Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1990, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1990, Side 26
34 FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 1990. Fólk í fréttum________________dv Jón Baldursson Jón Baldursson og Aðalsteinn Jörg- ensen urðu í öðru sæti í tvímenn- ingskeppni og fjórða sæti í sveita- keppni á hinu fræga Cavendishmóti í New York. Jón er fæddur 23. des- ember 1954 í Reykjavík, gagnfræð- ingur frá Langholtsskóla 1971 og lauk prentnámi 1976. Hann var prentari hjá Hilmi hf. 1976-1983 og var framkvæmdastjóri Bridgesam- bands íslands 1983-1984. Jón hefur verið skrifstofumaður hjá Flugleið- um frá 1. september 1984. Hann var í formaður Bridsfélagsins Ásanna 1977-1978 og í stjórn Bridsfélags Reykjavíkur 1978-1982 og Bridge- sambands íslands 1982-1988. Jón var íslandsmeistari í tvímennings- keppni í brids 1981-1984 og íslands- meistari í sveitakeppni í brids 1982, 1985,1986 og 1988. Hann var bikar- meistari í brids 1983,1986 og 1987 og var í landsliðinu í brids fyrst 1975 Og SÍðan 1982-1984 Og 1985-1988. Jón var í fjórða til fimmta sæti í Evrópu- mótinu í sveitakeppni í brids 1987 og var í sveitinni sem vann Norður- landameistaratitilinn í brids 1988. Hann þjálfaði unglingalandsliðið í brids 1982 og 1989. Jón var í brids- sveit Flugleiða sem vann Evrópu- meistaratitil flugfélaga (ASCA) 1987 og 1988. Jón kvæntist 27. ágúst 1983 Elínu Guðnýju Bjarnadóttur, f. 3. janúar 1956, aðstoðarstúlku hjá tannlækni. Foreldrar Elínar eru: Bjarni Kristjánsson, verkamaður á Þingeyri, og kona hans, Mary Karls- dóttir. Dóttir Elínar er: Ragnheiður, f. 13. ágúst 1974. Synir Jóns og Elín- ar eru: Jón Bjarni, f. 8. ágúst 1985, og Magni Rafn, f. 1. maí 1987. Systk- ini Jóns eru: Hafliði, f. 29. október 1944, skipstjóri í Rvík, sambýliskona hans er: Guðlaug Sigmarsdóttir; Brynja, f. 24. desember 1946, ritari í Rvík, gift Guðmundi Jónssyni fram- kvæmdastjóra; Guðmundur Ólafur, f. 19. september 1949, framkvæmda- stjóri í Rvík, kvæntur Helgu Stef- ánsdóttur; Halldóra, f. 22. desember 1952, kennari á Reyðarflrði, gift Hilmari Sigurjónssyni kennara, og Baldur, f. 2. janúar 1957, d. 21. des- ember 1979. Foreldrar Jóns eru: Baldur Guð- mundsson, f. 14. maí 1911, d. 14. ágúst 1989, útgerðarmaður í Rvík, og kona hans, Magnea Guðrún Rafn Jónsdóttir, f. 3. mars 1923, d. 8.6. 81. Baldur var sonur Guðmundar, útvegsb. á Vatnseyri í Patreksfirði, Þórðarsonar. Móðir Baldurs var Anna, systir Láru, ömmu Láru Val- gerðar, lögfræðings ASÍ, og Halldórs Júlíussonar, forstöðumanns á Sól- heimum, Anna var dóttir Helga, b. á Öskubrekku í Barðastrandar- sýslu, Arasonar og konu hans, Þu- ríðar Kristjánsdóttur. Magnea var dóttir Jóns, útgerðar- manns á Suðureyri í Tálknafirði, Guðmundssonar og konu hans, Halldóru Kristjánsdóttir, útgerðar- manns á Sellátri, Arngrímssonar, prests á Brjánslæk, Bjarnasonar. Móðir Arngríms var Guðrún Sig- urðardóttir, klausturhaldara á Kirkjubæjarklaustri, Ólafssonar, sýslumanns í Haga, Árnasonar, bróður Guðrúnar, konu Ólafs Jóns- sonar, lögsagnara á Eyri, ættmóður Eyrarættarinnar, langömmu Jóns forseta. Móðir Sigurðar var Guðrún Hjaltadóttir, prófasts og málara i Vatnsfirði, Þorsteinssonar. Móðir Halldóru var Þórey Eiríksdóttir, b. á Miðjanesi, Sveinssonar og konu hans, Ingibjargar, systur Sigríðar, langömmu Svanhildar, móður Ólafs Ragnars Grímssonar. Ingibjörg