál íþróttahreyfingarinnar í bænum.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.