var dóttir Friðriks, prófasts á Stað á Reykjanesi, Jónssonar og konu hans, Valgerðar Pálsdóttur, prests á Stað, Hjálmarssonar. Móðir Páls var Filippía Pálsdóttir, systir Bjama Jón Baldursson. landlæknis. Móðir Valgerðar var Ingibjörg, systir Páls, langafa Jón- asar, afa Guðlaugs Tryggva Karls- sonar hagfræðings. Ingibjörg var dóttir Bjama, prests á Mel, Péturs- sonar og konu hans, Steinunnar Pálsdóttur, systur Filippíu. Afmæli Sigurður Hjartarson Sigurður Hjartarson bakarameist- ari, Álfaskeiði 70, Hafnarflrði, er sextugurídag. Sigurður fæddist á ísafirði og ólst þar upp. Hann lauk þar barnaskóla- námi og starfaði síðan í Norska bak- aríinu á ísafirði hjá Helga Guð- mundssynibakarameistara. Sigurð- ur lauk þar sveinsprófi í bakaraiðn l. 11.1950 og starfaði þar í þrettán ár. Á ísafirði starfaði Sigurður mikið að félagsmálum. Hann var um ára- bil æðsti templar stúkunnar Dags- brúnar nr. 67. Þá söng hann mikið, m. a. með karlakórnum, Sunnu- kórnum og kirkjukórnum og lék á harmóníku ásamt íleiri félögum. Sigurður flutti til Fáskrúðsfjarðar með fjöldskyldu sína 1953 og setti þar upp brauðgerð og síðan al- menna verslun en þar var hann m.a. formaður Alþýðuflokksfélags Fáskrúðsfjarðar um árabil og frétta- ritari Alþýöublaðsins. Árið 1960 flutti hann síðan til Hafnarfjarðar og rak þá eigið bakarí að Laugarnesvegi 52 í Reykjavík. Hann starfaði síðan við köku- og brauðdeild Varnarliðsins á Kefla- víkurflugveili en 1974 flutti hann til Hafnar í Hornafirði þar sem hann var bakarameistari hjá Kaupfélagi Austur-Skaftfellinga. Þar stofnaði hann Alþýðuflokksfélag Austur- Skaftfellinga, varð formaður þess, sat í kjördæmisráði Austurlands, var í framboði fyrir Alþýðuflokkinn 1979 og sat flokksþing í Reykjavík. Sigurður flutti aftur til Hafnar- fjaröar 1983 og stundaði þar iðn sína um skeið en hætti síöan þeim störf- um vegna heilsubrests. Síðustu árin hefur hann átt og rekið pylsuvagna í Reykjavík en hann starfrækir nú þrjá slíka vagna. Sigurður sat í stjórn Bakara- sveinafélags íslands og var formað- ur þess um skeið. Sigurðurkvæntist25.8.1953, Báru Jónsdóttur, f. 25.8.1931, húsmóður, dóttur. Jóns Níelssonar, útvegsb. í Hafnarnesi á Fáskrúðsfirði, og Guð- laugar Halldórsdóttur húsmóður sem bæði eru látin. Börn Sigurðar og Báru eru Guð- munda Katrín, f. 12.3.1949, starfs- stúlka hjá Norðurstjörnunni í Hafn- arfirði, gift Þorgils Þorgilssyni martreiðslumeistara og eiga þau þrjú börn og eitt barnabarn; Þóra Margrét, f. 29.10.1950, bankastarfs- maður, gift Einari Gunnlaugssyni tækniteiknará og eiga þau þrjú börn og eitt barnabarn; Jóna Hjördís, f. 14.7.1953, starfsstúlka á Sólvangi í Hafnarfirði, gift Kristjáni Ólafssyni, starfsmanni hjá Hvaleyri hf. í Hafn- arfirði og eiga þau þrjú börn, og Sig- urður Ingvar, efnaverkfræöingur, f. 6.12.1962, í sambýli með Helgu R. Eyjólfsdóttur efnafræðinema en þau búa í Gautaborg í Svíþjóð. Albróðir Sigurðar er ívar L. Hjart- arson, f. 12.1.1926. Systir Sigurðar, samfeðra, var Ingunn Hjartardóttir, en hún er látin. Hún var gift Þor- valdi Steinarssyni. Systkini Sigurð- ar sammæðra eru Matthías í. Guð- mundsson, f. 17.4.1923, kvæntur Margréti Árnadóttur, og Sigríður Ásgeirsdóttir, f. 18.7.1917 en hún er látin. Foreldrar Sigurðar voru Hjörtur Ólafsson, f. 23.7.1897, d. 2.7.1951, verkamaður á ísafirði, frá Saurbæ í Dölum, og kona hans, Þóra Sigurð- ardóttir, f. 28.5.1896, d. 27.2.1954, húsmóðir. Þóra var dóttir Sigurðar, for- manns í Bolungarvík, Árnasonar, b. á Hóli í Bolungarvík, Jónssonar, b. og hreppstjóra á Hóli, Guðmunds- sonar, b. í Minnihlíð, Ásgrímssonar, b. í Arnardal, Bárðarsonar, b. í Arn- ardal og ættföður Arnardalsættar- innar, Illugasonar. Móðir Þóru var Ingibjörg Kristín Rósinkransdóttir, b. í Miðdal, Jóns- sonar, og konu hans, Þóru Hall- grímsdóttur, b. á Kroppsstöðum í Skálavík, Svarthöfðasonar, b. á Garðsstöðum, Hallgrímssonar, Jónssonar, bróður Ólafs, lögsagnara á Eyri, ættföður Eyrarættarinnar, Sigurður Hjartarson. langafa Jóns forseta. Móðir Þóru var Margrét Jónsdóttir, á Laugar- bóli, Tómassonar, og konu hans, Þóru Jónsdóttur, b. á Laugarbóli, Bárðarsonar, bróður Ásgríms í Arn- ardal. Sigurður og kona hans taka á móti gestum að heimili sínu á af- mælisdaginn milli klukkan 17 og 19. Hafdís og Hulda Magn- úsdætur Tvíburasysturnar Hafdís Auður Magnúsdóttir, Kveldúlfsgötu 20, Borgarnesi, áður aö Laugalandi í Stafholtstungum, og Hulda Maggý Magnúsdóttir, að Mávahlíð í Fróð- árhreppi á Snæfellsnesi, eru fertug- arídag. Þær verða staddar í Borgarnesi á afmælisdaginn. Hafdis og Hulda Magnúsdætur Leiðréttingar í afmælisgrein sem birtist í blað- inu 28.4. sl. um Sigurð Ásgeirsson, bónda á Reykjum í Lundarreykjad- al, slæddust inn villur sem hér með eruleiðréttar. 1. Bróðir Sigurðar, Björn Ásgeirs- son, var sagður látinn 6.2.1980 en hið rétta er að hann lést 7.2.1989. 2. Sonur Oddnýjar, húsfreyju í Stóra-Botni í Hvalfirði, var Jón Helgason, ritstjóri Tímans og lands- kunnur rithöfundur, ekki Jón Helgason, prófessor frá Rauösgih. 3. Efstabæjarætt er kennd við Sig- urð Vigfússon, b. í Efstabæ, og konu hans, Hildi Jónsdóttur, en ekki Jón Símonarson, b. í Efstabæ, fóður Hildar. Sigurður er beðinn velvirðingar á þessum rangfærslum. Kristín Ingvarsdóttir Kristín Ingvarsdóttir húsmóðir, Jöldugróf 20, Reykjavík, er sjötug í dag. Kristín fæddist að Breiðabólstað á Fellsströnd. Hún verður aö heiman áafmælisdaginn. Kristín Ingvarsdóttir. í afmælisgrein um Þorgerði Þor- gilsdóttur níræða, 5.5. sl., féllu orð úr texta þar sem fjallað var um af- komendur Sveins Sveinssonar í Ási. Þar stendur því ranglega: „Systir Sveins var Sigríður, móðir Sigríðar Björnsdótturmyndlistarkonu...“ Textin er hins vegar réttur svona: Systir Sveins var Sigríður, hús- freyja á Flögu, móðir Guðríðar, móður Sigríðar Björnsdóttur mynd- listarkonu. Sigríður á Flögu var einnig móðir Ágústu, móður Matt- hildar Ólafsdóttur, konu Ágústs Valfells. Hlutaðeigendur eru beönir vel- virðingar á þessum mistökum. 90 ára Guðbjörg Torfadóttir, Heiöarbraut 12, ísafirði. 85 ára Bjarni Gíslason, Jaðri, Borgarhafnarhreppi. 80ára Kristján Jónasson, Sörlaskjóli 86, Reykjavík. 70ára Kristín Ingvarsdóttir, Jöldugróf 20, Reykjavík. Friðrik Jónsson, Hrísteigi 37, Reykjavík. 60 ára Þorvarður Helgason, Lundarbrekku 8, Kópavogi. Gunnar Hahdórsson, Baughóh 32, Húsavík. 50ára Hafsteinn Sigurðsson, Höfðavegi35, Vestmannaeyjum. Sigfús Guðmundsson, Þiljuvöllum 6, Neskaupstað. Sævar Sigurðsson, Hjarðarholti 6, Selfossi. Matthildur Valtýsdóttir, Álftamýri 38, Reýkjavík. Álfbeiður Bjarnadóttir, Vífilsgötul5, Reykjavík. 40 ára Jóhann Ólafur Þórðai-son, Sunnuhlíð 3, Akureyri. Jónína Jónsdóttir, Víöihlíð 1, Sauðárkróki. Björn Gústafsson, Klapparbergi 25, Reykjavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.